Morgunblaðið - 27.01.1979, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 27.01.1979, Blaðsíða 48
Tillitssemi kostar ekkert íl Verzlíö sérverzlun meó litasjónvörp og hljómtæki. Skipholti 19 BUOIN sími * 29800 LAUGARDAGUR 27. JANÚAR 1979 Afsala sér lóð fyrir markað í Mjóddinni — vegna aukinna skatta og álagna á verzlunina Verkfall,flug- manna FI hefst kl. 19 í kvöld SÁTTANEFNDIN í Flugleiða- deilunni sat í gær fundi með fulltrúum Flugleiða og Félags isl. atvinnuflugmanna. Var fyrst fundað með fulltrúum deiluaðila hvorum fyrir sig.en siðan með deiluaðilum saman. Að sögn Guðlaugs Þorvaldsson- ar miðaði lítið í samkomulags- átt og nýr fundur hefur ekki verið boðaður í dag. Að sögn Guðlaugs Þorvaldssonar verður ríkisstjórninni nú gerð grein fyrir stöðunni t málinu. Verkfall flugn^anna hjá Flug- félagi íslands 'gengur í gildi klukkan 19 í kvöld og stendur til klukkan 8 á mánudagsmorgun. Allt innanlandsflug FI stöðvast þennan tíma, en þó geta þær flugvélar sem fara frá Reykjavík fyrir klukkan 19 lokið ferð sinni. Þrátt fyrir verkfallið verður flogið til Kaupmannahafnar og Óslóar á morgun, en áður en til verkfalls- boðunar kom hafði verið gengið frá samningum við Arnarflug um þetta flug, þar sem önnur Boeing 727 vél Flugfélagsins er í skoðun í Portúgal. Færeyjaflug fellur niður á morgun og sömuleiðis ferð til Lundúna síðdegis á morgun. Flug Loftleiða til Luxemborgar og Bandaríkjanna ve ður með eðlileg- um hætti. Á þriðjudag hefjast síðan skæruverkföll Flugfélags- flugmanna og verður ekkert flogið til Vestfjarða á þriðjudag. Björn Guðmundsson, formaður FÍA, sagði í gærkvöldi að beiðni hefði ekki borizt um frestun á verkfallinu og byrjaði verkfallið klukkan 19 í kvöld. Björn sagði að í dag yrði fundur hjá fulltrúaráði félagsins en þar yrði ekki rætt um frestun á verkfallinu. FORSVARSMENN fyrirtækjanna 0. Johnson og Kaaber og Eggerts Kristjánssonar hafa ritað borga- ráði bréf þar sem þeir afsala sér lóð fyrir byggingu stórmarkaðs í Mjóddinni í Breiðholti. Mikii undir- búningsvinna hefur farið fram vegna þessarar byggingar og kostn- aður því þegar orðinn nokkur. Ráðgert var að byggja þarna 20 þúsund rúmmetra hús og var áætlað að það kostaði 800—1.000 milljónir króna á núgildandi verð- lagi. Ástæður þess að fyrirtækin hafa hætt við bygginguna eru auknar álögur ríkis og borgar, en með þeim telja stjórnendur fyrir tækjanna grunninnum kippt undan þessum framkvæmdum. Gísli V. Einarsson framkvæmda- stjóri hjá Eggert Kristjánssyni og co. hf. sagði í samtali við Morgun- blaðið í gær, að það sem hefði gert útslagið á að hætt hefði verið við byggingarframkvæmdir á lóðinni í Mjóddinni væru hækkaðir skattar og gjöld, sérstaklega skattar, sem stefnt væri að verzlunarhúsnæði. Ekki aðeins nýbyggingargjaldið, heldur einnig þeir skattar, sem lagðir væru á skrifstofu- og verzlun- arhúsnæði eftir að það væri komið upp. _ — I öðru lagi, sagði Gísli, liggur ljóst fyrir, að til framkvæmdar eins og þessarar þarf að byggja að einhverju leyti á lánsfé, en það lánsfé fæst ekki, því fjármagni er beinlínis beint frá verzluninni. I þriðja lagi hafa rekstrarmöguleikar þess fyrirtækis, sem við höfðum í huga þarna, stórlega verið skertir að undanförnu. — Við höfum endurskoðað okkar áætlanir í sambandi við bygginguna árlega frá því að fyrst var farið að hugsa um þetta. Við síðustu athugun fannst okkur ekki lengur að grund- völlur væri fyrir þessu fyrirtæki vegna þeirra miklu breytinga, sem orðið hafa á álögum ríkis og sveitarfélaga. Það hefur smám saman sigið á ógæfuhliðina, en síðustu aðgerðir eru kornið, sem fyilti mælinn, sagði Gísli V. Einars- son að lokum. Nú er daginn farið að lengja og því fylgir að sjálfsögðu bros mannfólksins eins og sést á meðfylgjandi mynd sem Emilía tók í Bankastræti í gær. Niðurstaða verðlagsstjóra: Þriðjungur umboðslauna skil- ar sér ekki — álagningarregl- ur valda hærra innkaupsverði VERÐLAGSSTJÓRI birti í gær skýrslu um athugun á inn- flutningsverzluninni, sem staðið hefur yfir um skeið. Helztu niðurstöður skýrslunnar eru þessari • Innkaupsverð á vörum er hærra hér en á öðrum Norður- löndum. • Fimm þættir valda mestu um það, umboðslaun, óhagkvæmni, milliliðir, fjármagnskostnaður, sérstaða. • í skýrslunni er gróflega áætlað að um eða yfir þriðjungi umboðs- launa eða um 2,3 milljarðar sé ekki skilað í banka hér eða ekki skilað strax. • Ýmsar greinar heildverzlunar berjast í bökkum. • Við núverandi álagningarkerfi minnka tekjur innflytjandans geri hann hagkvæm innkaup. og nauðsyn gæti verið að breyta álagningarreglum svo að þær feli í sér hvata til hagkvæmni inn- kaupa. Skýrsla verðlagsstjóra: Birgðastöð SIS með 40 millj. kr. rekstrarhalla Stada heildverzlunarinnar hefur sjaldan verid verri en nú FLESTAR greinar heildverslunarinnar sem eru undir hámarksálagningu virðist hafa átt í rekstrarerfiðlcikum á sl. ári, að því er segir í skýrslu verðlagsstjóra um athugun hans og sérstaks starfshóps á innflutnings- verzluninni. Haft er eftir talsmönnum verzlunarinnar, að fyrirsjáanlegir séu enn frekari erfiðleikar 1 þessum greinum á yfirstandandi ári. Birt er þessu til stuðnings rekstraryfirlit yfir Birgðastöð Sambandsins fyrir 10 fyrstu mánuði sl. árs og kemur þar fram, að rekstrarhalli hennar var um 40,4 milljónir á þessum tíma. Birgðastöðin annast einkum innflutning á mat- og hreinlætisvörum. í rekstraryfirlitinu kemur fram yfir gjöldin, að vextir námu 156,7 milljónum, launakostnaöur 132 milljónum og annar kostnaður var 137,5 millj. en tekjumegin nam álagningin 261,6 milljónum, umboðslaunin 124,2 milljónum og rekstrarhallinn var því 40,4 milljónir eins og áður segir. í skýrslu verðlagsstjóra kemur fram að samkvæmt þessu hefði meðalálagning þurft að vera 426,2 milljónir kr. eða 15,9% til að reksturinn gengi upp en meðalálagningin var hins vegar 285,8 milljónir með umboðslaunum eða 14,4%. Ef engin umboðslaun hefðu verið, hefði álagningin verið 9,8%. Verðlagsstjóri segir að vitað sé að nokkrar greinar heildverzlunarinnar séu reknar með hagnaði og nefnir þar þær greinar, sem eru með rúm verðlagsákvæði, svo sem lyfjaheildverzlun, , vélavarahluti og veiðarfæra- verzlun fyrir sjávarútveg, eða að mestu undanþegnar verðlagsákvæðum svo sem optikvörur, úr, gull, leikföng og filmur. Flestar greinar undir hámarksálagningu standa hins vegar illa, svo sem matvörur, nýlenduvörur, hreinlætisvörur, sriyrtivörur, hjúkrunarvörúr, hjólbarðar, varahlutir og fleira. Verðlagsstjóri segir í skýrslunni, að þau gögn sem fyrir liggi gefi ótvírætt til kynna að afkoma heildverzlunarinnar hefur sjaldan eða aldrei verið verri en einmitt nú. • Innflytjendur hafa bætt upp lága álagningu með hærra inn- kaupsverði. • Verðlagsstjóri telur rétt við eðlilegar aðstæður í efnahagsmál- um að færa verðmyndun í frjáls- ara horf. • Á tímum mikilla verðhækkana og spennu telur hann þó óhjá- kvæmilegt, að rikið hafi hönd í bagga mcð verðlagsþróun. • Útilokað er að afnema umboðs- laun erlendis nema með því að lagfæra álagningu hér heima. • Lækkun álagningar í hundraðstölu hefur skert afkomu verzlunar. Reynt var að meta krónutölu áhrifa þáttanna fimm, sem að framan eru taldir til að gefa hugmynd um umfang vandamáls- ins og benda þær niðurstöður til að vægi þessara áhrifaþátta sé 14—19% af innflutningsverði (án álvöru, skipa og flugvéla) og 17—22% af innfluttum neyzluvör- um. Samkvæmt þessu nema þessir áhrifaþættir 21,5 milljarði króna af innflutningsverðinu á sl. ári og þar af hafa umboðslaunin numið 7,5 milljörðum, óhagkvæmni 3 milljörðum, milliliðir 5 milljörð- um, fjármagnskostnaður 3 milljörðum og sérstaða landsins 3 milljörðum króna.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.