Morgunblaðið - 17.12.1978, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 17. DESEMBER 1978
55
upphaflega inn peningana, og sá,
sem fékk þá lánaða, mega aldrei
koma á sama tíma til að taka út
peningana sína. Þeir verða að
treysta bankanum. Þeir verða að
treysta honum að því marki, að
þeir trúi því ekki, að hann geri
það, sem hann annars gerir
reglulega. Á þessum brothætta ís
hvílir peningasköpun banka alltaf.
Ástandið í Amsterdam
Á fyrstu hundrað árunum eftir
stofnun bankans dafnaði Amster-
damborg, fólksfjöldinn óx og
borgin stækkaði. Listalíf —
málaralist og tónlist — þreifst vel.
Eftir 1631 gat borgin með
nokkurri sanngirni gert tilkall til
þess að vera álitin miðborg listar í
heiminum, því að á því ári flutti
Rembrandt þangað frá Leyden.
Borg kaupmannanna var borg
mikillar smekkvísi eins og koma
mun í ljós. Amsterdam, sem stóð
fremst í flokki verzlunarstaða á
þessum tíma, er gott dæmi um
þetta. Mörg hús frá þessum tíma
standa enn.'Sum þeirra eru enn í
eigu sömu fjölskyldnanna. Eitt
þeirra, hús kaupmannsins Jan Six,
er ein fegursta bygging í Evrópu.
Meðal rúmlega 40 málverka hinna
hollenzku meistara, sem enn eru í
eigu fjölskyldunnar, eru a.m.k.
þrjú eftir Rembrandt. Rembrandt
var fjölskylduvinur, og nafn hans
er áberandi í gestabókinni frá
þessum tíma.
Freistandi er að þakka vöxt
Amsterdam og blómanna í listalíf-
inu, sem honum fylgdi því, hve
góðar og traustar peningastofnan-
ir borgarinnar voru og það sér-
staklega Amsterdambankinn.
Bankamenn myndu fagna þessari
skýringu. David Roekefeller yrði
sérstaklega ánægður. En það voru
jafnframt aðrar ástæður. Amster-
dam var mjög vel staðsett á því,
sem urðu útfljót Rínar, eftir að
%)úið var að grafa nokkra skipa-
skurði. Hún var eins og allar
verzlunarborgir staður umburðar-
lyndis. Menn, sem vildu hagnast,
gátu stundað hér sín viðskipti
burtséð frá litarhætti, trúarbrögð-
um eða uppruna. Mikið af vel-
gengni Amsterdam var árangur
stórra hópa Húgenotta og
portúgalskra og spænskra Gyð-
inga. Borgin hafði það orð á sér að
vilja verzla við hvern, sem vildi,
þar á meðal jafnvel þá, sem voru í
stríði við Hollendinga. En það er
ótvírætt, að bankinn hjálpaði til.
Ég ætti að ljúka við sögu
bankans. Eins og nú mun koma í
ljós bjóða öll nýmæli og umbætur í
peningamálum upp á misnotkun í
nýrri mynd. Þannig var það einnig
í þessu tilviki. Einn stærsti
lántakandi bankans var hollenzka
Austur-Indlandsfélagið. Þeir, sem
stjórnuðu félaginu, ráku líka oft
bankann. Með tímanum seig lána-
starfsemin í far ættrækni og
eigingirndar. Ekkert er nýtt af
nálinni. Gjaldþrot Franklín
National-bankans í New Yori á
þessum áratug og London og
County-bankans á sömu árum í
Englandi, var að nokkru afleiðing
þess, að bankastjórarnir lánuðu
fyrirtækjum, sem þeir dáðust að
treystu fullkomlega, vegna þess,
að þeir áttu þau sjálfir. Á 18. öld
lenti Austur-Indlandsfélagið í
erfiðleikum. Stríð geisaði við
England, skipin komu ekki aftur
úr ferðum sínum. Fyrst hægði á
endurgreiðslunum, og loks hætti
félagið að borga lán sín. Ég
endurtek, að bankar geta aðeins
lánað og gefið út peninga, ef
innstæðueigendur koma ekki allir
í einu til að fá peninga sína. Qruni
þá, að þeir muni ekki geta fengið
peningana, koma þeri örugglega.
Grunur um veikleika tryggir
veikleika.
Snemma á síðustu öld flugu
grunsemdirnar fyrir, og staðfest
var, að veikleikanum væri til að
dreifa. Innstæðueigendurnir byrj-
uðu að koma, og það var ekki hægt
að borga þeim. Árið 1819, eftir 200
ára starfsemi, var Amsterdam-
banka lokað. En þá þegar hafði
verið sýnt fram á hvernig banki
getur búið til peninga og hvernig
misnota má þennan möguleika.
Tapast hefur
Hreinrauö hryssa frá Seljum í Helgafellssveit sást síöast í nóvember.
Mark blaöstíft aftan vinstra, þeir, sem kynnu að hafa orðið
hryssunnar varir, vinsamlegast hafið samband við Ólaf Torfason,
Tangagötu 5, Stykkishólmi eða í síma 93-8381.
Glös í miklu úrvali
Verð frá kr. 349.-
HAGKAUP
Það er margt
sem þér líkar vel
íþeim
nýju amerisku
Sparney tin V8 dísilvél
SjáJfskipting
Vökvastýri
Styrkt gormafjöðrun að ciftan og framan
Læst drif
Aflhemlar
Urval lita, innanogutan
Og f leira og f leira
Cutlass Saloon 4 dr. Sedan kr. 5.200.000.
Þetta er það sem þeir nýju
frá General Motors snúast allir um
Cutlass Saloon Brougham Sedan frá kr. 5.700.000.' Innif. V8 dísilvél.