Morgunblaðið - 27.01.1979, Síða 37

Morgunblaðið - 27.01.1979, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 27. JANÚAR 1979 37 „Fögur sál er ávallt ung” Fátt er fróðlegra en samtal við fólk, sem hefur lifað langa og auðuga ævi, ríkt af lífsreynslu og lífsspeki. Það gæti orðið öðrum gott umhugsunarefni að kynna sér aðstöðu þess til hins liðna og hins komandi til lífs og dauða, ekki sízt við áraskipti og tímamót. Aldraður kennari svaraði þrem eftirfarandi spurningum eitthvað á þessa leið. Vel gæti ég verið sammála að öllu leyti. Hvernig líkar þér við ellina? Mér finnst ellin ekkert sérstakt tímabil aðskilið öðrum ævidögum. Hún hefur orðið mér bjart og fagurt framhald ævi minnar á liðnum dögum. Tími starfs á víðum vettvangi, með áhugamálum og ævintýrum við mitt hæfi. Að safna árum er auðvitað hinn eðlilegi gangur lífsins. Þar verður auðvitað hver einstaklingur að sníða sér stakk eftir vexti. Aðalatriði og takmark hvers tímabils ævinnar er að gefa dögunum gildi í starfi og leik. Nota hverja stund til að skapa gull eilífðar úr grjóti tímans. Sannarlega hefi ég lifað mörg ár. En þau hafa öll ekki sízt hin síðari veitt mér mikla gæfu og góðar stundir. Ég er einn á ferð að mestu, en samt umvafinn ástúð, umhyggju og áhuga góðra vina og ættingja. Kennslustarf mitt um áratugi aflaði mér óteljandi vina og sambanda við ágæ*t fólk. Það er margt, jafnvel allt miklu yngra en ég og ber mér því mikla birtu og gleði og g»rii mér kleift að fylgjast vel með straumi tímans og háttum samfélagsins. Það merkilegasta er, að þarna virðist skipta svo litlu máli, hvort aldursmunurinn er tíu ár, tuttugu eða jafnvel fimmtíu ár. Og auðvitað er ég upp með mér í hvert sinn, sem einhver segir: „Þú er alltaf ungur og fallegur, broshýr og brennandi af áhuga fyrir öllu. Ef til vill eru þessi orð sögð til að gleðja. En það er af slíkri einlægni gert að kynslóðabilið hverfur. Og það er nóg.“ Ertu hræddur við dauðann? Að safna árum, já, og verða gamall, ef þú vilt hafa það svo, er að sjálfsögðu lífsins saga, eins og ég sagði áðan. Fræi er sáð. Það spírar, vex upp, springur út, blómstrar, ber sinn ávöxt, fölnar og fýkur — deyr. í ljósi þessarar lífssögu, svara ég spurningu þinni ákveðið: Nei, hversvegna ætti ég að óttast dauðann. „Ég veit að yfir dauðans djúp mig Drottins leiðir hönd.“ örugglega verður rétt kærleikfirík hond kraftar og lífs, þegar bát minn ber að ströndu við lífsins fjöll draums og vona. „Þegar ég stíg á lífsins land ljær mér einhver sokka," hvernig sem síðasta siglingin verður. Nei, ég er ekkert hræddur Hvað finnst þér veita lífinu mest gildi? Gildl lífsins felst í því fyrir hvern einstakling, að hann eigi sér takmark í áhuga og störfum hvern einasta dag. Hann má aldrei æðrast yfir því sem ekki er hægt að breyta. Hann þarf að ala með sér hugdirfð og hetjubrag, dirfsku og drenglund til að takast á við erfiðleika og raunir, finna orku sinni viðráðan- leg viðfangsefni til að sigrast á. Þá veitir starfsgleði og sigurfögnuður jafnvel í hinu smæsta ríkuleg laun og ómælanlega hamingju. Gjafari allra góðra hluta, upp- sprettulind lífsins, kyndilberi sólar hefur lagt sínar gjafir í huga, hönd og hjarta hvers einstaklings. Þessar gjafir verður hver að varðveita, geyma og ávaxta, hvort sem æviskeiðið heitir bernska, æska, manndómur eða elli. Þar hæfir hverju skeiði sín aðferð. Þessi varðveizla er sú eina guðsþjónusta, sem til gæfu má verða og gefa eilífð í hverfleika líðandi ára. Þjónustan við aðra er þjónustan við Guð og beeta þjónusta við sjálfan sig. „Hvað vannstu Drottins veröld til þarfa þess verður þú spurður um sólar- lag.“ Reykjavík, 14. jan. 1979. Árelíus Níelsson. Vel heppnað þorra- blót í Mývatnssveit Björk, Mývatnssveit 25. jan. SÍÐASTLIÐIÐ laugardagskvöld var haldið mjög veglegt þorrablót í Skjólbrekku. Fjölmenni var og íslenzki fiski- skipastóllinn sá 18. að stærð ÍSLENZKI íiskiskipastóllinn er sá 18. að stærð í heiminum samkvæmt nýútkominni skrá yfir íslenzk skip 1979, en var í 20. sæti í fyrra. Islenzk þilfarsskip 100 brúttó- rúmlestir og stærri eru nú 1,01% fiskiskipaflota allra þjóða, en í fyrra var hlutur íslendinga 0,96% og 1,03% árið 1977. Fiskiskipastóll Rússa er sá stærsti í heiminum, 40,52% af fiskiskipaflota heimsins, japanski skipastóllinn er 10,53%, sá spánski 6,66%, sá bandaríski 4,86% og sá pólski 3,24%. komu sumir nokkuð langt að, enda veður og færi hið ákjósan- legasta. AÆ borðum var eins og vera ber fjölbreyttur þorramatur og ekki annað að sjá en honum væru gerð hin beztu skil. Meðan borðhaldið stóð yfir voru skemmtiatriði og sum frekar af léttara taginu. Má þar t.d. nefna danssýningu, þar sem mótdansar- inn virtist hafa takmarkaða til- finningu. Þá var sýnt brot úr óperu, einnig upplestur, ágætur spurningaþáttur og síðast en ekki síst var sýndur í spéspegli stór- kostlegur árangur Línukvenna í megrun því eftir 6 vikna strik virtist ekkert vera eftir nema fötin ein. Á milli skemmtiatriða var almennur söngur og að lokum var stiginn dans af miklum krafti. Kvenfélag Mývatnssveitar stóð fyrir þessu blóti. Rétt er og skylt að færa félagskonum þakkir fyrir það framtak. Formaður kvenfé- lagsins er Helga Valborg Péturs- dóttir. Ákveðið var að ágóði að þessari skemmtun rynni til Sól- borgar á Akureyri. — Kristján. Elvis Presley á Borginni, aö vísu ekki í eigin persónu, en tónlistin lifir aö Elvis Presley stjama kvöldsins á Borginni. Gamla góöa rokkiö kemur til meö aö skipa sinn sess. Elvis veröur þar á meöal. Annars þarf ekki aö segja frá stemmning- unni, minnum fólk einungis á aö koma nægjanlega snemma til aö komast inn í fjöriö. „Illt er úti aö standa." eilífu Diskótekið Dísa stjórnar tónlist og Ijósum kl. 21.00—02.00. Plötukynnir Óskar Karlsson. 20 ára aldurstakmark — snyrtilegur klæönaður. Matargestir munið hraðboröið í hádeginu: Heitur réttur, smáréttir, ábætir ásamt porramat. Einnig framreiddir sérréttir í hádeginu svo og frá kl. 18 um kvöldið. BORÐIÐ — BÚIÐ — SKEMMTIÐ simi ^.11440 ^£>0: ykkur á HÓTEL BORG Fjölbreyttari danstónlist. sími 11440 r\ Æ Hotel Saga — Súlnasalur Sunnudagskvöld 28. jan. Húsið opnaö kl. 19.00. Hressing viö barinn Ókeypis happdrættismiöar afhentir. BORÐHALD HEFST Gestir ganga aö langboröi á dansgólfi og velja sér Ijúffenga Þorrarétti af stærsta Þorrablótsveisluborði sem sést hefur. VERÐ AÐEINS KR. 3.500 FYRIR ÓMÆLDAN VEISLUMAT. SKEMMTIATRIÐI Danssýning. Hinn víöfrægi discodansari Ricky Villard skemmtir og sýnir discodans eins og hann gerist bestur í heiminum í dag. FERÐAKYNNING — LITKVIKMYNDIR Glænýjar litkvikmyndir frá eftirsóttum áfangastööum Sunnu, á Kanaríeyjum, Mallorca, Costa del Sol og Grlkklandi, og einnig af skemmtiferöaskipinu FUNCHAL, sem Sunna leigir næsta sumar. Sagt frá mörgum spennandi feröamöguleikum sem bjóðast á þessu ári. GLÆSILEGT FERDABINGO Vinningar 3 sólarlandaferöavinningar meö Sunnu eftir frjálsu vali. TÍSKUSÝNING Fegurðardrottingar íslands 1978—77, ásamt stúlkum frá Karon, sýna þaö nýjasta í kvenfatatískunni. FEGURÐARSAMKEPPNI ÍSLANDS Kosin verður af gestum kvöldsins fyrsti fulltrúinn í lokakeppnina um titilinn Fegurðardrottning Reykjavíkur 1979. OKEYPIS HAPPDRÆTJI Þeir matargestir sem mætá fyrir kl. 20.00 fá ókeypis happdrættismiöa, en vinningur er Kanaríeyjaferö 2. feb. Missið nú ekki af giæsilegasta Þorrabióti ársins á gjafaverði. Ókeypis Kanaríeyjaferö í dýrtíðinni, fyrir Þann heppna. Pantið borö tímanlega hjá yfirpjóni daglega frá kl HOT«L SA<iA SÚLNASALUR 16 00 20221 sima DANS TIL KL. 1.00 Hljómsveit Ragnars Bjarnasonar ásamt söngkonunni Þuríöi Siguröardóttur leika og syngja.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.