Morgunblaðið - 27.01.1979, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 27. JANÚAR 1979
Borgarstjórn Reykjavlkur:
Ekki meirihluti fyr-
ir hækkun útsvars
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Sjöfn Sig-
urbjörnsdóttir andvíg 12. prósentustiginu
LJÖST er að meirihluti er ekki
fyrir hendi í borgarstjórn
Reykjavíkur um hækkun út-
svarsprósentunnar úr 11% í
12%. Sjöfn Sigurbjörnsdóttir,
annar borgarfulltrúi Alþýðu-
flokksins, sagði í samtali við
Morgunblaðið í gær, að hún
væri persónulega andvíg hækk-
un útsvarsálagningar. Birgir
ísleifur Gunnarsson sagði, að
ljóst væri að borgarfulltrúar
Sjálfstæðisflokksins myndu
greiða atkvæði gegn hækkun
útsvars í 12% kæmi það mál til
kasta borgarstjórnar. Er því
ljóst að meirihluti er ekki fyrir
hækkuninni.
Sjöfn Sigurbjörnsdóttir tók
fram að ekki væri hægt að
leggja á 12% útsvar í Reykjavík
nema til kæmi lagabreyting frá
Alþingi og sagði Sjöfn að heldur
fyndist sér ólíklegt eins og mál
stæðu nú á Alþingi að slík
heimild yrði veitt. — Persónu-
lega er ég andvíg hækkun
útsvarsálagningarinnar í 12%,
Sjöfn Sigurbjörnsdóttir
sagði Sjöfn. Ég vil rökstyðja
þessa skoðun mína með því að í
nágrannasveitarfélögunum hef-
ur nú þegar verið ákveðin lægri
álagningarprósenta, 10%, 10%
og líklega 11% í Kópavogi.
Fasteignaskattar hafa verið
ákveðnir hærri hér í Reykjavík
en í nágrannasveitarfélögunum.
Hækkun útsvarsálagningarinn-
ar hér í Reykjavík mun líka af
þeirri ástæðu verða þungbærari
fyrir allan almenning. Hækkun í
12% gengur einnig gegn þeim
efnahagslögum sem ríkisstjórn-
in beitti sér fyrir að sett voru í
haust.
— Gera má ráð fyrir því að á
næsta fjárhagsári verði heim-
ilunum mestur akkur í því að
útsvarsálagningarprósentan
hækki ekki frá því sem nú er.
Tólfta prósentustigið gæti skil-
að borgarsjóði rúmum milljarði
í viðbótartekjur. En ég tel sem
sagt þennan milljarð betur
kominn á heimilunum. Borgar-
stjórn Reykjavíkur verður síðan
að sníða sér stakk eftir vexti
þegar tekin verður ákvörðun um
það hvernig verja skuli þvi
fjármagni, sem borgarsjóður
hefur til ráðstöfunar á næsta
ári, sagði Sjöfn að lokum.
Guðmundur
fer á sterkt
skákmót í V-
Þýzkalandi
GUÐMUNDUR Sigurjónsson stór-
meistari hefur þegið boð v-þýzka
skáksambandsins um að tefla á
móti, þar sem heimsmeistarinn
Anatoly Karpov verður meðal
keppenda.
Mótið verður haldið 25. febrúar
til 20. marz og verða keppendur 16
talsins, þar af 13 stórmeistarar.
Mikid um bein-
brot í hálkunni
MIKIÐ hefur verið um ýmis minniháttar slys gangandi vegfarenda í
umferðinni í Reykjavík að undanförnu vegna hálkunnar. Gunnar Ingi
Gunnarsson læknir á Slysadeild Borgarspítalans sagði í samtali við
Morgunblaðið í gær, að hálkan hefði augljóslega valdið mörgum slysum.
Áberandi mikið hefði verið um að fólk kæmi á Slysavarðstofur.a brotið á
ökla, úinlið eða vegna annarra minni háttar beinbrota. Varðandi
gærdaginn sagði Gunnar, að snjófölið, sem komið hefði ofan á hálkuna,
hefði valdið fleiri slysum en ella og fleira fólk hefði komið á
Slysavarðstofuna í gær en venjulega.
Lögreglan í Reykjavík hefur
varað fólk við hálkublettum á
gangstéttum og viðar og sagðist
Gunnar Ingi vilja taka undir þau
orð að fólk færi með fullri varúð.
Ingi Ú. Magnússon gatnamála-
stjóri sagði að reynt hefði verið að
Fulltrúar neytenda i verðlagsnefnd:
Ummæli viðskiptaráðherra
ekki sannleikanum samkvæm
eyða og þó einkum að bera sand á
hálkubletti. í því sambandi sagði
hann að starfsmenn borgarinnar
hefðu farið á staði, sem fólk hefði
bent á að væru sérstaklega hættu-
legir. — Því er ekki að leyna að
ástandið er víða mjög slæmt, en
erfitt er að eiga við þessa hluti, þar
sem víða eru klakabakkarnir háir
og salt vinnur t.d. ekki á þeim og
því er víða lítið hægt að gera.
UPPLÝSINGAR sem Svavar Gestsson, viðskiptaráðherra, gaf í
útvarpsþættinum „Beinni línu“ hinn 16. janúar sfðastliðinn eru ekki að
öllu leyti sannleikanum samkvæmar og ummæli hans ekki f samræmi við
staðreyndir málsins — segja fulltrúar neytenda f verðlagsnefnd, Snorri
Jónsson, varaforseti ASÍ, Ásmundur Stefánsson, hagfræðingur ASÍ, Jón
Sigurðsson, fyrrum forseti Sjómannasambands íslands, og Einar ólafsson,
formaður Starfsmannafélags rfkisstofnana. Tilefnið eru ummæli
ráðherrans um deilu þá, sem upp kom vegna hækkunar á smjörlfki og
gosdrykkjum f haust. Þeir segja f greinargerð, sem þeir senda
Morgunblaðinu, að þeir telji það eitt af hlutverkum sfnum að vinna gegn
þeirri tilhneigingu stjórnvalda að fresta verðhækkunum rétt fram yfir
vfsitöluútreikning.
Greinargerð þeirra félaga fer hér
á eftir:
Síðastliðið haust urðu veruleg
blaðaskrif um verðhækkun á smjör-
líki og gosdrykkjum.
í viðtali í útvarpsþættinum
„Beinni línu“ sunnudaginn 16. jan.
s.l. var þetta mál á nýjan leik tekið
til umræðu er viðskiptaráðherra,
Svavar Gestsson sat fyrir svörum.
Þær upplýsingar sem ráðherrann gaf
í umræddu viðtali eru ekki að öllu
leyti sannleikanum samkvæmar og
er því óhjákvæmilegt að gera nokkra
bragarbót.
Auðvitað hljóta ákvarðanir verð-
lagsnefndar að vera umdeilanlegar
og ekki er óeðlilegt að sitt sýnist
hverjum. Sem fulltrúar neytenda í
verðlagsnefnd leitumst við í starfi
við að tryggja að verðhækkanir verði
eins litlar og framast er unnt. Við
verðum hins vegar að beygja okkur
undir ákveðnar starfsreglur og
reynum í því sambandi að gæta
samræmis. Við gerum okkur jafn-
framt Ijóst að í þessu efni kunna
okkur að verða á mistök. Við
kunnum að meta ranglega þær
upplýsingar sem við fáum um
einstök fyrirtæki og rangmeta
hækkunarþörf. Svo kann að hafa
verið með ákvörðun okkar í verðlags-
nefnd í október s.l. um verðhækkun á
gosdrykkjum og smjörlíki. Það er
hins vegar rétt að taka fram að það
er fyrst nú í viðtalinu við ráðherrann
í þættinum „Beinni línu“ sem ásökun
af því tagi er sett fram af ábyrgum
aðila. Við alla meðferð málsins í
október virtust menn á einu máli um
það, að sú hækkun sem við sam-
þykktum á gosdrykkjum og smjörlíki
á þeim miðvikudagsfundi sem ráð-
herra vitnaði til hafi verið lágmarks-
hækkun. Að því er við höfum fregnað
neitaði viðskiptaráðherra því ekki í
viðtölum sínum við fulltrúa atvinnu-
rekenda og þeir embættismenn sem
hann fól að ræða við neytendafull-
Mickie Gee skemmtir
börnum frá Lyngási
SAMHLIÐA HEIMSMETSTIL-
RAUN Mickie Gee f plötusnún-
ingi fer fram söfnun til heimilis-
ins að Lyngási en þar eru í
dagvistun vangefin börn á
aldrinum 3—15 ára. Söfnun þessi
ber yfirskriftina „Gleymd börn
‘79“.
í dag ætlar Mickie að skemmta
þessum börnum á Óðali. Þar mun
hann spila fyrir þau tónlist sem
þau hafa gaman af, sýna mynd
sem á eru m.a. kaflar úr kvik-
myndinni Grease og einnig mun
Ricky Villard sem sýnt hefur dans
í Óðali að undanförnu dansa fyrir
börnin. Skemmtun þessi hefst kl.
16 og stendur til 18.
trúa verðlagsnefndar drógu ekki
heldur í efa að samþykktin fæli í sér
lágmarkshækkun. Þær deilur sem
urðu, fjölluðu alls ekki um það,
hvort um of mikla hækkun væri að
ræða eða ekki. Deilurnar stóðu um
það eitt, hvort geyma ætti hluta
hækkunarinnar fram yfir útreikn-
ing verðlagsvísitölu í nóvember.
Korsaga málsins er sú að í júlí
samþykkti verðlagsnefnd ákveðna
hækkun á gosdrykkjum og í byrjun
september var til bráðabirgða sam-
þykkt hækkun á smjörlíki, þar sem
ekki var tekið tillit til nýafstaðinnar
gengisfellingar. Þær samþykktir
höfðu enn ekki verið staðfestar af
ríkisstjórn þegar fundur verðlags-
nefndar var haldinn miðvikudaginn
18. október. Á þeim tíma sem liðinn
var hafði ýmislegt gerst og vegur
gengisfellingin sem gerð var í ágúst
þar þyngst. Verksmiðjurnar höfðu
óskað eftir því að samþykktin yrði
endurskoðuð og sent inn nýtt erindi
til verðlagsskrifstofunnar, sem þar
hafði verið rækilega kannað. Það er
því ekki í samræmi við staðreyndir
málsins þegar viðskiptaráðherra
segir í „Beinni línu“: „En það voru
engar nýjar upplýsingar sem að
höfðu það í för með sér að þessir
aðilar ættu að fá meiri hækkun en
áður hafði verið ákveðin." Þá var á
miðvikudagsfundinum upplýst að
daginn áður, á þriðjudagsfundi
sínum, hafi ríkisstjórn fjallað um
samþykktir verðlagsnefndar frá júlí
og september en ekki náð samkomu-
lagi um að staðfesta þær. Jafnframt
var upplýst að hér var ekki um
fyrstu umræðu ríkisstjórnarinnar
um málið að ræða. Hvort samþykkt
verðlagsnefndar yrði staðfest á
næsta fundi ríkisstjórnarinnar lá
ekki ljóst fyrir.
Þau umskipti, sem orðið höfðu frá
samþykkt nefndarinnar í júlí og
september gerðu að verkum að ljóst
var að til meiri hækkunar hlyti að
koma. Hvort viðbótarhækkun dræg-
ist fram yfir visitöluútreikning gat
hins vegar farið eftir ákvörðun
nefndarinnar.
Við teljum það eitt af hlutverkum
okkar sem fulltrúar launafólks í
landinu að leitast við að vinna gegn
þeirri tilhneigingu stjórnvalda að
fresta verðhækkunum rétt fram
yfir vísitöluútreikning. Við ákváð-
um því á fundinum að styðja þ&
tillögu sem verðlagsstjóri taldi
algjört lágmark. Þannig varð síðari
samþykkt verðlagsnefndar til.
Það kann að vera misskilningur að
viðskiptaráðherra hafi í viðtölum við
atvinnurekendur heitið þeim því að
ríkisstjórnin mundi strax eftir
vísitöluútreikning staðfesta siðari
samþykkt verðlagsnefndar ef þeir
sættu sig við þá fyrri fram yfir
vísitöluútreikning og einnig að hann
hafi þegar það ekki dugði heitið þeim
því að smjörlíki og gosdrykkir yrðu
tekin undan hámarksverðsákvæðum
innan fárra vikna ef þeir sættu sig
við fyrri samþykkt verðlagsnefndar
um stundarsakir. Ráðherra ræddi
þessi atriði ekki við okkur þannig að
við höfum ekki hans eigin orð. Hann
fól hins vegar embættismönnum að
eiga fund með okkur og þeirra
verkefni var það að athuga hvort við
gætum fallist á slík málalok.
Við vonum að þessar línur nægi til
þess að skýra málið.
Snorri Jónsson,
Ásmundur Stefánsson,
Jón Sigurðsson,
Einar Ólafsson.
OQ u?fVA VAK/
VfROoR L\VQlíM~
/AOSr ío
SWfX/ Et?
ÚVAfrOR TTL A9 GfcTA MpVS
Snjómokstur og hálkueyðing:
Meira en helmingurinn
búinn af fjárveitingunni
GERT er ráð fyrir að 100 milljón-
um króna verði varið til snjómokst-
urs og hálkueyðingar á vegum
Reykjavíkurborgar á þessu ári. Á
síðasta ári nam þessi upphæð 125
milljónum króna og miðað við
þann kostnað, sem þegar er orðinn
af þessu tvennu, er hætt við að 100
milljónir hrökkvi skammt á árinu.
16 fyrstu daga þessa árs kostaði
snjómokstur og hálkueyðing 55
milljónir króna og samkvæmt
áætlun eru því 45 milljónir eftir til
þessara verkefna það sem eftir er
af hinu nýbyrjaða ári.
Ingi Ú. Magnússon gatnamála-
stjóri gerði síðastliðinn þriðjudag
grein fyrir því á fundi með Borgar-
ráði að nauðsyn væri á aukinni
fjárveitingu til þessa á árinu.
Ekkert hefur enn verið ákveðið með
aukin framlög til snjómoksturs og
hálkueyðingar.