Morgunblaðið - 02.12.1978, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. DESEMBER 1978
3
Vísindafélag Is-
lendinga 60 ára
VÍSINDAFÉLAG íslendinga varð
60 ára hinn fyrsta dcsembcr, en
þann dag árið 1918 komu tíu
kennarar Háskóla íslands saman
og samþykktu að stofna félag er
ynni að því að efla vísindalega
starfssemi í landinu. í tilefni
afmælisins verður sérstök dag-
skrá í Norræna húsinu í dag og í
anddyri þess hefur verið komið
fyrir sýningu á öllum útgáfurit-
um félagsins frá upphafi ásamt
bókaskrám.
Á dagskrá afmælisfundarins í
dag er ávarp Magnúsar Magnús-
sonar prófessors sem er forseti
félagsins, ræða dr. Jakobs Bene-
diktssonar um hugvísindi
1918—1978, ræða Sveinbjörns
Björnssonar prófessors um raun-
vísindi 1918—1978 og ræða
prófessörs Carl Gustaf Bernhard
fastaritara sænsku vísindaaka-
demíunnar um hlutverk vísinda-
félaga í dag.
í frétt frá Vísindafélaginu segir
m.a. svo um stofnun félagsins og
tilgang:
Hugmynd að stofnun félagsins
og frumkvæði átti Ágúst H.
Bjarnason, og skrifaði hann ásamt
Sigurði Nordal undir fundarboð
30. nóv. Á fundi 19. jan. var nafn
félagsins ákveðið og samþykkt lög
þess. Tilgangur félagsins hefur frá
upphafi verið að styðja vísindalega
starfsemi, og hefur það einkum
verið gert með erindaflutningi og
útgáfu vísindarita. Á fundum
félagsins hafa verið fluttir fyrir-
lestrar um fjölbreyttustu efni, þar
er skýrt frá niðurstöðum rann-
sókna og hafðar umræður um allt
það er að vísindum lýtur. Reglu-
legir félagsmenn eru 92 að tölu, en
auk þess eru í félaginu 35 bréfa-
félagar búsettir erlendis. Forseti
félagsins nú er próf. Magnús
Magnússon.
í anddyri Norræna hússins hefur verið komið upp sýningu á öllum
útgáfuritum Vísindafélagsins og hefur Baldur Jónsson dósent séð um
uppsetningu hennar. Ljósm. Rax.
Flugleiðir:
Flugfrey jur utan til
þjálfunar á DC-10
FYRSTU flugliðar Flugleiða
halda til Bandarikjanna n.k.
mánudag til þjálfunar vegna
nýju DC-10 hreiðþotunnar sem
Flugleiðir fá um áramótin.
Eru það 20 flugfreyjur og
nokkrir kennarar í flugfræðum.
Fer hópurinn til Kaliforníu á
námskeið um DC-10 breiðþotuna,
en fleiri flugfreyjur fara ekki utan
til þjálfunar, því að aðrar flug-
freyjur Loftleiða munu sækja þrjú
námskeið hér heima í desember og
verður þá lokið þjálfun flugfreyja
til að taka við störfum á breiðþot-
unni. Allur undirbúningur Flug-
leiða miðast við það að Flugleiðir
fái vélina um áramót, nema
þjálfun flugmanna og flugvél-
stjóra, en ennþá er ekki ákveðið
hvort vélin verður leigð erlendum
aðilum eða hvort hún verður tekin
í notkun á leiðum Flugleiða. Það er
þó sýnt að hvorki flugmenn
Flugleiða né flugvélstjórar verða
tilbúnir til að fljúga vélinni þar
sem ekki hefur orðið af þjálfun
þeirra vegna flugmannadeilunnar.
„Ekki einleikið”
Ný bók eftir Árna Óla
SETBERG helur gefið út nýja bók
eftir Árna Óla, og nefnist hún
EKKI EINLEIKIÐ. Árni óla hefur
ritað mikinn fjölda bóka og sendir
nú frá sér níræður að aldri nýja og
sérstæða bók.
Aftan á bókarkápu segir m.a.:
„Árni Óla hefur um langa ævi
kappkostað að kynna sér sem bezt
íslensk þjóðfræði, og þó sérstaklega
þann þátt þeirra, er fjallar um kynni
manna af ósýnilegum verum. Hann
hefur ritað um þetta margar bækur,
svo sem „Álög og bannhelgi",
„Huldufólk", „Dulheimar íslands" og
„Huliðsheimur". Þessar baekur hafa
sérstöðu í bókmenntum íslendinga.
Þessi bók, EKKI EINLEIKIÐ,
getur að vissu leyti talist til þessa
bókaflokks, en ^er þó frábrugðin
honum að því leyti, að hér segir Árni
Óla frá sinni eigin dulrænu reynslu,
og mun mörgum þykja hún merki-
leg.“
Klausturhólar:
Margt mynda
á uppboðinu
Magnús Magnússon, prófessor
forseti Vísindafélags íslendinga.
KLAUSTURHÓLAR. listmuna-
uppboð Guðmundar Axelssonar,
efna n.k. þriðjudag til málverka-
upphoðs. þar sem seld verða milli
60 og 70 verk íslenzkra mynd-
listamanna.
Meðal þessara myndverka er
gömul stúlkumynd eftir Nínu
Tryggvadóttur, en auk þess eru
þarná verk eftir Kjarval, Þórarin
B. Þorláksson, Brynjólf Þórðarson,
Svein Þórarinsson, Ásgeir Bjarn-
þórsson, Eggert Guðmundsson,
Gunnlaug Blöndal og Snorra
Arinbjarnar, svo og verk eftir
Guðmund frá Miðdal, Emil Thor-
oddsen, Jón Jónsson og Eyjólf
Eyfells, en af yngri myndlistar-
mönnum myndir eftir Alfreð
Flóka, Jóhannes Geir, Erró, Valtý
Pétursson, Svein Björnsson og
Gunnar Örn svo að einhverjir séu
nefndir.
Myndirnar verða til sýnis hjá
Klausturhólum, Laugavegi 71 n.k.
mánudag kl. 9—18 en uppboðið
sjálft fer fram á Hótel Sögu og
hefst kl. 5.
Jæja krakkar
þá er loksins komin tízkuverzlun fyrir ykkur
sem vit er í
Eigum nú mmo
axlabandabuxur stærðir frá 4ra ára, skyrtur,
peysur, jakka, boli og glæsilegt úrval af
dömukjólum.
sverðin komin aftur, merki,boli með myndum
Opið til klj 4 í dag.