Morgunblaðið - 27.01.1979, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 27. JANÚAR 1979
19
Hér horfast Þeir í augu, Viðar og annar hinna loðnu vina hans, en hinn virðist kæra sig kollóttan.
Þeir geta verið handfljótir ef ekki er höfð á þeim
aðgæsla. Hér er hann búinn aö opna buxnaklauf
Viðars!
Apaspil í Sœdýrasafni
MEÐAL þeirra dýra sem mesta athygli vekja í Sædýrasafninu fyrir sunnan
Ilafnarfjörð eru vafalítið simpansarnir tveir sem þar eru. Þeir hafa nú verið
þar í um það bil þrjú ár, eða frá því að þeir konu hingað frá Kaupmannahöfn
um það bil hálfs árs gamlir. Þessar skemmtilegu myndir voru teknar af
apaparinu nú í vikunni í Sædýrasafninu, og er greinilegt að vel hefur legið á
þeim þegar myndatakan átti sér stað. Aparnir geta þó einnig sýnt á sér
aðrar hliðar, og þeir geta verið viðsjárverðir ef illa liggur á þeim eða þeir
hafa verið reittir til reiði. Eiga þeir það þá jafnvel til að bíta bá sem
nærstaddir eru. Þeir eru hins vegar vinafastir og hænast einkum að þeim er
fóðra þá. Fá þeir oft á þeim mikla ást, en suma menn líta þeir þó aldrei réttu
auga.
Er því greinilegt að þeir fara mjög í manngreinarálit ekki síður en
hinir hárlausu frændur þeirra. Simpansar eins og þessir á myndunum verða
yfirleitt kynþroska fimm til sex ára að aldri. Eru þess dæmi að þeir nái allt
að þrjátíu ára aldri, en þá eru þeir yfirleitt orðnir mjög skapstirðir og
værukærir og þykja þá ekki beinlínis skemmtilegir í umgengni.
Hér er annar apinn kominn á háhest á öxlum
Viðars Benediktssonar, en hann sér um pá
ásamt Jóhönnu Jakobsdóttur.
Það er gott að fá sér smá appelsínu-djús eftir leikina!
iÚtsalan hef st á mánudag
þernhard lax^al
KJÖRGARÐI