Morgunblaðið - 05.01.1979, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 5. JANUAR 1979
19
Rannsóknar-
lögreglan fór
37 sinnum út
á land sl. ár
Rannsóknarlögregla ríkisins
sendi iögreglumenn í 37 skipti út á
land á sl. ári, sem var fyrsta heila
starfsár stofnunarinnar. Alls voru
sendir 65 lögreglumenn og þeir unnu
1641 vinnustund. Þeir sinntu hinum
margvíslegustu verkefnum, rannsök-
uöu afbrot, slysfarir, bruna og fleiri
málaflokka, sem falla undir hina
nýju sstofnun.
Glatt á hjalla
í Garðinum á
þrettándanum
Garöi 14. janúar
SJÖ félög í þorpinu ætla að standa
fyrir álfabrennu á þrettándanum ef
veður leyfir.
Hefst skemmtunin við barna-
skólann klukkan 18 en þaðan á að
fara í blysför upp á íþróttavöll. I
blysförinni verða kóngur og drottn-
ing ásamt púkum og álfum. Þá er
einnig áætlað að hljóðfæraleikarar
gangi fyrir blysförinni.
Um klukkan 18.30 verður kveikt í
bálkesti á íþróttavellinum og verður
þar dansað og sungið. Þá verður
einnig flugeldasýning.
Um kvöldið verður hjónadans-
leikur í samkomuhúsinu á vegum
hjónaklúbbsins og kemur fjögurra
manna band frá Reykjavík til að
halda uppi gleðskapnum.
Fréttaritari.
Sáttasemjari:
Fundur með
aðilum verzl-
unarinnar
TORFI Iljartarson sáttasemjari
sagði í samtali við Morgunblaðið að
hann hygðist halda fyrsta
samningafundinn með verzlunar
mönnum og kaupmönnum um mið-
bik næstu viku, en í dag er
ákveðinn fundur með Bandalagi
háskólamanna.
Frá einni af aðalgötunum í Lissabon.
Vörður efnir til
Portúgalsferðar
LANDSMÁLAFÉLAGIÐ
Vörður efnir í þessum
mánuði til ferðar til
Portúgals, en félagið
hefur síðan árið 1973
skipulagt utanlands-
ferðir í samvinnu við
Ferðaskrifstofuna Úrval.
Hilmar Guðlaugsson er
formaður ferðanefndar
Varðar og greindi hann í
spjalli við Mbl. frá væntan-
legri ferð:
— Félagið hefur reynt að
gefa fólki tækifæri á ódýrum
utanlandsferðum og hefur
þátttaka í þeim aukist ár frá
ári síðan þær hófust árið
1973, og fóru t.d. nokkuð á
annað þúsund manns með
árið 1976. Við höfum einu
sinni áður skipulagt hópferð
til Portúgals, í febrúar 1977.
— Ferðin að þessu sinni
hefst 14. janúar og stendur í
12 daga. Innifalið er auk
flugferðanna gisting og fæði
á hóteli og ein skoðunarferð
um Lissabon. I þessari ferð er
lögð áherzla á skoðunarferðir
fremur en að dvelja á bað-
ströndum, enda er veðrið á
þessum árstíma mjög svipað
því sem gerist á beztu sumar-
dögum hér hjá okkur. Skipu-
lagðar verða skoðunarferðir
um Lissabon m.a. í frægt
spilavíti og fleiri merka staði.
Hilmar Guðlaugsson s^gði
að lokum að ferðaskrifstofan
Úrval veitti nánari
upplýsingar um ferðina og
skráði fólk til þátttöku og
yrði íslenzkur fararstjóri
með í ferðinni, en skrifstofa
Varðar veitir einnig nánari
upplýsingar.
Rangfærslur og
pólitískt siðleysi
MORGUNBLAÐINU hefur borizt
eftirfarandi tilkynninx frá Rauð-
sokkahreyfinjíunni.
„Ársfjorðungsfundur Rauðsokka-
hreyfingarinnar, haldinn 28. des.
1978, átelur harðlega þær rangfærsl-
ur og það pólitíska siðleysi sem fram
kemur í samþykkt Æskulýðsráðs
Reykjavíkur frá 18. þ.m., um að víta
Rauðsokkahreyfinguna vegna
vínveitinga á árshátíð hennar í
Tónabæ þann 4. nóv. s.l.
Þegar Tónabær var tekinn á leigu
voru engir samningar geröir, hvorki
munnlegir né skriflegir. á milli
Æskulýðsráðs og Rauðsokkahreyf-
ingarinnar aðrir en þeir að hreyfing-
in greiddi umsamda leigu og skilaði
húsnæðinu í sama ástandi og hún
tók við því, sem hún og gerði.
Lögreglustjóraembættið í Reykjavík
gaf út vínveitingaleyfi á Tónabæ í
tilefni af hátíðinni og vissi þar af
leiðandi ekki að bann væri við
vínneyslu í húsnæðinu þegar það
væri í útleigu svo að vart er hægt að
ætla að Rauðsokkahreyfingin búi
sjálfkrafa yfir þeirri vitneskju.
Vikuna fyrir hátíðina voru fulltrú-
ar hreyfingarinnar í daglegu sam-
bandi við starfsfólk Æskulýðsráðs
og framkvæmdastjóra þess, Hinrik
Bjarnason, sem hefði verið í lófa
iagið að tilkynna þeim að vínneysla
væri óheimil í húsinu, enda hafði
Æskulýðsráði ekki veriö gefið neitt
tilefni til að ætla að ekki yrðu
vínveitingar á dansleiknum um
kvöldið. Verður ekki annað séð en að
illa hafi verið staðið að útleigu
Tónabæjar af hálfu Æskulýðsráðs
og getur Rauðsokkahreyfingin engan
veginn sætt sig við að afglöp
embættismanna þess verði færð á
hennar reikning.
Vinnubrögð fulltrúa Sjálfstæðis-
flokks og Alþýðuflokks í Æskulýðs-
ráði í máli þessu verða ekki skilin
öðruvísi en sem frekleg árás á
Rauðsokkahreyfinguna. Fordæmir
fundurinn harðlega að þeir skuli
misnota vald sitt til að koma höggi á
pólitískan andstæðing og reyna að
sverta hann í augum almennings
þegar þeir ættu með réttu að beina
sjónum sínum að eigin mistökum.'1
Portúgal
M.s. „Grundarfoss" fermir vörur í Lissabon til
íslands 15. janúar 1979.
Umboösmenn: Keller Maritima Ida,
Praca D. Luis 9, Lissabon.
Telex 12817 — Sími 669156.
H.F. EIMSKIPAFÉLAG ÍSLANDS.
Músikleikfimin
hefst
fimmtudaginn 11. janúar.
Tími fyrir byrjendur og framhalds-
nemendur.
Kennt verður í húsi Jóns
Þorsteinssonar Lindargötu 7.
Kennari Gígja Hermannsdóttir.
Upplýsingar og innritun í síma
13022.
Keramiknámskeið
Innritun í síma 51301.
Keramikhúsid h.f.,
(Lísa Wíum),
Reykjavíkurvegi 68, Hafnarfiröi.
í óskilum
er í Ásahreppi Rangárvallasýslu Ijósrauö hryssa
3ja vetra ómörkuö meö jarpt hestfolald.
Veröa seld 20. janúar n.k.
Hreppstjórinn.
Reykingavarnir
á vinnustöðum
Samstarfsnefnd um reykingavarnir óskar aö
komast í samband viö áhugamenn um reykinga-
varnir á vinnustööum m.a. vegna undirbúnings
undir reyklausan dag 23. janúar. Þeir sem áhuga
hafa eru beönir um aö setja sig sem fyrst í
samband viö skrifstofu nefndarinnar í Lágmúla 9,
simi 82531. Samstarfsnefnd um reykingavarnir.
Hressingarleikfimi
fyrir konur
Kennsla hefst aftur mánudaginn 8. janúar í leikfimisal
Laugarnesskóla. Fjölbreyttar æfingar — músik — slökun.
Innritun og upplýsingar í síma 33290.
Ástbjörg S. Gunnarsdóttir íþróttakennari.