Morgunblaðið - 05.01.1979, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 5. JANÚAR 1979
15
Þetta gerðist
5. janúar
1978 — Jimmy Carter Banda-
ríkjaforseti heimsótti
Normandy í Frakklandi þar sem
yfir 900 Bandaríkjamenn eru
íírafnir og sagði í því sambandi
að sjálfstæði Evrópu yrði ekki
framar ógnað.
1976 — Suður-Afríkustjórn
leyfir aftur sjónvarp í landinu
eftir að það hafði legið niðri í
nokkur ár.
1973 — Regluleg vopnaleit á
farþegum bandarískra flugfé-
laga hafin.
1972 — Breskum hermönnum
gefið aukið svigrúm til að skjóta
á skæruliða sem hætta gæti
stafað af.
1969 — Sovétmenn senda fyrsta
geimfarið í átt til Venusar og
ráðgert að það kæmi til reiki-
stjörnunnar fjórum mánuðum
seinna.
1961 — Herforingjastjórnin í
Perú lét handtaka hundruð
manna sem voru ákærðir fyrir
að vera kommúnistar.
1917 — Herir taka Dobrudja-
svæðið í Rússlandi.
1899 — Aguinaldo hershöfðingi
krefst þess af Bandaríkjamönn-
um að Filippsreyjar hljóti þá
þegar sjálfstæði.
1895 — Eðlisfræðingurinn þýzki
Wilhelm Roentgen tilkynnir um
uppgötvun.röntgejigeisians.
1809 — Bretar og Tyrkir undir-
rita samkomulag um 'yfirráð
yfir Dardanellasundi.
1762 — Elíasabet keisaraynja í
Rússlandi devr og við tekur
Pétur II.
1177 — Svisslendingar sigra
heri Burgundymanna og fella
Karl mikla í orustunni við
Nancy.
Afmæli dagsins: Konrad
Adenauer kanslari Þýzkalands
(1876—197(51 Juan Carlos kon-
ungur Spánar (1937 — ).
Orð dagsins: Aðlögun að ríkj-
andi aðstæðum og skoðunum er
fangelsun frelsis og framfara,
vaxtar og þroska. — John F.
Kennedy, bandarískur forseti
(1917-1963).
Fljúgandi furdu
hlutir yfir ísrael
Þorlákshöfn og nágrenni:
Hátíðarmess-
ur fjölsóttar
Þorlákshöfn. 4. jan.
Tel Aviv, 4. janúar. AP.
ísraelska fréttastofan
Hebrew telur sig hafa
áreiðanlegar heimildir fyr-
ir því að fjöldi ísraels-
manna hafi séð óþekkta
fljúgandi furðuhluti á síð-
ustu dögum og kemur það í
kjölfar frétta frá Ástralíu
þar sem fljúgandi furður
hlutir voru festir á sjón-
varpsfilmu í desember s.l.
Flest tilfellin í ísrael
koma frá Jerúsalem að
sögn fréttastofunnar. Blað-
ið Yediot Aharnonot í
Jerúsalem segir í frétt
sinni í morgun að tilkynn-
ingar fólks þess efnis að
það hafi séð fljúgandi
furðuhluti hafi borist því
löngu, áður en fréttirnar
frá Ástralíu bárust til
ísraels.
HÉR liðu jól og áramót í ró og
friði. Á jólum var eindæma
blíða í veðri, áramótin aftur á
móti hvít og tignarleg. Á
aðfangadag klukkan 18 var
aftansöngur í barnaskólanum,
sóknarpresturinn sr. Tómas
Guðmundsson, predikaði fyrir
Tullu húsi, Söngfélag Þorláks-
hafnar ásamt barnakór söng
undir stjórn Ingimundar Guð-
jónssonar. Þetta var indæl
hátíðarstund en öll höfum við
sjálfsagt fundið að það er
kirkja á staðnum sem við
þráum innst inni til að koma
saman í á svona stundum og
með sameiginlegu átaki mun
það takast áður en langt um
líður.
Á jóladag klukkan 14 var
guðsþjónusta í Strandarkirkju
í Selvogi. Sr. Tómas
Guðmundsson predikaði og
Söngfélag Þorlákshafnar söng.
Kirkjan var fullsetin, Um
áramót var svo hátíðarguðs-
þjónusta í Hjallakirkju í
Ölfusi, þar sem sóknarprestur-
inn sr. Tómas minntist þess
sérstaklega að 50 ár eru liðin
síðan kirkjan var endurbyggð
af trésmíðameistaranum
Kristni Vigfússyni á Selfossi.
Kirkjan var vígð árið 1928 í
þeirri mynd sem hún er í dag.
Söngfélag Þorlákshafnar söng
undir stjórn Ingimundar
Guðjónssonar en hann er
formaður sóknarnefndar
Hjallakirkju.
Áramótadansleikur var
haldinn í félagsheimilinu og
fór hann mjög vel fram.
— Ragnheiður.
Mafíuforingjar
dæmdir á ítaliu
Varaforseti ASÍ:
Umbæturnar eru lög-
in um uppsagnar-
frest og veikindadaga
Reggio Calabria, Ítalíu
4. janúar. — Reuter
TUTTUGU og átta Mafíu-
foringjar voru í dag dæmd-
ir til allt að 11 ára fangels-
isvistar í réttarhöldum sem
eru talin þau fyrstu sem
raunverulega gera atlögu
að starfsemi Mafíunnar á
Suður-Ítalíu, segir í frétt-
um frá Reggio Calabria í
dag.
Á meðan á mánaðarlöngurr
réttarhöldunum stóð voru mafíu
foringjarnir ákærðir fyrir að beit;
ýmsa aðila í iðnaði og verzlui
ERLENT
Evrópa:
12 milljónir
manna at-
vinnulausir
árið 1990
ZUrich, 4. janúar.
UM 12 milljónir manna á at-
vinnualdri í Evrópu munu verða
atvinnulausar árið 1990 sam-
kvæmt athugunum sem Efna-
hagsmálastofnunin í Basel í Sviss
hefur nýverið gert.
í athuguninni fyrir árið 1979
kemur fram að veruleg aukning
mun verða á atvinnuleysi nema
verulegar breytingar verði gerðar
á skipulagi vinnutíma og verk-
stjórnunar. — Þá segir að árið
1983 verði um 7.5% Evrópubúa
atvinnulausir og árið 1990 verði
talan komin í 9.1% sem þýði að um
12 milljónir manna verði atvinnu-
lausir.
þvingunum og sagt var að þeir
stjórnuðu hreinlega öllum fjár-
málum á svæðinu í nágrenni
Reggio Calabría. Þá voru kapparn-
ir ákærðir fyrir ýmiskonar ofbeld-
isverk á undanförnum árum.
Þyngsta dóminn fék Girolamo
Piromalli, öðru nafni Don Momo,
höfuð ættarinnar, sem ræður
ríkjum í Reggio Calabria, eða 11
ára fanegelsisvist. — Allir lýstu
hinir dæmdu því yfir að þeir
myndu áfrýja dóminum til hæsta-
réttar.
Þá hefur blaðið Haarezt það
eftir þremur sjónarvottum, þar á
meðal lögreglumanni, að í fyrra-
kvöld hafi borist eftir himni
hlutur sem líktist tígli og var
rauður, blár og fjólublár að lit.
Hafi hluturinn breytt lit sínum
stöðugt og að lokum horfið. —
Lögregla neitaði í fyrstu að kanna
málið neitt frekar en lét þó undan
um síðir og bað flugher landsins
að kanna málið. Ekkert kom út úr
þeirri könnun.
,,ÉG Á þarna við lögin um
uppsagnarfrest og veikindadaga,
sem eru geysileg bót, sérstaklega
þeim sem verr eru settir," sagði
Snorri Jónsson, varaforseti ASÍ,
þegar Mbl. spurði hann hvaða
„mikilsverðar félagslegar umbæt-
ur" sem „hafa þegar verið sam-
þykktar á alþingi" hann ætti við í
yfirliti sínu um árið 1978 í
áramótablaði Morgunblaðsins.
„Þetta eru atriði sem við höfum
lengi verið á eftir í samningum, en
aldrei hafa náðst fram,“ sagði
Snorri. „Og ég tel það afar mikils
virði að þau skuli nú hafa fengizt.“
Mbl. spurði Snorra, hvort verka-
lýðsforystan væri orðin óþolinmóð
að bíða þeirra félagslegu umbóta,
sem rikisstjórnin hét í sambandi
við 1. desember. „Ekki segi ég það
nú,“ sagði Snorri. „Við höfum
loforöin og sumt hefur verið lagt
fram og annað er á leiðinni. En um
útkomuna vil ég ekkert segja fyrr
•en allt saman er komið í gegn.“