Morgunblaðið - 05.01.1979, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 05.01.1979, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 5. JANÚAR 1979 3 Listahátíð 1980: „Nokkrir heimsþekkt- ir listamenn hafa svar- að jákvætt bón minni” — segir Vladimir Ashkenazy, píanóleikari og hljómsveitarstjóri „NOKKRIR heimsþekktir listamenn haía nú þegar svarað jákvætt þeirri bón minni að þeir komi fram á Listahátíð 1980 á íslandi en ég vil ekki að svo stöddu nefna nöfn þeirra því síðast urðu nokkrir ágætir listamenn að hætta við þátttöku og það olli talsverðum vonbrigðum.“ sagði Vladimir Ashkenazy. hinn heimsþekkti píanóleikari og stjórnandi þegar Mbl. átti í gær samtal við hann úti í Sviss, þar sem hann og fjölskylda hans býr nú. Morgunblaðið spurði hann fyrst og fremst um Listahátíðina 1980 og þátttöku Ashkenazys í henni, en sem kunnugt er var Vladimir Ashkenazy frumkvöðull að Listahátíð hér á landi og hefur verið „primus motor" hennar allt frá byrjun og hann hefur öðrum fremur hvatt heimsþekkt listafólk til þátttöku í listahátíð á íslandi. Hins vegar hafa umræður um listir á Islandi og þá aðallega Sinfóníuhljómsveitina leitt fram spurning- ar um framtíð listahátíðar og þátt Ashkenazys í henni. „Ég átti nýlega viðræður við framkvæmdastjórn Listahátíðar og það var ákafiega ánægjuleg stund fyrir mig,“ sagði Ashkenazy. „Þessi framkvæmdastjórn er alveg ný, ég þekkti aðeins þá Thor Vilhjálmsson og Atla Heimi Sveinsson en nu veit ég að öll framkvæmda- stjórnin er ákveðin í því að Listahátíð á Islandi verði í sama gæðaflokki og fyrri Listahátíðir. Þess vegna er það vilji minn að starfa áfram að Listahátíð, ég vil að Island njóti aðeins hins bezta á listasviðinu og þess vegna hef ég þegar gert ráðstafanir til þess að sumt af fremsta listafólki heimsins eigi þess kost að koma á Listahátíð 1980 á íslandi enda þótt ég geti því miður ekki tekið þátt í hátíðinni sjálfur. Ég er bókaður alveg til ársloka 1981 og get því ekki verið með frekar en á Listahátíð 1976 en ég er þegar búinn að bóka mig á Listahátíð 1982 (Ashkenazy verður þá á tónleikaferð í Japan 1980) og hlakka til að verða þátttakandi í þeirri hátíð, sem ég veit að verður glæsileg hátíð á íslandi", sagði Vladimir Ashkenazy að lokum. „Þjálfun Loftleiða- flugmaraia á DC-10 lokið fyrir 1. apríl” — segir talsmaður Loftleiðaflugmanna — VIÐ NÁÐUM samkomulagi um kl. 13 eftir 22 tíma fund með forstjórum Flugleiða og stjórn félagsins. en frá kl. 14 á miðvikudag sátm við á fundi með forstjórunum og um kl. 21 bættust stjórnarmenn félagsins við. sagði Ingi Olsen stjórnar- maður í Félagi Loftleiðaflug- manna. — Við fundum jákvætt hugarfar stjórnar Flugleiða í okkar garð og var gengið til móts við sanngjarnar kröfur okkar. Samkomulagið er á þá lund að flugmenn Loftleiða verði starfs- menn Flugleiða frá 1. október n.k. enda liggi þá fyrir samein- aður starfsaldurslisti Félags Loftleiðalfugmanna og Félags ísl. atvinnuflugmanna. — Ef ekki næst samkomulag fvrir 1. október, sagði Ingi, verður það eigi síðar en 1. febrúar 1980. Ég fagna þessu samkomulagi og tel það jákvætt enda sanngjarnt og við búumst við að þjálfun hefjist hið fyrsta enda á henni að verða lokið fyrir 1. apríl er samnings- tími erlendu flugmannanna rennur út. Ingi Olsen sagði að um launa- kjör hefði ekki verið samið en tilboð hefði borizt frá Flugleið- um um 5% hærri laun á DC-10 en DC-8. Þá bjóst hann við að vélinni yrði ferjuflogið til Bandaríkjanna í gærdag og kæmi hún til Keflavíkur kl. 7 árdegis í dag. „Biðlund okkar gagnvart stjórn Flugleiða þrotin” - segja talsmenn Félags íslenzkra atvinnuflugmanna „Með launasamningum árið 1976 er Félag Loftleiðaflugmanna var viðurkennt hófust þær þrautir sem síðan hafa átt sér stað milli FLF og FÍA.“ sagði Björn Guðmundsson. formaður FÍA, í samtali viðHblaðamann Mbl. á fundi sem FÍA hoðaði til í gær. „Við höfum ekki fram að deginum í gær verið í deilu við Flugleiðir og við höfum margbent á nauðsyn þess að sameina starfsfólk og starfsaldur í kjölfar þeirrar sameiningar Loftleiða og Flugfélags íslands sem reynd var á sínum tíma til hagræðingar. Nokkrar tilraunir hafa verið gerðar til þess að ná þessu saman og þrisvar sinnum hafa verið skipaðar nefndir til þess að lægja öldurnar. Nú er langlundargerð okkar gagnvart Flugleiðum og hiðlund í þessum efnum hins vegar á þrotum og í Ijósi hreyttra aðstæðna. svo sem vegna óljósrar stöðu stjórnar Flugleiða h.f. innan fyrirtækisins. sem sést bezt á því að allflestar meiriháttar ákvarðanir þeirra (t.d. síendurteknar ákvarðanir um gildistöku nýs starfsaldurslista og stöðuveitingar á nýjum flugvélum) virðast allar dregnar til baka vegna þrýstings ákveðisn hluta starfsfólks. þá ákvað mjög fjölmennur félagsfundur FÍA á miðvikudagskvöld eftirfarandi einrómai 1. Að hafna beiðni stjórnar Flugleiða h.f. virðist stefna í átt til Flugleiða h.f. um nýtt heiti atvinnurekanda og séu flugmenn F.í. áfram starfsmenn Flugfélags íslands h.f. 2. F.Í.A. hættir öllum umræðum að sinni um sameiginlegan starfs- aldurslista flugmanna FÍ og LL og hafnar umræöugrundvelli undir- rituðum af starfsaldursnefndum FLF og F.Í.A. og verði nefnd F.Í.A. lögð niður. 3. I ljósi breyttra stöðuveitinga á DC-10, og þar sem stjórn leiðaskiptinga, leggur F.Í.A. þunga áherzlu á, að á flugleiðum FI fljúgi engir flugmenn nema í samráði við F.I.A. 4. Ennfremur mun F.Í.A. beita öllum tiltækum ráðum til að ná fram launajöfnuði allra flug- manna á flugvélum Flugleiða h.f. án tillits til flugvélategunda. FÍA-menn, Félag íslenzkra at- vinnuflugmanna, sögðu í samtal- inu við blaðamann Morgunblaðs- ins að í þriðja skiptið sem í nefndir hefði verið skipað af hálfu FÍ A og FLF þá hefðu Loftleiðaflugmenn lagt fram tillögu sem hugsanlega samkomulagsleið, en hins vegar hefðu þeir sjálfir fellt hana í júlí 1977 áður en hún kom til atkvæða- greiðslu hjá FÍA. Það kom fram á fundinum með talsmönnum FIA að síðan í marz 1978 hefði ríkt algjört upplausnarástand í þessum málum innan Flugleiða eða eftir að stjórn Flugleiða tilkynnti FÍA og FLF 16. marz 1978 að stjórnin hefði ákveðið að Flugleiðir tækju við öllum rekstri Flugfélags Is- lands og Loftleiða 1. okt. 1978 og að sameining starfslista skyldi framkvæmd. FIA studdi þessar hugmyndir með því að láta önnur ágreiningsmál liggja á milli hluta, en talsmenn FIA sögðu við blm. Mbl., að síðan hefði þeim verið núið því um nasir af ýmsum að þeir hefðu eingöngu verið að hugsa um sjálfa sig og að Flugleiðir hefðu tekið þessa ákvörðun í þeirra þágu. „Það sem vakti fyrir okkur,“ sagði einn af talsmönnum FIA, „var eingöngu heildarmyndin og sá vilji okkar að koma einhverri eðlilegri mynd á þessi mál og það má minna á, að 81% hluthafa Flugleiða samþykkti þetta á aðal- fundi Flugleiða 14. apríl sl.“ Þann 10. júlí kallaði stjórn Flugleiða hins vegar á fulltrúa FÍA að afloknum samningum og tilkynnti þeim að búið væri að fresta sameiningu starfsaldurs- lista og flugrekstrartöku til 1. feb. 1979, einhliða. Næst gerðist það markvert, að sögn talsmanna FÍA, að í október s.l. leggur stjórn Flugleiða fram þær hugmyndir að til þjálfunar á DC-10 breiðþotuna fari 16 Loftleiðaflugmenn og 2 Flugfélagsflugmenn. Þessu hafnaði FIA ekki, en Loftleiðaflug- menn höfnuðu hugmyndunum al- gjörlega. Milli jóla og nýárs var stjórn FÍA síðan tilkynnt ákvörðun stjórnar Flugleiða frá því rétt fyrir jól að hætt hefði verið við þessa niðurröðun í ljósi breyttra aðstæðna og kváðust FÍA-menn ekkert hafa fengið að fylgjast með þróun mála. „Þar með hafði stjórn Flugleiða verið gjör- samlega knésett af Loftleiðaflug- mönnum og það er orðið gjörsam- lega útilokað fyrir okkur í FÍA að henda reiður á hvað stjórnin er að gera eða hvað hún ætlar sér þegar ekki er staðið við neitt, hvorki sagt né skrifað og stefna fyrirtækisins eins óljós og raun ber vitni," sagði einn talsmanna FÍA. Í haust skipuðu flugmannafélög- in bæði nefndir til þess að vinna að samræmingu starfsaldurslista og út úr þeirri nefnd kom að sögn talsmanna FÍA aðeins vinnuplagg, eða hugmynd að vinnutilhögun í málinu, og áttu félagsfundir að fjalla nánar um málið, en vegna „þróunar málsins höfðum við algjörlega hafnað þessu plaggi á félagsfundi," sagði Björn Guð- mundsson, „og skyndifundarboði stjórnar Flugleiða aðfaranótt s.l. fimmtudags þegar við vorum á félagsfundinum var einnig hafnað. Flugleiðir hafa nú veitt ákveðnum hópi manna einkaleyfi á ákveðnum flugleiðum og ákveðnum flugvéla- tegundum, eða hverjum dettur í hug að aðrir en Loftleiðaflugmenn fari á aðra DC-10 þotuna sem hugsanlega kemur 1980? Við hljót- um því að krefjast sömu réttinda á hefðbundnum leiðum FÍ og sömu launa án tillits til hvaða flugvélum er flogið. FÍA er fullsatt á þeim hringlandahætti sem Flugleiðir hafa sýnt og tekur því ekki þátt i neinum brevtingum sem geta raskað stöðu félagsmanna FÍA. Það má einnig benda á að vegna tengsla okkar við Alþjóðasamtök flugmanna, án þess þó að nokkuð hafi verið ákveðið á þessu stigi getum við stöðvað flug bandarísku flugmannanna á DC-10 vélinni með sólarhringsfyrirvara, því FÍA er eina viðurkennda stéttarfélag flugmanna á landinu gagnvart IFALPA sem telur um 40—50 þús. félagsmenn. Það hefur verið merg- urinn málsins alla tíð af hálfu FÍ A frá upphafi sameiningarinnar að sýna eindreginn vilja til samstarfs og þess að auðvelda sameininguna, en eins og fundarsamþykkt okkar ber með sér er sú biðlund sem við höfum sýnt þrotin.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.