Morgunblaðið - 02.12.1978, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 02.12.1978, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. DESEMBER 1978 5 Anna Júlíana Sveins- dóttir syngur á Há- skólatónleikum í dag Fyrstu Iláskólatónlcikar vetr- arins vcrða haldnir lauKardaginn 2. dcscmbcr í Fclagsstofnun stúdcnta við Ilrinsbraut. Tónleik- arnir hcfjast ki. 17. Aðttanjíur er iillum hcimill og kostar 1000 kr. Anna Júlíana Sveinsdóttir syng- ur lög eftir Mozart, Schubert, Schuniann, Brahms, Jónas Tómas- Anna Júlíana Svcinsdóttir son og Arna Björnsson við undir- leik Guðrúnar A. Kristinsdóttur. Verkið eftir Jónas Tómasson nefnist Kantata III (Hækur ok tönkur) og er samið við þýðinKar eftir Helt;a Hálfdánarson á jap- önskum ljóðum; verður það frurn- flutt á tónleikunum. Anna Júlíana Sveinsdóttir hóf sönttnám árið 1970 í Múnchen í Þýzkalandi. Kennarar hennar voru Joseph Metternich, Lieselottu Lorsch og Rudolf Bautz. Hún stundaði einnig almennt tónlistar- nám við Richard Strauss Kon- servatorium og Staatliche Hoch- schule fúr Musik Múnchen. Haust- ið 1974 flutjist hún til Kölnar og var við Staatliche Hochschule fúr Musik Rheinland, þar sem hún lauk söngkennaraprófi í fyrra. Síðasta vetur starfaði hún við óperuna í Aachen ok sönK hlutverk i óperunum Öskubusku eftir Rossini, Tiefland eftir Alhert, Macbeth eftir Verdi og Revisor eftir Efík, einnig í söngleiknum Fiðlarinn á þakinu. Tónleikarnir 2. desember eru fyrstu opinberu tónleikar Önnu í Reykjavík. (Fréttatilkynning). Málm- og skipasmiðir styð ja aðgerðir ríkisst jórnarinnar MIÐSTJÓRN Málm- og skipa- smiðasambands Islands hefur á fundi sínum 29. nóvember 1978 fjallað um frumvarp til laga um tímabundnar ráðstafanir til við- náms gegn verðbólgu, sem ríkis- stjórnin lagði fyrir Alþingi 27. nóvember s.L, og í því tilefni gert svohljóðandi samþykkt: Miðstjórn Málm- og skipasmiða- sambands Islands ítrekar þá afstöðu samtaka verkafólks, sem oft hefur verið sett frarn áður, m.a. í samþykkt sambandsstjórnar- fundar M.S.Í., 12. nóvember s.l., að meta beri ekki síður niðurfærslu verðlags, lækkun gjalda og félags- legar ráðstafanir heldur en hækkanir peningalauna. Miðstjórn M.S.Í-metur mikils ákvæði frumvarpsins sem draga úr dýrtíð og verðbólgu, svo og lagasetningu varðandi félagslegar umbætur sem skýrt er frá í 7. lið athugasemdar við frumvarpið. í því efni leggur miðstjórn M.S.Í. megináherslu á lengingu greiðslutímabila í veikinda- og vinnuslysatilfellum, læknisskoðun sem felur í sér heilsufarsskoðun og athugun sjúkdóma sem orsakast af eða við vinnu, ráðstafanir til að bæta vinnuumhverfi verkafólks, ávöxtun orlofsfjár og aukna fræðslu á vegum verkalýðssamtak- anna. í trausti þess að ríkisstjórnin framkvæmi hið fyrsta fyrirheit sín um þessi mikilsverðu hagsmuna- mál, lýsir miðstjórn Málm- og skipasmiðasambands íslands yfir stuðningi við aðgerðir ríkis- stjórnarinnar varðandi viðnám gegn dýrtíð og verðbólgu. Mynda- brengl ÞAU mistök urðu í blaðinu í gær. að tcikningar sr. Bolla Gústafssonar. scm hirtast áttu mcð kafla úr nýrri bók hans. flæktust inn í kafla úr bók Baldurs Guðlaugssonar. Kafli sr. Bolla birtist í blaðinu á morgun að sjálfsiigðu með myndunum cn f kafla þcssum. scm cr samtal við Kristján frá Djúpalæk. cr fjallað um Ilvcragcrðisár hans. Biðst blaðið vclvirðingar á þessum mistökum. Hálir vegir hœtta áferð Combi er mögnuö nýjung frá Adamsson. Jakkarnireru úr tweed en buxur og vesti úr alullarflanneli eða grófum tvillvefnaði (Bedford) sem er blanda úr terylene og ull. Þessi fatnaöur gefur ótal möguleika i vali og samsetningu. Fatnaður sniðinn fyrir frjálsræði núdagsins. Lítiðtil beggja hlida ÍÍMBflasýning J979" ídagogámorguníSýningarsalnum Armúla3 kl.B-18 sýnd verður 1979 árgerö af CHEVROLET MALIBU @ VÉLADEILD SAMBANDSINS

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.