Morgunblaðið - 02.12.1978, Qupperneq 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. DESEMBER 1978
Basar
KR-
kvenna
Sunnudaginn 3. descmher halda
KR konur sinn árlcga jólahasar í
KRhúsinu við Frostaskjúl í
Reykjavík' Hefst hann kl. 2 eftir
hádejfi oj; verða seldar kökur.
jólaföndur o.fl. sem konurnar
hafa sjálfar unnið.
Knattspyrnufélag Reykjavíkur
verður 80 ára á næsta ári og
hyggjast KR-ingar minnast
þessara tímamóta m.a. með því að
hefja framkvæmdir á viðbótar-
hyggingu við félagsheimili sitt.
KR-konur hafa á stefnuskrá sinni
að stuðla að bættri félagslegri
aðstöðu KR-inga og vilja með
þessum basar leggja sitt af
mörkum til eflingar bygginj;ar-
sjóðnum.
Kökubasar
vegna T jalda-
nesheimilisins
FORELDRA- oj; styrktarfélag
Tjaldanesheimilisins eínir til
kökubasars í Blómavali við
Sigtún laugardaginn 2. desem-
ber kl. 1.30.
Foreldrar og og velunnarar
Tjaldanesheimilisins stofnuðu
fyrir tveimur árum til félags-
skapar til að styrkja heimilið
eftir mætti. Þar eru nú 28
vistmenn og þegar orðið mjög
þröngt. Er mikill hugur í velunn-
urum þess að fá úrbætur í
húsnæðismálum og hyggjast
þeir stuðla að því og styrkja
búnað þess.
Verslanahöllinni, Laugavegi 26. Símr 13122
BODA
Eigum nú til gott úrval allskonar smámuna úr
kristal. Jólasveinar, jólabjöllur, jólahlutir
og dýr. Upphengi, óróar og ýmsar gerðir
af kertastjökum.
Allt vandaður /istiðnaður. unninn
íkosta]
V _____/
Jólí
KostaBoda
Klingjandi kristall-kærkomin gjöf
Aðventukvöld í
Hafnarfjarðarkirkju
í UPPIIAFI aðventutímans. sem
boðar komu jóla og er byrjun nýs
náðarárs. hefur liingum tíðkast
að halda svonefnd aðventukvöld í
kirkjum landsins. Að jafnaði hafa
margir kunnað að meta þennan
sið og notið góðra stunda.
í Hafnarfjarðarkirkju verður
aðventukvöld fyrsta sunnudag í
aðventu þ. 3. desember og hefst
það kl. 20:30. Verður þar fjölbreytt
efnisskrá í tónum og tali. Magnús
Torfi Olafsson blaðafulltrúi ríkis-
stjórnarinnar fl.vtur ræðu kvölds-
ins, flutt verður orgelverk eftir Pái
Halldórsson, partíta um „Hin
mæta morgunstund", sálmalag
Bjarna Pálssonar, kór Tónskóla
S.D.K. syngur kórvetk og m.a.
frumflytur hann kórpartítu „Há-
tíð fer a höndum ein“ fyrir
einsöng, blandaðan kór og orgel
eftir Sigursvein D. Kristinsson.
Auk annars efnis syngur Sigríður
Gröndal einsöng, Páll Gröndal
leikur einleik á selló og kirkjukór-
inn flytur valirt verk og leiðir
safnaðarsöng við undirleik Páls
Kr. Pálssonar organista kirkjunn-
ar, sem jafnframt leikur þátt úr
aðventusvítu eftir Pietryn Yon.
Er þess vænst að sem flestir eigi
góða samveru í kirkjunni og fái
þar skynjað andblæ komandi
hátíðar.
Gunnþór Ingifson
sóknarprestur.
Basar Kvenfélags
Langholtssafnaðar
Enn einu sinni undirhúa kven-
félagskonur við „Sund". „Voga"
og „Ileima" sinn árlega söluhasar
til fjársöfnunar fyrir kirkjubygg-
inguna. Verður hann sunnudag-
inn 3. des. og hefst kl. 2.
Milljón á milljón ofan hafa þær
safnað og lagt fram af mikilli
rausn og myndarskap öll árin. En
þó sérstaklega nú hin síðustu ár,
eftir að kirkjan sjálf reis af
grunni.
Nú er sannarlega aðalátakið
framundan til að fullgera þakið á
þessum sérstæða helgidómi, sem á
eftir að verða kristileg menningar-
miðstöð þessa borgarhverfis, þess-
ari kynslóð til heiðurs um ókomn-
ar aldir, sannkölluð
Ilálogalandskirkja, sem hún
raunar heitir frá upphafi.
Konurnar vinna nú stöðugt að
þeim iðnaði, sem á að verða til sölu
á basarnum. Undirbúningur allur
tekur langan tíma og mikið
samstarf og merkilegt. Basarinn
hefur líka oftast, já, ávallt líkzt
listiönaðarsýningu að lokinni upp-
setningu. Svo mun og enn verða
nú, þegar söludagurinn rennur
upp.
Enn skulu sem allra flestir
hvattir til að koma og styðja þann
hagnað, sem óskað er til heilla
komandi kynsloðum. Ekki munu
mörg hús merkilegri í Heima-
hverfinu og jafnvel allri borginni
en Hálogalandskirkja fullgerð,
með sínu frábæra safnaðarheimili
til fjölþættra félagsstarfa fyrir
börn og æskulýð, unga og aldna á
hátíðlegum stundum og helgustu
dögum framtíðarinnar bæði í gleði
og hörmum.
Komið því og leggið korn í
bygginguna. Það mun bera mikinn
ávöxt og gefa góða vexti.
Árelíus Níelsson.