Morgunblaðið - 02.12.1978, Síða 8
8
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. DESEMBER 1978
40^
II
I
‘ým
iHeéður
á motgun
GUÐSPJALL DAGSINS.
Matt. 21.i
Innreið Krists í Jerúsalem.
LITUR DAGSINS.
Fjólublár. Litur
iðrunar og yfirbóta.
Jólafasta/A ðventa
DÓMKIRKJAN. Kl. 11 messa
og altarisganga. Ræðuefni:
Kristallsnótt eða jólanótt?
Dómkórinn syngur organleikari
Martin H. Friðriksson. Séra
Þórir Stephensen. Kl. 20:30
aðventukvöld kirkjunefndar
kvenna Dómkirkjunnar.
ÁRBÆJARPRESTAKALL.
Kirkjudagur Árbæjarsafnaðar.
Barnasamkoma kl. 10:30 árd.
Guðsþjónusta kl. 2 í safnaðar-
heimili Árbæjarsóknar. Unnur
Jensdóttir syngur stólvers.
Kirkjukór safnaðarins syngur
undir stjórn Geiraugs Árnason-
ar. Kaffisala og skyndihapp-
drætti á vegum kirkjunefndar
Kvenfélags Árbæjarsóknar í
hátíðarsal Árbæjarskóla frá kl.
3—6. Hátíðarsamkoma í
safnaðarheimilinu kl. 8:30 síðd.
Meðal atriða: Þór Magnússon
þjóðminjavörður flytur erindi
og sýnir litskuggamyndir.
Unnur Jensdóttir syngur ein-
söng. Barnakór Árbæjarskóla
syngur undir stjórn Jóns
Stefánssonar söngstjóra. Séra
Guðmundur Þorsteinsson.
ÁSPRESTAKALL. Messa kl. 2
að Norðurbrún 1. Fermingar-
börn og foreldrar þeirra eru
hvött til að koma. Jólafundur
safnaðarfélags Ásprestakalls
eftir messu. Kaffi, upplestur:
Anna Guðmundsdóttir leikkona.
Kirkjukórinn syngur. Séra
Grímur Grímsson.
BREIÐIIOLTSPRESTAKALL.
Aðventumessa í Breiðholtsskóla
kl. 2. Barnasamkoma í Breið-
holtsskóla kl. 11 og í Öldusels-
skóla laugardag kl. 10:30. Séra
Lárus Halldórsson.
BÚSTAÐAKIRKJA.
Rarn'samkoma kl. 11. Guðs-
þjónusta kl. 2. Séra Pálmi
Matthíasson predikar. Aðventu-
samkoma kl. 8:30. Steingrímur
Hermannsson kirkjumálaráð-
herra flytur ræðu. Kirkju-
kórinn, einsöngvarar og hljóm-
sveit flytja tónlist undir stjórn
Guðna Þ. Guðmundssonar. Séra
Ólafur Skúlason dómprófastur.
DIGRANESPRESTAKALL.
Barnasamkoma í safnaðar-
heimilinu við Bjarnhólastíg kl.
11. Guðsþjónusta í Kópavogs-
kirkju kl. 2. Altarisganga.
Aðventukvöld í Kópavogskirkju
kl. 20:30. Séra Þorbergur
Kristjánsson.
FELLA OG HÓLAPRESTA-
KALL. Laugardagur: Barna-
samkoma í Hólabrekkuskóla kl.
2 e.h. Sunnudagur: Barnasam-
koma í Fellaskóla kl. 11 árd.
Guðsþjónusta í safnaðarheimil-
inu að Keilufelli 1, kl. 2. Séra
Hreinn Hjartarson.
GRENSÁSKIRKJA.
Guðsþjónusta á Grensásdeild
Borgarspítalans kl. 10. Barna-
samkoma kl. 11. Guðsþjónusta
kl. 14, altarisganga. Organ-
leikari Jón G. Þórarinsson.
Almenn samkoma n.k. fimmtud.
kl. 20:30. Aðventusamkoma eftir
messu sunnudaginn 10. des. Séra
Halldór S. Gröndal.
IIALLGRÍMSKIRKJA.
Guðsþjónusta kl. 11. Altaris-
ganga. Dr. Jakob Jónsson
prédikar. Þess minnst að 30 ár
eru liðin síðan fyrsta messan
var flutt í Hallgrímskirkju. Séra
Ragnar Fjalar Lárusson. Fjöl-
skyldumessa kl. 2. Séra Karl
Sigurbjörnsson. Aðventukvöld
kl. 8:30. Fjölbreytt dagskrá.
Þriðjud.: Fyrirbænaguðsþjón-
usta kl. 10:30 árd. Beðið fyrir
sjúkum. Ingunn Gísladóttir,
safnaðarsystir. Munið kirkju-
skóla barnanna á laugardögum
kl. 2.
LANDSPÍTALINN. Messa kl.
10. Séra Ragnar Fjalar
Lárusson.
IIÁTEIGSKIRKJA.
Barnaguðsþjónusta kl. 11 árd.
Séra Arngrímur Jónsson. Guðs-
þjónusta kl. 2. Séra Tómas
Sveinsson. Síðdegisguðsþjón-
usta og fyrirbænir kl. 5. Séra
Arngrímur Jónsson. Biblíules-
hringurinn er á mánudögum kl.
20:30. Allir velkomnir. Prestarn-
ir.
KÁRSNESPRESTAKALL.
Barnasamkoma í Kársnesskóla
kl. 11 árd. Messa í Kópavogs-
kirkju kl. 11 árd. Altarisganga.
Séra Árni Pálsson.
LANGIIOLTSPRESTAKALL.
Guðsþjónustur dagsins falla
niður. Aðventukvöld með fjöl-
breyttri dagskrá hefst kl. 9.
Safnaðarstjórnin.
LAUGARNESKIRKJA. Barna-
guðsþjónusta kl. 10.30. Messa kl.
11. Athugið breyttan tíma.
Sóknarprestur.
NESKIRKJA. Barnasamkoma
kl. 10.30. Messa kl. 2. Séra Frank
M. Halldórsson. Aðventustund
Bræðrafélagsins kl. 5. Mánud.:
Opið hús frá kl. 7:30. Biblíules-
flokkur kl. 8.30. Allir velkomnir.
Prpof ornir
SELTJARNARNESSÓKN.
Kirkjudagur í félagsheimilinu.
Guðsþjónusta kl. 11 árd. Prest-
ur: Séra Guðmundur Óskar
Ólafsson. Organleik og söng-
stjórn annast Reynir Jónasson.
Einsöngur: Magnús Jónsson.
Fjáröflun til kirkjubyggingar kl.
2 síðd. Kristileg kvöldvaka kl.
8.30. Lúðrasveit barna, stjórn-
andi Atli Guðlaugsson. Ræða,
séra Gunnar Kristjánsson. Kór
Öldutúnsskóla, stjórnandi Egill
Friðleifsson. Einsöngur Svala
Nielsen, undirleikari Jórunn
Viðar. Aðventuhugvekja: Björn
Björnsson, prófessor.
FRÍKIRKJAN í Reykjavík.
Barnasamkoma kl. 10.30. Messa
kl. 2, organleikari Sigurður
ísólfsson. Prestur séra Kristján
Róbertsson.
Prestar halda hádegisfund í
Norræna húsinu mánudaginn 4.
desember.
FÍLADELFÍUKIRKJAN.
Sunnudagaskóli kl. 10.30 árd.
Safnaðarguðsþjónusta kl. 2 síðd.
Almenn guðsþjónusta kl. 8 síðd.
Organleikari Árni Arinbjarna-
rson. Einar J. Gíslason.
ELLI- OG
IIJÚKRUNARIIEIMILIÐ
Grund. Messa kl. 10 árd. Séra
Lárus Halldórsson.
DÓMKIRKJA KRISTS
KONUNGS Landakoti.
Lágmessa kl. 8.30 árd. Hámessa
kl. 10.30 árd. Lágmessa kl. 2
síðd. Alla virka daga er lág-
messa kl. 6 síðd., nema á
laugardögum, þá kl. 2 síðd.
FELLAHELLIR. Kaþólsk
messa kl. 11 árd.
IIJÁLPRÆÐISHERINN.
Helgunarsamkoma kl. 11 árd.
Bæn kl. 20 og hjálpræðissam-
koma kl. 20.30.
KIRKJA JESÚ KRISTS af
síðari daga heilögum (Mormón-
ar). Samkoma kl. 2 síðd. og kl. 3
síðd. að Skólavörðurstíg 16.
GARÐAKIRKJA.
Barnasamkoma í skólasalnum
kl. 11 árd. Guðsþjónusta kl. 2
síðd. Barnakór Garðabæjar
syngur undir stjórn Guðfinnu
Dóru Ólafsdóttur. Séra Bragi
Friðriksson.
KAPELLA St. Jósefssytra í
Garðabæ. Hámessa kl. 2 síðd.
MOSFELLSPRESTAKALL.
Messa í Lágafellskirkju kl. 14.
— Altarisganga. Sóknarprestur.
IIAFNARFJARÐARKIRKJA
Sunnudagaskóli kl. 11 árd.
Messa kl. 2 síðegis. Altaris-
ganga. Aðventukvöld kl. 20.30.
Séra Gunnþór Ingason.
VÍÐISTAÐASÓKN.
Barnaguðsþjónusta að
Hrafnistu kl. 11 árd. Guðsþjón-
usta þar kl. 2 síðd. Guðmundur
Einarsson framkvæmdastjóri
Hjálparstofnunar kirkjunnar
prédikar. Aðventukvöld kl. 8.30 í
Hrafnistu. Samkór Kópavogs
syngur, Páll Gröndal leikur á
selló og Einar S. M. Sveinsson
framkvæmdastjóri talar. Séra
Sigurður H. Guðmundsson.
FRÍKIRKJAN í Hafnarfirði.
Barnasamkoma kl. 10.30 árd.
Safnaðarprestur.
NJARÐVÍKURPRESTAKALL.
Fjölskyldumessa kl. 2 síðd. Séra
Ólafur Oddur Jónsson.
KEFLAVÍKURKIRKJA.
Fjölskyldumessa kl. 11 árd.
Sóknarprestur.
GRINDAVÍKURKIRKJA.
Messa kl. 2 síðd. Aðalsafnaðar-
fundhr að lokinni messu. —
Sóknarprestur.
STOKKSEYRARKIRKJA.
Barnaguðsþjónusta kl. 10.30 árd.
Almenn guðsþjónusta kl. 2 síðd.
(altarisganga). Sóknarprestur.
SELFOSSKIRKJA. Messa kl. 2
síðd. Sóknarprestur.
AKRANESKIRKJA.
Barnasamkoma kl. 10.30 árd.
Messa kl. 2 síðd. Altarisganga.
Aðalsafnaðarfundur eftir
messu. Séra Björn Jónsson.
Utvarps-
gudsþjónustan
ÚTVARPSGUÐSÞJÓNUSTAN er að þessu sinni í Laugar-
neskirkju. Organisti Gústaf Jóhannesson. Prestur er séra
Jón Dalbú Ilróbjartsson. Þessir sálmar verða sungnir.
í NÝJU sálma- { GÖMLU sálma-
bókinni. bókinni.
3 43
60 202
59 200
232 597
241 603
56 232
Sinfóníutónleikar
Beethoven verður ávallt eins og
ráðgáta, þar sem lausnin fjarlæg-
ist því handgengnari og kærari
sem tónlist hans verður manni.
Fáum mönnum hefur verið ásköp-
uð erfiðari aðstaða til að njóta og
trúlega enginn gefið þó jafn mikið.
Hann tjáir sig hömlulaust, volar
aldrei yfir illum örlögum, heldur
snýst gegn þeim af svo miklu afli,
að leirtöflur þær er hans „Mene
Tekel“ var ritað á, molna og
örlagadómurinn verður marklaus
og feigðarspáin breytist í sigur-
söng. Það-hefur verið algeng iðja á
öllum tímum að, gera lítið úr
tilfinningasemi og þeim frekast
verið það tamt, sem í þeim efnum
búa illa eða þora ekki að láta slíkt
uppi og tefla þá gjarnan skyn-
seminni og háðinu fram sem
afhjúpandi andstæður. Er skyn-
semin æðri tilfinningunni? Það
mætti allt eins segja að mörkin
milli þessa þátta séu ekki til, en
það sem kallast skynsemi sé
aðeins samröðun hugmynda og
hvernig maðurinn á hverjum tíma
hefur verið mataður á þeim, en
^ urpliforr þeirra sé tilfinningaleg.
| Þ' vi'j :.a sé skynsamleg niður-
| au.i fc iytileg eftir tilfinninga-
'j } ”t og það eina sem sé algilt á
| i 1 ií.u num sé tilfinningin, án
...
þess að umfang hennar verði
markað. Verður niðurstaðan
réttari hömruð á steðja skyn-
seminnar eða er það óskilgreind
tilfinningin sem vísar veginn að
þeirri niðurstöðu sem mun standa
af sér molnun stálsteðja skyn-
seminnar. Beethoven lifir á þeim
tíma er rómantíkin þýtur eins og
sviptivindur yfir Evrópu. Róman-
tíkin er án efa ein mesta til-
finningabylting sem gengið hefur
yfir mannkynið og allar hug-
myndir þar frá allt fram á okkar
daga eiga rætur sínar í henni. í
þessu stórkostlega endurmati á
öllum skynsamlegum raðformum
samtíma hans og upplifun nýrra
hugmynda um réttlæti og fegurð,-
er að finna lykilinn að tóntúlkun
Jean-Pierre
Jacquillat
Tðnllst
eftir JÓN
Á$GEIRSSON
Beethoven. Hetjusynfónían er
ekki tilviljun heldur stórkostlegt
andsvar mikils listamanns við
þeim atburði er hinn rómantíski
draumur um frelsið varð raun-
verulegur og eftirmálin einnig, er
táknmynd frelsisins var strikuð
burt af titilblaði verksins. Það er
ekki tækni Beethovens sem skiptir
máli því þá ættu verk eins og
Onnur synfónían og Annar píanó-
konsertinn að vera jafngild Hetju-
sinfóníunni að gæðum. Verður
Denis
Matthews
munurinn á inntaki þessara verka
nokkurn tíma skilgreindur nánar
en að hann sé í rauninni aðeins
munurinn á tilfinningalegri
upplifun tónskáldsins þegar hann
skóp verkin. Skiptir það máli
hvort hægi kaflinn er skilgreindur
sem sorgarsöngur og að sundurslit
stefsins í niðurlagi kaflans túlkuð
eins og tal manns, sem er svo
þungt fyrir brjósti að hann
megnar ekki meira en segja
nokkur orð, svo setningin verður
aðeins slitróttar stunur.
Hvað svo sem slíkar hugmyndir
hafa að segja fyrir hlustendur og
hvort nokkurn tíma verður komist
nálægt upplifun Beethovens er
hann skóp verk sín, er eitt víst að
sá tilfinningakraftur sem býr að
baki margra verka hans er undar-
lega mest áberandi í beztu verkum
hans. Tónleikarnir í heild voru
mjög góðir og hljómsveitin oft við
sitt bezta í Hetjusinfóníunni.
Nedins Matthews lék einleik í
öðrum píanókonsertinum og gerði
það rösklega, en einhvern veginn
eins og hann væri að henda
einhverju frá sér án allrar til-
finningalegrar upplifunar.
Jacquillat er góður stjórnandi
og var stjórn hans á annarri og
þriðju sinfóníunni góð, en minna
skáldleg en efni standa til, þegar
um svo mikilfenglegt skáldverk er
að ræða og þá þriðju.
Jón Ásgeirsson
Opnunar-
tími verzl-
ana í des-
embermán.
VERZLANIRNAR. -
Afgreiðslutími verzlana í
desembermánuði, sam-
kvæmt regiugerð um af-
greiðslutíma verzlana í
Reykjavík frá 1971 og kjara-
samningi við verzlunarmenn
frá 22. júní 1977, má vera
sem hér segir.
Á föstudögum er heimilt
að hafa verzlanir opnar til
kl.22.00.
Á laugardögum er heimilt
að hafa verzlanir opnar sem
hér segir.
2. desember, í dag, til kl
16.00.
9. desember til kl. 18.00.
16. desember til kl. 22.00.
23. desember til kl. 23.00.
Á aðfangadag jóla, sem nú
er sunnudagur, mega sölu-
turnar vera opnir til kl.
13,00,-
Á gamlársdag, sem nú cr
einnig sunnudagur, mega
söluturnar vera opnir til kl.
13.00.
Fyrsta vinnudag eftir jól
opna verzlanir kl. 10 árd.
(Úr fréttatilk.)