Morgunblaðið - 01.12.1978, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1. DESEMBER 1978
29
„Dómsorð*
Með úrskurði uppkveðnum 12.
marz 1975 vék hinn reglulegi
dómari sæti í málinu. Hinn 4. júní
1975 skipaði dómsmálaráðherra
Guðmund Jónsson, borgardómara,
til að fara með mál þetta og dæma,
skv. 2. mgr. 30. gr. laga nr.
85/1936, en með honum skipa
dóminn Steingrímur Gautur
Kristjánsson, héraðsdómari og
Þórhallur Vilmundarson, prófess-
or.
Dómsorð.
Viðurkenndur er eignarréttur
íslenska ríkisins af Landmannaaf-
rétti.
Málskostnaður fellur niður.
Gjafvarnarkostnaður Land-
mannahrepps greiðist úr ríkis-
sjóði, þar með talin málflutnings-
laun skipaðs talsmanns hans, Páls
S. Pálssonar, hæstaréttarlög-
manns, kr. 3.500.000.-
Gjafvarnarkostnaður Holta-
hrepps, eigenda og ábúenda jarða í
hreppnum, Rangárvallahrepps og
eigenda og ábúenda jarðanna
Næfurholts og Hóla í þeim hreppi
greiðist úr ríkissjóði, þar með talin
málflutningslaun skipaðs tals-
manns þeirra, Sveinbjörns Jóns-
sonar, hæstaréttarlögmanns, kr.
3.500.000-
Gjafvarnarkostnaður Skaftár-
tunguhrepps greiðist úr ríkissjóði,
þar með talin málflutningslaun
skipaðs talsmanns hans, Skúla J.
Pálmasonar, hæstaréttarlög-
manns kr. 1.000.000.-
Guðmundur Jónsson,
Steingrímur Gautur Kristjáns-
son.
Sératkvæði Þórhalls
Vilmundarsonar,
prófessors.
Þar sem skýr lagaákvæði skortir
um eignarrétt á afréttum landsins
og ekki hefur náð að myndast
fullnægjandi réttarvenja um það
efni, tel ég að sýkna beri stefndu
af öllum kröfum stefnanda.
Varnaraðilar hafa fengið gjaf-
vörn í málinu og tel ég því að
málskostnaður eigi að falla niður.
Ég er samþykkur atkvæði meiri-
hluta dómenda um ákvörðun
gj af varnarkostnaðar.
(Millifyrirsagnir eru Mbl.).
til hvíldar, að afloknu hádegi, til
að sofna inn í dýrð nýs lífs.
Ingibjörg Þór fæddist í Reykja-
vík 21. janúar 1927, dóttir hjón-
anna Guðrúnar Jónsdóttur og Jóns
Gíslasonar múrara. Hún giftist
séra Þórarni Þór 16. mars 1946.
Börn þeirra þrjú, sem öll lifa
móður sína eru: Vilhelmína ekkja
Magnúsar Sigurðssonar rafvirkja,
búsett í Reykjavík, Jónas rafvirki,
kvæntur Önnu Stefáníu Einars-
dóttur og Margrét gift Reyni
Finnbogasyni. Eru þau til heimilis
á Patreksfirði. Barnabörnin eru
átta.
Ég flyt vini mínum séra Þór-
arni, börnunum og öðrum ástvin-
um Ingibjargar Þór, dýpstu sam-
úðarkveðjur og fjölskyldu minnar.
Sigfús Halldórsson.
Ný bók frá
Hildi - Hótel
Continental
BÓKAÚTGÁFAN Hildur
hefur sent frá sér bókina
Hótel Continental eftir Ib
H. Cavling í þýðingu Skúla
Jenssonar, en áður hafa
komið út eftir sama höfund
um 20 bækur í íslenzkri
þýðingu.
í frétt frá útgáfunni
segir, að Hótel Continental
sé gamalt fjölskyldufyrir-
tæki í Kaupmannahöfn sem
hætta sé á að glatist fjöl-
skyldunni við fráfall fjöl-
skylduföðurins. Hann hefur
kallað heim son sinn frá
hótelstörfum í Sviss til að
taka við rekstrinum en áður
en hann nær heim andast
faðirinn. Þegar sonurinn
kemur heim koma í ljos
ýmsar misfellur og erfið-
leikar og kemur á daginn,
að ætlunin er að bola
honum í burtu og inn í þá
baráttu blandast ást og
afbrýði.
Bókin er 195 bls. og
Setberg hefur prentað.
föstudags- og laugardagstilboð
Verð
284.985
10 hver kaupandi
sem staðgreiðir
fær tölvuúr
Tæknilegar upplýsingar
MAQNARI:
6—IC, 33, transistorar. 23 díóður, 70 múslkwött. (2x23 RMS)
ÚTVARP: FM. LW. MW. SW.
SEGULBAND:
Hraði 4,75 cm/sek. Tíðnisvörun venjul. kasettu er 40—8.000 Hz. Tfönisvörun Cr02 kasettu er
40—12.000 Hz. Tónflökt og blakt er betra en 0,3% RMS. Upptökukerti AC blas 4 spora 2 rása
sterfo. Afþurrkunarkerfi AC afþurrkun.
HÁTALARAR:
20 cm bassahátalarl af kónfskri gerð. Miö og hátíönihátalari 7,7 cm af kónískrl gerö.
Tíönlsvörun 40—20.000 Hz.
PLÖTUSPILARI:
Full stærö, allir hraöar, s)álfvirkur og handstýröur. Mótskautun og magnetiskur tónhaus.
AUKAHLUTIR:
Tveir hljóönemar. FM-loftnet. SW-loftnet. Eln Cr02 kasetta.
TILBOÐ 1.
100.000 - kr. út.
ca. 50 þús. á mán. í 4 mán.
TILBOÐ 2.
Helmingur út og rest á 6 mán.
TILBOÐ 3.
Staðgreiðsluafsláttur 4%
bara föstudag og laugardag:
BUÐIN
/
Skipholti 19, sími 29800.
CRÖWN
JOLAGLEÐII
PENNANLM
Jólasveinarnir okkar hafa lýst
velþóknun sinni á Jólamarkaði
Pennans í Hallarmúla, —
enda hefur
úrvalið sjaldan
verið falleera!
rmr
n
Jólamarkaðurinn, Hallarmúla.