Morgunblaðið - 22.12.1978, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 22. DESEMBER 1978
57
stendur yfir, er sagt að spariskírt-
einin njóti sömu skattfríðinda og
sparifé.
En eru spariskírteinin skatt-
frjáls?
I útboðslýsingum þeim, sem
fylgja útgáfu nýrra spariskírteina
eru ákvæði um skattalega með-
höndlun spariskírteinanna. Um
flokka 1966-1 - 1975-2 (1974-1
undanskilinn) segir, að spariskírt-
einin séu undanþegin framtals-
skyldu og skattskyldu á sama hátt
og innstæður í bönkum og spari-
sjóðum, en í útboðslýsingum fyrir
flokka 1974-1 og 1976-1 - 1978-1
stendur, að spariskírteinin svo og
vextir af þeim og verðbætur séu
undanþegin framtalsskyldu og
skattlagningu á sama hátt og
sparifé skv. 21. gr. laga nr.
68/1971, sbr. lög nr. 7, frá 13. marz
1974.
Framangreint gefur ótvírætt til
kynna, á hvern hátt vextir og
vaxtavextir af upprunalegum
höfuðstól eigi að meðhöndlast með
tilliti til ákvörðunar skattskyldra
tekna og eignar skattgreiðenda, en
tekur hins vegar ekki skýra
afstöðu til á hvern hátt meðhöndla
eigi verðbæturnar.
Samkvæmt fyrrgreindri skýr-
greiningu eiga vextir og spari-
skírteinaeign að meðhöndlast
þannig:
Spariskírteinin á kaupverði er
undanþegin framtalsskyldu og
eignarskatti sem hér segir:
a. Spariskírteinaeign skattgreið-
anda, sem ekkert skuldar.
b. Spariskírteinaeign einstakl-
ings, sem ekki skuldar meira fé
en jafngildir hámarki lána
Húsnæðismálastjórnar ríkisins
til einstaklings um hver ára-
mót, enda séu skuldir þessar
fasteignaveðlán tekin til 10 ára
eða lengri tíma og sannanlega
notuð til að afla fasteigna eða
endurbæta þær.
c. Sá hluti spariskírteinaeignar
hjá öllum skattgreiðendum, sem
er umfram skuldir.
Undanþegnir framtalsskyldu og
tekjuskatti eru dlir vextir al'
eignarskattsfrjálsum spariskírt-
einaeignum.
Hjá fyrirtækjum skerða allar
skuldir skattfrelsi spariskírteina
og skal hlutafé og stofnfé talið
með skuldum fyrirtækja í því
sambandi.
Allar útgáfur spariskírteina eru
með því fororði, að skatt- og
framtalsfrelsi sé eftir gildandi
reglum laga um skattfrelsi spari-
fjár á hverjum tíma.
Samkvæmt nýju skattalögunum,
sem taka eiga gildi þann 1. janúar
1979, eru þær breytingar helstar
að þá eiga verðbætur að með-
höndlast á sama hátt og vextir af
sparifé.
Happdrættisskulda-
bréf ríkissjóðs
Ríkissjóður aflar árlega fjár-
muna til vega- og brúargerðar með
útgáfu sölu verðtryggðra happ-
drættisskuldabréfa ríkissjóðs.
Byrjað var að gefa út happ-
drættisskuldabréfin árið 1972 og
höfðu samtals 10 flokkar verið
gefnir út um áramótin 77/78. I
árslok 1977 munu rúmir 5 millj-
arðar hafa verið útistandandi í
þessum skuldabréfum.
Happdrættisskuldabréfin hafa
ekki náð sömu vinsældum og
spariskírteini ríkissjóðs. Þá hafa
viðskipti með bréf þessi reynst
sáralítil vegna skorts á bæði
frafnboði og eftirspurn. Virðist
sem sterk tilhneiging ríki hjá
eigendum happdrættisskuldabréf-
anna að líta á þau sem happdrætt-
ismiða, sem best séu geymdir niðri
í skrifborðsskúffu.
1. Arðsemi
Bréfin eru öll gefin út til 10 ára,
og greiðast engar verðbætur á þau
eftir það. Bréfin eru ekki innleys-
anleg fyrr en lánstírha er lokið, og
verða þau ógild, sé þeim ekki
framvísað innan 10 ára frá gjald-
daga þeirra. Happdrættisskulda-
bréfin bera enga vexti, en gefa
möguleika á að hljóta vinning
!(bera vongildi vaxta).
Vinningsprósenta hvers flokks
er frá 7—10% af upphaflegu
nafnverði útboðanna. Það þýðir, að
vinningarnir eru óverðtryggðir og
fara því síminnkandi að raunvirði
ægar frá líður.
Þetta leiðir af sér, að yngri
flokkarnir, sem einnig hafa hærri
vinningsprósentu af nafnverði,
gefa möguleika á mun hærri
vinningum í hundraðshluta af
vísitöluverði þeirra á hverjum
tíma (þ.e. í hundraðshluta af
nafnverði + verðbótum). Vegna
lítilla viðskipta með happdrættis-
skuldabréfin hafa þó eldri bréfin
þann kost, að þau eru nær
/mnlausn og hafa því meira pen-'
ingaígildi. Þess skal getið, að séu
vinningar ekki sóttir innan fjög-
urra ára frá útdrætti fyrnast þeir
og verða eign ríkissjóðs.
Happdrættisskuldabréfin eru
verðtryggð með vísitölu fram-
færslukostnaðar, en framfærslu-
vísitalan mælir breytingar á
meysluvöruverðlagningu. Um upp-
byggingu framfærsluvísitöiunnar
ier fjallað í viðauka á eftir kafla
þessum.
Þar sem happdrættisskuldabréf-
in bera ekki nema vongildi vaxta
(þ.e. vinningsvon) er útreiknað
verð þeirra einungis miðað við
hækkun vísitölunnar frá útgáfu
þeirra, þ.e. áfallnar verðbætur
bætast við nafnverð bréfanna.
Eins og áður sagði, þá eru
viðskipti með bréf þau, sem nú eru
í gangi, hverfandi vegna skorts
bæði á framboði og eftirspurn.
Þess vegna er erfitt að tala um
verðmyndun eða markaðsverð
happdrættisskuldabréfa. Þau fáu
iskipti, sem viðskipti með þessi
I bréf hafa átt sér stað á frjálsum
markaði hefur veriö miðað við
10% afföll frá því veröi sem síðasti
útreikningur framfærsluvísitöl-
unnar segir til um.
Fyrir þá aðila, sem geta bundið
fé sitt til inniausnardags, ættu
happdrættisskuldabréfin að geta
talist sæmileg fjárfesting. Fáist
þau ennfremur keypt með afföll-
um, t.d. 15%—20% frá verði
samkvæmt vísitölu, ættu þau
tvímælalaust að geta talist góð
fjárfesting.
2. Áhætta
Um áhættu tengda happdrættis-
skuldabréfum gildir það sama og
segir um áhættu spariskírteina
(sjá kafla um verðtryggð sparj-
skírteini ríkissjóðs).
3. Seljanleiki
Eins og fram hefur komið, eru
happdrættisskuldabréfin ekki auð-
seljanleg (í endursölu), og eru þau
heldur ekki innleysanleg í Seðla-
banka fyrr en hámarkslánstíma er
náð. Hins vegar má reikna með, að
eftir því sem st.vttist í innlausnar-
Itímann (hámarkslánstíma) þeim
jmun auðveldara verði að endur-
selja bréfin.
4. Skattaleg
meðhöudlun
í lögum nr. 7 frá 1974 stendur,
að happdrættisskuidabréfin séu
undanþegin framtalsskyldu og
eignarskatti. Þá séu vinningar og
verðbætur af þeim undanþegin
tekjuskatti og útsvari.
Meginmunurinn á skattameð-
ferð happdrættisskuldabréfanna
og spariskírteinanna felst í því, að
á skattfrelsi happdrættisskuldsa-
bréfanna er ekki litið sem skilyrt,
m.ö.o. sparifjárákvæðinu er ekki
hnýtt aftan í og á því ekki við.
Samkvæmt nýju skattalögunum,
sem taka eiga gildi 1. janúar 1979,
íeiga vinningar og verðbætur að
meðhöndlast á sama hátt og vextir
og verðbætur af spariskírteinum
og sparifé, m.ö.o. skattfrelsi þeirra
verður skilyrt.
MTJA WILFISK
i serflokki
Já, nýja Nilfisk ryksugan hefur nýjan súper-mótor og áður óþekkta
sogorku, sem þó má auðveldlega tempra meö nýju sogstillingunni;
nýjan risastóran pappírspoka með hraðfestingu; nýja
kraftaukandi keiluslöngu með nýrri snúningsfestingu;
nýjan hjólasleða, sem sameinar kosti hjóla og sleða og
er auðlosaöur í stigum.
Allt þetta, hin sígildu efnisgæöi og byggingarlag, ásamt
afbragðs fylgihlutum, stuðlar að soggetu í sérflokki,
fullkominni orkunýtingu, dæmalausri endingu og
fyllsta notagildi.
Já, svona er Nilfisk: Vönduö og tæknilega ósvikin
gerð til að vinna sitt verk, fljótt og vel, ár eftir
ár, meö lágmarks truflunum og tilkostnaði.
Varanleg: til lengdar ódýrust.
/FQ nix
NILFISK
heimsins besta ryksuga
Stór orð, sem reynslan réttlætir.
" Hátúni • Sími 24420 • Næg bílastæði • Raftækjaúrval
Adam er i hörku formi þessa dagana
enda aldrei verið eins vel búinn til vetrarins.
Nú erúrvalið af kuldaflikum,hvers konar.alveg
einstakt. Kuldaúlpur, tweed- og vendiblússur
jafnt sem höfuðföt. Littu inn og kynntu þérnýju
linuna hjá Adam. Hún er glæsileg.
ADAfll
LAUGAVEGI 47 SÍM117575