Morgunblaðið - 27.01.1979, Side 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 27. JANÚAR 1979
Björn Emilsson skrifar
Aski, spæni og trogi
var stungið undir stól
Þorðir þú að kyssa Gunnu
strax fyrsta kvöldið sem
þú bauðst henni út?
Spólaðir þú einhvern tíma
fyrir horn á rúntinum,
svo löggan sá til?
Földu kennararnir þínir
sig nokkurn tíma undir
kennaraborðinu þegar þú
komst inn í skólastofuna?
Svarir þú þessum spurn-
ingum neitandi, ertu ekki
klístraður, þú ert framsókn-
arlegur. En viljirðu vera
klístraður á GREASE vísu,
ættirðu að kynna þér þessa
síðu nánar.
Rokktímabilið er sérstakur
kapítuli í sögunni. Þá skrif-
uðu unglingar um vandamál
sín á opinskáan hátt í hin
ýmsu SOS (save our souls)
tímarit. Alli Alfróður gaf þá
jafnan góð ráð. Hann fjallaði
um kvilla eins og t.d.
táningabólur, fílapensla, feitt
hár, leka blöndunga og hrist-
ing í stýri.
„Kæri Alli Alfróði. Ég er
17 ára og bý í Vesturbænum.
Allar götur frá því er pabbi
fékk fólksvagninn, hef ég
verið niðurbrotinn maður. Þá
skipaði hann mér að selja ‘56
Lettann minn. Hann var með
öllum græjum, sportstýri úr
viðareftirlíkingu, spinnkopp-
um allan hringinn, hvítum
hringjum, gæru í afturglugg-
anum og ilmspjaldið með, þú
veizt,.. .konu á. Verst af öllu
er þó að hann ætlist til að ég
rúnti um á Evróputíkinni
hans, sem lítur út eins og illa
opnuð Sigló-síldar niðursuðu-
dós. Að kela við Sigríði
Gunnars í bílhróinu er eins
og að leika golf í fataskáp.
Það sem verra er, hann
kemst ekki upp Öskjuhlíðina
án þess að Sigríður fari út og
ýti. Pabbi er svo hrifinn af
— að leika golf í fataskáp
Um pessar mundir er Háskólabíó í augum sumra miödepill sólarkerfisins. Stjörnur
Jóns Til Trafala og Ólivíu Nú Þegar Jóns skína skærast. Poppúttroönir unglingar sitja
spenntir fyrir framan hvíta tjaldiö og viröa fyrir sér athafnir foreldra sinna á peirra aldri.
Myndin GREASE er látin gerast áriö 1959, pegar lögmál klístursins var bíll (HOT ROD),
dama og góö greiöa. Væriröu klístraöur (greased) í pá daga, áttiröu jafnvel sjens í
brúneygu Boggu meö stóru blöörurnar. Siöfræöi og töffheit voru mæld frá öörum
sjónarhóli en í dag. íslendingar fóru ekki varhluta af vitleysunni. Hór var talaö um Rock’n
Roll æöi. Ýmis undarleg oröatiltæki tóku aö stinga upp kollinum. Aski, spæni og trogi
var stungiö undir stól. í staóinn komu orð eins og mjólkurhristingur, sílsabeygjur,
spinnkoppar og skvísa, að ógleymdu margfrægu oróasambandinu „ka-da pípa maöur".
Fyrir 20 árum var reginmunur á aö vera klístraöur og framsóknarlegur.
sparneytni evrópskra bíla, að
hann hótar að reka mig að
heiman, aki ég um á dollara-
gríni. Elsku Alli, hvað á ég að
gera? Ég get varla látið
nokkurn mann sjá mig á
sardínudósinni. Ég er ekki
einu sinni klístraður lengur."
„Kæri Vesturbæingur.
Festu vængi á sardínudósina
upp á ameríska vísu. Ég
þekki mann á ísafirði, sem
gerir það fyrir lítið.
P.S. Hefurðu reynt að kela
við Sigríði í fataskáp og leika
golf í bílnum? Alli Alfróði."
Árið 1859 var annar heim-
ur. Fötin, bílarnir, hárið og
stelpurnar, allt þótti þetta
miklu glæsilegra. Þá voru
engir reyklausir dagar og
polyester var rándýrt efni.
Þá þýddi orkukreppa að vera
bensínlaus á þægilegum stað
méð réttu skvísunni. Mjög
tók að bera á ýmsum óskilj-
anlegum orðum hjá gelgju-
fólki. Nokkur dæmi: JUKE
BOX« Apparat, sem spilaði
tónlist og safnaði peningum.
Svo vinsælt varð það, að
forráðamenn SVR voru að
hugsa um að taka það í sína
þjónustu. ELVISi Kóngurinn,
hinn mikli. Karlmaður,
þekktur fyrir að syngja ofsa-
fengin rokklög með dónaleg-
um mjaðmahnykkjum.
KLÍSTRAÐIR BÍLAR,
Orkumiklir bílar, gjarnan