Morgunblaðið - 02.12.1978, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 02.12.1978, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. DESEMBER 1978 37 Halldór Blöndal: 99 Gáðu eigi fyrir veið- um að fá heyjanna” Nafngift Eiríks rauda á lögskerðingu launa HÉR á eftir fara lokaorð framsöguræðu Halldórs Blöndals, er hann mælti fyrir nefndaráliti minnihluta fjárhags- og viðskiptanefndar um efnahagsráðstafanir ríkisstjórnarinnar í fyrradag (sjá ennfremur þingsíðu Mbl. í gær bls. 18). Svigrúm sem ekki var nýtt Allir vita, að það voru vissir menn í verkalýðshreyfingunni en ekki Ólafur Jóhannesson, sem mynduðu þessa ríkisstjórn og fengu svo háttv. 1. þm. Austfirð- inga LJ. til að gjörast guðfaðir að króanum. Við þær aðstæður, sem þá sköpuðust, myndaðist svigrúm til þess að gera varanlegar ráðstafan- ir gegn verðbólgunni, af því að fólkið í landinu var búið að sjá í gegnum þann lyga- og blekkingar- vef, sem haldið var á loft fyrir síðustu kosningar. Þetta svigrúm var ekki notað í september, heldur ráðizt í bráða- birgðaráðstafanir í flaustri, sem kynfu undir með verðbólgunni í stað þess að draga úr henni. Þótt þessi mistök hafi veikt trúna á getu vinstri flokkanna til að slökkva það verðbólgubál, sem þeir sjálfir kveiktu, hélzt nokkurt svigrúm fram undir þetta, sem hefði verið hægt að nýta til varanlegri ráðstafana en felast í því frumvarpi, sem hér er til umræðu, ef hæstv. forsætisráð- AtÞMGI herra hefði stutt tillögur Alþýðu- flokks og hæstv. fjármálaráðherra í stað þess að glúpna fyrir Alþýðubandalaginu. Úrslitakostir Hæstv. forsætisráðherra heldur því fram, að Sjálfstæðisflokkurinn hafi viljað láta 14% hækkun fara út í kaupgjald og verðlag. Þetta eru úrslitakostir frá hans hendi, þeir sömu og hann veifaði framan í Alþýðuflokkinn með þeim ár- angri, að háttv. þingmenn hans, að einum undanskildum, urðu að veimiltítum frammi fyrir alþjóð og svo hælist hæstv. forsætisráð- herra um eftir á. En upp á hvað bauð hæstv. forsætisráðherra Sjálfstæðis- flokknum með því frumvarpi, sem hér liggur fyrir? 8% skerðingu á kaupgjaldsvísi- tölu, stóraukin útgjöld ríkissjóðs, sem engin grein hefur verið gerð fyrir, hvað þá þeim auknu álögum, sem leggja á á launþega og atvinnureksturinn í landinu. Ekki var gefinn kostur á því að hafa áhrif til lagfæringar á einu einasta atriði frumvarpsins né þeirra fyrirheita, sem í athuga- semdunum eru gefin, enda naum- ast við því að búast, þegar engri spurningu er svarað, sem snertir innihald þessa loforðalista, hvorki stórri né smárri. Beint gegn einkaframtaki Fyrir liggur, að atvinnurekstur- inn er rekinn með tapi eða stendur í járnum, þegar bezt lætur, sem þó heyrir til algjörra undantekninga. Samt á að halda áfram að vega í þennan sama knérunn, og svo spyr hæstv. forsætisráðherra Sjálf- stæðisflokkinn en ekki sjálfan sig: „Hvar er nú ábyrgðartilfinning- in?“ Nei, sannleikurinn er sá, að hæstv. forsætisráðherra getur ekki búizt við fulltingi Sjálfstæðis- flokksins til aðgerða, sem óhjá- kvæmilega hljóta að leiða til stöðvunar atvinnurekstrarins til lengri tíma litið, aðgerða, sem beinast gegn einkaframtakinu í landinu og er ætlað að torvelda möguleika einstaklingsins í upp- byggingu nýrra atvinnugreina, aðgerða, sem valda hægari hag- vexti og þar af leiðandi stöðvun eða jafnvel minnkun kaupmáttar. Og svo er það spurning, til annarrar jafnlangrar ræðu, hvers konar sjálfsblekking, sjálfssefjun það er, þegar menn gera hvort Halldór Blöndal. alþingismaður. tveggja í senn að telja sig sérstaka vini verkalýðsins en eru þó ófáan- legir til að beita ríkisvaldinu með þeim hætti, að frumkvæði þjóðar- innar sjálfrar til góðra verka njóti sín öllum til góðs. Grænlandsgjörðir Þegar hinir fyrri stjórnarand- stæðingar, og núverandi stjórnar- sinnar, kaupránsflokkarnir tveir, Alþýðuflokkur og Alþýðubanda- lag, eru að lýsa því nú, að með þessu frumvarpi standi ekki til að skerða lífskjör verkalýðsins, að í því felist ekki kauprán, minna þeir óneitanlega á Eirík rauða þegar hann kallaði hið nýfundna land Grænland, af því að hann kvað menn mjög myndu fýsa þangað, ef landið héti vel. Á hinn bóginn svipar hæstv. forsætisráðherra til Þórólfs smjörs, þegar hann gjörir nú úr því langar ræður, að lítil takmörk séu fyrir því, hvað atvinnuvegirnir geti borið, að þar drjúpi nú smjör af hverju strái. Við Sjálfstæðismenn förum á hinn bóginn að dæmi Herjólfs, segjum kost og löst og minnum á það til viðvörunar, að þeir Hrafna- Flóki gáðu eigi fyrir veiðum að fá heyjanna og dó allt kvikfé þeirra um veturinn. í þessu er sú aðvörun fólgin, að á hverjum tíma verður að gæta þess, að eyða ekki umfram það sem aflað er og að það, sem maður hefur lífsframfæri sitt af, krefst endurnýjunar og fyrirhyggju. Sé þessa ekki gætt, gengur fljótt á höfuðstólinn og þá vofir hrunið yfir. Þingmenn Alþýðuflokks: Sérstakur skattadómstóll og rannsóknardeild Vilmundur Gylfason (A) og Jóhanna Sigurðardóttir (A) hafa lagt fram á Alþingi frumvarp til laga um sérstakan dómara og rannsóknardeild í skatta- málum og bókhaldsmálum. Samkvæmt frumvarpinu skulu mál vegna brota á skattalögum og lögum um bókhald rannsökuð, rekin og dæmd fyrir sérstökum dómi í skattamálum. Við embætti dómara í skatta- r.iálum skulu starfa svo margir fulltrúar sem þörf er á að mati dómsmálaráð- herra. Dómurinn skal hafa aðsetur í Reykjavík. Við dóm í skatta- og bókhaldsmálum skal starfa rannsóknardeild, er hafi með höndum rannsóknir í skatta- og bókhaldsmálum. Forstöðumaður deildarinn- ar, skattrannsóknastjóri, stýrir rannsóknastarfi hennar í samráði við ríkis- skattstjóra, en deildin heyrir eigi að síður undir dómsmálaráðuneytið. Ef frv. þetta verður sam- þykkt falla úr gildi ákvæði um rannsóknadeild í lögum um tekjuskatt og eigna- skatt (3. mgr. laga nr. 68/1971). ,Pínumar“ allar f jórar Ennfremur mikið úrval af ýmsum styttum. wm Hvítar styttur: Allar tegundir af hvítum styttum t.d. ,,Pínurnar“ „Börn að leik“ og „Sjávarbörnin". Ennfremur gott úrval af styttum í lit. Jólaplattinn 1978 í gjafapakkningu. Auk pess eigum vió í takmörkuðu magni jólaplatta ”66 og ”71, ”75 "76 og ”77 alla í gjafapakkningu. Mæðradagsplattinn Thorvaldsenpiattarnir allir sex: Dagur, Nótt og árstíðirnar: Sumar, Vetur, Vor og Haust. Postulíns- og kristalsdeildin hefur verið stækkuð og endurbætt. Verið velkomin til að líta við. Lítlð Vlð f verslun okkar. Gjafaúrvalið hefur atdrei verið fallegra. RAnTlAwERÐl n Hafnarstræti 19 Opið kl. 9 -18.00 í dag.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.