Morgunblaðið - 05.01.1979, Side 1
32 SÍÐUR
3. tbl. 66. árg.
FÖSTUDAGUR 5. JANUAR 1979
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
íran efst á baugi
á leiðtogafundi á Guadeloupe
Pointe-a-Pitre. Guadeloupe.
4. jan. — AP. AFP
Stjórnarleiðtogar Bandaríkj-
anna, Bretlands, Frakklands og
Vestur-Þýzkalands heíja tveggja
daga viðræður í Saint Francois á
frönsku eynni Guadeloupe á Kara-
biska-hafinu á morgun. föstudag.
Hittast þeir þar í boði Valery
Giscards d'Estaings forseta
Frakklands. Leiðtogarnir komu
allir til Guadeloupe í gær, en þeir
eru, auk franska forsctans, Jimmy
Carter Bandaríkjaforseti, James
Callaghan forsætisráðherra Bret-
lands og Helmut Schmidt kanslari
V estur-Þýzkalands.
Dagskrá viðræðnanna hefur ekki
verið birt, en Giscard d'Estaing
forseti hefur skýrt frá því að hér
verði um að ræða „leiðtogafund til
að meta ástandið í heiminum".
Öeirðiroghand
tökur á Spáni
Madrid. 4. jan. — AP. Rcuter.
CONSTANTINO Ortin Gil hers-
höfðingi, yfirmaður hersins í Madr
id, sem skotinn var til bana þar í
borg, var jarðscttur í dag. Að
kirkjuathöfn lokinni átti að flytja
líkið í bifreið til kirkjugarðs í
útjaðri Madrid, um 3 kflómetra
leið, en foringjar úr hernum tóku
kistuna og báru hana á herðum sér,
og fylgdu kistunni um 2.000
öfgasinnaðir hægri menn, hróp-
andi vígorð gegn Böskum og
yfirvöldum.
Síðar í dag skýrði lögreglan frá
því að hún hefði handtekið átta
menn, sem grunaðir eru um að hafa
staðið að morðinu. Voru þeir teknir
við vegatálma um 100 km fyrir
norðan Madrid. Allir eru þeir
Baskar, og meðal þeirra fjórir
þekktir leiðtogar Baska. Kveðjuat-
höfnin fór fram í kirkju aðalherbúð-
anna í Madrid, og voru nokkrir
blaðamenn viðstaddir. Segja þeir að
meðan á athöfninni stóð hafi ýmsir
herforingjanna hrópað að Manuel
Gutierrez Mellado varnarmálaráð-
herra og krafizt þess að hann segði
af sér. Á meðan gengið var til
kirkjugarðs hrópaði mannfjöldinn
vígorð, þar sem þess var krafizt að
ríkisstjórn segði af sér og herinn
tæki völdin. Þá brenndu öfgasinnar
rauð og hvít flögg Baska, gengu með
útrétta hægri handleggi á fasista-
vísu og kröfðust aðgerða gegn
Böskum og einingar Spánar. Fjöl-
mennt lögreglulið kom í veg fyrir
alvarlega árekstra.
Ortin Gil hershöfðingi var 63 ára.
Hann var skotinn til bana í gær,
miðvikudag, fyrir utan heimili sitt í
Madrid, og hafa samtök Baska,
ETA, játað á sig morðið. Samtökin
stóðu einnig að morði á lögreglu-
manni í Malaga, á sólarströnd
Spánar, og var útför lögreglumanns-
ins einnig gerð í dag. Fjölmenni var
við útförina, og einnig þar voru
hrópuð vígorð gegn stjórninni og
þess krafizt að herinn tæki völdin í
landinu.
Talsmenn ETA hafa skýrt frá því
að þessi tvö fyrstu morð nýja ársins
séu aðeins upphafið að vopnuðum
átökum gegn spánska hernum.
Hann bætti því við að í símtali
hans og Carters forseta í október
hefði verið um það rætt að gott
væri að leiðtogarnir hittust til að
ræða mál eins og breytingar á
valdajafnvæginu í heiminum,
SALT-viðræðurnar við Sovét-
stjórnina, breytingar á stöðunni
gagnvart Kína og ófriðarástandið í
Mið-Austurlöndum. Siðan hefði svo
bætzt við ófremdarástandið í íran.
Talsmaður Carters forseta,
Zbigniew Brzezinski, skýrði blaða-
mönnum í Washington frá því að á
fundinum í Saint Francois hygðist
Carter ítreka stuðning sinn við
íranskeisara, og benda á þá hættu á
auknum áhrifum Sovétríkjanna,
sem kæmi i kjölfar þess ef keisar-
inn léti af völdum. Sagði Brzezinski
að hinir leiðtogarnir þrír væru
sammála Carter um mikilvægi
íranskeisara fyrir Vesturveldin,
bæði vegna viðskipta Irans við
Vesturveldin, og vegna olíukaupa
Vesturveldanna frá Iran. Hætt
væri við því að Iran sneri baki við
Vesturveldunum ef keisarinn færi
frá. Margir leiðtogar múhameðs-
trúarmanna, sem eru andvígir
keisaranum, eru einnig andvígir
allri nýsköpun, og kenna vestræn-
um áhrifum um breytingar til þess
verra, að þeirra dómi, á undanförn-
um árum.
AP-símamynd.
Valery Giscard d'Estaing forseti við komuna til Guadcloupo í ga*r.
Y f irmaður hersins
er farinn úr landi
Keisarinn farinn frá Teheran
Teheran. íran. 4. jan.
— AP — Reuter
MOHAMAD Reza Pahlavi írans-
keisari og fjölskylda hans héldu í
dag á brott frá höfuðborginni
Teheran með þyrlu, en staðhæft er
að þau komi þangað á ný á morgun.
Ekki hefur verið skýrt frá því hvert
keisarafjölskyldan fór. en sögu-
sagnir eru um að ferðinni hafi verið
heitið til borgarinnar Jajroud. um
70 km fyrir austan Teheran. þar
sem keisarinn ætli að hvflast í einn
eða tvo daga. Er þetta fyrsta ferð
keisarans frá Tcheran í marga
mánuði.
Áður en tilkynnt var um brottför
keisarans var skýrt frá því að
yfirmaður hersins þar í landi,
Gholamli Oveissi hershöfðingi, hefði
sagt af sér og farið úr landi með
samþykki keisarans. Oveissi, sem
einnig hefur haft yfirumsjón með að
herlögum sé framfylgt í Teheran
hefur verið mjög andvígur því að dr.
Shapur Baktiar yrði falin stjórnar-
myndun í Iran, en Baktiar var í dag
formlega skipaður forsætisráðherra
landsins.
Undanfarna viku hefur orðrómur
verið á kreiki um að keisarinn héldi
úr landi um skeið sér til hvíldar, en
hann hefur átt erfiða mánuði í
heimalandi sínu, og á meðan reyndi
ný ríkisstjórn undir forsæti Baktiars
að koma á friði í landinu.
Lífstíðar fangelsi
Ekki eru allir ánægðir með þessa
skipan mála. Trúarleiðtoginn Aya-
tullah Khomaini, sem situr í útlegð í
París, en hefur gífurleg áhrif í
heimalandi sínu, íran, sagði á fundi
með blaðamönnum í París í dag að
keisarinn og nánasta fjölskylda hans
væru öll glæpamenn, og þeim bæri
því að refsa samkvæmt lögum
Dagblað alþýóunnar
Islams. Aðspurður hvaða refsingu
hann ætti við, sagði Khomaini að
fjölskylduna bæri að dæma í að
minnsta kosti lífstíðarfangelsi, auk
þess sem allar eignir, sem fjölskyld-
an hefði svikið út úr þjóðinni, yrðu
gerðar upptækar.
Búizt er -’ið að dr. Baktiar leggi
ráðherralista sinn fram um helgina,
og verður þá þingið að samþykkja
hann. Ekki er reiknað með neinum
erfiðleikum í því sambandi þar sem
báðar deildir þingsins hafa sam-
þykkt þá ráðstöfun keisarans að fela
Baktiar stjórnarmyndunina.
Eftir skipan Baktiars í embætti
forsætisráðherra hefur dregið veru-
lega úr óeirðum í íran, og þegar leið
á kvöldið var ekki vitað til þess að
neins staðar væru óspektir.
Vietnam að leggja
Kambódíu undir sig
Banííkok og Pekintt. 4. jan.
AP. Rcutcr.
YFIRVÖLD í Kambódíu héldu því
fram í dag að þeim hefði tekizt að
draga úr sókn skæruliða og inn-
rásarhersveita frá Vietnam.
Útvarpið í höfuðborginni Phnom
Penh segir að frá því að á jóladag
hafi her Kambódíu tekizt að fella 14
þúsund hermenn óvinanna, auk
þess sem 84 skriðdrekar hafi verið
eyðilagðir. og tvær herþotur skotn-
ar niður. Sagði útvarpið að
sovézk-smíðaðar herþotur frá Viet-
nam hefðu gert loftárásir á borgir
og bæi í Kambódíu, og valdið dauða
fjölda óbreyttra borgara. Eru
Vietnamar nefndir „grimmúðlegir
erki-slátrarar“.
Fram til þessa hafa Kínverjar
aðeins birt fréttir frá Phnom Penh
um átökin í Kambódíu, en í dag sagði
„Dagblað alþýðunnar" í Peking
ítarlegar frá átökunum, og sakaði
Vietnama um að hafa hafið allsherj-
arstyrjöld í þeim tilgangi að leggja
Kambódíu undir sig. Sagði blaðið að
Kambódíumenn væru ákveðnir í að
berjast til þrautar. Áður hafa
Kínverjar lýst ótta við að hörð átök
hæfust milli Kambódíu og Vietnams
strax og þurrkatíminn hæfist. Þá er
haft eftir ráðamönnum í Peking að
þeir telji ekki útilokað að innrásar-
liðinu og skæruliðum tækist að ná
ýmsum stórborgum Kambódíu á sitt
vald, þar á meðal höfuðborginni
Phnom Penh, en fátt manna býr nú í
borgunum, og Kambódíuher gripi þá
til skæruhernaðar gegn óvinunum.
Yfirvöld i Kambódíu hafa óskað
eftir því að Öryggisráð Sameinuðu
þjóðanna ræði innrás Vietnama, og
er búizt við að svo verði gert í næstu
viku, þegar sendinefnd frá
Kambódíu kemur væntanlegaa til
New York. Kambódia hefur ekki
fastafulltrúa hjá SÞ.
Talsmaður Vietnams hjá SÞ neit-
aði í dag ásökunum Kambódíu um að
Vietnam hefði ráðizt gegn
Kambódíu, en sakaði hins vegar
Kambódiu um árásaraðgerðir í
landamærahéruðum ríkjanna.
í frétt „Dagblaðs alþýðunnar“ í
Peking segir að Vietnamar hafi nú
lagt út í allsherjarstyrjöld gegn
Kambódíu vegna þess að þeim hafi
mistekizt að leggja landið undir sig
um áramótin 1977—1978. Þetta sýni
og sanni að Vietnam, með stuðningi
Sovétríkjanna, sé í greipum stríðs-
æsingamanna og ógni friði og öryggi
í Suðaustur-Asíu.
Óvissa um olíuna
Þrátt fyrir stjórnarskiptin hefur
ekki tekizt að koma olíuvinnslu í
samt lag. Starfsmenn við olíuiðnað-
inn gerðu verkfall í fyrra mánuði til
að knýja keisarann frá völdum, og
þrátt fyrir áskoranir frá nýju
ráðamönnunum og frá Mehdi Bazar-
gan, talsmanni Khomainis trúarleið-
toga, ríkir enn nokkur óvissa um
viðbrögðin. Áður en til átaka kom í
Iran nam olíuframleiðslan þar um 6
milljónum tunna á dag, en vegna
verkfalls starfsmanna féll fram-
leiðslan niður í 200—250 þúsund
tunnur. Að sögn nemur innanlands-
notkunin allt að því 900 þúsund
tunnum á dag, og hélt talsmaður
olíuiðnaðarins því fram í dag að
starfsmenn hefðu fallizt á að auka
afköstin þannig að fullnægja mætti
innanlandsþörfinni. Um útflutning
yrði alls ekki að ræða fyrst um sinn.
Talsmaður andstæðinga keisarans
orðaði þetta þannig: Starfsmennirn-
ir hefja ekki útflutning á olíu fyrr en
þeir hafa flutt keisarann út.