Morgunblaðið - 05.01.1979, Page 31
31
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 5. JANÚAR 1979
Öruggur sigur ÍR-
inga í gærkvöldi
ÍR-ingum tókst í gærkvöldi það sem mörg lið hafa
reynt, en fáum tekist það sem af er keppni í
úrvalsdeildinni í körfuknattleik, en það er að vinna sigur
á íslandsmeisturum KR. Sigur ÍR-inganna í gærkvöldi
var raunar aldrei í hættu, þeir léku allan leikinn af
skynsemi, flönuðu ekki að neinu, sem er meira jen sagt
verður um KR liðið. Leiknum lyktaði með sigri ÍR-inga,
89-76, en í hálfleik var staðan 41-27 fyrir ÍR.
ír-ingar byrjuðu leikinn af
miklum krafti og komu KR-ingum,
að því er virtist, í opna skjöldu
með ákveðni sinni. Var staðan að
liðnum fimm mínútum orðin 11-2
þeim í vil. Tóku KR-ingar þá
leikhlé og mættu að því loknu
tvíefldir til leiksins og innan
tveggja mínútna hafði þeim tekist
að jafna. En ÍR-ingar voru ekki á
því að gefa sig, náðu þeir brátt upp
fyrra forskoti sínu og héldu því til
loka hálfleiksins. Voru KR-ingar í
þessum leikkafla með afbrigðum
mistækir, sérstaklega þó Jón
Sigurðsson, en honum virtist með
öllu fyrirmunað að koma boltan-
um í körfuna. Jón fann sig aldrei í
leiknum og minnist ég þess ekki að
hafa séð hann svo daufan í vetur.
í síðari hálfleiknum reyndu
KR-ingar allt hvað þeir gátu til að
vinna upp forskot ÍR-inga, en
tókst það aldrei og varð munurinn
á liðunum aldrei minni en 9 stig,
en leiknum lauk einsog áður segir
með 13 stiga sigri ÍR, 89-76.
Ekki verður annað sagt en að
IR-ingar hafi verið vel að þessum
sigri komnir. Þeir börðust allan
leikinn af miklum krafti og
uppskáru eftir því. Paul Stewart
leikur nú með liðinu að nýju og
átti hann mjög góðan leik og stýrði
liði sínu af ákveðni. Kristinn
Jörundsson lék að sama skapi
skínandi vel í gærkvöldi, en
Kristinn er einn af þessum leik-
mönnum, sem aldrei gefast upp, þó
ekki blási byrlega. Jón bróðir hans
lék einnig vel. Stefán Kristjánsson
er leikmaður, sem gæti náð langt
ef hann hleypti í sig meiri hörku,
því hann hefur að öðru leyti allt
það til brunns að bera, sem prýðir
góðari körfuboltamann.
KRi Árni Guðmundsson 1. Birgir Guðbjörnsson 1. Einar Bollason
3, Eiríkur Jóhannesson 1, Garðar Jóhannsson 1. Gunnar
Jóakimsson 2, Jón Sigurðsson 2.
ÍRi Erlendur Markússon 2, Jón Jörundsson 3, Kolbeinn
Kristinsson 2, Kristinn Jörundsson 3, Sigurbergur Bjarnason 2,
Stefán Kristjánsson 2.
„Jæja piltar. nú er ég hættur í alvörunni“
Ali loks hættur?
ÞAÐ VERÐUR vart talið nema
með stjarnfræðilegum upphæðum
öll þau skipti sem Muhammed Ali,
heimsmeistarinn í hnefaleikum,
hefur tilkynnt að hann hafi lagt
hanskana á hilluna fyrir fullt og
allt.
Mummi vann þá fádæma afrek
fyrir skömmu að verða eini maður-
inn sem unnið hefur heims-
meistaratitilinn þrívegis. Það var
skráð í mannkynssöguna þegar
hann vann Leon Spinks á stigum
fyrr í vetur og varð þar með
heimsmeistari í þriðja skiptið.
KR-liðið hefur með leik sínum í
gærkvöldi án efa valdið stuðnings-
mönnum sínum miklum vonbrigð-
um. Léku flestir KR-inga langt
undir getu í gærkvöldi. Frammi-
stöðu Jóns Sigurðssonar er áður
getið og munar vissulega um
minna en þegar slíkur snillingur
sem Jón er finnur sig hvergi í
leiknum. John Hudson skoraði að
venju drjúgt, eða um helming allra
stiga KR-inga, en gerði sig þó
sekan um mikið af mistökum, sem
eru næsta sjaldséð hjá þessum
leikmanni. Einar Bollason stóð sig
best KR-inga að þessu sinni,
reyndi eftir mætti að drífa félaga
sina áfram, en það stoðaði lítt.
Seint ætlar Einar þó að láta af
eilífum mótmælum við dómarana,
sem aldrei kann góðri lukku að
stýra eins og hann veit eflaust best
sjálfur. KR-ingar þurfa mikið að
lagfæra leik sinn á næstunni ætli
þeir að halda í íslandsbikarinn.
Stigin fyrir KR: Hudson 38,
Einar Bollason 14, Jón Sigurðsson
9, Gunnar Jóakimsson 6, Árni
Guðmundsson 4, Garðar Jóhanns-
son 3 og Eiríkur Jóhannesson 2.
Stigin fyrir ÍR: Paul Stewart 27,
Kristinn Jörundsson 20, Jón
Jörundsson 19, Kolbeinn Kristins-
son 9, Stefán Kristjánsson 8,
Sigurbergur Bjarnason 4, Erlend-
ur Markússon 2.
Dómarar voru Ingi Gunnarsson
og Þráinn Skúlason og dæmdu þeir
leikinn heldur illa.
STAÐAN
Staðan í
úrvalsdeild
L U T Stigatala Stig
KR 10 7 3 921-801 14
Valur 9 6 3 778-780 12
UMFN 10 6 4 983-943 12
ÍR 9 5 4 793-750 10
ÍS 8 2 6 682-738 4
Þór 10 2 8 786-931 4
*
farnir að berja augum hina svoköll-
uðu Mótabók HSI. frekar en aðrir
handknattleiksunnendur. Þetta rit
hefur þó komið út síðustu árin og
er auðvitað algerlega nauðsynlegt.
ekki síst fyrir þá sem þurfa að
fylgjast með handboltanum vinnu
sinnar vegna. þ.e.a.s. íþróttafrétta-
mennirnir.
Þegar þessi bók kemur ekki út,
vilja hlutirnir æxlast þannig, að
eina auglýsingin bregst, sem hand-
boltaleikir fá. Þannig hafa iþrótta-
fréttamenn ekki hugmynd um það í
dag hvaða leikir eru á dagskrá á
allra næstu dögum. 1. deildin liggur
í láginni, en til eru deildir sem heita
1. deild kvenna og 2. deild karla o.fl.
HSI-mönnum til hróss(?) hafa þeir
uðum sneplum, sem ná fáeinar vikur
fram í tímann hver snepill. Nú hefur
það hins vegar gerst, að síðasti
snepill hefur runnið skeið sitt á
enda en nýr snepill hefur ekki sézt. í
millitíðinni gætu þess vegna farið
fram ýmsir leikir án þess að
fréttamenn hafi hugmynd um.
Þetta er að sjálfsögðu afleit
frammistaða hjá HSI, því að enginn
fer að sjá handboltaleik sem hann
hefur ekki hugmynd um að á fara
fram. Ef HSÍ-menn eru inntir eftir
bókinni, er svarið: „Heyrðu, hún er
alveg að koma. Já Mótabókin, hún
kemur í lok vikunnar". Og allt þar
fram eftir götunum. Þetta er
svartur blettur á mótanefnd HSÍ.
— gg/þr.
Nýlega tilkynnti hann í ??? þúsund-
asta skiptið, að hann myndi aldrei
berjast framar. Þrátt fyrir allt sem
á undan er gengið, er meiri ástæða
til að taka kappann alvarlega nú
heldur en áður. Það felst í því, að
hann er tæplega 37 ára gamall og er
búinn að klifa alla hugsanlega tinda
sem hnefaleikamaður getur hugsan-
lega klifið.
I 59 slagsmálum sem atvinnu-
maður, hefur Ali unnið 56, en tapað
aðeins 3. Og allir sem unnið hafa
hann einu sinni hafa tapað fyrir
honum næst þegar þeir hafa rekist
hvor á annan í hringnum.
Landsliðseinvaldurinn í hand-
bolta, Jóhann Ingi Gunnarsson,
hefur valið 16 leikmenn sem teflt
verður fram gegn Pólverjum í
landsleikjunum tveim um helg-
ina. Allir nema fjórir leika ýmist
með Val eða Víkingi. Eftirfarandi
leikmenn fá að glíma við pólsku
snillingannai
Olafur Benediktsson Val, Jens
Einarsson IR, Brynjar Kvaran
Val, Árni Indríðason Víking,
Olafur Jónsson Víking, Páll Björg-
vinsson Víking, Viggó Sigurðsson
Víking, Ólafur Einarsson Víking,
Axel Axelsson Dankersen, Ólafur
H. Jónsson Dankersen, Bjarni
Guðmundsson Val, Þorbjörn Guð-
mundsson Val, Þorbjörn Jensson
Val, Steindór Gunnarsson Val,
Stefán Gunnarsson Val, Jón Pétur
Jónsson Val.
Þeir Brynjar Kvaran, Þorbjörn
Jensson, Stefán Gunnarsson og
Jón Sigurðsson var óvenju daufur í leiknum í ga>r.
Mótabók HSI??? ^
Hvað er nú það?!
EKKI ERU íþróttafréttaritarar mjatlað í fréttaritarana handskrif- S
!
!
I
Ísland-Pólland um helgina:
Síðasti prófsteinn-
inn fyrir Baltic Cup
Jón Pétur Jónsson leika ekki fyrri
leikinn, en koma hins vegar inn í
þann síðari. Árni Indriðason er
fyrirliði.
Um pólska liðið er það að segja,
að með því koma hingað til lands
allir sterkustu leikmenn þess og
mun liðið dvelja í Vestmannaeyj-
um fram að landsleikjunum. Er
fyrirhugað að liðið leiki æfingar-
leiki gegn Eyjaliðunum Þór og Tý.
Áður hafa íslendingar og Pól-
verjar leikið 11 landsleiki, þessir
verða númer 12 og 13. íslendingar
hafa 5 sinnum sigrað, en Pólverjar
6 sinnum. Síðast áttust þjóðirnar
við á móti einu í Frakklandi fyrir
skömmu og máttu þeir pólsku þá
þakka fyrir að sigra landann með
eins marks mun, en íslendingar
höfðu einu marki yfir í hálfleik.
Leikurinn í Frakklandi var vel
leikinn og harður mjög. Kom mest
á óvart, að markamaskínan Jerzy
Klepel skoraði aðeins 1 mark í
leiknum, en það er 10-12 mörkum
minna en hann er vanur. Og
markið skoraði hann úr horninu er
íslendingar voru einum færri á
vellinum. En maður kom í manns
stað og illa gekk að hemja Alfred
Katuzinski, sem skoraði 7 mörk
bæði með langskotum og gegnum-
brotum. Hann leikur í peysu
númer 13 og ættu áhorfendur að
gefa honum góðan gaum, svo og
Marek Panas, leikmanni númer 4,
sem er talinn mjög sterkur,
Markvörður Pólverja er einnig
athyglisverður náungi, en hann
hefur krækt sér í viðurnefnið
„Akrobat".
Áhorfendum verður því boðið
upp á eitthvert það besta sjónar-
spil sem völ er á í handbolta í dag
og hljóta að fjölmenna í Höllina.
Þáttur áhorfenda er alltaf jafn
mikill og mikilvægur, ekki síst
þegar leikið er gegn slíku stórveldi
í handknattleik sem Pólland er.