Morgunblaðið - 18.11.1978, Síða 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 18. NÓVEMBER 1978
Ný framhaldssaga
ÖIl þekkjum við hlustunarpípu
læknisinsi 2 gúmíslöngur í eyrun
og í enda þeirra kaldur hlunkur.
sem settur cr á brjóstið, þegar
læknirinn ætlar að hlusta á
lungun. Fyrsta hlustunarpípan
var fundin upp i Frakklandi. og
átti franski læknirinn dr. René
Lannec heiðurinn af því árið
1816. Hann gerði fyrst tilraunir
með pappahólka. en notaði að
lokum 30—40 cm sívalning,
gerðan úr beyki-viði.
Fyrsta hlustunarpípan
TÖFRAR
© PIB
C0PINHA6IN
Höfundur
myndarinnar
er Stefán Karl,
Kleppsvegi 58.
Eins og sjá má, er
kennarinn hress í bragði og
líf og fjör í kennslunni. Við
vonum, að víðar sé þetta
svona en á teikningu
Stefáns Karls. Getið þið
kannski fleiri sent okkur
myndir úr skólalífinu hjá
ykkur, krakkar?
Þú sýnir áhorfendum
bláa blöðru og tilkynnir,
að með nokkrum vel völd-
um orðum munir þú geta
^"breytt henni í RAUÐA
blöðru. Samstundis stingur
þú nál í blöðruna — BANG
— og hún er orðin rauð.
Eins og gefur að skilja,
voru blöðrurnar tvær, önn-
ur blá, hin rauð. Undirbún-
ingur undir töfrabragðið
er sá, að rauðu blöðrunni
hefur verið stungið inn í þá
bláu áður en blásið var
upp. Þetta er auðveldast á
þann hátt að vefja upp
rauðu blöðrunni á langveg-
inn og „skrúfa“ hana inn í
þá bláu. Þær eru síðan
blásnar upp báðar til skipt-
is. Innri blaðran þarf að
vera aðeins minni en sú
ytri og báðum er lokað með
hnút. Ef þú velur aðra liti
skaltu sjá til þess að ljósari
blaðran sé fyrir innan.