Morgunblaðið - 17.12.1978, Side 6
38
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 17. DESEMBER 1978
„brumukerrurnar" tilbúnar í flandrið við Sundahöfn.
Grein: Árni Jahnsen
Mf/ndir: Ragnar Axelsson
tt
,, Allar tómstundir í tvö
ár í viðgerð á bílnum”
Við hittum þá 5 talsins og röbbuðum við þá um bflana þeirra.
Þeir eiga það sameiginlegt þessir strákar að eiga allir bfla af
tegundinni Ford Galaxie, árgerðirnar 1962, 1963 og 1964, og
þeir hafa lagt mikla vinnu f að gera þessa bfla þannig að f dag
eru þeir spegilfagrir og rennilegir þrátt fyrir aldurinn. Þeir
sögðust ekki vera í neinum bflaklúbb enda væru þeir í ástandi
sem mætti segja að væri mitt á milli Fornbflaklúbbsins og
Kvartmfluklúbbsins. Þeim bar saman um að áhugi þeirra á
þessum bflum væri vegna þess, að þeir væru sterkir og fallegir,
hefðu í rauninni styrkleika eins og grindur í vörubflum og allt
stál í þessum bflum væri tvöfalt miðað við það sem gerðist í
dag. „Við vitum hvað við erum með í höndunum,“ sögðu þeir,
„við erum búnir að fara yfir hvern krók og kima í þessum
bflum og þekkjum þá.“ Þeir vinna að hverjum bfl hver í sínu
horni ef svo má segja, en eru kunningjar vegna sameiginlegrar
bflategunda. Þeim bar saman um að það væri mjög mikill
áhugi á því að gera upp gamla bfla. Hér fara á eftir stutt
samtöl við þá Fordfélaga.
Rætt við eig-
endur fimm
glæstra Ford
Galaxie bíla
frá árunum
1962-1964
„Átti 4 stykki af
Ford ’58 og 1 af ’57 gerð“
„Ég á FORD Galaxie 500 árgerð
1962, en ég keypti hann 1977,“ sagði
Guðmundur Þór Ármannsson, „það
má segja að ég hafi unnið í honum í
eitt ár áður en hann komst ærlega á
götuna og reyndar er það þannig
með þessa bíla hérna, það hefur
kostað lágmark 5—12 mánaða vinnu
að gera þá úr garði. Ég keypti bílinn
á 200 þús kr. og hef lagt í hann um
800 þús. og þetta er rétt byrjunin.
Jú, þessi bíll er sá eini á landinu af
þessari tegund, en hann kom til
landsins 1976 frá Bandaríkjunum.
Maður hefur þurft að vinna að
endurnýjun hér og þar og ég á eftir
að taka lakkið á honum í gegn, rétta
og dudda við ýmisiegt innan í honum
og ég ætla að eiga þennan bíl áfram.
Það hefur ekki farið svo ýkja mikii
vinna í þetta hjá mér, aðallega
peningar, því það er allt svo dýrt í
þetta.“
„Þú áttir safn af bílum um skeið?"
„Það má segja það. Ég átti 5 bíla á
einu bretti, fjögur stykki af Ford
1958 og einn Ford 1957 sem ég keypti
fyrir eina flösku. Svo var mér gefinn
Moskvitz, en ég lét nú Vöku hirða
hann, maður gat ekki verið þekktur
fyrir annað."
Allar tómstundi í
2 ár í bílnum.
„Þessi bíll hefur verið á íslandi frá
1968, en ég keypti hann fyrir tveimur
árum, Ford Galaxie 500 XL 1963,“
sagði Skúli Skúlason um bíl sinn,
gljáfægt hvítt tryllitæki. „Ég byrjaði
að vinna í bílnum þegar ég keypti
hann og í sumar komst hann í gagnið
þannig að allar mínar tómstundir í
tvö ár og ríflega það hafa farið í
viðgerð á bílnum, nær öll kvöld og
helgar. Ég keypti bílinn á 180 þús.
kr., en hef lagt í hann um 1,6 millj.
kr. Það má segja að ég hafi tekið allt
í gegn i honum, en þó er ég ekki
hættur því nú ætla ég að fara að
hagræða og betrumbæta miðað við
nýjustu tækni. Það eru tveir bílar af
þessari tegund á landinu núna, en
minn er með fullkomnari útbúnaði."
14 ára og alveg
eins og nýr
inginergur Bjarnason á ford
Galaxie 500 árgerð 1964, en auk þess
á hann Studebaker árgerð 1929 sem
hann er aö gera upp ásamt Halldóri
bróður sinum.
„Ég keypti þennan bíl s.l. sumar á
300 þús. kr. og er búinn að leggja í
hann um 1200 þús. kr. Þar af fóru
700 þús. kr. í ryðbætingu en ég lét
hann á verkstæði til þess að fá það
klárt og það tók 4 mánuði með
sprautun og ýmsu fleira sem ég lét
gera. Núna er bíllinn fullklár, alveg
eins og nýr og með upphaflega
áklæðinu en til skamms tíma hafði
verið plastbrigði yfir öllu áklæðinu.
Annars á ég einn annan bíl af
þessari gerð til þess að hafa í
varahluti. Ég keypti hann í ágúst s.l.
á 30 þúsund krónur, alveg tóman, en
flestir þessara bíla okkar hafa komið
til landsins í gegnum Sölunefndina.“
„Að vera ekki
eins og aðrir
Halldór Kristófersson á bláan
Ford Galaxie 1964, sem hann keypti
fyrir tveimur árum. „Ég skipti á
honum og Moskvitz og borgaði 150
þús. kr. á milli," sagði Halldór og ég
hef siðan lagt í bílinn um 600 þús. kr.
og vinnu í einn og hálfa'n mánuð
ásamt bróður mínum á hverjum degi
og langt fram á nótt. Þessi bíll hafði
lent í krassi og því varð ég að kaupa
megnið af öðrum bíl í varahluti. Það
voru til í landinu þrír bilar af þessari
gerð en ég reif sem sagt einn til þess
að koma þessum heim og saman
þannig að nú eru þeir tveir til. Nú á
ég aðeins eftir að klæða sætin á
bílnum og síðan á hann að vera klár
til notkunar i lotu næstu fimm árin,
en mér finnst alveg nóg að gera upp
einn svona bíl.“
„Þetta er þá engin árátta hjá þér
eins og sumum sem taka hálfa ævina
í að gera bíla upp?“
„Nei áráttan hjá mér liggur í því
að vera ekki eins og aðrir.“