Morgunblaðið - 02.12.1978, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. DESEMBER 1978
23
ins hjá þeim aðilum, sem veittu
styrkinn. Allar dylgjur í garð
gjaldkera S.í. í þessu sambandi
eru með öllu tilhæfulausar.
Eftir að hafa gert sínar athuga-
semdir við styrkveitinguna vegna
farar Guðmundar G. Þórarins-
sonar skýra greinarhöf. frá því að
stjórn S.I. hafi unnið sleitulaust í
meira en hálft annað ár að
framboði mínu og sérstaklega hafi
forsetar S.I. unnið þar mikið og
óeigingjarnt starf.
Ekki skal ég verða til þess að
vanmeta það, sem stjórn S.í. og
forsetar hafa lagt af mörkum í
þágu framboðsins, en ekki finnst
mér greinarhöfundum farast stór-
mannlega, þegar þeir í næstu
andrá fara að gera lítið úr
framlagi annarra, sem lagt hafa
lið í kosningarbaráttunni, og láta
sig hafa það að segja, að þar heföi
fjármunum getað verið betur
varið. Hér þykir mér reitt til
höggs af vanefnum. Það er út af
fyrir sig ágætt að kunna sþil á
þríliðureikningi, en sú reiknings-
aðferð á bara ekki við, þegar
metnir eru verðleikar mannanna í
þessu lífi. Einn maður getur fengi
meiru áorkað á einum tíma en
margir menn á mörgum vikum.
Ræði ég það svo ekki frekar að
sinni, en það get ég fullvissað
greinarhöfunda um, sem raunar
hefur ekki getað farið framhjá
þeim, að fjármunum þeim, sem
veitt var til farar tveggja ís-
lendinga til Buenos Aires hefði
ekki getað verið betur varið.
iv
Eg hefi áður minnst á þátt 5
stjórnarmanna S.í. í þessu máli,
sem með undirskrift sinni hafa
vottað um atburði, sem skeðu þeim
víðsfjarri. Aþ sjálfsögðu getur það
komið fyrir beztu menn að hlaupa
á sig í fjótfærni, en mér virðist af
ýmsu, að viðleitni þeirra til að fá
sem óhlutdrægasta mynd af
málinu hefði mátt vera meiri.
Fyrsti fundurinn, sem haldinn
var hjá stjórn S.I. eftir Argentínu-
förina (18. nóv. s.l.) var þannig
boðaður:
„Á dagskrá verða m.a. ýmis mál
varðandi þing Alþjóðaskáksam-
bandsins í Buenos Aires, framboð
Gísla Árnasonar til féhirðisstarfs,
för Guðmundar G. Þórarinssonar,
fjármál vegna dvalarkostnaðar
Auðar Júlíusdóttur og Gísla Árna-
sonar, blaðaskrif o.fl.“
Ýmis þau atriði, sem hér boðað
til fundar út af, eru þess eðlis, að
þau varða ekki beinlínis stjórn S.I.
Gísli Árnason, gjaldkeri S.I. benti
á, að hér væri verið að fjalla um
mál aðila, sem ekki væru staddir á
fundinum og gætu því ekki komið
að sínum sjónarmiðum. Gerði
hann það að tillögu sinni, að stjórn
S.í. samþykkti að óska eftir fundi
með þessum aðilum, svo að upplýst
yrðu á óhlutdrægan hátt þau
ágreiningsmál, sem upp hefðu
komið í sambandi við framboð
Friðriks Olafssonar og kjör hans
serrt forseta FIDE. Þessi tillaga
var felld og um það þarf ekki að
hafa fleiri orð.
íslenzk skákmennt hefur á
undanförnum áratugum risið til
vegs og virðingar og hér á landi
hafa verið háðar skákkeppnir, sem
markað hafa tímamót í sögu
skáklistarinnar. Nú- þegar aðal-
stöðvar FIDE hafa flutzt hingað
til lands ríður á miklu að við
varðveitum þetta góða orð.
Meðlimaþjóðir FIDE eru margar
og sundurleitar og oft hefur hrikt í
máttarstoðum vegna innbyrðis
deilna. Nú er það okkar Islendinga
að sýna gott fordæmi, en til þess
að svo megi verða er nauðsynlegt
að eining og samhugur ríki innan
íslenzkrar skákhreyfingar. Ég tek
því heilshugar undir óskir Skák-
sambandsins um farsælt samstarf
í framtíðinni og læt sjálfur þá ósk
í ljós að vegur þess megi verða sem
mestur á komandi árum, sem og
um alla framtíð.
Reykjavík 1. des. 1978.
Friðrik Ólafsson.
Verzluðu
víkingar
um alla
N-Ameríku
Augusta, Maine-fylki,
1. desember, AP.
FORNLEIFAFRÆÐINGAR
segja að silfurpeningur sem
fannst í ruslahaug í Maine fylki í
Bandaríkjunum fyrir nokkrum
árum. kunni að sanna að norræn-
ir menn hafi stundað verzlun um
alla Norður-Ameríku.
Peningurinn er á stærð við fimm
króna pening. Á annarri hlið
peningsins er krossmark, en á
hinni hliðinni er mynd af konungi
sem ber hjálm á höfði. Sögðu
fornleifafræðingarnir í dag að
peningurinn kynni að renna stoð-
um undir þær kenningar að
norrænir sæfarar hafi orðið á
undan Kólumbusi til Ameríku.
Sú kenning er uppi meðal
fornleifafræðinga við þjóðminja-
safn Maine, að peningurinn sé
kominn til Maine með indíánum
sem verzlað höfðu við víkinga.
Talið er að indíánar í norður- og
austurhluta Norður-Ameríku hafi
verzlað við norræna menn sem
reistu sér byggðir á LOanse Aux
Meadows á Nýfundnalandi. Engar
menjar aðrar um norræna menn
hafa fundist í Maine-fylki, og því
með öllu afskrifað að þeir hafi
haft búsetu þar.
Þetta gerðist
2. desember
1975 — Mao ræðir við Ford
forseta í Peking.
1974 — Takeo Miki skipaður
eftirmaður Kakuei Tanaka í
Japan.
1972 — Verkamannaflokkur-
inn sigrar í kosningum í
lÁstralíu. __
1971 — Lýst yfir neyðar-
ástandi í Chile.
1956 — Landganga Fidels
Castros á Kúbu.
1942 — Áhrif kjarnorkunnar
sýnd fyrsta sinni í Chicago.
1914 — Austurríkismenn
taka Bðlgrad.
1852 — Lýst yfir stofnun
annars franska keisararíkisins.
1851 — Ferdinand I leggur
niður völd í Áusturríki: Franz
Jósef keisari.
1823 — Monroe forseti setur
fram Monroe-kenninguna gegn
evrópskum afskiptum í Vestur-
heimi. ................
1804 — Napoleon krýnir sig
keisara.
1790 — Austurríkismenn
sækja inn í Brussel og bæla
niður uppreisn.
Afmæli dagsins, Julie
Harris, bandarísk leikkona
(1925—) — Georges Seurat,
franskur listmálari
(1859—1891) — Maggie Smith,
brezk leikkona (1934—).
Innlenti Árás Rússa á Finn-
land fordæmd á íslandi 1939 —
Mannskaðaveður 1933 — F.
Þórhallur Bjarnason biskup
1855 — Benedikt Sveinsson
1877 - Árni Óla 1888 -
Gunnar M. Magnúss 1898 —
Gísli Guðmundsson alþm. 1903.
Orð dagsinsi Allir kvarta
yfir minninu, enginn dóm-
greindinni, Francois de la
Rochefoucauld, franskur rit-
höfundur (1613-1680).
Lítið barn
hefur
lítið sjónsvið
Að loknum fundi í Austurstræti var lagður blómsveigur að styttu
Jóns Sigurðssonar á Austurvelli.
1. desember í Reykjavík:
og um „fagrýni". Ennfremur var
fluttur nýr leikþáttur eftir
„Véstókles", er nefndist Viskan
er ekki hér. Loks kom fram
Sönghópur Rauðsokka.
Vaka, félag lýðræðissinnaðra
stúdenta við Háskóla íslands,
hafði opið hús í félagsheimili
félagsins í Hótel Vík við Hallær-
isplanið. Þar var ekki um að
ræða samfellda skipulagða dag-
skrá, en málin voru rædd á
breiðum grundvelli yfir kaffi-
veitingum, þar sem fólki gafst
kostur á að spjalla saman í ró og
næði. Mjög margt fólk lagði leið
sína í félagsheimili Vöku í gær,
og var stöðugt fólksstreymi þar
allan daginn.
Þá var flutt dagskrá í kall-
kerfi sem komið hafði verið
fyrir utan dyra, en þar var flutt
Sextíu ára fullveldis minnst
með fjórum samkomum í gær
FULLVELDISDAGURINN. 1.
desember, var hátíðlegur hald-
inn í gær samkvæmt venju. en
að þessu sinni minntust Islend-
ingar þess að sextíu ár voru
liðin frá því að landið varð
frjálst og fullvalda ríki. Að
venju var kennsla í flestum
skólum landsins felld niður, og
auk þess var dagsins minnst
með margvíslegum hætti víða
um land. I Reykjavík voru
haldnar fjórar samkomur í
tilefni dagsins.
Áhugamenn um þjóðlegan
fullveldisdag gengust fyrir full-
veldisfagnaði í Veitingahúsinu
Glæsibæ síðdegis í gær, þár sem
flutt var fjölbreytt dagskrá af
ýmsu tagi. Ávarp flutti Erna
Ragnarsdóttir innanhússarki-
tekt. Þá flutti Fullveldiskórinn
nokkur lög, Halli og Laddi
skemmtu, Geirlaug Þorvalds-
dóttir leikkona flutti ljóð, ís-
lenski dansflokkurinn sýndi,
hljómsveitin Andrómeta kom
fram og lék nokkur lög, og
ýmislegt fleira var á dagskrá.
Kynnir á fullveldisfagnaði
áhugamanna um þjóðlegan full-
veldisdag í Glæsibæ í gær var
Róbert T. Árnason útvarpsmað-
ur.
Mikill fjöldi ungs fólks sótti
samkomuna.
1. des. nefnd stúdenta við
Háskóla íslands hélt fund i
Háskólabíói, og var útvárpað frá
fundinum. Var á fundinum
fjallað um efnið „Háskólinn í
auðvaldsþjóðfélagi“.
Á fundinum í Háskólabíói
fluttu ræður þau Gunnar Karls-
son lektor, Össur Skaprhéðins-
son háskólanemi og Sigríður
Óskarsdóttir, verkakona úr
Vestmannaeyjum.
Þá var fluttur samlestur um
hlutverk og stjórnun Háskólans,
þjóðleg tónlist, og lesnar upp
ályktanir og stefnuyfirlýsingar
Vöku í hinum ýmsu þjóðmálum.
Loks má nefna, að Baráttu-
hreyfing 1. desember hélt úti-
fund í göngugötuhluta Austur-
strætis síðdegis í gær. Þar var
flutt stutt ávarp, lesið var ljóð,
og sunginn fjöldasöngur.
Að loknum fundinum í Aust-
urstræti var gengið á Austur-
völl, þar sem lagður var blóm-
sveigur að styttu Jóns Sigurðs-
sonar. Á Austurvelli var einnig
flutt ávarp og sunginn söngur.
Vaka félag lýðræðissinnaðra stúdenta hafði opið hús í félagsheimili
sínu í tilefni fullveldisdagsins. Var fólki þar boðið upp á
kaffiveitingar, og lagði mikill fjöldi fólks þangað leið sína í gær.
Mikið úrval af
íslenskum og erlendum húsgögnum.
K.M. húsgögn
— Sími 37010.
Skeifunni 8 — Reykjavík. Opiö í dag frá kl. 9—4