Morgunblaðið - 02.12.1978, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 02.12.1978, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. DESEMBER 1978 Basar í Mos- fellssveit Áttræður í dag: Gunnar M. Magnúss Afmæliskveðja frá Félagi ís- lenskra leikritahöfunda. Áttræður er í dag Gunnar M. Magnúss, rithöfundur. Hann er einn þeirra manna, sem með skýrri athygli og skarpri vitund hafa sjálfir lifað umbyltingu íslenskra lífshátta, þekkja fortíð- ina og breytingaskeiðið, en virðast Jón úr Vör segir um sunnudag- inn: „Eins er hann og aðrir dagar, — en öðru vísi þó“. Á líkan hátt má segja um sunnudaginn kemur, hann er eins og aðrir sunnudagar, en öðru vísi þó, því aðventan er að byrja. Víða á heimilum er kveikt á aðventukerti og tilfinningin eykst fyrir komandi hátíð og ýmislegt er gert til tilbreytni í söfnuðunum þennan dag. Á Seltjarnarnesi verður hátíð og kallast dagurinn kirkjudagur, enda þótt engin sé risin þar kirkjan. Nafnið kemur þó til af því að kirkjan er komin í huga margra, hún er og væntanleg, ef heldur sem horfir og áhuginn vakir. Á kirkjudegi sóknarinnar verður að venju aflað fjár til þess er koma skal, en í annan stað er haldjn hátíð til að minna á kirkjulegt starf í söfnuðinum og hversu má gleðjast yfir því að styrkja það í byrjun kirkjuárs. Hátíðin á sunnudaginn kemur hefst með guðsþjónustu í Félags- heimilinu kl. 11 árdegis. Kirkjukór sóknarinnar syngur undir stjórn Reynis Jónassonar og einsöng syngur Magnús Jónsson. Kl. 15 hefst basar, þar sem á boðstólum verður laufabrauð, smákökur, maríneruð síld og aðventukransar. Kl. 20.30 hefst kvöldvaka. Þar munu sjá um hið talaða orð, þeir doktor Björn Björnsson og séra Gunnar Kristjánsson. Lúðrasveit barna af Seltjarnarnesi leikur, Kór Öldutúnsskóla syngur og Sídasta mynd Germaníu SIÐASTA myndin á vegum Germ- aníu verður sýnd í Nýja Bíói klukkan tvö í dag, laugardag. Myndin héitir'„Der junge Törless" (Ungi Törless). Leikstjóri er Schlöndorff. Þessi mynd hefur hlotið svokölluð „verðlaun alþjóða gagnrýninnar“ í Cannes. í mynd- inni er lýst vandamálum skóla- drengs, sem verður sjónarvottur að þjófhaði, en segir það engum. Af þessu hljótast vandamálin. Adventustund íNeskirkju AÐVENTUSTUND verður í Nes- kirkju næstkomandi sunnudag kl. 17. Guðmundur Arnlaugsson rekt- or flytur þar erindi, blandaður kór syngur undir stjórn Reynis Jónas- sonar og hann leikur jafnframt einleik á orgel. Frú Jóhanna Möller syngur einsöng og sr. Guðmundur Óskar Ólafsson endar samveruna með ávarpi og bæn. sannarlega eiga heima í nútíðinni og kunna tökin á henni á borð við þá, sem ekki þekkja annað. Gunn- ar er Vestfirðihgur að uppruna og starfaði lengi við kennslu í litlum sjávarplássum. Líkast tii hefur hann úr þeim stöðum vegarnesti heimsborgarans. * Gunnar er í hópi afkastamestu rithöfunda íslendinga. Eftir hann Svala Níelsen syngur við undirleik Jórunnar Viðar. Að lokum verða kaffiveitingar. Ég vænti þess að sem flestir geti notið þessa fagnaðardags og jafn- framt sýnt hollustu við það málefni sem dagurinn á að minna á. Sunnudagurinn, hann er eins og aðrir slíkir — en öðruvísi þó, ef við leggjumst á eitt, í velvilja og samhug við að gera hann að fjölsóttum kirkjudegi. liggja margir tugir bóka og ritverka af ýmsu tagi. í verkum hans er aldrei úr augsýn leiðar- ljósið, hugsjón drenglyndis, rétt- lætis og félagshyggju, og ásturidun þeirra mannkosta sem skína úr næstum æskubjörtum svip þessa áttræða heiðursmanns. Islenskir leikritahöfundar eiga Gunnari M. Magnúss margt að þakka. Hann var helsti frumkvöð- uil að samtökum okkar og fyrsti formaður Félags ísienskra leik- ritahöfunda. Áhugi hans hefur ekki dofnað, því að enn tekur hann virkan þátt í starfsemi félagsins. Þó er kollegum Gunnars kannski enn meira virði sú upp- örvun, sem hann veitir hinum yngri með því að bera áttatíu ár eins og fis. Hann skrifar enn hverja bókina á fæfur annarri, sjónvarpsleikrit hans „í múrnum" var fyrir skömmu sýnt um Norður- lönd og innan skamms mun útvarpið flytja eftir hann nýtt framhaldsleikrit. Hann er sískrif- léttur í spori um götur Reykjavík- ur og taka marga fjörugu tali, og öðru hverju skreppur hann svo í ferðalög til útlanda. Þetta er maður i blóma lífsins. Það sýnir enn að enginn er eldri en honum finnst hann vera. Fyrir hönd Félags íslenskra leikritahöfunda óska ég Gunnari M. Magnúss þess að lífsþróttur hans og starfsorka haldist enn um langa tíð. KVENFÉLAG Lágafellssóknar heldur árlegan jólabasar sinn að Hlégarði nú á sunnudginn og hefst hann klukkan 15.30. Margt góðra og eigulegra muna verður á basarnum auk ýmiss jólafönd- urs. fatnaðar o.íl. Þá verða á boðstólum m.a. kökur og jóla- sveinar selja lukkupoka. Hreyfill býður í kaffi Kvenfélag Ilreyfils og Sam- vinnufélagið Ilreyfill standa fyrir kaffiveitingum. bingó o.fl. skemmtiefni á sunnudag. 3. des.. kl. 3 e.h. í Ilreyíilshúsinu. Hreyfilsbílstjórar, sem náð hafa 67 ára aldri og eldri, bæði þeir, sem eru í starfi, og þeir, sem hætt hafa störfum, eru boðnir ásamt gesti. Vonast er til að Hreyfilsbílstjór- Guðmundur Oskar Ölafsson. andi, daglega sést hann ganga Örnólfur Árnason. ar fjölmenni með konur og börn. Halló krakkar! nú er það verðlaunagetraun! Hvað er Lilli klifurmús að segja, hve margir sögumögu- leikar eru í bókinni sem Lilli heldur um og hvað heitir sjó- rœninginn í „hasa-vasabókun- um Allir, ungir sem aldnir, eiga þess kost að svara þeim spurn- ingum og senda okkur svarið fyrir 10. þessa mánaðar. Siðan verður dregið úr svörunum og veitt tíu bókaverðlaun eftir eig- in vali. Verðlaunin eru öll jafnhá, þ. e. a. s. bœkur frá okkur fyrir tuttugu og fimm þúsund krónur fyrir hvern vinningshafa. Munið að setja svarið í póst fyrir 10. þessa mánaðar. Bókaútgáfan Örn og Örlygur hf. Vesturgötu 42, Reykjavík. Lilli klifurmús segir:_____________ Sögumöguleikarnir í Gömlu góðu œviníýrin eru: Sjórœninginn heitir: (nafn sendanda) (heimilisfang) (póststöð) (símanúmer) Hátíð á Seltjarnarnesi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.