Morgunblaðið - 02.12.1978, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 02.12.1978, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. DESEMBER 1978 Mesta seiðagegnd síð- an rannsóknir hófust VEGNA fréttar af rækjurannsóknum í ísafjaróardjúpi. þar sem ég hafði eftir rækjuskipstjóra hér, að rannsóknaskipið Dröfn gerði ekki kannanir á öðrum stöðum en þar sem mest væri af bolfiskseiðum og að hægt væri að vinna rækjuveiðisvæði í Djúpinu þar sem engin bolfiskseiði væru, hafði leiðangursstjórinn á Dröfn Hrafnkell Eiríksson fiskifræðingur samband við mig og mótmælti, sem algjörlega staðhæfulausum fullyrðingum skipstjórans og óskaði jafnframt eftir að mega koma á framfæri niðurstöðum rannsóknanna. scm lauk 25. þ.m. I framhaldi af því átti ég viðtal við Guðmund Skúla Bragason forstöðumann útibús Hafrann- sóknastofnunarinnar á ísafirði. Hann sagði að seiðadráp rækju- báta í ísafjarðardjúpi hafi verið vandamál um margra ára skeið. Til þess að gera sér ljósari grein fyrir vandanum, hefur verið þróuð aðferö til að meta tjónið af seiðadrápinu í hlutfalli við tekjurnar af rækjuveiðinni. Er þar tekið tillit til aldurs seiða og tegundar. í síðasta leiðangri r.s. Drafnar fengust að jafnaði 396 kg. 'af rækju á togtíma, sem er um 90 kg. meira en meðalafli 7 rækju- báta, sem tilraunir gerðu í Djúp- inu 2.-6. nóv. s.l. Varpa Drafnar er meðalstjór rækjuvarpa. í þess- um góða rækjuafla rannsóknar- skipsins voru að jafnaði 7866 þorsk- og ýsuseiði í hverri lest af rækju, en viðmiðunartalan í þessu tilfelli eru 3273 seiði. Að sögn Guðmundar Skúla þekkja fiski- fræðingar ekki til jafn mikillar seiðagengdar í ísafjarðardjúpi frá því skipulagðar rannsóknir hófust en það var árið 1970. Klakið á síðasta vori er það 4. besta frá 1970 hvað varðar þorsk og næst besta hvað varðar ýsu. En hitastig sjávar er nú mörgum gráðum heitara en venjulega á þessum árstíma. Dröfn hefur farið í 4 rann- sóknarleiðangra hingað í haust, fyrst um mánaðamótin ágúst-sept- ember, auk þess sem rækjubátar voru við rannsóknir undir stjórn Þeirra eigin orð Guðmundur J. Guðmundsson STEFNUBREYTING Alþýðuflokks og Alþýðubandalags og verka- lýðsforingja þessara tveggja flokka varðandi vfsitölubindingu kaupgjalds hefur vakið þjóðarathygli. í febrúar töldu þessir aðilar visitöluskerðingu launa „kauprán". Nú telja þeir vfsitöluskerðingu launa nauðsynlegan þátt í viðnámi gegn verðbólgu. Morgunblaðið mun á næstunni birta nokkrar tilvitnanir í ummæli þessara aðila f ræðu og riti, sem undirstrika þessa stefnubreytingu. Fullar verðlagsbætur eina vörn launafólksins — sagði Guðmundur J. 23. júní GUÐMUNDUR J. Guðmundsson, formaður Verkamannasambands íslands og varaþingmaður Alþýðubandalagsins sagði 23. júnf f tilefni af ársafmæii sól- stöðusamninganna> „Samningarnir bundu loks enda á þriggja ára tímabil samfelldrar kjararýrnunar. Kaupmætti launa var lyft verulega, einkum lág- launa. Tekin voru inn að nýju ákvæði um fulla og óskerta vísitölu, fullar verðlagsbætur skv. vísitölu er eina vörn launafólks gegn því, að verðbólgan rífi niður kaupmáttinn. Full vísitala er líka beinlínis vörn gegn óðaverðbólgu. Reynslan sýnir, að því skertari sem vísitalan er, þeim mun meiri er verðbólgan. I samræmi við sína verðbólgustefnu þurfti ríkisstjórn framsóknar og íhalds auðvitað að eyðileggja vísitöluákvæðin með ítrekaðri lagasetningu. Þess vegna eru samningarnir ekki í gildi. Þess vegna þurfum við að setja þá í gildi með því að koma ríkisstjórn- inni frá.“ Okkur er full alvara í því að styðja þessar aðgerðir — sagði Guðmundur J. 28. nóv. um 8% „kauprán” GUÐMUNDUR J. Guðmundsson í ræðu á Alþingi hinn 28. nóv. sl.: „Kauphækkunin er 6,12%. Um það þurfum við nú ekki að deila... ... niðurgreiðslur hafa ekki verið af verkalýðshreyfingunni almennt afsagðar, þó það megi færa rök að því hvernig tekna til þeirra sé aflað... Það hefur ár eftir ár verið samið um beina skatta í kjara- samningum. Það er ekki nýtt atriði... Okkur er full alvara í því Verkamannasambandið, sem lýsir sig reiðubúið til að styðja þessar aðgerðir. . . Ég er ákaflega ósmeykur við að koma fram fyrir mína félaga með þessa réttinda- löggjöf. Það er fráleitt að tala þar um einhver 3% fyrir t.d. opinbera starfsmenn. Að vísu var nú einhver sérstök yfirlýsing í sam- bandi við það, þá er meginhlutinn af þessum tillögum réttindi, sem þeir hafa og ég sé enga ástæðu til að láta lægst launaða fólkið vera afskipt í, en þessar félagslegu úrbætur geta í mörgum tilfellum verið^mikið meira en 3%. í öðrum tilfellum geta þær verið minna... Ég býst við að ég mundi vilja hafa þessar aðgerðir töluvert öðru vísi en þær eru...“ Guðmundar Skúla í nóvember- byrjun. Guðmundur Skúli sagði að ekkert hafsvæði við Island væri betur rannsakað en Isafjarðardjúp og fullyrti hann að engin veiði- svæði væru undanskilin í þessum skipulögðu rannsóknum. Þá vildi hann taka fram, að þeir vísinda- menn, sem að rannsóknunum hafi staðið hin síðari ár, hefðu engu minni þekkingu á Djúpinu en rækjusjómenn, auk þess sem þeir nytu fulltingis frábærs skipstjóra á r.s. Dröfn Inga Lárussonar frá Hnífsdal. Clfar. Rækjubátarnir á Isafirði bíða enn leyfis að mega hefja veiðarnar og í baksýn sér á Dröfn sigla út áleiðis til rannsóknastarfa í Arnarfirði. Ljósm. Ulfar Brotizt inn á heimili Valdimars Bjömsson- ar og stohð borðbúnaði BROTIST var inn á heimili hjónanna Guðrúnar og Valdimars Björnssonar í Minncapolis í Bandaríkjunum íyrir nokkru og stolið þaðan miklum vcrðmætum í ýmiss konar silfurborðbúnaði og fleiri munum. í samtali við Mbl. sagði Valdi- mar Björnsson að þau hjónin hefðu brugðið sér frá að morgni dags til að kjósa og verið að heiman í ríflega klukkustund og húsið þá verið mannlaust. Hefði verið horfið ýmislegt af borðbún- aði úr silfri, Georg Jensens silfur frá Danmörku, sem þeim hafði áskotnast, jólaskeiðar sem þau höfðu safnað í 34 ár og silfurkanna og ýmislegt fleira verðmæti. Valdimar sagði að 3 menn væru í haldi og hefðu tveir þeirra játað á sig sakir, en sá þriðji, sem var handtekinn nokkru á eftir hinum hefði ekki viljað segja neitt fyrr en hann hefði fengið samband við lögfræðing sinn. Valdimar sagði að tekizt hefði að hafa upp á hluta af því sem stolið var, m.a. Georg Jensens silfrinu, en það heföi uppgötvast þegar reynt var að bjóða það fram til sölu. Þá sagði hann að teknar hefðu verið gull- dósir með loki, sem nafn hans var grafið á, og hefðu þær fundizt án lokanna. Valdimar Björnsson sagði að nokkuð mikið hefði verið um innbrot og stuldi af þessu tagi allt síðan í júlí í sumar. Munirnir voru allir vátryggðir. Bandarísk skýrsla: Skuggalegt útlit í fiskidnaðinum m Ol Washington, 1. desember. AP BANDARISKA verzlunarráðuneyt- ið sagði í dag að verðbóiguáhrifa launasamninga, sem voru undirrit- aðir 1977, hafi gætt með fullum þunga í íslenzku efnahagslifi á þessu ári. Ráðuneytið segir að gert sé ráð fyrir því að raunveruleg aukning þjóðartekna verði um 4 af hundraði. Bent er á að gert sé ráð fyrir verðbótum í júní-samningunum 1977 og samningunum við öpinbera starfsmenn í október 1977. Kauphækkanir sem af þeim leiðir segir ráðuneytið að áætlað sé að hafi numið 44 af hundraði 1977 og muni nema álíka miklu 1978. Ráðuneytið segir þetta í skýrslu í riti sínu fyrir bandaríska kaupsýslu- menn og útflytjendur, Business America, dagsettu 4. desember. Það Stórmarkaður opn- ar á Vestfjörðum Isafirði, 1. des. í DAG opnaði Ljónið sf. vöru- markað í nýbyggingu fyrirtækis- ins inná Skeiði. Verzlunarhús- næðið er 1.000 fermetrar að grunnfleti en að auki er 400 fermetra gólfrými á efri hæð. Á vörumarkaðinum eru á boðstól- um matvörur og hrcinlætisvörur, búsáhöld, skófatnaður og leik- föng, en gert er ráð fyrir að bæta við vöruflokkum á næsta ári. Verið er að ganga frá rúmgóðum bflastæðum við húsið. en á þessu svæði er ætlað að rísi verzlunar- og iðnaðarhverfi. Verkfræðistofa Sigurðar Thoroddsen teiknaði húsið, bygg- ingarmeistari er Ásgeir Karlsson, raflögn annaðist Straumur hf., en kæli og frystibúnað Póllinn. Þá sá Rörverk hf. um pípulagnir. í viðtali við blaðið sagði Kristján Sigurðsson, einn af eig- endum fyrirtækisins, að megin- áherzla yrði lögð á sölu daglegrar neysluvöru og verðlagi stillt í hóf. Þá er lagt mikið uppúr hraðri afgreiðslu og eru í upphafi fimm gjaldkeraborð í gangi. Eigendur Ljónsins sf. eru auk Kristjáns, Sigurður Sv. Guð- mundsson, Guðmundur Sigurðsson og Heiðar Sigurðsson, en hann er jafnframt framkvæmdastjóri fyrirtækisins. — tllfar. segir að tilraunir íslenzkra stjórn- valda til að halda verðlaginu í skefjum hafi að mestu leyti verið árangurslitlar og að verðbólguþrýst- ingur, sem nokkuð hafi dregið úr frá því síðla árs 1975 og fram á mitt ár 1977, hafi farið að fá byr undir báða vængi. Eftirspurn og rauntekjur jukust, segir ráðuneytið, en eftir hækkun á fiskverði erlendis í nokkur ár hafi fiskverðið farið að lækka með þeim afleiðingum að viðskiptakjörin hafi versnað nokkuð. Hallinn á þjóðarbúskapnum hafi sýnt nokkurn bata, en jókst síðan þannig að hann samsvaraði 2,6 af hundraði heildarþjóðartekna á árinu 1977. Hann hafði numið 1,7 af hundraði 1976. Arðsemi fiskiðnaðarins rýrnaði síðla árs 1977 og erfiðleikarnir jukust um allan helming við 13% hækkun á fiskverði í janúar 1978, segir ráðuneytið. Það segir að til þess að reyna að hefta hækkun rauntekna 1978 hafi ríkisstjórnin hækkað skatta síðla árs 1977. Hún hafi einnig ákveðið að draga úr lántökum erlendis, sem hafi verið orðnar svo miklar að það hafi valdi mörgum stjórnendum ís- lenzkra efnahagsmála áhyggjum. „Horfurnar í fiskiðnaðinum undir- stöðu þessa einhæfa efnahagslífs, eru en skuggalegar," segir ráðuneyt- ið. „Ráðstafanir sem nýja ríkis- stjórnin hefur gert til að draga úr aðsteðjandi erfiðleikum frystihús- anna eru í bezta falli til bráða- birgða." Skólavörðustígur 14: Samkomulag náðist um riftun samninga SAMKOMULAG náðist í gærdag um að húsakaupin varðandi hús- eignina að Skólavörðustíg 14 í Reykjavík gengju til baka og náðist munnlegt samkomulag milli kaupanda og seljanda um að kaupsamningnum yrði rift. Sagði Bergur Guðnason lögmaður hús- byggjandans að gengið yrði frá nánara skriflegu samkomulagi eftir helgina, og með því að samkomulag þetta hefði náðst félli húsbyggjandinn þ.e. seljandinn frá kæru sinni.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.