Morgunblaðið - 18.11.1978, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 18.11.1978, Qupperneq 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 18. NÓVEMBER 1978 Vilhjálmur Hjálmarsson, alþm,: íþróttakennaraskóli íslands þarfnast aðhlynningar og verðskuldar hana Menntun kennara er gildur þáttur í uppeldis- og fræðslumál- um þj'óðarinnar. Stofnun Kennaraháskóla Islands var þýð- ingarmikið spor á þróunarbraut kennaramenntunar í landinu. Löggjöf um Kennaraháskólann hefur verið endurskoðuð. Fullbúið stjórnarfrumvarp til nýrra laga var lagt fram á síðasta Alþingi. Þýðingarmesta nýjung þess var að fá skólanum í hendur forystu í uppeldisfræði og kennsluvísindum. Stofnunin ber vart háskólanafn með rentu nema takast þetta hlutverk á hendur. Kennaraháskólinn býr við mikið óhagræði vegna þrengsla. Hart- nær 20 ár eru nú síðan grafið var fyrir nýrri álmu, en við það hefur setið! A fjárlögum þessa árs var veitt fé til fyrstu framkvæmda. Fullnaðarhönnun hefur tafist nokkuð. Fjárveitingin var nýlega skorin niður að hluta. Fram- kvæmdir munu því vart hefjast fyrr en á næsta ári. En ætla verður, að fjárveiting fáist þá. Æfinga- og tilraunaskóli Kenn- araháskólans býr einnig þröngt, þarf aukið rými og betri búnað. — I»að er grundvallaratriði að búa sæmilega að kennaramenntun- inni. í Kennaraháskólanum eru höfuðstöðvar kennaramenntunar í landinu. Nokkrir aðrir skólar annast menntun kennara í sér- greinum, þar á meðal Iþróttakenn- araskóli íslands á Laugarvatni. Metaðsókn. — Mikill kennaraskortur Iþróttakennaraskólinn hóf störf 1932 sem einkaskóli Björns Jakobssonar fimleikakennara og þá með tveim nemendum. A grunni hans var Iþróttakennara- skóli Islands stofnaður með lögum 10 árum síðar og hóf störf sem slíkur í ársbyrjun 1943. í fyrstu starfaði íþróttakenn- araskólinn alveg í húsnæði héraðs- skólans. En fljótlega var hafist handa um byggingu íþróttahúss, sem tekið var í notkun 1944. Það er notað enn fyrir íþróttakennaraskólann og alla aðra skóla þar á staðnum. íbúð fyrir skólastjóra kom 1955. Næsta áratuginn bjuggu nemendur í kjallara hennar og í bráðabirgða- skemmu þar í túninu. En heima- vistarhús var tekið í notkun 1968. íþróttavellir hafa verið gerðir. En ennþá er litla sundlaugin, sem byggð var fyrir hálfri öld eini sundstaðurinn í skólabænum á Laugarvatni. Iþróttakennaraskóli Islands starfar í einni deild tvo vetur. Nemendur hafa lengi verið 32. En umsóknir um skólann hafa verið margfalt fleiri. Mikil vöntun er á íþróttakennurum. Eg fullyrði, að skólinn hefur getið sér gott orð og gæti ég rökstutt það ítarlega. I sumar var gerð gangskör að því að gera mögulegt að innrita fleiri nemendur en áður. Þetta tókst með samstarfi við aðra skóla á Laugarvatni og fyrirgreiðslu frá ráðuneytum mennta- og fjármála. Nemendur eru nú 48. Þörfin vex með „þrásetunni44 Þörfin fyrir aukna líkamsrækt og íþróttaiðkun fylgir aukinni vélvæðingu, kyrrsetu og innivist. Það er í rauninni ekki véfengt. Iþróttakennaraskóli Islands er eini skóli landsins, sem útskrifar íþróttakennara. Jafnframt undir- býr hann nemendur til forystu í félagsmálastörfum. I sumarhléi á íþróttasamband íslands innhlaup á staðnum. Skólinn útskrifar íþróttakennara fyrir skóla á öllum skólastigum. Hann starfar einnig i nánum tengslum við samtök íþróttamanna og ungmennafélaga. Mikilvægi Iþróttakennaraskóla Is- lands í samfélaginu verður ekki dregið í efa. Nokkur umræða hefur orðið í þá stefnu, að íþróttakennaraskólann á Laugarvatni skuli upp höggva og á brott flytja þar af staðnum. Mér sýnist þó flest mæla því í gegn. Skólinn var stofnaður á Laugar- vatni og hann hefur öðlast þar rótfestu. Laugarvatn er herlegur staður meö merka sögu og glæsi- lega framtíð. Dýrt yrði að byggja skólann upp á nýjum stað. Skólinn skipar virðulegan sess í skólabæn- um á Laugarvatni. Öll íþrótta- aðstaða sem þar er og verður byggð upp mun nýtast til fullnustu sumar og vetur. Því veldur allt í senn, lega hennar í skólabænum, tengslin við íþróttahreyfinguna og nálægð við mikið þéttbýlissvæði. Flutningur skólans virðist því fjarstæða, enda veit ég engan innan forystuliðs ungmennafélaga og íþróttasamtaka, né í hópi íþróttakennara í skólum, sem leggur þeirri hugsun lið. Mikið liggur við að búa skólanum sem fyrst skilyrði til að starfa og þróast eðlilega. Það mundi síst greiða leið að því marki að byrja frá grunni á nýjum stað. Svo fráleitt sem mér sýnist að flytja Iþróttakennaraskóla Islands frá Laugarvatni, þá tel ég jafn- sjálfsagt að. efla samstarf með Kennaraháskóla íslands og íþróttakennaraskóla Islands og svo öðrum kennaraskólum á sér- greinasviðum — og hef ekki um það fleiri orð. Viðurkenning Alþingis Á árunum 1971—1974 átti ég sæti í fjárveitinganefnd og í undirnefnd um skólabyggingar. Á þeim slóðum er hressilega minnt á þarfirnar! Síðan lá leið mín í menntamálaráðuneytið. Þar sann- færðist ég um, að í byggingarmál- um skóla hallaðist mest á verk- menntun, sérkennslu og menntun kennara. Var þó og er víða pottur brotinn eins og að líkum lætur hjá smáþjóð, sem hefur ekki einungis þurft að reisa skóla og öll önnur þjónustumannvirki frá grunni á Vilhjálmur Hjálmarsson einum mannsaldri, heldur einnig íbúðarhús fyrir allan mannskap- inn og byggja yfir kvikfénað sinn! Við gerð fjárlaga 1976 reyndi ég að fá upp teknar nýjar fjárveiting- ar til þessara þátta, en með engum árangri. Næsta ár tókst að koma inn fjárveitingu á fjárlögum til nýbyggingar við Kennaraháskól- ann og til hönnunar íþróttahúss og sundlaugar við íþróttakennara- skólann. Alþingi hafði sagt sitt orð. Það var mikilvæg viðurkenn- ing, en seint fengin. Æfinga- skólann þýddi ekki að nefna. Aftur var veitt fé í sama skyni á fjárlögum yfirstandandi árs. Nú er hönnun íþróttamannvirkjanna á lokastigi og yrði unnt að hefja framkvæmdir næsta ár, ef Alþingi sér sér fært að veita fé til þess. Sjálfsagðir hlutir Nú hefur það gerst, að aðgerðir, sem ég átti þátt í síöastliðið sumar, hafa orðið til þess að stofnkostnaðarfjárveiting til íþróttakennaraskólans er felld niður í frumvarpi til fjárlaga fyrir næsta ár. Er mér bæði rétt og skylt að skýra frá tildrögum. Eftir viðræður við skólanefnd og skólastjóra og forstöðumenn fleiri skóla á Laugarvatni ritaði menntamálaráðuneytið fjármála- ráðuneytinu 22. ágúst s.l. á þessa leið: „Á fjárlögum undanfarin ár og svo 1978 eru fjárveitingar til stofnkostnaðar við Iþróttakenn- araskóla Islands. Menntamála- ráðuneytið leitar hér með sam- þykkis fjármálaráðuneytisins til þess að ráðstafa því sem ónotað er af fjárveitingum þessum til eftir- talinna verkefna: 1. Að innrétta fyrir skólastofu uppsteypt húsnæði sem staðið hefir ónotað í Húsmæðraskóla Suðurlands og búa það nauðsyn- legum húsgögnum. 2. Að byggja áhaldageymslu við íþróttahúsið. 3. Að afla nauðsynlegra áhalda, sem ekki hefir verið unnt að kaupa vegna skorts á geymslurými. 4. Að kaupa ljósritunartæki og fleiri nauðsynleg kennslugögn. Um rökstuðning fyrir þessari beiðni vísast til ljósrits af bréfi íþróttakennaraskóla Islands, sem hér með fylgir. Vilhjálmur Hjálmarsson. Árni Gunnarsson. í nefndu bréfi frá Iþrótta- kennaraskólanum er gerð nánari grein fyrir þessum áformum og því markmiði að fjölga nemendum í allt að 50. Samtímis ræddi ég þetta mál við fjármálaráðherra, Matthías Á. Mathiesen, Þorstein Geirsson, sem þá gegndi störfum ráðuneytis- stjóra og við hagsýslustjóra Gísla Blöndal. Þeir tóku þessari mála- leitun ágætlega. Að þeim viðtölum loknum (28.8. 1978) gaf ég fyrir- mæli um, að undirbúa nefndar aðgerðir. Að rétta með kjaftshöggi Þann 31. ágúst barst svo form- legt svar frá fjármálaráðuneytinu, Fjárlaga- og hagsýslustofnun — en þá fylgdi böggull skammrifii „Vísað er til bréfs menntamála- ráðuneytisins dags. 22. ágúst s.l. varðandi breytta ráðstöfun á stofnkostnaðarfjárveitingu til Iþróttakennaraskóla Islands. Þetta ráðuneyti heimilar hér með að fjárveitingar til hönnunar nýrra mannvirkja við Iþrótta- kennaraskólann verði notaðar til þeirra verkefna sem tiltekin eru í bréfi ráðuneytisins eftir því sem fjármagnið endist. Með þessari ákvörðun falla niður fyrri heim- ildir um hönnun nýrra íþrótta- mannvirkja og mun ckki verða gert ráð fyrir fjárveitingu í þessu skyni í frumvarpi til fjárlaga fyrir árið 1979. F\h.r. Gísli Blöndal, Sigurður Haraldsson." Samstundis ritaði menntamála- ráðuneytið Fjárlaga- og hagsýslu- stofnun bréf á þessa leið: „Um leið og ráðuneytið þakkar skjóta og góða afgreiðslu á beiðni héðan um breytta ráðstöfun stofn- kostnaðarfjárveitingar íþrótta- kennaraskóla íslands, er vakin athygli á, að með engu móti má fella niður heimildir um hönnun nýrra íþróttamannvirkja og þarf áfram að gera ráð fyrir fé í fjárlagafrumvarpi 1979. Vilhjálmur Hjálmarsson, Birgir Thorlacius." Ákvörðun Alþingis stendur enn Þetta bréf menntamálaráðu; neytisins var að engu haft. í fjárlagafrumvarpi 1979 er ekki króna til stofnkostnaðar við íþróttakennaraskólann og í at- hugasemdum segir: „Heimilað hefur verið að nýta ónotaðar fjárveitingar, sem ætlað- ar voru til hönnunar nýrra bygg- inga við skólann til þess m.a. að innrétta skólastofur, sem staðið hafa ónotaðar í Húsmæðraskóla Suðurlands með það fyrir augum að unnt sé að fjölga nemendum við skólann. Með þessari heimild er felld niður fjárveiting til áfram- haldandi hönnunar mannvirkja vtö skólann 13 000 þús kr.“ Ég hygg, að núverandi ráðherr- ar fjármáía- og menntamála hafi ekki fengið tækifæri til að setja sig inn í þetta mál sérstaklega. Mér þykja þessar tiltektir fjár- málaráðuneytisins þannig vaxnar, að rétt sé og raunar óhjákvæmi- legt fyrir mig að skýra frá þeim opinberlega. Þann 14.12 1977 segir framsögu- maður fjárveitinganefndar í ræðu í sameinuðu Alþingi: „Til íþróttakennaraskóla ís- lands er lagt til, að liðurinn gjaldfærður stofnkostnaður hækki um 5 m. kr. og er sú upphæð ætluð til hönnunar á byggingafram- kvæmdum.“ í frumvarpi til fjarlaga 1978, bls. 192, segir um íþróttakennara- skóla íslands: „... Stofnkostnaður hækkar um 5.000 þús. kr. og verður 12.000 þús. kr., sem ætlað er til framhalds- hönnunar nýrra mannvirkja við skólann." Við þetta var enginn athuga- semd gerð á Alþingi og þessi liður fjárlaga 1979 samþykktur óbreytt- ur. Þannig hefur Alþingi tvívegis veitt fé til hönnunar nýrra mann- virkja við íþróttakennaraskólann að Laugarvatni. Ráðuneyti menntamála og fjármála sam- þykktu að verja hluta þessa fjár til að bæta úr neyðarástandi. Ekkert er óvenjulegt við þá ráðstöfun. Hitt virðist óeðlilegt í alla staði, að fjármálaráðuneytið geti látið „falla niður fyrri heimildir um hönnun nýrra íþróttamannvirkja" á Laugarvatni, þrátt fyrir hörð mótmæli menntamálaráðuneytis- ins og án þess að Alþingi hafi fjallað um málið á ný. Það mun og fremur óvenjulegt, að fjármála- ráðuneytið felli niður úr fjárlaga- frumvarpi fjárveitingu til fram- kvæmda, sem eru í undirbúningi og Alþingi hefur veitt fé til tvö ár i röð. Menntun kennara forgangsmál Nú virðast flestir nokkuð á eitt sáttir um það innan þings og utan að draga beri úr fjárfestingum, bæði hjá opinberum aðilum og einstaklingum. Ég viðurkenni þessa nauðsyn eins og nú standa sakir, en vil þó fremur halda til samfélagslegu framkvæmdanna svo sem fært þykir. Aðrir huga e.t.v. fremur að framkvæmdum einstaklinga. En hvað sem því líður, þá hljótum við ætíð — og ekki sízt nú að velja og hafna. Nú bið ég menn að athuga sinn gang. Vænti ég.þá að alþingismenn sem og" aðrir geti orðið mér sammála um það — í skólamálum — að gera menntun kennara nokkuð hátt undir höfði og stöðva ekki þær aðgerðir, sem undirbún- ar hafa verið og ætlað er að bæta úr sárri þörf Kennaraháskóla íslands og íþróttakennaraskólans á Laugarvatni sem hér hefir verið gerður að umtalsefni. Hann getur ekki án stórtjóns haldið áfram að deila notum af hálfrar aldar sundlaug og lítið eitt yngra íþróttahúsi með margfalt fleira fólki en þessi mannvirki voru gerð fyrir á sínum tíma. Vilhjálmur Hjálmarsson. Flóamarkaður Myndlista- og handíðaskóla íslands verður haldinn í húsakynnum skólans að Skipholti 1 í dag, laugardaginn 18. nóv„ og á morgun, sunnudaginn 19. nóvember. Þar verður að vanda margt góðra muna á boðstólum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.