Morgunblaðið - 18.11.1978, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 18.11.1978, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 18. NÓVEMBER 1978 21 Lundúnaborg í jólabúningi. Myndin er tekin fyrir skömmu á hinni miklu verzlunargötu, Regent Street. Verkföll í Portúgal Lissabon, 17. nóv. AP. Reuter. EFNT var til víðtækra skyndiverkfalla þriðja daginn í röð í Portúgal í dag, og virðist samstaða ríkja um þessar aðgerðir sem gerðar eru til að leggja áherzlu á launakröf- ur hinna ýmsu starfsstétta. Verkföllin hófust á miðvikudag þegar um 60.000 námamenn, póst- menn og járnbrautastarfsmenn lögðu niður vinnu í 24 klukku- stundir. Á fimmtudag lögðu rúmlega 300.000 starfsmenn almannatryggingakerfisins og í vefnaðariðnaði niður vinnu í sólarhring, og um 200.000 starfs- menn í málmiðnaði bættust í hópinn í dag. Ennfremur lögðu um 30.000 starfsmenn brauðgerða niður vinnu í dag, og er því allt útlit fyrir að Portúgalir verði brauðlausir um helgina. Aðgerðir verkfallsmanna hafa verið friðsamlegar ef undan eru skildir smávægilegir árekstrar lögreglu og verkfallsmanna í Oporto í gær. Veður víða um heim Akureyri 3 snjókoma Amsterdam 10 skýjað AÞena 20 heiðskírt Berlín 7 skýjað Brilssel 12 skýjað Chicago S rigning Frankturt 12 skýjað Gent 4 heiðskírt Helsinki 4 heiðskírt Jóhannesarb. 21 sólskin Kaupm.höfn 9 skýjað Lissabon 17 sól8kin London 13 heiðskírt Los Angeles 20 heiðskfrt Madríd 12 heiðskírt Malaga 19 léttskýjað Miami 27 skýjað Moskva S heiðskírt New York 9 rigning Osló 6 heiöskírt Palma, Maliorca 19 léttskýjað París 12 sólskin Reykjavík 1 él Róm 10 heiðskírt Stokkhólmur 5 skýjaö Tel Aviv 19 heiöskírt Tokyó 13 rigning Vancouver 8 skýjað Vínarborg 1 skýjað Gerðardómur í áfengisdeilu Frá fréttaritara Mbl. í Ösló í gær. „ÞETTA er niðurlægjandi lyrir þjóðina,"* segir Arbeiderbladet um íerðir Norðmanna þessa dagana til Svíþjóðar til þess að kaupa kjöt og áfengi. Svíar geta boðið nauta-, uxa- og svínakjöt á miklu lægra verði en fæst í Noregi og vegna vínþurrðar- innar í Noregi hefur áfengissala Svía í bæjunum meðfram landa- mærunum aukizt um 170%. Hins vegar hillir nú undir lausn verkfalls starfsmanna norsku áfengisverzlunarinnar og líkur benda til þess að norska ríkis- stjórnin muni á morgun, föstudag, samþykkja skipun gerðardóms í Rússar hafa reynt nifteíndasprengju Moskvu, 17. nóvember. AP. LEONID Brezhnev, forseti Sovét- ríkjanna, skýrði frá því í fyrsta skipti í dag á fundi með banda- rískum öldungadeildarmönnum að Rússar hefðu gert tilraun með nifteindasprengju en sagði að þeir hefðu aldrei hafið fram- ieiðslu á henni. Aðstoðarmaður eins þing- mannsins skrifaði niður orð for- setans og staðfesti þar með frásögn Thomas F. Eagletons öldungadeildarmanns um klukku- stundar fund forsetans og 12 öldungadeildarmanna. Rússar hafa áður sagt að þeir gætu smíðað nifteindasprengju en þetta er í fyrsta skipti sem frá því hefur verið skýrt að sprengjan hafi verið reynd í Sovétríkjunum. Samkvæmt því sem aðstoðar- maður þingmannsins skrifaði nið- úr sagði Brezhnev að hann vildi gjarnan hitta Jimmy Carter for- seta að máli, „en við ættum að gera það þegar grundvöllur er fyrir nýju samkomulagi, sem við getum undirritað. Ef ekki mund- um við hittast, tala og skilja." Brezhnev lýsti einnig fyrirJacob Javits öldungadeildarmanni „djúpstæðum tilfinninguni" sínum um frið og Salt-samning sem bæði Rússar og Bandaríkjamenn ættu að stefna að. Hann vitnaði í þau orð Carters á blaðamannafundi að dregið hefði úr spennunni í sambúðinni við Rússa og sagði: „Eg er sammála því.“ Valdatöku hersins krafizt í Madrid Madrid, 17. nóvember. AP. NÝ ALDA óeirða og verkfalla lamaði athafnalíf í Baskahéruðum NorðurSpánar í dag og reiðir hægrimenn skoruðu á herinn að taka völdin f sfnar hendur. Vinstrisinnuð verkalýðsfélög og vinstrisinnar sökuðu lögregluna um að hafa drepið og sært saklausa vegfarendur í baráttu sinni fyrir útrýmingu aðskilnaðarstefnu Baska og lokuðu verksmiðjum, bönkum og verzlunum. Lögreglan beitti gegn þeim reyksprengjum og gúmmíkúl- Spenna jókst bæði í Madrid og í Baskahéruðunum þegar aðskilnaðar- hreyfing Baska, ETA, tilkynntu að þeir hefðu ráðið af dögum dómara sem heldur tryggð við Franco, einum sólarhring áður á götu í Madrid og þar með framfylgt „réttlæti bylt- ingarinnar". Þrjú þúsund hægrimenn hvöttu herinn til þess að steypa Adolfo Suarez forsætisráðherra við útför dómarans og hrópuðu nafn Francos. „Franco, Franco, Franco." í fram- haldi af útförinni munu Franco-sinnar halda fjöldafund í Madrid á sunnudag til að minnast andláts Francos fyrir þremur árum. I San Sebastian barðist lögregla við 1.000 vinstrimenn eftir götumót- mæli 12.000 vinstrisinna í tólf Baskaborgum gegn drápi 54 ára gamallar konu og árás lögreglu á þrjá vegfarendur sem særðust. Mótmælaverkföll í Guipuzcoa-héraði voru nær 100% árangursrík að sögn lögreglunnar. Tvær útvarpsstöðvar hættu út- sendingum og eitt dagblað hætti útgáfu. Ríkisútvarpið í San Sebasti- an rauf venjulega útsendingu og iék sígilda tónlist. málinu þannig að verkfallsmenn verða nauðugir viljugir að sam- þykkja þann launataxta sem nefndin ákveður. En á meðan aka á hverjum degi milli 50 og 100 rútubílar og miklu fleiri einkabílar yfir landamærin til Svíþjóðar troðfullir af Norð- mönnum sem vilja ódýrt kjöt og eru aðframkomnir af brennivíns- leysi. Heimastjórn fyrir Grænland samþykkt Kaupmannahöfn, 17. nóvember . AP DANSKA þingið samþykkti í dag lög sem veita Grænlandi heimastjórn 1. maí á næsta ári — svo framarlega sem 40.000 íbúar þessarar stærstu eyjar heims greiða atkvæði með því í þjóðaratkvæðagreiðslu snemma í janúar. Dagskrá grænlenzka út- varpsins var strax rofin til að segja frá fréttinni að sögn fréttaritara Mbl. í Julianeháb, Henrik Lund. Upplýsingaher- ferð fer nú fram í útvarpi og blöðum um heimastjórnina, segir hann, og verður aukin á næstunni. I svipinn vilja Græn- lendingar almennt heimastjórn en einnig er að finna efasemdar- menn og andstæðinga, segir hann enn fremur. Fulltrúar landstjórnar Græn- lands fylgdust með hinni sögu- legu atkvæðagreiðslu danska þingsins og samþykkt var með 124 atkvæðum gegn 24 að binda enda á 250 ára nýlendustjórn Dana. Einu andstæðingar heima- stjórnarinnar voru þingmenn lengst til hægri og vinstri, en í frumvarpinu er gert ráð fyrir að ríkisstjórn Dana og væntanleg heimastjórn Grænlendinga taki í sameiningu ákvarðanir um nýtingu málma, olíu og annarra náttúruauðlinda. Framfaraflokkur Mogens Glistrups vildi ekki veita fáum íbúum Grænlands „sérstök for- réttindi" sem flokkurinn sagði að aðrar danskar eyjar eins og Borgundarhólmur sem Glistrup er ættaður frá gætu alveg eins krafizt. Smáflokkar vinstri- sósíalista kröfðust þess að Grænlendingar fengju sjálfir umráðarétt yfir náttúruauðlind- um sínum. En mikill meirihluti þing- manna óskaði Grænlendingum velfarnaðar með fyrirkomulag sem svipar til heimastjórnar þeirrar sem Færeyingar hafa haft í 30 ár. Samþykkt frum- varpsins bindur enda á sex ára undirbúningsstarf og oft heitar umræður Dana og Græn- lendinga. En runnið hafa tvær grímur á marga Grænlendinga í sam- bandi við heimastjórnina eftir því sem hún hefur færzt nær, þótt yfirleitt sé talið að hún verði samþykkt. Jörgen Fleischer, ritstjóri eina raunverulega fréttabíaðs- ins, sem fyrstur manna vakti máls á heimastjórnarhugmynd- inni upp úr 1970, varaði við því í vikunni að Grænlendingar væru ekki undir heimastjórn búnir. Grænlandsdeild AA-samtak- anna hvetur eindregið til þess að heimastjórninni verði frestað þar til Grænlendingar hafi sigrazt á áfengisvanda sínum. Inuit-flokkurinn, sem er lítill en athafnasamur, vill ekki heimastjórn þar sem Græn- lendingar fái ekki umráðarétt yfir náttúruauðlindum sínum, ekki rétt tii að segja sig úr Efnahagsbandalaginu og ekki fyrirheit um fullt sjálfstæði í fyrirsjáanlegri framtíð. Þetta gerðist 18. nóvember ERLENT 1976 — 27 teknir af lífi í Eþiópíu fyrir meint samsæri. 1970 — Kínverjar skipa sendiherra í Moskvu — 31 árs fjandskap lýkur með stjórn- málasambandi Vestur-Þjóð- verja og Pólverja. 1%2 — Frakkar tryggja De Gaulle hreinan meirihluta í þingkosningum. 1942 — Arás fallhlífaher- manna Bandamanna í Túnis. 1937 — Fasistasamsæri i afhjúpað í París. 1936 — Þjóðverjar og ítalir viðurkenna stjórn Francos. 1935 — Gripið til efnahags- legra refsiaðgerða gegn ítölum. 1903 — Bandaríkin semja við Panama um lagningu Panama- skurðar 1830 — Þjóðþing í Belgíu lýs- ir yfir sjálfstæði. 1666 — Frakkar taka Antigua, Vestur-Indíum, af Bretum — Skotar sigraðir í orrustunni í Pentland-hæðum. 1626 — Péturskirkjan í Róm vígð. Innlenti Sjómannafélagið Báran stofnað 1894 — Bar- daginn í Suðurgötu (Viðureign fylgismanna Olafs Friðriks- sonar og lögreglu) 1921— D. Hannes Finsen Stiftamtmaður 1892 — Matthías Jochumsson 1920 — Guðmundur Magnússon skáld 1918 — Dr. Björn Bjarna- son frá Viðfirði 1918 — Annað ráðuneyti Hermanns Jónas- sonar 1941 — ASÍ endurskipu- lagt 1940 — F. Páll Zóphónías- son 1886 — Svavar Guðnason 1909. Orð dagsinsi Ekkert er eins raunaleg sjón og ungur böl- sýnismáður nema gamall bjart- sýnismaður — Mark Twain, bandarískur húmoristi (1835-1910). Veiðibanní Eystrasalti Kaupmannahofn. 17. nóv. Reuter. DÖNSK yfirvöld tilkynntu í dag bann við þorskveiðum í Eystrasalti og kemur það í beinu framhaldi af þorskveiði- banninu í Norðursjó í ágúst s.l. Danskir fiskveiðimenn hafa nú einungis leyfi til að veiða þorsk í Kattegat og Skagerak, milli Dan- merkur, Svíþjóðar og Noregs. Talið er að bannið muni valda verulegum verðhækkunum á þorski á næstu mánuðum og aé ekki verði hægt að anna eftir- spurn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.