Morgunblaðið - 18.11.1978, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 18. NÓVEMBER 1978 1 3
María Skagan:
sTas.
sem var uppi á 2. öld eftir Krist,
mælir með pillum, sem eru
lagaðar úr bjarnarfitu og villt-
um rósum, sem ágætu lyfi gegn
rólyndi, sem kemur órólegum
nútímamanni dálítið spánskt
fyrir sjónir. Frá hinni fornu
Rómaborg eru til pilluöskjur,
sem rekja má til taberna, en það
var heiti á 'hinni rómversku
lyfjabúð.
Aðeins skal nefnd ein pillu-
tegund, sem var mjög mikið
notuð á miðöldum og í byrjun
nýju aldar, en það er Pilula
perpetua, eilífðarpilla. Hún var
úr málminum antímón, sem var
bræddur og formaður í kúlur.
Slíkar pillur höfðu þann ágæta
eiginleika, að hægt var að nota
þær oftar en einu sinni og þær
voru þess vegna nokkurs konar
ættargripir. t merkri lyfjabók
frá lokum 17. aldar er sagt, að
eilífðarpillan verki laxerandi
„vegna þess, að þegar hún er
gleypt ýtir hún á og hreinsar á
leiðinni niður og út vegna
þyngdar sinnar. Síðan er hún
þvegin og gefin aftur eins og
fyrr og þannig að eilífu".
Þegar lyfjaiðnaðurinn vél-
væddist í lok síðustu og byrjun
þessarar aldar, voru framleidd-
ar sérstakar pilluvélar, en af-
köst þeirra voru ekki meiri en
um það bil 300.000 pillur á
sólarhring, sem eru tiltölulega
lítil afköst miðað við töfluvélar.
Dæmi: Pilulae A-D-vitamini
(A-D-vítamínpillur).
Stflar, þarfagangsstílar,
endaþarmssstílar hafa að
geyma lyf í skömmtuðu magni
og eru ætlaðir til þess að setja í
endaþarm. Suppositorius, sem
latneska heiti lyfjaformsins,
suppositoria, er dregið af, merk-
ir að setja neðan frá eða upp.
Stílar eru eitt af elztu lyfja-
formunum. Elztu heimildir um
þá er að finna á assýrískum
leirtöflum og síðar eru stílar
gerðir að umtalsefni bæði hjá
Hippokrates og Dioskorídes, en
hann var einn hinna frægu
grísku lækna, sem störfuðu í
Rómaborg á 1. öld eftir Krist.
Hann þjónaði meðal annars í
herjum Nerós keisara.
Stílar eiga að hafa stað-
bundna eða almenna verkun
eftir að þeim hefur verið komið
fyrir í endaþarmi. Af þeim
stílum, sem eiga að hafa stað-
bundna verkun, má nefna
gyllinistíla (gyllinæðastíla) og
laxerandi stíla, en lyf í stíla-
formi, sem eiga að hafa almenna
verkun eru til dæmis sterk
verkjadeyfandi lyf, hjarta-
glykósíðar, hormónar, teófýlla-
mín og ýmis svefnlyf og væg
verkjadeyfandi lyf handa börn-
un.
Dæmi: Supposiíoria bijogali
(g>’llinistílar) og Suppositoria
morphini 20 mg (morfínstílar).
Skeiðarstflar burðar-
vegsstílar hafa að geyma lyf í
skömmtuðu magni og eru ætlað-
ir til þess að setja í skeið
(leggöng). Latneska nafnið er
samsett úr orðunum vagina =
skeið og suppositoria og er hér
enn eitt dæmi um nafn lyfja-
forms vegna sérstakrar notkun-
ar. Skeiðarstílum er langoftast
ætlað að hafa staðbundna verk-
un í skeið. Á ensku eru skeiðar-
stílar oft kallaðir „vaginal
suppositories“, en sjaldnar
„pessaries". Venjuleg lyf, sem
látin eru í skeiðarstíla eru því
sóttvarnarefni, getnaðarvarnar-
efni, staðdeyfilyf og ýmis lyf,
sem notuð eru gegn smitun með
frumdýrum, örverum eða svepp-
um í skeið. Skeiðarstílar eiga að
vera keilulaga eða kúftir og
íhvolfir, en aldrei með slétta eða
tvíkúfta fleti eins og töflur.
Dæmi: Vagitoria nitrofura-
zoni (nítrófúrazónskeiðarstílar).
Dropar, guttae, eru fljót-
andi Tyfjaform til inntöku,
venjulega ætlaðir til þess að
skammtast í dropatali. Þetta er
lyfjaform, þar sem skömmtun er
færð á hendur notanda eða
forsvarsmanns hans. Algengt er
að gefa börnum A- og D-vítamín
í þessu formi. Það hefur þann
kost, að hægt er að vítamínbæta
fæðu korna- og ungbarna með
þessu formi, þar sem ekki væri
hægt að nota pillur eða töflur.
Einnig er hægt að gefa korna-
börnum lyf gegn magakrömpum
í dropaformi. Þegar dropar eru
skammtaðir, ber að nota lyfja-
glös með vör eða svokallaðan
normaldropateljara, en það er
hringlaga, „massíf" glerstöng og
hefur hún slípaðan dreypiflöt,
sem er hornréttur við lengdar-
ásinn. Á þennan hátt verður
skömmtun nægilega nákvæm.
Dæmi: Guttae A-D-vitamini
(A-D-vítamíndropar).
Fvrir utan gluggann minn hér
að Hátúni 12, Sjálfsbjargarhúsinu,
blasir við steyptur grunnur —
vísir að sund- og æfingalaug, sem
átti að vera tilbúin fyrir mörgum
árum. Félagið Sjálfsbjörg, Lands-
samband fatlaðra, hefur unnið
stórátak með byggingu dvalar-
heimilisins, Sjálfsbjargarhúsinu
svokallaða, þar sem verst fatlaða
fólkið dvelur sumt á sjúkradeild-
inni, sem rúmar 45 manns, sumt í
nýju íbúðunum, er verið hafa í
byggingu í mörg ár og eru enn ekki
allar fullgerðar. Ennfremur er hér
æfingastöð með tveimur sjúkra-
þjálfurum og nokkrum raftækja-
búnaði til gigtlækninga. Allt er
þetta ómetanlega mikils virði og
ber að þakka af alhug. En hér sem
víðar skortir það sem mörgum er
mestra meina bót, nefnilega
áðurnefnd laug. Það er óhrekjan-
leg staðreynd að í þægilega heitu
vatni eru illa farnir sjúklingar
færir um að gera margvíslegar og
flóknar æfingar, sem þeir með
engu móti geta gjört á æfinga-
bekkjum, hversu færir sjúkra-
þjálfarar, sem hlut eiga að máli.
Danskur sjúkraþjálfari sagði eitt
sinn við mig: „Þið Islendingar
ættuð að geta haft hæfilega heita
laug og heitan pott við hvert
sjúkrahús á höfuðborgarsvæðinu.
Þið sem hafið hveravatnið og getið
hitað upp húsin.“ Skilningur
forráðamanna þjóðfélagsins er þó
ekki meiri en svo, að mokað var
María Skagan
ofan í gryfju á Landspítalalóðinni,
þar sem koma átti laug. Er hún
þar með úr sögunni. Loks þegar
ráðherrar höfðu legið á Grensás-
deild var samþykkt fjárveiting til
laugarbyggingar þar.
Hingað kemur mjög fatlað fólk
hvaðanæfa að, einnig af Grensás-
deild, til ævidvalar. Meðan stórfé
er eytt í fjarskiptastöðvar fyrir
sjónvarpsútsendingar erlendis frá
og annað álíka bruðl mega sár-
þjáðir og vanmegna sjúklingar hér
í Sjálfsbjargarhúsinu stara von-
litlum augum á þennan steypta
grunn, því okkur hefur verið sagt
af hjúkrunarfólki, að laugin komi
ekki fyrr en eftir 6—7 ár. Mér er
fullkunnugt, að forráðamenn
Sjálfsbjargar, það ágæta fólk,
hefur hug á að hefja byggingu
laugarinnar svo fljótt sem verða
má. En það er gamla sagan,
fjárskortur hamlar. Þetta er
þjóðarskömm. Á Reykjalundi og
Elliheimilinu Grund eru laugar til
mikillar heilsubótar vistmönnum
þar.
Hér er það mér og ótal öðrum
öryrkjum bein lífsnauðsyn að fá
laugina sem allra fyrst. Nýlega
gáfu vinahjón mín kr. 50.000 í sjóð
þann, sem tekur á móti framlögum
til laugarinnar. Mun sá sjóður lítt
kunnur og um leið og ég þakka
áðurnefndum hjónum af alhug
þessa rausnarlegu gjöf, langar mig
til að vekja athygli allra þeirra,
sem fjárráð hafa, bæði einstakl-
inga og félaga svo sem Kiwanis- og
Lionsklúbba, á þessu aðkallandi og
afdrifaríka máli. Ef margar hend-
ur leggjast á eitt má mikið
vinnast. Og þótt framlögin séu
smá, þá holar dropinn steininn.
Þið sem njótið þeirrar heilsubótar
að komast í Laugardalslaugina,
Vesturbæjarlaugina og aðrar laug-
ar — í nafni mannúðar og
jafnréttis, leggið okkur lið —
okkur sem mörg hver getum ekki
setið í bíl og ekkert komist.
María Skagan.
—P.S. Framlögum til sjóðsins er
veitt móttaka i skrifstofu Sjálfs-
bjargarhússins að Hátúni 12.
HÁÞRÝSTI-
VÖKVAKERFI
SérhæfÓ þjónusta.
Aóstoóum vió val
og uppsetningu
hvers konar
háþrýstibúnaóar.
Lokuð
vökvakerfi
= HÉÐINN =
VÉLAVERZLUN-SlMI: 24260
LAGER-SÉRFANTANIR-ÞJÓNUSTA
LítidHI
beggja
hlída
Med leiguf lugi til
LONDON
27. nóv. og 3. des.
LONDON býóur upp á flest allt sem hugurinn girnist
Hótel
Þú getur valió úr 3 hótelum, sem öll eru
staósett vió OXFORDSTREET, fræg-
ustu verslunargötu í London.
Skoóunarferóir
Skipulagóar skoöunarferóir í báóum
feróum-íslensk fararstjórn.
Knattspyrna
Af hverju ekki aó bregóa sérá völlinn
og sjá knattspyrnu eins og hún gerist
best? „
Fyrri feró:
Chelsea — Bristol City
Tottenham — Arsenal
Síóari feró:
Chelsea — Aston Villa
Tottenham — Ipswich
Skemmtanir
í London er skemmtanalífió ótrúlega fjöl-
breytt og allir sem þangað koma ættu
aó skreppa i leikhús.
Landbúnaðarsýning
Hin heimsfræga SMITHFIELD Jand-
búnaóarsýning stendur þeim til boóa
sem velja sióari feróina.
Hamvinnuferdir
AUSTURSTR/ETI 12-SIMI 27077
9 LANDSYN
AUSTURSTR/ETI 12-SIMI 27077