Morgunblaðið - 27.01.1979, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 27. JANÚAR 1979
Áfrýjun verðlagsskrifstofunnar:
Frestar ekki ógild-
ingu samþykktarinnar
VERZLUNARÁÐ fslands, Kaupmannasamtökin og Félag íslenzkra stórkaupmanna héldu með sér fund í
gær og sendu að honum loknum frá sér fréttatill'ynningu. í henni segir að dómur Bæjarþings Reykjavíkur
22. þ.m. dæmi samþykkt verðlagsnefndar frá 20. febrúar um verzlunarálagningu ógilda. brátt fyrir
áfrýjun Verðlagsskrifstofunnar telur lögmaður fyrrnefndra samtaka, að framkvæmd dómsins frestist
ekki, ógilding samþykktarinnar standi óhögguð þrátt fyrir áfrýjunina.
Fréttatilkynning Verzlunarráðs, Kaupmannasamtaka (slands og Félags ísl. stórkaupmanna fer hér á
eftir.
Hinn 22. janúar 1979 var í
bæjarþingi Reykjavíkur kveðinn
upp svohljóðandi dómur í máli
ofangreindra samtaka gegn Verð-
lagsnefnd og viðskiptamálaráðu-
neytinu:
„Samþykkt verðlagsnefndar frá
20. febrúar 1978 um verslunar-
álagningu er dæmd ógild. For-
maður verðlagsnefndar f.h.
verðlagsnefndar greiði stefnend-
um, Verslunarráði Islands,
Kaupmannasamtökum Islands og
Félagi íslenskra stórkaupmanna
krónur 125 þúsund í málskostnað.
Viðskiptaráðherra f.h.
viðskiptamálaráðuneytisins á að
vera sýkn af öllum kröfum stefn-
enda í máli þessu en málskostn-
aður fellur niður þeirra í milli.
Málverkasýn-
ing í Norr-
æna húsinu
í DAG. laugardag 27. janúar kl.
14.00. opnar Anton Einarsson
málverkasýningu í kjallara Nor
ræna hússins. Þetta er önnur
einkasýning Antons, en hann
hefur einnig tekið þátt í þremur
samsýningum í Reykjavík.
Á þessari sýningu eru olíumál-
verk, akríl-, pastel- og vatnslita-
myndir og einnig myndir unnar
með blandaðri tækni. Myndirnar
eru flestar til sölu.
Sýningin stendur yfir til 4.
febrúar og verður opin daglega frá
kl. 17.00—22.00 alýa virka daga og
frá 14.00—22 um helgar.
Dómi þessum ber að fullnægja
innan 15 daga frá lögbirtingu hans
að viðlagðri aðför að lögum.“
Með dómi þessum telja ofan-
greind samtök að staðfest sé að
sjónarmið samtakanna að það sé
hlutverk verðlagsnefndar einnar
að taka ákvarðanir um álagningu
verslunarinnar og skuli nefndin í
því sambandi gera athugun á
álagningarþörf þeirra fyrirtækja
er hafa vel skipulagðan og hag-
kvæman rekstur sbr. 2. mgr. 3. gr.
laga um verðlagsmál nr. 54/1960.
Þar sem þessari verklagsreglu var
ekki fylgt við ákvörðun nefndar-
innar á álagningu verslunarinnar
20. febrúar 1978 hefur samþykkt
nefndarinnar þann dag verið
dæmd ógild.
Samtökin líta því svo á að ekki
beri lengur að leggja samþykkt
þessa til grundvallar ákvörðun
álagningar samkvæmt lögum nr.
96/1978 um kjaramál, heldur skuli
miðað við samþykkt verðlags-
nefndar frá 16. nóvember 1977 með
þeirri breytingu, sem lög nr.
96/1978 ákveða.
Þar sem verðlagsnefnd hefur
ekki haldið fund eftir að dómur
þessi féll er ekki vitað um hvort
nefndin mun í framhaldi dómsins
taka samþykkt sína um álagningu
verslunarinnar til endurskoðunar,
en formaður nefndarinnar hefur
áfrýjað dómnum. Telur verðlags-
skrifstofan að áfrýjun þessi fresti
verkun dómsins, en lögmaður
samtakanna Helgi V. Jónsson hrl.
er á gagnstæðri skoðun.
Telur hann að þær verkanir,
sem þegar eru komnar fram við
dóminn, þ.e. ógildi samþykktar-
innar, standi óhaggaðar, þrátt
„Albert má moka
bíl sinn lausan”
Vegagerðarmenn vilja fá að
vita ef aðrir vinna þeirra störf
— ÞAÐ ER nú ekki nákvæmlega farið mcð staðreyndir málsins í
þessari frétt, en um leið og ég bið að heilsa Albert Kemp, þá má segja
honum, að hann má moka bíl sinn lausan, sem ég vona þó að ekki
komi til að hann þurfi að gera, sagði Guðjón Þórarinsson
rekstrarstjóri Vegagerðar ríkisins á Reyðarfirði í samtali við
Morgunblaðið í gær.
Tilefni samtalsins var frétt í Mbl. í gær undir fyrirsögnfnni „Á
Vegagerðin einkarétt á snjósköflum?“ Albert Kemp fréttaritari Mbl.
á Fáskrúðsfirði greinir þar frá því að Vegagerðarmenn eystra hafi
amast við því að starfsmenn híðnubræðslunnar á staðnum ruddu
vegarkafla utan við kauptúnið.
óánægðir með í þessu sambandi
er, að ekki skuli hafa verið haft
samband við okkur. Það getur
gert okkur bölvun ef Pétur og Páll
ætla sér að taka að sér snjó-
moksturinn. Þannig er hætta á að
snjógörðum sé hrúgað upp, án
þess að snjófarginu sé komið út
fyrir veginn í rauninni. I þessu
tilfelli var notuð traktorsgrafa.
Ég vil taka það fram, að þegar
brýna nauðsyn ber til bregðum
við stundum út af venjunni og
ryðjum leiðir ef ekki er talið að
það geti beðið ruðningsdags. Það
hefði komið til álita í þessu tilfelli
ef til okkar hefði verið leitað,
sagði Guðjón Þórarinsson.
Guðjón Þórarinsson sagði, að
þetta hefði gengið þannig fyrir
sig, að umboðsmaður Vegagerðar-
innar á Fáskrúðsfirði hefði haft
samband við sig og kvartað undan
því að vegarkaflí hefði verið
ruddur án þess að höfð væru
samráð við starfsmenn Vega-
gerðarinnar. — Ég vissi ekki
hvers vegna Fáskrúðsfirðingum
lá svo á að láta opna veginn, en
ruðningsdagur á þessum vegi er
föstudagurinn samkvæmt ákvörð-
unum samgönguráðuneytisins. Á
svæðinu eru vegir ruddir ákveðna
daga vikunnar, hvert svæði eftir
ákveðnum reglum ráðuneytis.
— Ég hringdi í framkvæmda-
stjóra verksmiðjunnar og spurðist
fyrir um hvers vegna starfsmenn
hans hefðu unnið þetta starf án
þess að hafa samráð við okkur.
Þegar ég frétti að bráðlá á að
opna veginn til að fá varahluti í
verksmiðjuna horfði málið öðru
vísi við. Vegagerðin á að sjá um
snjómokstur og það sem við erum
Aðspurður um færð á vegum
eystra í vetur sagði hann að
færðin hefði verið tiltölulega góð.
Þó hefði þessi vika verið erfið og
vegir hefðu teppst vegna skaf-
rennings. I gær var Fagridalur
opnaður, en ekki reyndist unnt að
opna veginn yfir Oddsskarð.
fyrir áfrýjun. Úrskurður dómara
hljóti að hafa meira gildi en
ákvörðun stjórnsýsluaðila eins og
verðlagsnefndar og verði því að
leggjast til grundvallar. Þá má
benda á að áframhaldandi fram-
kvæmd samþykktar ■ verðlags-
nefndar 20. febrúar 1978 hlýtur að
valda tilfinnanlegu tjóni, sem
erfitt verður að ráða bót á.
ÚTSÖLUVERTÍÐIN stendur sem hæst þessa dagana og
þeir eru margir sem nema staðar utan við búðarglugga
og kíkja á verðmiðana.
Kröfur í bú Breiðholts
orðnar tæpar 400 millj.
Fyrirtækið telur sig eiga 250 millj. kr. eignir
KOMNAR eru fram 58 kröfur
í þrotabú byggingarfyrir-
tækisins Breiðholts hf.
Kröfurnar eru frá 35 aðilum
og eru þær samtals að upphæð
kr. 313.117.984.- Þá er vitað
um ókomna kröfu frá
Sementsverksmiðju ríkisins
að upphæð um 80 milljónir
króna, þannig að í dag er
vitað um nær 400 milljón
króna kröfur f búið. Sumir
kröfuhafa tilgreina vexti og
kostnað er þeir hafa lýst
kröfum í búið en aðrir kröfu-
hafar ekki. Ef þær viðbótar-
kröfur yrðu reiknaðar með
myndu heildarkröfurnar
hækka um tugi milljóna
króna. í bráðabirgðaeigna-
lista, sem forstjóri Breiðholts,
Sigurður Jónsson, hefur sent
skiptaráðandanum í Reykja-
vík telur hann eignir Breið-
holts á móti skuldum vera kr.
250.911.649-
Mbl. fékk í gær uppgefið hjá
skiptaráðandanum Unnsteini Beck
hvaða aðilar hafa lýst kröfum í
búið og hve háar upphæðir er um
að ræða. Eftirtaldir aðilar hafa
lýst yfir kröfum, sem eru hærri en
1 milljón króna: Gjaldheimtan í
Reykjavík, kr. 149.166.878 vegna
skatta Breiðholts og kr. 17.245.313
Einingahús
byggt fyrir
Seljaskóla
BORGARRÁÐ hefur tekið tilboði
Páls Friðrikssonar byggingameist-
ara um byggingu fyrsta áfanga
Seljaskóla í Breiðholti. Útboðið var
tvíþætt, annars vegar með bygg-
ingu húss í hefðbundnum stfl og
hins vegar með byggingu einingar-
húss í huga.
Var með þessu hugmyndin að fá
fram mun sem væri á kostnaði við
þessar tvær byggingaraðferðir. Til-
boð Páls í byggingu einingarhúss
nam tæplega 280 milljónum króna,
en í byggingu upp á „gamla lagið"
bauð hann liðlega 296 milljónir
króna. Byggingu einingarhúss fyrir
Seljaskóla var tekið. Áætlun hönn-
uða hljóðaði upp á rúmar 308
milljónir í einingahús, en 329.5
milljónir vegna byggingar á hefð-
bundinn hátt.
vegna vangoldinna skatta starfs-
manna fyrirtækisins. Tollstjórinn
í Reykjavík vegna vangoldins
söluskatts kr. 41.928.937, Lífeyris-
sjóður byggingamanna kr.
24.553.861, Ríkisféhirðir f.h. ríkis-
sjóðs kr. 20.818.141, Póstgíróstofan
kr. 20.751.168, Timburverzlun
Árna Jónssonar hf. kr. 6.206.774,
Trésmíðafélag Reykjavíkur vegna
sjúkra- og orlofsheimilasjóða kr.
4.762.025, Hrefna Loftsdóttir,
Sýningu Hafeteins
lýkur á sunnudag
MÁLVERKASÝNINGU Haf-
steins Austmanns í vinnustofu
hans að Hörpugötu 8 lýkur annað
kvöld klukkan 22. Sýningin verð-
ur opin í dag og á morgun frá 14 til
22. 30 myndir eru til sýnis og sölu
á sýningunni.
Hólmgarði 42, vegna sín og
tveggja dætra kr. 4.292.000, bætur
vegna slyss skv. dómi Hæstarétt-
ar, Skútan hf. Hafnarfirði kr.
3.140.026, Gunnar Guðmundsson
hf. kr. 2.951.504, Malarnám Njarð-
víkur kr. 2.225.916, Plastgerð
Suðurnesja hf. kr. 1.963.406, Val-
garður Magnússon hf. kr.
1.385.306, Verzlunarsambandið kr.
1.308.435, Steinull hf. 1.186.518,
Póstur og sími kr. 1.126.876.
í yfirliti forstjóra Breiðholts hf.
til skiptaráðanda, sem áður er
getið, kemur fram að fyrirtækið
telur eignir sínar virði rúmlega
250 milljóna króna. Stærsti liður-
inn eru útistandandi skuldir hjá
viðskiptamönnum kr. 196.709.734,
skuldir hjá íbúðaeigendum kr.
12.201.915, ýmsar eignir 15
milljónir, skuldabréf 2 milljónir,
eign hjá Alþýðubanka 25 milljónir
króna.
Var fastur í um
15 mínútur í nýju
Bláfjallalyftunni
LITLU munaði að illa færi í nýju stólalyftunni í Bláfjöllum í
gærdag er Ellert Schram alþingismaður festist þar í stól og dróst
upp með lyftunni 50—60 metra. Þrátt fyrir tilraunir tvcggja
manna til að ná honum úr festunni tókst það ekki og losnaði Ellert
ekki úr þessari prísund fyrr en lyftunni var bakkað niður, en er á
jafnsléttu kom tókst Ellert strax að losa sig. Hann sagði í samtali
við Morgunblaðið í gærkvöldi að þetta hefði algjörlega verið sinn
eigin klaufaskapur. Aðspurður um hvort hann hefði ekkert slasast
sagði hann að handleggurinn væri allur mjög dofinn og sagðist
hann vera á leið upp á Slysavarðstofu til að láta athuga hann.
stólinn. Þrátt fyrir átök þeirra
beggja gátu þeir ekki losað Ellert
og eins og áður sagði losnaði
hann ekki fyrr en lyftunni var
bakkað niður á nýjan leik.
— Handleggurinn var orðinn
vita blóðlaus þegar ég losnaði og
er allur dofinn, en ég vona að
þetta sé ekkert alvarlegt, maður
kemst kannski aftur á skíði um
helgina, sagði Ellert. — Ég vil
taka það fram að þetta var
algjörlega minn klaufaskapur og
þessar lyftur eiga að vera mjög
öruggar. Þá vil ég einnig geta
þess að strákarnir sem aðstoðuðu
mig voru snarir í snúningum, þó
þær 15 mínútur sem ég var
fastur í lyftunni hafi verið lengi
að líða, sagði EUert Schram.
Tildrög þessa atviks voru þau,
að Ellert ætlaði ásamt dóttur
sinni í lyftuna, en stúlkan náði
ekki að komast 1 lyftustólinn,
ætlaði Ellert því einnig að fara
úr lyftunni. Ekki tókst betur til
en svo að hann kræktist fastur í
hlið stólsins og sat fastur á
handarkrikanum. Ellert dróst
síðan 50—60 metra upp með
lyftunni áður en hún var stöðvuð
og sagði hann að hæðin niður á
jörð hefði verið 10—15 metrar
þar sem hann hékk í lausu lofti
og gat ekki hreyft sig.
Tveir starfsmenn í Bláfjöllum
br.ugðu skjótt við og komust í
stólinn, sem Ellert var fastur í
með bví að klifra upp næsta
stólpa og fikra sig þaðan í