Morgunblaðið - 05.01.1979, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 5. JANÚAR 1979
13
Bókmenntlr
eftir ÆVAR
R. KVARAN
oft með því að segja, að hún „tali“
við jurtirnar sínar. Það sem hér er
um að ræða er flutningur hugsun- ,
ar til blómsins eða jurtarinnar —
kærleikshugsunar. — Hér — eins
og alls staðar annars staðar í
lífinu, er máttur kærleikans að
verki.
Þetta er nú þegar búið að sanna
vísindalega með því að fela
ákveðnu fólki ákveðnar hraðvax-
andi jurtir til mismunandi
meðferðar að þessu leyti: Þær sem
hlúð er að með jákvæðum og
hlýjum hugsunum vaxa fljótar og
betur en hinar, sem ekkert er að
þessu leyti sinnt, þótt þær njóti að
öllu öðru leyti sömu vaxtar-
skilyrða.
Og vitanlega er um sama
máttinn að ræða, þegar sjúklingur
er læknaður með huglækningu.
Það er kærleikurinn sem vekur
gróðrarmáttinn. Þetta er reyndar
grundvallarhugsun allra höfunda
hinna miklu trúarbragða
heimsins: að beina athygli
mannsins að mætti kærleikans. En
við tuttugustu aldar menn þurfum
að láta „sanna“ þetta fyrir okkur
vísindalega, þótt hver sem er geti
auðveldlega gengið úr skugga um
það með því einu að reyna það
sjálfur. Þótt lærðustu menn
nútímans viðurkenni fúslega að
mannshugurinn sé okkur mikill
leyndardómur, þá hafa þær til-
raunir sem vísindamenn hafa
staðið fyrir um hann leitt í ljós, að
hugur mannsins býr yfir ótrúlegu
og áhrifamiklu afli, sem veldur
sýnilegum áhrifum á menn, dýr og
jurtir og jafnvel svokallaða
„dauða" hluti. (Hreyfiaflið).
Til þess að minna lesendur
ennþá einu sinni á mikilvægi
þessarar bókar, get ég ekki stillt
mig utn að rekja hér úr henni
íslenska vísindalega tilraun, sem
þeir gerðu í sameiningu Þorsteinn
Þorsteinsson lí'fefnafræðingur og
dr. Erlendur Haraldsson,
höfundur bókarinnar. í bókinni
segir svo frá tilrauninni:
„Ögn af geri var sett í vatn sem í
voru nokkur næringarefni.
Blanda þessi var hrist uns efnin
höfðu leyst vel upp i vatninu.
Síðan var blöndunni hellt í 20
tilraunaglös þannig að í hverju
þeirra voru 20 millilítrar. Með
tilviljunaraðferð var glösunum
síðan skipt í tvo jafnstóra flokka.
Annar flokkur hinna 10 glasa fékk
sérstaka meðferð, en hinn var
einungis notaður til samanburðar.
Meðferðin var í því fólgin að
nokkrir menn, alls 7, voru fengnir
til að koma og einbeita sér einn í
senn hver að 10 tilraunaglösum.
Til þess höfðu þeir 10 mínútur.
Þeir máttu gera hvað sem þeir
vildu í huganum, en þeir urðu að
sitja við borð sem öll 20 glösin
stóðu á í tveim rekkum. Ekki
máttu þeir snerta glösin; þau 10
sem þeir áttu að einbeita sér að
stóðu fyrir framan þá, en saman-
burðarglösin til hliðar, en þó ekki
svo nálægt að um merkjanlegt
hugstreymi gæti verið að ræða
sem áhrif kynni að hafa á
blöndunina i glösunum. Tilgangur
tilraunarinnar var að athuga
hvort vöxtur gersins yrði hraðari í
þeim glösum sem mennirnir ein-
beittu sér að en í samanburðar-
glösunum."
Það yrði of langt mál hér að
rekja þetta frekar orðrétt, en það
nægir að segja hér frá því, að
útreikningur leiddi í ljós að vöxtur
gersins í glösunum sem mennirnir
reyndu að „magna“ með huga
mót voru sex þroskaheft börn á
dagheimilum en 18 á leikskólum. í
þessu sambandi er rétt að taka
fram, að sá 24 barna hópur, sem
samþykkt félagsmálaráðs fjallar
um, eru mun erfiðari tilfelli en
þau, sem dagvistarstofnanir hafa
getað sinnt hingað til. Þroskaheft
börn eru mjög misjafnlega á sig
komin en það skal undirstrikað að
í þessari tillögu er verið að fjalla
um erfið tilfelli, sem krefjast
sérþjálfaðs starfskrafts. Forsenda
þess að hægt sé að taka á móti
þessum börnum á almennum
dagvistarheimilum er sú, að þessi
viðbótarstarfskraftur fáist.
Sérþjálfun
fósturs
í samþykkt félagsmálaráðs er
því gert ráð fyrir því að 23 fóstrur
að minnsta kosti verði þjálfaðar
sérstaklega til meðferðar þroska-
heftra barna eftir ákveðinni nám-
skrá samhliða starfi. Ennfremur
að í almennu námi fóstra verði
sérstaklega gert ráð fyrir umönn-
um þroskaheftra barna og að
fóstrunám og nám þroskaþjálfa
verði meira samræmt en hingað
til.
Þar til námi fóstra verði breytt
er gert ráð fyrir að hverju
dagheimili, er tekur tvö þroska-
heft börn, verði tryggður einn
sérþjálfaður starfskraftur til
viðbótar fyrra starfsliði og hverju
þroskaheftu barni tryggð umönn-
un á dagvistarheimilinu sem svari
til hálfu starfi fóstru.
Þá er og fjallað um sérfræðilega
þjónustu og lokagreiningu og
skipulagningu hæfingar þroska-
heftra barna úti á almennum
dagvistarstofnunum, sem leitað
verði eftir hjá starfsliði þeirra
stofnana, sem þeim málum sinna
nú, og að dagvistarstofnunum á
vegum Reykjavíkurborgar verði
tryggður aðgangur að sérfræði-
legri þjónustu félagsráðgjafa,
sálfræðinga og lækna.
Annar kaflinn í samþykktinni
lýtur að ráðstöfunum til hjálpar
foreldrum þroskaheftra barna til
Markús Örn
Antonsson
að annast þau á heimilum sínum,
og gerðar ákveðnar tillögur þar
um:
I samvinnu við Tryggingastofn-
un ríkisins verði staðið að útgáfu
upplýsingarits með tæmandi
upplýsingum til foreldra þroska-
heftra barna um réttindi slíkra
barna til bóta og allrar þjónustu.
Tekin verði upp aukin samvinna
við samtök foreldra þroskaheftra
barna með almennri ráðgjöf og
þátttöku í hópstarfi þeirra.
Á vegum Reykjavíkurborgar
verði rekin heimilishjálp, sem
leyst geti foreldra þroskaheftra
barna af um skemmri tíma.
Jafnframt verði sköpuð aðstaða til
að foreldrar þroskaheftra barna
geti tipkið orlof til jafns við aðra.
í tillögunni, sem hér liggur fyrir
til afgreiðslu er ákveðið lagt til að
þessi þjónusta verði veitt á
upptökuheimilinu við Dalbraut,
sem tæki þá þroskaheft börn til
skammtíma vistunar ef foreldrar
óskuðu að njóta orlofs án þess
álags, sem oftast fylgir uppeldi
barnanna.
Þá segir ennfremur í hinni
sínum varð marktækt meiri en
vöxtur gersins í hinum glösunum
sem aðeins voru notuð til saman-
burðar.
Það sannaðist því, að hugurinn
hefur áhrif á lífrænt efni. Hug-
rænn máttur örvaði efnabreyt-
ingar.
Og ekki var heldur með því öll
sagan sögðr- .því tveir þeirra
manna, sem þátt tóku í þessari
tilraun höfðu sinnt huglækningum
og einn hefðbundnum lækningum.
Og það kom í ljós að áhrif þessara
þriggja manna voru meiri en áhrif
hinna fjögurra!
Kaflar þessarar ágætu bókar
gefa best yfirlit um efni hennar í
heild, en þeir eru þessir helstir:
Um hvað er bókin?
Hvernig var könnunin
framkvæmd?
Hverju trúum við?
Hversu trúaðir erum við?
Hver eru kynni landsmanna af
dulrænni starfsemi?
Hver er reynslan af huglæknum?
Hver er hin dulræna reynsla af
fyrirbærum þessa heims?
Hver er hin dulræna reynsla af
fyrirbærum frá öðrum heimi?
Hver er reynslan af látnum?
Hvað er dúlarsálarfræði?
Og hver hefur ekki áhuga á að fá
þessum mikilvægu spurningum
svarað? Ef dæma má eftir þeirri
könnun sem bókin sjálf fjallar um:
flestir íslendingar.
Þetta er með allra merkilegustu
bókum sem út hafa komið í langan
tíma. Sá sem þetta hripar færir
því höfundi og öllum þeim sem að
þessum rannsóknum hafa staðið
bestu þakkir, og þá ekki síður
bókaforlaginu Sögu, sem gefur
bókina út. Stórmerkileg og
athyglisverð bók.
ítarlegu samþykkt félagsmálaráðs,
að stefnt skuli að því, að dvöl
þroskaheftra barna á sérstofnun-
um verði með þeim hætti, að hún
nýtist foreldrum til vinnu utan
heimilis.
Leitað verði eftir því við Trygg-
ingastofnun ríkisins, að hún greiði
útgjöld foreldra þroskaheftra
barna, sem standa í beinu sam-
bandi við fötlun barnanna.
í þriðja kafla samþykktar
félagsmálaráðs segir að lokum:
Félagsmálaráð beinir þeim
tilmælum til borgarstjórnar, að
hún beiti sér fyrir lagabreytingum
í þá átt, að sjúkratryggingar greiði
þann kostnað við dvöl þroska-
heftra barna á almennum dag-
vistarstofnunum, sem er umfram
meðalkostnað vegna dvalar barna
almennt. Forsenda fyrir þátttöku
sjúkratrygginga er, að viðkomandi
barn hafi verið metið svo þroska-
heft að taka þurfi sérstakt tillit til
þess á almennri dagvistarstofnun
hvað snertir starfsmannahald og
aðbúnað.
Breytt viðhorf
Ég tel mig ekki þurfa fara öllu
fleiri orðum um þessa tillögu. Ég
undirstrika aðeins að það er i
samræmi við breytt og æskileg
viðhorf samtímans að þessi hópur
meðborgara okkar sé hafður eins
virkur í lífi og starfi samfélagsins
og unnt er: Þess vegna er það líka
tekið fram í niðurlagi tillögunnar,
að borgarstofnanir, sem vinna að
málefnum barna, hafi með sér
samstarf um að ofangreindu
markmiði verði náð.
Oft er mikil hjálp í því fólgin
fyrir þroskaheft börn að fá að
umgangast heilbrigð börn og
heilbrigð börn þurfa að læra að
umgangast hin þroskaheftu. Þessi,
sambúð er foreldrum þroskaheftra
barna mjög mikilvæg.
Vegna þess eindregna stuðnings,
sem tillögur þessar hlutu hjá
fulltrúum allra flokka í félags-
málaráði á sínum tíma, vænti ég
þess að borgarstjórn muni ein-
róma staðfesta samþykkt félags-
málaráðs.
ENDURÞJALFUN
FYRIR DALE .
CARNEGIE FELAGA
Haldið verður Endurþjálfunarnámskeið fyrir Dale
Carnegie Félaga laugardagana 13., 20., 27. janúar og
3. febrúar kl: 9:30—12:00 f.h.
Viöfangsefni:
★ Aukinn kraftur. Sá kraftur sem hjálpar okkur þegar
mest á reynir. Kraftur sem heldur okkur gangandi,
þegar aörir í kringum okkur eru aö gefast upp.
★ Verömæti starfsins. Hvernig viö getum orðiö
verömætari einstaklingar og nýtt betur tíma okkar.
★ Skapandi samstarf. Hvernig viö getum fundiö styrk
í erfiöum vandamálum og byggt á þeim styrk í
samstarfi.
★ Viöhorf. Sá hæfileiki aö stjórna betur viöhorfi okkar
og fá aukiö traust annarra.
★ Mannleg samskipti. Sá hæfileiki aö skilja aöra
betur og vinna í samræmi og hafa jákvæö áhrif á
aðra.
★ Stööugur proski. Aöferö til aö stjórna lífi okkar og
geta mælt sjálf hvort viö séum á réttri leið.
Þátttaka tilkynnist í síma 8 24 11. Stjórnunarskólinn,
7 34 52 Inga, 5 20 45 Kristín (Eftir kl. 5).
SAMVINNUNEFND D.C. KLÚBBANNA.
DALE CARNEGIE FÉLAGAR — Muniö árshátíöina 6.
janúar í Átthagasal Hótel Sögu. Miðar í Ljósborg sími
2 88 44 eöa viö innganginn.
Boröhaldiö hefst stundvíslega kl. 19:30.
DALE CARNEGIE
ST ARFSÞ JÁLFUNAR
NÁMSKEIÐ
verður haidiö fyrir Dale Carnegie Félaga —
Fimmtudagskvöld 5 skipti kl. 19—21.00.
Efnisyfirlit:
★ Hvernig muna á mannanöfn.
★ Aö skilja sjálfan sig og aöra betur.
★ Aö gera starf sitt skemmtilegra.
★ Hvernig viö getum auöveldaö skoöanaskipti.
★ Hvernig viö getum auösýnt einlæga viöurkenningu.
★ Hvernig viö eigum aö bregöast vinsamlega viö
kvörtunum.
★ Hvernig viö getum oröiö virkir hlustendur.
★ Mikilvægi þess aö spyrja viöeigandi spurninga.
★ Aö skilja betur mikilvægi eldmóösins.
★ Hvernig viö getum lifaö og starfaö árangursríkara
með ööru fólki.
Innritun og upplýsingar í síma 8 24 11 Stjórnunarskól-
inn, 7 34 52 Inga og 5 20 45 Kristísn (Eftir kl. 5.)
SAMVINNUNEFND D.C. KLÚBBANNA.
DALE CARNEGIE
STJÓRNUNAR-
NÁMSKEIÐIÐ
hefst 30. janúar — Þriöjudaga kl. 14.00—18.00.
13 LykilatriAi sem rædd eru í Dale Carnegie
Stjórnunarnámskeiöinu
1. Hvernig á aö byggja upp árangursríka áætlun.
2. Hvernig á aö skipuleggja til aö ná árangri.
3. Skipulagning og áætlun forgangsatriða á mánuöi,
vikur og daga.
4. Hvernig á aö stýra framkvæmd að settu marki.
5. Hvernig á aö skipta verkum réttilega og setja upp
árangursríkt eftirlit.
6. Hvernig á aö samræma störfin og byggja upp
samvinnu.
7. Hvernig á aö leysa vandamál og taka ákvaröanir
meö innbyggöu mati til aö tryggja arðsamar
ákvaröanir.
8. Hvernig á aö byggja upp starfsfólkiö, tryggja vöxt
og framfarir og koma í veg fyrir stöönun.
9. Hvernig á aö gera starfsmennina ábyrga og meta
árangur.
10. Hvernig á aö stjórna meö tilgangi og byggja upp
þýöingu starfsins.
11. Hvernig á aö halda góöum starfsanda milli deilda
fyrirtækisins.
12. Framtíöaráætlanir og leiðir til aö tryggja framgang
þeirra meö skipulagningu, áætlunum og eftirliti.
13. Eftirlit og áætlun til aö tryggja þaö aö
hugmyndirnar sem koma fram í námskeiöinu séu
framkvæmdar.
Þessi lykilatriöi eru nokkur af 36 grundvallaratriöum árangursríkrar
stjórnunar sem kennd eru í Dale Carnégie Stjórnunarnámskeiöinu.
Þessi grundvallaratriöi eru sett fram á skýran hátt, svo auðvelt er aö
koma þeim strax í framkvæmd.
Innritun og upplýsingar í síma ö 24
STJ0RNUNARSK0UNN
Konráð Adolphsson.