Morgunblaðið - 02.12.1978, Qupperneq 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. DESEMBER 1978
Siguróur Pálsson námsstjóri:
Félagi Jesús
Það er kominn tími til að gera uppreisn!
Bókarheiti> Félagi Jesús
Höfunduri Sven
Wernström
Þýðandii Þórarinn Eldjárn
Útg.t Mál og menning
Útgáfustyrkuri Norræni
þýðingarsjóðurinn
Stærði 77 bls.
Verð, Kr, 2.880,-
Bók [tessi, sem ætluð er börnum,
hefur verið fjefin út á íslensku með
mikilli viðhöfn. Sejya má að þar
tróni hver silkihúfan upp af
annarri; virðulejít bókaforlaK, sem
kennir si(; við menninjíu, unKskáld
á uppleið og sjóðstjórn sem ætlað
er það hlutverk að st.vðja við
viðleitni til þess að Norðurlanda-
þjóðirnar tíeti notið á eijíin máli
þess besta, sem skrifað er af
frændum þeirra. Uersinjíin vekur
vonir um að hér sé um merkisrit
að ræða.
Ekki slævist vonin þefíar lesin
eru orð höfundar sem prentuð eru
innrömmuð á baksíðu titilblaðs.
Til þess að ekki fari á milli mála
hvílíkur maður er þarna á ferðinni
(»H hvaða vinnubrö({ðum er beitt,
tekur hann sér til fyrirrnvndar
orðafar Lúkasar íjuðspjallamanns
í upithafi Lúkasar>;uðspjalls. Sven
Wernström seiíir svo: „Þar sem
marjíir aðrir hafa tekið sér f.vrir
hendur að færa í letur frásaj{nir
um smiðinn Jesú og hinn einkenni-
lena feril hans frá friðsælu lífi í
Nasaret að smánarle({um dauða-
dómi í Jerúsalem, þá réð ég líka af,
eftir að hafa rannsakað allt
allkosttíæfilejía, að rita um þetta
til þess að börn vor verði fær um
að (taniía úr skuiína um áreiðanleik
þeirra frása({na sem enginn kemst
undan að hljóta fræðslu í.“
Ekki er það ónýtt! Hér er komin
bókin sem beðið var eftir. Nú
hefur Sven Wernström, með að-
stoð Þórarins Eldjárns o({ norræna
þýðingarsjóðsins, fært okkur af
mildi sinni það sem börnin þurfa
til að ({eta metið áreiðanleik
biblíusasínanna. Maður kemst við
af þakklátsemi, þurrkar sér um
au({un o({ les áfram þetta nýja
,,({uðspjall“ Sven Wernströms.
Og fa({naðarerindið lætur ekki á
sér standa. „Komið til mín, allir
vinnandi menn og kúf{aðir! Það er
kominn tími til að gera uppreisn!"
Þanni({ er Jesús látinn mæla við
áheyrendur sína (bls. 22). Og til
þess að ekkert fari á milli mála er
endurtekið á bls. 30: „Komið
hingað o({ hlýðið á mig, allir
vinnandi menn og kúgáðir! Nú er
frelsið í nánd! Verið viðbúin! Þegar
ég gef merki gerum við uppreisn!"
Mér er ókunnugt um heimildir
Wernströms, þeirra er ekki getið.
Hitt virðist ljóst, að hann hefur
k.vrfilega skákað fremstu Nýja
testamentis-fræðingum samtím-
ans, sem eru sammála um að það
efni Nýja testamentisins sem best
hefur varðveist í upprunalegri
mynd sé það sem haft er eftir Jesú
sjálfum. Og svo er verið að kenna
blessuðum börnunum þetta svona:
„Komið til mín, allir þér sem
erfiðið og þunga eruð hlaðnir og ég
mun veita vður hvíld.“ Það var
sannarlega kominn tími til að
íslensk börn og foreldrar þeirra
kynntust ritverkum þessa merka
fræðimanns og ritskýranda Sven
Wernströms! Bókin kom út á
frummálinu 1971.
„... að nudda sér utan í
Krist.“
Það er ekki óþekkt fyrirbæri í
sögunni að hugsjóna- og baráttu-
nienn re.vni að eigna sér frægar og
vinsælar persónur liðinna alda og
gera þær að samherjum sínum.
Jesús Kristur hefur ekki farið
varhluta af þessum vafasama
Sigurður Pálsson
heiðri. Ein slík alda reið yfir í
kjölfar stúdentaóeirðanna í lok
síðasta áratugar. Voru þá ýmsir,
sem gerðu tilraunir til að gera
Jesú að marxískum byltingar-
manni og skæruliðaforingja. Svo
virðist sem Wernström hafi verið
einn í hópi þessara. Tilraun hans
er hins vegar svo yfirþyrmandi
ómerkileg að engu tali tekur.
Undir yfirskini fræðimennsku og
þekkingar veður hann elginn og
notar þá takmörkuðu þekkingu
sem hann hefur aflað sér til að
umturna, rangfæra og ljúga upp
sögum af Jesú á hinn ísmeygileg-
asta hátt. Með tilliti til þess að
bókin er ætluð börnum er uppá-
tækið þeim mun ómerkilegra þar
sem börnin standa berskjölduð.
Dæmi skulu tekin auk þeirra
sem í upphafi voru nefnd, svo
foreldrar, kennarar og forstöðu-
menn bókasafna eigi hægara með
að átta sig á hvað hér er á ferðinni.
Efnisþráður bókarinnar
I stuttu máli er efnisþráður
bókarinnar þessi: Jesús frá
Nasaret gerist uppreisnarforingi
að Jóhannesi skírara látnum.
Hann gerir leynilega áætlun um
uppreisn gegn rómverjum og hinni
auðugu valdastétt. Ahangendum
safnar hann á ferðum sínum um
landið enda er hann sjaldan kyrr á
sama stáð af ótta við að upp um
sig komist. Með honum er fimmt-
án manna fast fylgdarlið, 12
karlar og 3 konur. Ein kvennanna
er vændiskonan María Magdalena,
sem yfirgefið hefur „vinnustað"
sinn við höfnina í Kapernaum til
að gerast fylgikona Jesú. Til þess
að ekkert fari á milli mála eru
lesendur leiddir að rekkju þeirra
a.m.k. fjórum sinnum í bókinni og
heilsíðuteikning sýnir þau nakin í
hvílu sinni. (Svona eiga skæruliða-
foringjar að vera, ekki satt? Töff
og kvensamir!) Uppreisnartilraun
er gerð eftir þriggja ára liðssöfnun
og hefst með töku musterisins í
Jerúsalem. Uppreisnartilraunin
fer hins vegar út um þúfur og í
vonléysi sínu eftir ósigurinn kemst
Jesú m.a. að eftirfarandi niður-
stöðu (bls. 70—71):
„í fyrsta lagi: Hann hafði sagt
við fólkið að það ætti að treysta á
hann. Hann hefði frekar átt að
segja fólkinu að treysta á sjálft
sig.
í öðru lagi: Hann hafði ekki látið
fólkið vopnast. Vopnlaust fólk er
ófrjálst fólk, þar sem lögreglan og
herinn hafa alltaf vopn.
í þriðja lagi: Hann hafði beðið
eftir hjálp frá guðinum ósýnilega
og englunum. Það var mesta
heimskan. Hann hefði átt að geta
sagt sér það sjálfur að fátækt fólk
fær aldrei hjálp að ofan.
Nú skildi hann allt.“
Eftir þetta er Jesú handtekinn
og dæmdur til dauða. Síðan segir
höfundur (bls. 75): „Hér endar
sagan um Jesú. Enginn veit hvað
varð um hann. Ef til vill var hann
settur upp á kross og látinn hanga
þar þangað til hann dó. Það getur
Skemmtilegir
austfirskir paettir um
menn og málefni.
SKUGGSJÁ
Hér er að finna skemmtilega
þætti um menn og málefni.
Þáttur er um Blöndalshjónin á
Hallormsstað og hið merka
lífsstarf þeirra, um séra Ólaf
Indriðason, . skáldklerkinn í
Kolfreyjustað, föður þeirra
Páls alþingismanns og skálds
og Jóns ritstjóra, um hagleiks-
manninn Karl Guðmundsson
myndskera, langur þáttur um
Sigfús Sigfússon þjóðsagnarit-
ara og sérstæða háttu hans, um
Sigurjón í Snæhvammi, um
Fransmenn á Fáskrúðsfirði,
um vin málleysingjanna, séra
Pál Pálsson á Hörgslandi, um
Magnús Guðmundsson frá Star-
mýri o.fl.
Af Héraði og úr Fjörðum er
þjóðleg bók og hún er líka
bráðskemmtileg.
Jóna Sigríður, sem hér segir sögu
sína, er kjarnakona og engri
annarri konu lík. Hún lenti
snemma í hrakningum og átti oft
erfiða vist, en bugaðist aldrei þótt
á móti blési, bauð erfiðleikunum
birginn og barðist ótrauð sinni
hörðu haráttu.
Það var (>kki fyrr en góðhestarnir
hennar, Gullfaxi og Ljómi, komu
til sögu, að lífið fór örlítið að brosa
við Jónu Sigríði. Á þessum hestum
ferðaðist hún um landið þvert og
endilangt, um byggðir og öræfi, og
lenti í margvíslegum ævintýrum og
mannraunum. Frægust er hún
fyrir útilegur sínar á Stórasandi,
Kili og Kaldadal, og sú var
mannraunin mest er hún átti átta
daga útivist, matarlaus og svefn-
laus, í hríð og foraðsveðri norðan
undan Langjökli, — og þegar hún
bjargaðist hélt hún blaðamanna-
íund í Álftakróki.
Það er öllum hollt að kynnast
lífsreisu Jónu Sigríðar, frægustu
hestakonu landsins.
HAROJD SHERMAN
Nytsöm, uppörvandi og hjélpleg
bók, sem kennir þér aö nýta þann
undrakraft, sem Innra meö þér býr.
til aö endurheimta tíkamleflt og
andlegt heilbrigði þitt.
Þú hefur þann mátt, innra með
þér, að geta læknað sjálfan þig,
bæði á sál og líkama.
Þetta er stórfróðleg bók og
nytsöm og hverjum manni hollt
að kynna sér efni hennar. Hún
segir frá undraverðum tilraunum
á lækningamætti hugans, en
rannsóknir hafa staðfest trú
höfundarins á það, að Guðs-
krafturinn er til staðar í hverjum
manni til að endurvekja og
styrkja hug og líkama.
Kannsóknir Ifarold Sherman eru
taldar merkustu sannanir fyrir
þeirri undraorku, sem í huga
mannsins býúog hann segir frá
þessum rannsóknum sinum, birt-
ir sögur af árangursríkum
lækningum og gefur þeim, sem
lækninga þarfnast, holl og nyt-
söm ráð.