Morgunblaðið - 05.01.1979, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 5. JANÚAR 1979
29
-fj W „
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
0100 KL. 10— 11
^ FRÁ MÁNUDEGI
um svæði einnar útsölu áfengis-
verslunarinnar. í kringum þessa
verslun var svo mikil umferð að
upp undir hálfan tíma tók það mig
að komast á bíl út af bílastæði og
að aka smá vegarspotta sem ekki
tekur nema 1—2 mínútur að aka
við venjulegar aðstæður. Þetta
umferðaröngþveiti tafði mjög
ferðir mínar og var það bagalegt
þar sem haldin var veisla þar rétt
hjá og þurfti oft að komast að og
frá þessu svæði vegna ýmissa
hluta.
Ég veit ekki glöggt hvað gera
mætti við þessu ástandi en mér er
það ljóst að ekki er hægt að ein
verslun tefji umferð svo geysilega
á litlu svæði ékki síst ef vera
skyldi um algjört neyðartilfelli að
ræða fyrir bifreið að komast leiðar
sinnar. Mér er einnig sagt af fólki
sem býr í námunda við þessa
tilteknu verslun að á föstudögum
sé umferð hátt upp í það að vera
eins mikil og hún var síðasta
laugardag síðasta árs.
Guðrún.
• Viðbjóður
Fyrir jólin var í sjónvarpinu
bók nokkur, „Tvíbyttnan“ auglýst
mikið sem bók handa unglingum
og efalaust hefur hún verið ætluð
til jólagjafa.
Nú vill hins vegar svo til að bók
þessi er hin svæsnasta klámbók og
hefði ég ekki trúað því áður en ég
las þessa bók að nokkrum manni
gæti komið til hugar að setja
annan eins viðbjóð á prent. Svo
langt gengur höfundur samt að
engin persóna bókarinnar er
eðlileg, allir eru meira eða minna
bilaðir.
Svo er þessi bók auglýst sem
unglingabók og það fólk sem ekki
veit hvað hér er um að ræða hefur
vafalaust keypt hana handa ein-
hverjum unglingum í þeirri góðu
trú að bókin væri góð og gild.
Ég hef ekki vitað til annars en
að klámmyndir væru flestar bann-
aðar börnum yngri en 16 ára en ,í
þessu tileflli er klám auglýst við
hæfi unglinga. Það hlýtur að vera
skylda þeirra sem ákvarða aldurs-
takmarkanir að fylgjast með því
einnig að unglingum sé ekki boðið
upp á slíkan viðbjóð á öðrum
vettvangi. Það er ekkert athuga-
vert þótt eðlilegt kynlíf beri á
góma í bókum fyrir börn og er
slíkt ekki nema sjálfsagt í mörgum
tilfellum og ef um slíkt hefði verið
að ræða í tiltekinni bók myndi ég
ekki hafa gert hana að umtalsefni
hér. En í „Tvíbytnunni“ er alls
ekki um eðlilegt kynlíf að ræða
heldur aðeins viðbjóð.
Móðir.
• Mjög gott skaup
Ýmsar raddir hef ég heyrt um
það að áramótaskaup sjónvarpsins
hafi verið slæmt og ekki náð
tilætluðum árangri þ.e.a.s. að gera
gys að ýmsum þáttum þjóðlífsins.
Ég er algjörlega ósammála þessum
röddum þar sem mér fannst
skaupið mjög gott, betra en oft
áður og ekki missti það marks á
mínu heimili þar sem fólk á öllum
aldri skemmti sér vel við að horfa
á skaupið.
Hluta af áramótaskaupi út-
varpsins heyrði ég einnig og
fannst það ekki vera síðra en það í
sjónvarpinu.
Yfirleitt var ég mjög ánægð með
dagskrár ríkisfjölmiðlanna yfir
hátíðarnar. Jólastundin okkar var
sérstaklega góð og kvikmyndir
voru vel valdar og við hæfi allra.
Það sama er að segja um útvarpið,
þar voru þættirnir bæði fróðlegir
og skemmtilegir og við flestra
hæfi.
- Anægður neytandi.
HÖGNI HREKKVÍSI
% £<s> mi jK'mtérrm / "
33? SIGGA V/öGA fi 1/LVERAU
jazzEnLLedCskóLi búpu
^ líkom/feckt j.s.b. W
Dömur
athugió
Byrjum afftur efftir jólafrí 8. janúar.
* Líkamsrækt og megrun fyrir dömur á öllum aldri.
* Morgun- dag og kvöldtímar.
* Tímar tvisvar eða fjórum sinnum í viku.
* Sérstakur matarkúr fyrir Þær sem eru í megrun.
* Sér flokkur fyrir pær, sem vilja rólegar og léttar
æfingar.
Vaktavinnufólk athugió „lausu tímana“
hjá okkur.
* Sturtur — sauna — tæki — Ijós.
* Munið okkar vinsæla sólaríum.
* Byrjenda, framhalds- og lokaðir flokkar.
* Hjá okkur skín sólin, allan daginn, alla daga.
* Upplýsingar og innritun í síma 83730.
njpa no>18Cp©nnoazzDr
Iþróttafélag
kvenna
Leikfimi hefst hjá félaginu
mánudagin 8. jan. í
Austurbæjarskóla kl. 6
s.d.
Rýtmisk, afslöppunar og
þjálfunarleikfimi. Kennari
veröur Rósa Þórisdóttir
Uppl. í síma 14087 og
29056. Stjórnin.
Frá Menntaskólanum
við Hamrahlíö
LOK HAUSTANNAR -
UPPHAF VORANNAR
Dagskóli: Vorönn hefst mánudag 8. janúar.
Stundatöflur veröa afhentar kl. 9.00. Kennsla
hefst á hádegi.
Öldungadeild: Einkunnir veröa afhentar og
prófúrlausnir sýndar kl. 13.00 föstudag 5. janúar.
Brautskráning stúdenta hefst í hátíöasal skólans
kl. 15.00 sama dag.
Kennsla á vorönn hefst samkvæmt stundaskrá
mánudag 8. janúar. Rektor.
Kennsla hefst j þriöjudaginn i 9. janúar. uJ Upplýsingar í síma ^ 72154. L
BflLLETSKÓU sigríðar ÁRmflnn SKÚLACÖTU 32-34
WL 0/tYli<b óí x ^
% o^m of^iL
S'tm ö?