Morgunblaðið - 27.01.1979, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 27. JANÚAR 1979
5
Þjóóin var blekkt________
— snúum vörn í sókn
Fundarherferð Sjálf-
stæðisflokksins hald-
ið áfram um helgina
Sjálfstæðisílokkurinn efnir til
þriggja funda vfös vcgar um land
f dag, og á morgun eru fjórir
fundir. Fundirnir eru liðir f
fundaherferö flokksins sem stað-
ið hefur undanfarnar vikur
undir kjörorðunum „Þjóðin var
blekkt — snúum vörn í sókn.“
Fundirnir eru öllum opnir og
að loknum framsöguræðum
verða almennar umræður og
fyrirspurnir.
Hvammstangi
Sverrir Hermannsson alþingis-
maður og Þorvaldur Garðar
Kristjánsson alþingismaður verða
ræðumenn á fundinUm, sem hefst
klukkan 14 í dag í Félagsheimil-
inu.
Akureyri
Fundurinn á Akureyri hefst
einnig klukkan 14 í dag og verður
hann haldinn í Sjálfstæðishúsinu.
Ræðumenn verða Birgir ísleifur
Gunnarsson borgarfulltrúi og
Matthías Bjarnason alþingismað-
ur.
Eskifjörður
Húsavík
í dag klukkan 14 verður svo
einnig fundur á Eskifirði, í
Félagsheimilinu Valhöll.
Ræðumenn verða þeir Jósef H.
Þorgeirsson alþingismaður og
Matthías Á. Mathiesen alþingis-
maður.
Á morgun, sunnudag, verður
fundur í Félagsheimilinu á Húsa-
vík og hefst hann klukkan 14.
Ræðumenn verða Birgir ísleifur
Gunnarsson borgarfulltrúi og
Matthías Bjarnason alþingismað-
ur.
Sverrir
ÞorvaMur Garöar
Matthfas
Neskaupstaður
Fundurinn í Neskaupstað á
morgun verður í Egilsbúð og hefst
hann klukkan 14.
Ræðumenn verða Jósef H. Þor-
geirsson alþingismaður og
Matthías Á. Mathiesen alþingis-
maður.
Þorlákshöfn
Þá er fundur á morgun í
Þorlákshöfn og hefst hann klukk-
an 14 í Félagsheimilinu.
Ræðumenn á fundinum verða
Guðmundur Hallvarðsson formað-
ur Sjómannafélags Reykjavíkur,
Gunnar Thoroddsen formaður
þingflokks Sjálfstæðisflokksins og
Oddur Ólafsson alþingismaður.
Grindavík
Fundurinn í Grindavík hefst
klukkan 14 á morgun og verður
hann haldinn í Félagsheimilinu
Festi.
Ræðumenn verða þau Guð-
mundur Karlsson alþingismaður,
Inga Jóna Þórðardóttir viðskipta-
fræðingur og Jón G. Sólnes
alþingismaður
Inga Jóna Jón G.
Menningar-
vaka Kven-
réttindafé-
/
lags Islands
Kvenréttindafélag íslands minn-
ist afmælis síns í dag. laugardaginn
27. janúar með tveggja stunda
menningarvöku í Norræna húsinu
og hefst hún kl. 13.30.
Á vökunni koma fram fræðimenn,
skáld, tónlistarmenn og leikarar.
Gerður Steinþórsdóttir segir frá
rannsóknum sínum á kvenlýsingum í
íslenskum skáldsögum, Valborg
Bentsdóttir les frumsamda smásögu,
Ragnheiður Helga Þórarinsdóttir
spjallar um þjóðfræði, Anna Júlíana
Sveinsdóttir syngur einsöng við
undirleik Láru Rafnsdóttur, Sigrún
Helgadóttir fjallar um starfssvið
reiknifræðings, og Tinna Gunnlaugs-
dóttir og Kolbrún Halldórsdóttir
flytja kafla úr Silfurtunglinu eftir
Halldór Laxness. Vala Gísladóttir
leikur einleik á flautu. Magnea
Matthíasdóttir les frumsamin ljóð.
Steinunn Ragnarsdóttir leikur á
píanó.
Kvenréttindafélagið var stofnað
27. janúar 1907 og í rúm 70 ár hafa
félagsmenn haft þann sið að gera sér
dagamun af því tilefni og að þessu
sinni með nokkuð sérstökum hætti.
Nýr sáttafundur á
miðvikudag með
ver zlunarm önnum
SAMNINGAFUNDUR með verzlun-
armönnum og viðsemjendum þeirra
hefur verið boðaður næstkomandi
miðvikudag. en á þriðjudag mun
stjórn og samninganefnd V.R.
koma saman til fundar.
I fyrradag var samningafundur,
þar sem umræður fóru fram á
grundvelli athugana vinnuveitenda.
Þeim var ekki lokið, en á fundinum
kom fram, að verulegur ágreiningur
er á milli deiluaðila.
Fullkomið hjólbarðaverkstæði við
HJÓLBARÐA VIÐGERÐ VESTURBÆJAR
hefur nú opnað nýtt og fullkomið verkstceði vestur við
Ægisíðu (ESSÓ-bensínstöðin).
VEL BÚIÐ TÆKJUM.
Verkstœðið er búið öllum fullkomnustu tcekjum
sem völ er á.
ÖLL ÞJÓNUSTA INNAN DYRA.
Öll þjónusta verður veitt í hlýjunni innan dyra, í
rúmgóðu húsnceði.
HJOLBARÐAVIÐGERÐ
VESTURBÆJAR
Söluaðili fyrir ATLAS 09 |
<t> YOKOHAMA hjólbarða 1