Morgunblaðið - 27.01.1979, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 27. JANÚAR 1979
27
Brot úr Skylab
yfir byggð ból?
Washington. 25. janúar. Reuter.
FORSTÖÐUMAÐUR bandarísku geimvísindastofnunarinnar (NASA),
Robert Frosch, sagði í dag að hann væri ekki viss um hvort hægt væri
að beina geimvísindastöðinni Skylab frá byggðum svæðum þegar hún
hrapaði til jarðar seinna á þessu ári, sennilega á tfmabilinu aprfl til
september.
Starfsmenn stofnunarinnar hafa sagt að stöðin, sem er ómönnuð og
vegur 85 lestir, muni brenna til agna þegar hún kemur aftur inn í
andrúmsloftið, en sumir sérfræðingar telja að fjögur eða fimm hundruð
brot allt að tvær lestir að þyngd muni hrapa til jarðar og dreifast.
Frosch tjáði þingnefnd að fyrir hendi væru nokkrir möguleikar á því
að stýra Skylab í tveimur síðustu hringferðunum um jörðu en sagði að
sérfræðinga stofnunarinnar greindi á um hvort hægt væri að stjórna
stöðinni frá jörðu.
Skylab var þokað til á braut í dag með það fyrir augum að tryggja að
næg orka fengist alfarið frá rafhlöðum stöðvarinnar og eftir það sögðu
sumir starfsmenn NASA, að þeim kynni að takast að stýra stöðinni í
burt frá byggðum svæðum.
15.195 fórust í
iarðskjálftum
WashinKton, 25. janúar. Reuter. AP.
ALLS BIÐU 15.195 bana af
völdum jarðskjálfta f fyrra eða
fimm sinnum fleiri en 1977
samkvæmt bandarfskri jarðfræði-
skýrslu sem var birt f dag.
Snörpum jarðskjálftum, eða
þeim sem mældust meira en 6.5
stig á Richters-kvarða, fjölgaði úr
36 1977 í 62 1978. En enginn „stór“
jarðskjálfti, það er 8.0 stig eða
meira, varð 1978.
Tugir dóu
Dacca 26. jan. Reuter
TUGIR MANNA - að minnsta
kosti 70 — fórust og hundrað
slösuðust meira og minna þegar
troðfull hraðlest rann út af
teinunum og þeyttist niður fjalls-
hlfð og ienti f djúpum skurði
skammt frá Chuadunga sem er
325 km vestur af höfuðborg
Bangladesh f kvöld. Læknar við
sjúkrahúsið f Chuadunga sögðu
að margir hinna slösuðu væru f
lífshættu.
Fyrstu fréttir um slysið komu í
indverska útvarpinu og voru
hafðar eftir fréttastofu Bangla-
desh. Þá var talið að um fimm
hundruð manns hefðu dáið, en þær
fregnir voru síðan bornar til baka.
Sjónarvottar segja að margir hafi
festst inni í lestinni og björgunar-
menn unnu að því í kvöld að reyna
að hjálpa slösuðum út og fjarlægja
Hk látinna sem mörg voru illa
farin.
Veður
víða um heim
Akureyri -« snjókoma
Amsterdam 2 skýjað
Apena 16 skýjað
Berlín 0 skýjað
BrUssel 1 snjókoma
Chicago -8 skýjað
Frankfurt • 0 snjókoma
Genf 4 rigning
Helsinki -5 snjókoma
Hong Kong 21 skýjað
Jerúsalem 14 sól
Jóhannesarb. 24 sól
Kaupmannah. -1 Þoka
Líssabon 16 rigning
London 6 sól
Los Angeles 14 bjart
Madrid 9 rigning
Miami 18 skýjað
Moskva -5 skýjað
Nýja Delhi 23 sól
New York 6 skýjað
Ósló -11 bjart
París 3 sól
Reykjavík -5 snjókoma
Rómaborg 15 skýjað
San Francisco 13 bjart
Stokkhólmur -5 snjókoma
Aviv 19 sól
Tókíó 16 bjart
Vancouver 5 rigning
Vínarborg -1 skýjað
Af jarðskjálftum í fyrra olli
jarðskjálftinn í Iran 16. september
mestu manntjóni. Þá er talið að
15.000 hafi beðið bana.
Mesti jarðskjálftinn í fyrra
mældist 7.9 stig og varð í Suð-
ur-Mexíkó þar sem að minnsta
kosti átta biðu bana. Sá jarð-
skjálfti olli verulegu tjóni í
Mexíkóborg og í fylkinu Oaxaca.
Sá jarðskjálfti sem olli öðru
mesta manntjóni varð í Norð-
ur-Grikklandi 20. júní, kostaði 50
manns lífið og mældist 6.6 stig.
Tuttugu og tveir fórust í 7.5 stiga
jarðskjálfta í Japan 12. júní og 18 í
6.7 stiga jarðskjálfta 14. janúar,
einnig í Japan.
Árið 1976 biðu 700.000 manns
bana í jarðskjálftum, aðallega í
Kína. Aðeins einu sinni hefur áður
orðið meiri jarðskjálfti en þá, í
Kína 1556 þegar 830.000 fórust.
Verðbólgan
jókst um
7,5% 1978
BrUstsel, 26. janúar, AP.
VERÐBÓLGA í rikjum Efnahags-
bandalags Evrópu jókst um 0,5 af
hundraði í desember, og um 7,5 af
hundraði á öllu árinu, samkvæmt
upplýsingum sem birtar voru
opinberlega í dag.
Á Bretlandseyjum jókst verð-
bólgan í desember um 0,8% á
Ítalíu um 0,7%, í Vestur-Þýzka-
landi, Frakklandi, Belgíu og á
írlandi um 0,4%, í Danmörku um
0,1%. Verðbólga jókst ekki í
Luxemborg í desember og í Hol-
landi minnkaði verðbólgan um
0,1% í desember.
Fyrir árið 1978 var verðbólgan á
Ítalíu 12,1%, í Danmörku 10%, í
Frakklandi 9,3%, í Bretlandi 8,2%,
á írlandi 7,7%, í Belgíu 4,5%, í
Hollandi 4,2%, í Luxemborg 3,1%
og í Vestur-Þýzkalandi 2,6%.
Búist er við því að Spánn,
Portúgal og Grikkland gangi í
EBE á næstu árum, en árið 1978
var 25,2% verðbólga í Portúgal,
16,5% verðbólga á Spáni og 11,5%
verðbólga í Grikklandi.
iz ii n mt? rvr v
liL 11 UIVIJlí ÍIM 1
þessi torráðna gáta
„Einræðið farið — komið með ainræöiö."
Klökkur keisari kvaddur við brottförina
dögunum.
Kissinger sakar Banda-
ríkjamenn um svik viðíran
Henry Kissinger, fyrrverandi
utanríkisráðherra Bandaríkj-
anna, kvað upp úr með það í
gær, föstudag, sem hefur verið
í hugum margra að Bandaríkin
hefðu farið í meira lagi
ódrengifega að ráöi sínu viö
íran. Hann sagði aö Bandaríkin
væru um sumt ábyrg fyrir þeirri
pressu sem íranskeisari var
beittur og varð slík að hann
neyddist loks til að hverfa úr
landi. „Við eigum ekki svo
marga bandamann og vini, aö
við höfum efni á að svíkja þá
fáu tryggu," sagöi Kissinger.
Það hefur líka komið á óvart
víða og hefur verið vikið að því
áður í fréttaskýringu hér hve
undarlega skjótt Bandaríkja-
stjórn söðlaði um.
Nú er svo eftir að vita hvaöa
afstöðu Bandaríkjamenn tækju
til Khomeiny, verði lyktir þær
að hann komist til íran, að ekki
sé nú minnzt á hvert verður
framhaldið á því eftir aö hann
kæmi heim. Þeir eru raunar
margir sem ekki treysta sér
almennilega til aö hugsa þá
hugsun til enda.
Þar til fyrir fjórum mánuðum eða
svo — þegar Khomeiny hóf
herferð sína gegn keisaranum
fyrir alvöru — var hann lítt eöa
ekki þekktur utan Irans. En um
þær mundir tóku þýöingar af
ræðum hans og prédikunum
sem hann hafði flutt fyrir
nokkrum árum og sent á
segulböndum til írans að ber-
ast í hendur vestrænna frétta-
manna og þar með var boltinn
farinn að rúlla. Því má með
nokkrum rétti kenna vestræn-
um fréttastofnunum um að
hafa ýtt undir veldi Khomeinys
meö þeirri athygli sem hverju
orði hefur verið sýnt sem fram
af hans vörum hefur gengið.
í þessum ræöum hans segir til
dæmis á einum stað að íranir
vilji leiðtoga sem er reiðubúinn
að höggva hendur af syni
sínum ef hann verður uppvís
að stuldi og grýta ástvin sinn
sem drýgði hór. Hann leggur á
það áherzlu aö karlar eigi ekki
að kenna í skólum þar sem
stúlkur eru og konur eigi alls
ekki að kenna drengjum — og
raunar helzt alls ekki að kenna.
Frekar en hann vill að kona
sjáist öðruvísi á almannafæri
en hjúpuð svartri skikkju frá
hvirfli til ilja og þó á hún
auðvitað helzt að vera heima
hjá sér aö elda mat handa
fjölskyldu sinni og sinna hús-
verkunum og fara sem allra
minnst út. Khomeiny telur
aökallandi að loka öllum kvik-
myndahúsum í landinu, hann
er haldinn skefjalausu hatri í
garð ísraelsríkis, enda þótt
hann segist ekki vera Gyðinga-
hatari, og hann kveöst munu
slíta öll tengsl viö ísrael þegar
hann kemur heim og tekur við.
Þó hafa Khomeiny og helztu
ráögjafar hans reynt að draga
nokkuð úr „forneskjustefnu“
sinni síðustu vikur og jafnvel
neita aö hann hafi tekiö jafn
djúpt í árinni og haft er eftir
honum. Khomeiny er þó um-
fram allt heltekinn af persónu-
legu hatri á keisaranum og
hefur haft það aö lífshugsjón
aö leggja veldi Pahlavi-ættar-
innar í rúst. Þegar hann var lítill
drengur var faðir hans drepinn
og sumir sögðu að þar hefðu
veriö að ferðinni útsendarar
keisarans, Reza, föður núver-
andi keisara, en þaö var aldrei
sannað. Áriö 1977 lézt annar
sonur Khomeinys í írak, að því
er læknar sögöu af hjartaáfalli,
en Khomeiny er sannfærður
um að útsendaar SAVAKS hafi
myrt hann.
íranir eru sjálfir á báðum áttum
hvaö varðar pólitíska hæfni
Khomeinys. „Við höfum ekkert
á móti því að hafa íslamska
ríkisstjórn, en við viljum bara
fá aö vita hver fjárinn það er,“
sagði einn af forvígismönnum
Þjóðfylkingarinnar, og and-
stæöingur keisarans. Aðrir eru
þeir og þeim fer fjölgandi sem
búast við því að valdastreita
milli Khomeinys og stjórnmála-
manna írans sé óhjákvæmileg.
„Khomeiny er gamall maður
sem lifir í liðinni tíö,“ sagði einn
íranskur blaöamaður og bætti
viö: „Þegar fólk hrópar nafn
hans, meinar það ekki aö það
þrái að hann komi. Hann er
orðinn eins konar tákn eins og
fáninn.“
Mörgum ber saman um að meiri
hófsemi gæti í yfirlýsingum
þeim sem Khomeiny hefur
gefið síðustu daga — eöa
minnsta kosti þar til upp fyrir
honum rann sá möguleiki að
honum yrði varnað þess að
snúa heim. Stjórnmálafréttarit-
arar höfðu talið aö þetta gæti
verið fyrirboði þess aö
Khomeiny myndi ekki verða
eins öfgakenndur og yfirlýsing-
ar hans höföu borið vott um.
En nú eftir siöustu atburöi og
með þaö í huga hvaða afstöðu
Khomeiny hefur tekið vegna
aðgerða hersins, og þeirrar
andúðar sem hanh hefur látið í
Ijós á stjórn Bakhtiars, verður
þetta mál, enn flóknara og
gátan Khomeiny aldrei tor-
leystari en nú. — h.k.
Singh aftur í stjórnina
Nýju-Dclhi 26. jan. Reuter.
FJÓRIR ráðherrar í stjórn Indlands, sem sögðu af
sér fyrir nokkrum mánuðum í mótmælaskyni við
að Charan Singh var látinn vikja, hafa nú komið
aftur til starfa eftir að Singh hefur nú verið
skipaður aðstoðarforsætisráðherra og fjármála-
ráðherra.
Singh var látinn víkja í júní sl. eftir að hafa lent
saman við Desai forsætisráðherra. Undanfarnar
vikur hafa verið sögusagnir á kreiki um að Singh
myndi ganga til liðs við Indiru Gandhi og hóf Desai
þá fljótlega viðræður við Singh til að jafna
ágreininginn með þeim afleiðingum, að Singh hefur
tekið við störfum á ný svo og hinir ráðherrarnir
fjórir.