Morgunblaðið - 02.12.1978, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. DESEMBER 1978
+ FLÓTTAMANNABÁTUR. — Flóttamannabátar, jafnvel heilu skipin, hafa verið mjög í fréttunum
undanfarið. — Þetta er einn þeirra. Þegar myndin var tekin í S-Kínahafi hafði hann verið 9 daga í
hafi. — Hvorki vott né þurrt var til um borð, matur og drykkjarvatn þrotið. Á bátnum, sem var um 60
fet á lengd, voru rúmlega 60 manns. Enginn um borð kunni að sigla eftir áttavita og hafði enginn
hugmynd um hvar þeir væru eða hve langt væri til næsta lands.
+ ÞJÓÐFELauöÚviNUR — Þann þunga kross rogast hann með þessi maður. Hann heitir Jacques
Mesrine, franskur. — Franska lögreglan sem leitar hans hefur látið blöðum og sjónvarpsstöðvum í té
þessa myndaseríu af hinum mörgu andiitum þessa þjóðfélagsóvinar Frakklands númer eitt. —
Myndirnar er Mesrine eru ekki teknar úr safni lögreglunnar, heldur fann lögreglan þær í hreiðri
glæponsins, við húsleit í hreiðri hans í París. — Ekki fylgdi nein frásögn af því, á hvern hátt Jacques
Mesrine varð sér úti um þennan óhugnanlega titil.
+ KRAFTAVERKIN eru alltaf
að gerast einhvers staðar í
heiminum. — Þessi rúmliggj-
andi maður, sem er að svara
spurningum blaðamanns, Al-
freds „Butch“ Summers að
nafni, bjargaðist lifandi fyrir
nokkru undan hótelrústum
vestur í Bandaríkjunum. Svo
snögglega hafði það hrunið, að
líkast var sem hendi væri
veifað, að allt húsið var komið
ofaní kjallara eins og Lási
kokkur komst einu sinni að
orði, er hann var að lýsa
húsbruna. — Og eftir nær 4
daga martröð undir rústunum
— hcyrðu verkamenn sem
unnu við rústirnar köll manns-
ins. — Þó ég sé ekki mikill
trúmaður, vissi ég, er ég bað
Jesú um hjálp, að aðeins hann
gæti bjargað lífi mínu. —
Verstur var þorstinn, sagði
„Butch“ sem siapp alveg
ómeiddur.
fclk í
fréttum
41
Mínar hjartans þakkir til allra þeirra nær og fjær
sem glöddu mig meö heimsóknum, gjöfum og
kveöjum á 90 ára afmæli mínu þann 17. október
s.l.
Guö blessi ykkur öll.
Gudrún Hallvardsdóttir
frá Kirkjubæ.
Nýkomið
Fjölbreytt
úrval af
pelsjökkum,
húfum,
treflum og
annarri
grávöru.
Feldskerinn,
Skólavörðustíg 18,
sími 10840.
ÞRAUTGOÐIR
ÁRAUNASTUND
Björgunar- og sjóslysasaga íslands
eftir Steinar J. Lúðvíksson
Tíunda bindi — árin I9l l— 1915
Meðal frásagna í bókinni má nefna er togarinn
Skúli fógeti fórst á tundurdufli í Norðursjó, skips-
strönd við Vestfirði 1914, strand togarans Tribune
undir Hafnarbergi og frækilega björgun áhafnar
hans, hrakninga vélbátsins Haffara og björgunar-
afrek við Grindavík 1911.
Bókaútgúfan Öm og Örlygur hf
Vesturgötu 42, sími 25722