Morgunblaðið - 27.01.1979, Síða 1
48 SIÐUR
22. tbl. 66. árg.
LAUGARDAGUR 27. JANÍJAR 1979
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Blóðugur föstu-
dagur í Teheran
Khomeiny reynir íransferð um helyina
Teheran, París 26. jan. AP. Reuter.
BLÓÐUG átök geisuðu víða í Teheran í dag og ber fregnum ekki saman
hversu margir hafi látizt. en þeir hafa að lfkindum verið allt að þrjátíu. I
opinberum fregnum er sagt að fimm manns hafi dáið er hermenn skutu á
hóp mótmælenda. Þeir létu í ljós andúð sína á aukinni hörku hersins og að
dómi mótmælenda miðar að því að hindra að Khomeiny trúarleiðtogi komi
til landsins eins og hann hafði áformað.
Aftur á móti sagði í öðrum
fréttum, að allt að þrjátíu manns
hefðu látizt og sumir hefðu ekki
verið fluttir á sjúkrahús, heldur
hefðu ættingjar haft líkin á braut
með sér. Átök þessi blossuðu upp
öðru hverju fram eftir öllum degi og
voru aðallega á Shah Reza-götu sem
er ein lengsta gatan í Teheran.
Einnig sló í bardaga við háskólann í
borginni. Þegar kvöldaði var kyrrt
orðið að mestu. Þetta eru blóðugustu
átök sem hafa orðið í þessari hrjáðu
borg síðan hundruð létust í bardög-
um lögreglu, hermanna og mótmæl-
enda þann 8. september sl. Herlög
voru sett eftir þann dag.
í mótmælaaðgerðunum í dag
beindist reiðin mjög gegn Bakhtiar
forsætisráðherra, en einnig höfðu
menn uppi hróp gegn keisaranum og
voru borgarar vopnaðir járnstöng-
um, grjóti og sveðjum. Bakhtiar
sagði í símtali við fréttamann
Reuters að þessi átök myndu ekki
breyta hinni pólitísku stöðu enda
væru vandamálin ekki þess eðlis að
óeirðir leystu þau.
í fréttum frá París sagði ráðgjafi
Khomeinys trúarleiðtoga, að hann
myndi halda til Irans annað kvöld ef
fært yrði en af hálfu hersins hafði
ekkert verið látið uppskátt um það
hvort Mehrabadvöllur við Teheran
yrði opnaður um helgina eins og
fyrst hafði verið tilkynnt. Ráðgjafi
Khomeinys viðurkenndi að þessi
erfiða barátta hefði tekið nokkuð á
heilsu klerksins, enda ynni hann
myrkra á milli. Hins vegar væri
viljaþrek hans óbugað með öllu.
Fjöldi manns hafði komið utan af
landsbyggðinni að taka á móti
Khomeiny og mikill hugaræsingur
greip um sig hjá áhangendum hans
er sú frétt fór eins og eldur í sinu um
borgina að Khomeiny hefði lent á
öðrum stað í landinu. Það var
nokkru síðar borið til baka af
fylgismönnum hans.
I Marokkó hélt íranskeisari kyrru
fyrir. Fréttamenn segja sýnt að
hann telji að eins konar biðstaða sé í
málinu og hann mundi alténd ekki
fara til Bandaríkjanna að sinni eins
og áformað var.
Sjá „Khomeiny — Þessi
torráðna gáta“ bls. 27.
Leitað skjóls undan skothríð eftir miklar mótmælaaðgerðir í Teheran í gær. Þann dag hafði Khomeiny
áformað að koma til írans og mikil reiði var meðal fylgismanna hans.
Japan:
Vopnaður bankabófi
heldur fjölda gísla
Tókíó 26. jan. AP.
SEINT f kvöld hafði japönsku lögreglunni enn ekki tekizt að komast inn í bankabyggingu í Osaka þar sem
grímuklæddur vopnaður maður hélt að minnsta kosti fjörutíu manns í gíslingu og var vitað að hann hefði
skotið á hópinn og tveir ef ekki fleiri eru iátnir.
Hjúkrunarfólk hefur ekki fengið
að komast inn til að hlúa að hinum
slösuðu. Maðurinn krefst þess að
sér verði greitt lausnargjald, 250
þúsund dolíara. Segist hann skjóta
gíslana alla með tölu ella. Lögregl-
an hefur reynt að komast að
einhverju samkomulagi við ræn-
ingjann en það hefur komið fyrir
ekki, hefur maðurinn hent á símtól-
inu þegar reynt hefur verið að hafa
samband við hann utan frá.
í sumum fréttum segir að heyrzt
hafi skotið af byssu innan úr húsinu
en ekki er vitað hvort maðurinn var
að skjóta gísla eða hvort hann var
að svara lögreglu.
Mikill lögregluvörður eða um 500
manna lið settist um húsið en ekki
hafði verið ráðizt til inngöngu þegar
síðustu fréttir bárust í kvöld,
föstudag.
Maðurinn ruddist inn í bankann
hálfri stundu áður en átti að loka á
föstudag. Skömmu síðar tókst
einum manni úr bankanum að flýja
og komst hann í næstu veitinga-
stofu og kallaði lögreglu á vettvang.
Tveir lögreglumenn komu von
bráðar á staðinn og var byssumað-
urinn ekki að hika heldur skaut þá
báða niður.
100 ára brúðkaupsafmœli
Moskvu, 26. jan. Reuter.
HJÓN í Mongólíu munu halda hátíðlegt hundrað ára giftingaraf-
mæli sitt nú um helgina, að sögn Tassfréttastofunnar. Aðilarnir
voru nafngreindir, H. Akbai, 119 ára, og Z. Khamila, 115 ára, og
tekið fram að þau væru einnig elztu íbúar Mongólíu. Þau eignuðust
níu börn. Að sögn Tass eru þau ljómandi ern.
óhugsandi að halda áfram
stuðningi sínum við stjórnina.
Þar af leiðir að ríkisstjórn
Giulio Andreottis forsætisráð-
herra mun segja af sér, að öllum
líkindum nú um helgina eða
fljótlega eftir það. Kommúnist-
ar hafa síðustu ellefu mánuði
stutt minnihlutastjórn kristi-
legra demókrata en þar hefur
gengið á ýmsu og oft mátt litlu
muna að þeir létu af þeim
stuðningi.
Ekki er ljóst hvort þetta leiðir
til þess að efnt verður til
kosninga en í síðustu skoðana-
könnunum kom fram að kristi-
Kommúnistar hœtta
stuðningi við stjómina
Rómaborg 26. jan. AP. Reuter.
ENRICO Berlinguer. formaður
ítalska kommúnistaflokksins.
lýsti því yfir í dag. að loknum
löngum fundi fimm helztu
stuðningsflokka ríkisstjórnar
landsins, að flokkur hans teldi
legir demókratar myndu bæta
við sig í kosningum nú, miðað
við þau 39% sem þeir fengu
síðast, og kommúnistar myndu
tapa nokkru en þeir fengu 34%
atkvæða í síðustu þingkosning-
um.
Volvo afturkallar
hlutabréfatilboðið
Frá fréttariturum Mbl.
í Stokkhóimi og Ósló f gœr.
Stjórn sænska bílafyrirtækisins Volvo afturkallaði í dag tilboð sitt til
Norðmanna um kaup á 40% hlutabréfa fyrirtækisins í staðinn fyrir olíu frá
Noregi. Odvar Nordli, forsætisráðherra Noregs, staðfesti þetta og kvað
Volvo-samningana úr sögunni.
Samningurinn hefur mætt mikilli
mótspyrnu í Noregi og stjórn Nordlis
hefði komizt í hættu ef málið hefði
komið fyrir Stórþingið í næsta
mánuði eins og búizt hefur verið við.
Sænskir fjármálamenn hafa einn-
ig verið andvígir samningnum á
þeirri forsendu að fjár til smíði
nýrrar bílategundar Volvos megi
afla á sænskum markaði.
Nordli sagði að þar sem Voivo
hefði tilkynnt að ekki lægi fyrir
nægur meirihliti á fundi sem hlut-
hafar fyrirtækisins áttu að halda 30.
janúar fyrir samningnum væri
Biskupinn f Mexico fagnar
Jóhannesi Páli páfa II. við
komuna til Mexicoborgar í
gær.
enginn grundvöllur fyrir samkomu-
lagi um olíukaup Svía af Norðmönn-
um og timburkaup Norðmanna af
Svíum.
í ljós kom í gær að allir andstæð-
ingar stjórnarinnar, 79 þingmenn af
155, myndu greiða atkvæði gegn
Volvo-samningnum. En búizt var við
að Nordli legði líf stjórnarinnar að
veði til að reyna að fá hann
samþykktan.
Þegar samningurinn var undir-
ritaður 8. desember var sagt að haitn
markaði þáttaskil á sviði efnahags-
samvinnu Norðmanna og Svía. Sjá
bls. 26.
Um milljón
fögnuðu páfa
Mexicoborg, 26. jan. Reuter-AP
INDJÁNAR höfðu þyrpst ofan
úr fjöllunum, skóburstararnir
lögðu frá sér tæki sín og komu á
vettvang, konur stilltu sér upp
búnar sínu bezta skarti, bændur
utan af ökrunum í grennd við
borgina, skólabörn fengu frí úr
skólunum, verzlunarfólk og
verkamenn fengu frí og allir
streymdu til að fagna Jóhannesi
Páli II páfa af miklum innileik
eftir komu hans til Mexico í dag.
Klukkur borgarinnar hringdu
allar inn komu páfa, blóma-
skreytingar voru hvarvetna svo
og myndir^af páfa. Svo segir í
fréttaskeytum að annar eins
viðbúnaður hafi ekki sézt í
Mexico í manna minnum og
fögnuður fólks og gleði vegna
páfakomu ákaflega mikill. Er
talið að um milljón manns hafi
verið á flugvellinum og á leið
páfa inn í Mexicoborg.
Mexico er eina landið í þessum
heimshluta sem hefur ekki
stjórnmálasamband við Páfagarð
en Jose Lopez Portillo forseti var
þó á flugvellinum að taka á móti
páfa. Hann dvelur í Mexieo í sex
daga.