Morgunblaðið - 02.12.1978, Side 1

Morgunblaðið - 02.12.1978, Side 1
48 SÍÐUR OG LESBÓK 276. tbl. 65. árg. LAUGARDAGUR 2. DESEMBER 1978 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Viðvaranir um Guyana bárust San Francisco, 1. desember — AP KONA sem var félagi í sértrúarflokki Jim Jones í Guyana og lögfræðingar hennar halda því fram, að bandarísk stjórnvöld hafi látið sig engu skipta viðvaranir um sjálfsmorðssáttmála safnaðarins og vafasamar aðstæður fólksins á svæði safnaðarins í Guyana. Aðvaranir þessar bárust banda- rískum stjórnvöldum mörgum mánuðum áður en meðlimir safn- aðarins frömdu sjálfsmorð á dögunum. Meðal þess sem þessi fyrrverandi félagi, frú Balkey, heldur fram, er að bandarískur sendiráðsmaður í Guyana hafi skýrt Jim Jones frá öllum kvörtun- um sem bárust á söfnuðinn. Ennfremur segir hún að Richard McCoy, fyrrverandi sendiráðsmað- ur í Guyana, hafi fyrirfram látið Jim Jones vita af eftirlitsferð þingmannsins Leo Ryan á svæði safnaðarins, og hvaða fólk úr söfnuðinum Ryan ætlaði að yf- irheyra. Þá sagði frú Blakey að McCoy hefði hvatt sig til þess að skýra blöðum ekki frá aðstæðum í Jonestown. Loks sagði frú Blakey að Jones hefði fengið nokkrar konur úr söfnuðinum til þess að eiga vingott við nokkra embættismenn í Guyana og bandarískan sendiráðs- mann. Begin nýrra Washington, 1. desember MENACHEM Begin. forsætisráð- herra ísraels. gaf í skyn í dag að ísraelsmenn væru reiðubúnir að taka upp að nýju viðræður um friðarsamning við Egypta að sögn ísraelska útvarpsins. Þetta er talið boða breytingu á afstöðu ísraelsstjórnar til viðræðnanna sem hafa legið niðri að mestu í tvær vikur. Haft var eftir Yasser Arafat, leiðtoga Frelsissamtaka Palestínu (PLO), í dag að hann væri reiðubúinn að afneita ofbeldi og viðurkenna tilveru Israelsríkis ef Palestínuríki verði stofnað á vesturbakkanum og Gazasvæðinu. Frá þessu skýrði bandaríski þing- maðurinn Paul Findley sem ræddi við Arafat í Damaskus á laugar- dag. Carter forseti ræddi í dag við egypzka forsætisráðherrann, Mustafa Khalili, í Washington og sagði á eftir að hann vonaði að fundur þeirra yrði til þess að takast mætti að yfirstíga erfið- leikana sem standa í vegi fyrir friðarsamningi. Carter er sagður vona að orðsending sem Khalili mun hafa meðferðis til Anwar Sadats forseta geti þokað málun- um áleiðis. fÚS tíl funda I Kaíró var haft eftir áreiðan- legum heimildum að Egyptar muni gera mikilvægar tilslakanir til þess að reyna að binda enda á þráteflið í viðræðunum. Sam- kvæmt heimildunum eru Egyptar nú reiðubúnir að kosningar á vesturbakkanum og Gazasvæðinu fari fram eigi síðar en einu ári eftir undirritun friðarsamnings í stað sex mánaða áður. Tilkynnt var í Kaíró í dag að Sadat forseti hefði endanlega ákveðið að fara ekki til Óslóar ti! að taka við friðarverðlaunum Nóbels vegna anna í sambandi við friðarviðræðurnar. Ceusescu varar Rússa við íhlutun Búkarest, 1. desember. Reuter. AP. NICOLAE Ceusescu forseti hélt stíft fram sjálfstæði lands síns í dag með lítt dulbúinni viðvörun til Rússa við því að skipta sér að innanlandsmáium Rúmeníu. Forsetinn gerði það að tillögu sinni að á milli kommúnistarfkja Austur-Evrópu og herafla vesturveldanna í Evrópu yrði komið á hlutlausu svæði þar sem ekkert erlent herlið fengi að vera og engar heræfingar mættu fara fram. Hann útskýrði þetta ekki nánar. Ceusescu var fagnað með dynjandi lófaklappi þegar hann sagði á fundi um 3.000 starfsmanna kommúnista- flokksins að það væri helgur réttur sérhvers lands að ráða örlögum sínum sjálft án utanaðkomandi afskipta. Hann gætti þess að magna ekki deilu Rúmena við Rússa en endurtók í fimmta sinn á sjö dögum að hann vísaði á bug kröfum sovétstjórnar- innar um aukin útgjöld Varsjár- bandalagsins. Vestrænir diplómatar segja að Rúmenar hafi áður drepið á hug- myndina um hlutlaust svæði en telja ólíklegt að ríki í austri eða vestri samþykki hana. Ceusescu tók ekki fram hve langt slíkt belti ætti að vera og ekki heldur hvar það ætti að vera. Ceusescu notaði fundinn sem var haldinn í tilefni 60 ára afmælis núverandi Rúmeníuríkis til þess að útskýra þá meirihátta* deilu sem virðist hafa risið milli Rúmeníu og annarra aðildarlanda Varsjárbanda- lagsins á leiðtogafundi bandaiagsins í Moskvu í síðustu viku. Ceusestu Hann sagði að samskipti kommún- ‘ istaflokka Evrópu yrðu að grundvall- ast á jafnrétti, að enginn einn flokkur mætti ráða lögum og lofum og að utanaðkomandi afskipti ættu ekki að eiga sér stað. Forsetinn lét í ljós ugg um að gagnbyltingaröfl kynnu að fá stuðn- ing frá öðru sósíalistaríki. En hann nefndi ekki beinlínis það land sem hann átti við. Vestrænir diplómatar telja þetta vera viðvörun til þjóðar Rúmeníu og annarra þess efnis að Rússar kunni að reyna að grípa til íhlutunar í Rúmeníu undir því yfirskyni að þeir vilji verja sósialisma með sovézku yfirbragði. En Ceusescu fylgir harðlínustefnu heima fyrir og diplómatarnir segja að ekki sé hægt að bera saman ástandið í Rúmeníu við fyrri hern- aðaríhlutanir Rússa, í Ungverjalandi 1956 og Tékkóslóvakíu 1968. Ceusescu sagði að Rúmenar mundu halda áfram samstarfi sínu í bandalagi kommúnistaríkja og standa við skuldbindingar sínar, en þetta yrði að gerast á jafnréttis- grundvelli. „Rúmenski herinn mun aldrei nokkurn tíma taka við fyrirskipun- um að utan,“ sagði hann. Stapp um nautgripi í Færeyjum þórshöfn, 1. desember. Frá Jogvan Arge, fréttar. Mbl. DANSKA flutningaskipið Ilse Clausen er komið til Færeyja, með 155 nautgripi innanborðs, en skipinu hefur verið meinað að leggjast að bryggju vegna reglna um nautgripainnflutn- ing. Þegar skipið hafði lagzt við legufæri stigu dýraverndunar- nefnd, yfirdýralæknir og yfir- maður sóttvarna á skipsfjöl. Það verður þeirra hlutverk að velja úr þau dýr sem leyft verður að flytja í land. Vélbyssu- skothríð í Teheran Teheran, 1. desember. Reuter. AP. LANGVARANDI vélbyssuskot- hríð heyrðist í nokkrum hverfum Teheran í kvöld og hermenn áttu í átökum við mörg hundruð manna sem fóru út á götur í trássi við útgöngubannið og hrópuðu slagorð gegn keisaran- um og trúarvígorð. Ólætin hófust skömmu eftir að útgöngubannið hófst. Mannfjöld- inn hrópaði „Allah Akbar" (Allah er mikill), „Dauði yfir keisaran- um“ og „Lengi lifi Khomeiny" (þ.e. trúarleiðtoginn). Samkvæmt áreiðanlegum heimild- um í dag hefur keisarinn gefið upp alla von um pólitíska lausn á ástandinu fyrr en eftir sorgar- mánuð múhameðstrúarmanna, Moharram, sem hefst á morgun. Hvatt hefur verið til allsherjar- verkfalls og götumótmæla og nú er fyrst talið reyna á það í alvöru hvort keisarinn heldur völdum sínum eða ekki. Amin er kominn í leitirnar Nairobi, 1. desember. AP. IDI Amin, forseti Uganda, kom aftur f leitirnar í dag þegar Ugandaútvarpið skýrði frá þvf að hann stjórnaði herliði á vígstöðvum Uganda- manna og Tanzaníumanna nálægt suðurlandamærunum og þar með lauk þriggja daga fréttum opinberra aðila um að hans væri saknað. Utvarpið sagði að Amin hefði hjálpað hermönnum sínum í hreinsunaraðgerðum í kjarr- lendi nálægt bænum Mutukula í Suður-Uganda. Utvarpið hafði eftir Amin að herlið Tanzaníu- manna héldi uppi harðri stór- skotahríð á yfirráðasvæði Ug- anda, allt að 25 km inn í landið, og lið Tanzaníumanna héldi áfram innrás sinni. Dollarinn yfir200jen Tokyo, 1. desember. AP. DOLLARINN seldist fyrir meira en 200 jen í fyrsta skipti í 19 vikur á gjaldeyrismarkaði í Tokyo í dag og var skráður við lokun á 201.25 jen sem er 7 jena ha'kkun siðan á föstudag fyrir viku. Japanski seðlabankinn' mun alls hafa selt 10 milljónir dollara í dag til að styrkja stöðu jensins. Aðalástæðan fyrir hækkun dollar- ans er talin tilkynning japanska fjármálaráðuneytisins þess efnis að greiðsluafgangur Japana fyrstu 20 daga nóvember hafi minnkað í 152 milljónir dollara úr 599 milljónum dollara á sama tíma í fyrra. Bandaríski dollarinn hefur ekki selzt á meira en 200 jen síðan 24. júlí.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.