Morgunblaðið - 18.11.1978, Page 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 18. NÓVEMBER 1978
A.G. Irbe er landflótta lett-
neskur rithöfundur sem nú er
búsettur í Svíbjóð. Hann hefur
Þýtt íslenska'höfunda og lagt
kapp á að kynna bókmenntir
okkar. Hann samdi meöfylgj-
andi grein og sendi Morgun-
blaðinu til birtingar í tilefni af
pví aö sextíu ár eru líðin í dag
síðan lettneska pjóðin lýsti sig
sjálfstætt lýðveldi.
rækilega á þá staðreynd, að
sjálfstæði þessa lands byggð-
ist alls ekki á neinum fljót-
færnislegum byltingarað-
gerðum, enda þótt sjálfstæð-
isyfirlýsingin ætti rætur sín-
ar að rekja til all snöggrar
stefnubreytingar í hinni hefð-
bundu og löngu sjálfstæðis-
baráttu Letta. Yfirlýsing
Lettlands um að landið væri
sjálfstætt og fullvalda ríki
byg^ðist á lýðræðislegri
ákvörðun þjóðarinnar sjálfr-
ar. en að þeirri ákvörðun
stóðu 8 lettneskir stjórn-
málafiokkar. auk stjórnskip-
aðs landshöfðingja.
Fulltrúum hinna ýmsu þjóða-
brota innan lettnesku landa-
mæranna var auk þess gefinn
kostur á að segja sitt álit.
í þau 22 ár, sem Lettland
var sjálfstætt ríki, þ.e. frá
1918 til 1940, urðu miklar
framfarir í landinu, bæði á
sviði menningarmála, efna-
hagslífs og þjóðfélagsmálum í
heild. Ýmsir vankantar komu
þó einnig greinilega í ljós á
stjórnskipun Lettlands, og
það sérstaklega með nýjum
mjög frjálslyndum kosninga-
lögum, sem áttu að hafa það
markmið að efla til muna
lýðræðið í landinu. Afleiðing
þessara kosningalaga varð
A. G. Irbe;
60 ár frá sjálf-
stæðisyfirlýs-
ingu Lettlands
Ef Hitler hefði á fjórða
áratugnum notað þá miklu
hylli, sem hann tvímælalaust
naut með þýzku þjóðinni, til
þess að styrkja lýðræðið í
Þýzkalandi og finna friðsam-
lega lausn á vandamálum
þjóðarinnar, þá væri það afar
líklegt að vestrænir blaða-
menn væru nú staddir í
höfuðborginni Ríga til þess að
taka þátt í hátíðahöldum í
tilefni 60 ára afmælis sjálf-
stæðisyfirlýsingar Lettlands.
Sú staðreynd, að þessu er
ekki þannig farið, á rætur
sínar að rekja til þess, að
Jósef V. Stalín var bæði
aðdáandi og stuðningsmaður
Hitlers. Báðir voru þeir jafn
fúsir að beita hvor annan
brögðum í einu og öllu, en það
komst samt á samkomulag
milli þeirra, og þetta sam-
komulag var meðal annars
gert á kostnað baltnesku
ríkjanna. Enn þann dag í dag
halda arftakar Stalins loforð-
ið við der Fiihrer: Eystra-
saltslöndin lúta Sovétríkjun-
um.
Aftur á móti getur enginn
komið í veg fyrir, að íslenzk
dagblöð minna lesendur sína
á, að hinh 18. nóvember 1978
var Lettland lýst sjálfstætt
lýðveldi, sem mundi lúta
lýðræðislegri þingbundinni
stjórn. Nokkrum árum síðar
höfðu þjóðkjörnir þingmenn
Lettlands samið ríkinu nýja
stjórnarskrá með lýðræðis-
legum stjórnskipunarlögum.
I sambandi við sjálfa sjálf-
stæðisyfirlýsingu Letta 1918,
hefur sjaldan — ef nokkurn
tíma — verið bent nægilega
hins vegar ríkisstjórn, sem
ekki studdist lengur við
stjórnarskrá lýðveldisins
Lettlands. Lettneska þjóð-
þingið sjálft hélt aftur á móti
lög og reglur lýðræðisins í
fullum heiðri, og það lengur
heldur en í nokkru öðru ríki í
Austur-Evrópu, að Finnlandi
og Tékkóslóvakíu undanskild-
um.
Vorið 1940 bundu Sovét-
menn endi á sjálfstæði Lett-
lands. En í öllum þeim
þvingunaraðgerðum, sem
Lettar voru beittir, varð
Sovétmönnum þó á ein afger-
andi mistök: Samkvæmt orða-
Iagi sjálfrar stjórnarskrár
Lýðveldisins Lettlands hefur
allt fram á þennan dag
aldrei verið hundinn form-
legur endi á sjálfstæði lands-
insi Samkvæmt stjórnar
skránni er aðeins hægt að
breyta stöðu Lcttlands sem
fullvalda ríkis með
ákvörðun, sem tekin er við
þjóðaratkvæðagreiðslu. Slík
þjóðaratkvæðagreiðsla hefur
aldrei átt sér stað í Lettlandi.
Og enginn varð heldur var
við þá lettnesku þjóðbyltingu,
sem vissir aðilar hafa haldiö
fram að átt hafi sér stað í
Lettlandi árið 1940. Aftur á
móti urðu Lettar árið 1940
mjög áþreifanlega varir við
stríðsvagna og hergögn stór-
veldisins Sovétríkjanna sem
hið áhrifamikla vald í land-
inu. Það er einmitt þetta vald,
sem stjórnar Lettlandi enn
þann dag í dag.
Þessa valdbeitingu er ekki
unnt að viðurkenna sem rétt-
mæta.
„Grínsaga fyrir
alla aldurshópa”
— segir Bjöm Hinriksson, höfundur nýju
teiknimyndasögunnar „Sagan af S-15”
„SAGAN af S-15" nefnist ný
teiknimyndasaga sem hefur
göngu sína í Mbl. í dag.
Höfundur sögunnar er 15 ára
gamall nemi í Réttarholts-
skóla. Björn Ilinriksson.
„Ég hef fiktað við að teikna i
lVi—2 ár en aldrei orðið neitt
úr því fyrr en núna, ég á
kannski eftir að ljúka við þær
sögur sem ég hef byrjað á
einhvern tíma seinna.
„Sagan af S-15" er grínsaga í
stíl við frönsku teiknimynda-
sagnanna um Tinna og Astrík.
Hún segir frá vélmenni nokkru
og prófessor sem býr það til.
Strákur einn hittir vélmennið
en síðan upphefst mikil barátta
um að ná í þetta vélmenni og
blandast ýmsir aðilar inn í
málið."
Aðspurður um það hvernig
þessi saga hefði orðið til sagðist
Björn fyrst hafa fengið hug-
myndina að henni í sumar.
„Fyrst skrifaði ég niður efnis-
þráðinn en síðan hefur sagan
orðið til jafnóðum og ég teikna.
Fyrst teikna ég með blýanti en
Björn Hinriksson höfundur
„Sögunnar af S-15".
síðan fer ég ofan í strikin með
penna. Það tekur mig u.þ.b. 4—5
tíma að gera hverja blaðsíðu. Eg
byrjaði á sögunni í ágúst og
ætlaði að klára hana þá en það
varð ekki úr. Ég veit ekki sjálfur
hvað gerist næst á eftir því sem
ég er þegar búinn að teikna, um
% af sögunni, og ég veit ekki
heldur hvernig hún endar, ekki
ennþá.
Björn sagði að þessi tóm-
stundavinna sín tæki engan
tíma frá skólanum.
„Ég teikna 1 blaðsíðu á viku
en gæti teiknað allt að 3 á viku
án þess að taka tíma frá
skólanum.
Áhuga fólks á teiknimynda-
sögum kvað Björn vera þó
nokkurn.
„Ég held að það séu mjög
margir sem hafa áhuga á þeim.
Allavega höfum við 4 höfundar
komist að með sögur okkar í
blöðin nú undanfarið og það
sýnir að það hafa nokkrir líka
áhuga á að teikna þær.
Björn sagði að þegar hann
byrjaði að teikna hefði það
aðeins verið eitthvert fikt.
„En það fór batnandi. Ég hef
áhuga á að halda áfram að
teikna sögur og ég vona að
„Sagan af S-15“ eigi eftir að
falla almenningi vel í geð. Ég
samdi hana ekki fyrir neinn
sérstakan aldurshóp og ég held
að hún sé fyrir alla, jafnt unga
sem aldna.
Basar Rauða
kross kvenna
Þessir munir, sem kvenna-
deild Rauða krossins verður
með á basar sínum í Fóst-
bræðraheimilinu á sunnudag,
voru til sýnis í glugga Sport-
vals. Eins og sjá má eru
þarna margvíslegir föndur-
munir og kökur. En basarinn
hefst kl. 2 e.h. Ágóðinn
rennur óskiptur til bóka-
kaupa í sjúklingabókasöfn
þau, sem kvennadeildin sér
um í sjúkrahúsum.
Ljósm. Kristján.
Fríkirk jan í Reykjavík
heldur þakkarhátíð
Blaðinu hefur borizt eftirfarandi
frá Fríkirkjunni í Reykjavíki
Stofndagur Fríkirkjunnar í
Reykjavík var 19. nóv. 1899. Nú í ár
ber því afmæli kirkjunnar upp á
sunnudag. Verður afmælisins
minnst í sérstakri guðsþjónustu, sem
fram fer í kirkjunni á morgun.
í stað þess að kalla þetta afmæli
kirkjudag eins og víðast er venja,
hefur safnaðarstjórnin ákveðið að
kalla þetta þakkarhátíð. Með því vill
hún leggja áherslu á, að Guði einum
ber fyrst og fremst að þakka, þegar
horft er um öxl. Guð hefur gefið
trúna, viljann og máttinn, sem
einkennt hefur safnaðarstarfið á
umliðnum áratugum. Handleiðslu
Guðs hefur söfnuðurinn notið í
ríkum mæli, og því hefur starfið í
kirkjunni borið góðan ávöxt. Mun
þakkarhátxð af þessu tagi verða
haldin í Fríkirkjunni árlega héðan í
frá á afmæli kirkjunnar eða þeim
sunnudegi, sem næstur er 19. nóv.
hverju sinni. Víða um lönd eru
þakkarhátíðÍF árlegur viðburður á
svipuðum árstíma. Væri það gott, ef
slík siðvenja myndaðist hér á
Islandi, því ekki hafa íslendingar
fyrir minna að þakka en aðrar
þjóðir.
Messan á morgun verður á venju-
legum messutíma Fríkirkjunnar kl.
2. Verður hún með sérstöku sniði.
Organisti kirkjunnar, Sigurður
ísólfsson, mun leika á orgelið og
Fríkirkjukórinn syngur. Einsöngvari
í messunni verður Hjálmar
Kjartansson. Safnaðarpresturinn,
séra Kristján Róbertsson, með leiða
guðsþjónustuna og prédika. Hér er
tækifæri fyrir Fríkirkjufólk að sýna
áhuga sinn og samstöðu um málefni
kirkjunnar. Allir Reykvíkingar, sem
myndu vilja taka þátt í þessari
þakkarhátíð, eru velkomnir í hið
fagra og virðulega musteri við
Tjörnina — í hjarta Reykjavíkur.
Þá er ástæða til að minna alla
velunnara Fríkirkjunnar á basar,
sem Kvenfélag Fríkirkjunnar heldur
á mánudaginn 20. nóv. til styrktar
starfsemi sinni. Basarinn verður í
Iðnó uppi og hefst kl. 2 e.h. Verður
þar margt á boðstólum og mikil
fjölbreytni eins og venja er til.
f