Morgunblaðið - 27.01.1979, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 27. JANÚAR 1979
45
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
I0100KL. 10—11
FRÁ MÁNUDEGI
þess að valda þeim óbætanlegu
tjóni.
Móðir.
• Misskilningur
Vegna kvartana tveggja
skólastúlkna yfir þjónustu Borgar-
bókasafnsins hafa forráðamenn
safnsins sent Velvakanda eftir-
farandi bréf:
í Velvakanda sunnudaginn 21.
janúar kvörtuðu þær skólastúlkur
yfir því, að Borgarbókasafn
Reykjavíkur ætti ekki neina bók
um síðari heimsstyrjöldina. Hér er
um mikinn misskilning að ræða.
Safnið á að sjálfsögðu margar
bækur um þetta efni.
Misskilningurinn getur í fyrsta
lagi stafað af því, að flestar þeirra
eru á erlendum málum, en algengt
er að skólafólk geti ekki notfært
sér erlendar bækur. Sáralítið
hefur verið gefið út á íslenzku um
síðari heimsstyrjöldina og þær
bækur fiestar gamlar og löngu
uppseldar og því eintökum mjög
farið að fækka í safninu.
í öðru lagi vill brenna við, að
fólk misskilji þegar því er sagt að
bók sé í láni og álíti þar með að
hún sé ekki til í safninu.
Að lokum má benda á að mjög
erfitt er að anna þeirri tíma-
bundnu eftirspurn, sem skapast
þegar mikill fjöldi nemenda á að
skrifa ritgerð um sama efni.
Nokkur lausn á þeim vanda er þó
að á lestrarsal safnsins, Þingholts-
stræti 27, eru til flestar íslenzkar
bækur til afnota á staðnum.
• Orð um fyrir-
bæri náttúrunnar
Ingvar Agnarsson hefur sent
lesendum Velvakanda eftirfarandi
spurningar og væri það vel þegið
ef einhver vildi senda okkur línu
sem svarað getur einhverjum af
spurningum Ingvars.
Feimilbirta: Mér varð gengið út
um kvöld (í janúar). Jafnfallinn
snjór hluidi landið. Feimilbjart
var úti. Tungl var í fyllingu.
Norðurljós flöktu um himininn í
dýrðlegu litaskrúði. Bjartar
stjörnur blikuðu um alla hvelf-
inguna, í allri sinni litadýrð.
Svo bjart var úti, að unnt hefði
verið að lesa á bók. Slík birta á
síðkvöldi kallast feimilbirta. Hver
þekkir þetta hljómfagra orð? Hvar
á íandinu er það enn í notkun í
mæltu máli? Hver mundi vera
uppruni orðsins?
Kvestir (eða hvestir): Vika er nú
liðin síðan birta himins og jarðar
heillaði huga minn seint um kvöld.
Sú dýrð stóð ekki lengi, því
norðanstormur tók að æða og hlóð
lausamjöllinni í skafla í hverri
lægð og í kvesti á bak við hvern
stein, hverja þúfu og hverja ójöfnu
á yfirborði landsins. Sumir
kvestirnir voru litlir, en aðrir
stórir og mynduðu langa, ávala
eða hvassa hryggi bak við allar
ójöfnur. Hver þekkir orðið
kvestir? Hvar á landinu er það
enn í munnlegri notkun? Af hverju
mundi orðið vera dregið?
Ingvar Agnarsson.
• Ambögur í
útvarpsþætti
Á.J. hringdi og vildi koma á
framfæri leiðréttingu vegna út-
varpsþáttar s.l. sunnudag þar sem
talað var um islam (múhameðstrú)
og Kóraninn.
„Það voru svo margar ambögur í
þessum þætti. M.a. var það sagt að
þessi trúmál væru svo flókin að
ekki væri hægt að þýða Kóraninn
yfir á nokkurt tungumál og
einungis væri hægt að lesa hann á
þvi máli sem hann er ritaður.
Þetta er eintóm vitleysa. Sjálfur
hef ég búið í Austurlöndum og
lesið Kóraninn mörgum sinnum.
Bókin fæst einnig á ensku í
bókaverslun hér á landi, ég veit
ekki hvort hún er til á öðrum
tungumálum."
SKÁK
Umsjón:
Margeir Pétursson
Á samsovézka úrtökumótinu í
Daugavpils í sumar kom þessi
staða upp í skák stórmeistarans
Bronsteins og óþekkts meistara að
nafni Kim, sem hafði svart og átti
leik.
33. - Bxg3!, 34. Hfl (Eða 34. hxg3
— Dxg3+, 35. Kfl - Df3+, 36. Kgl
— Hg8+ og mátar) Bxh2+, 35.
Kxh2 - IIh8+, 36. Kgl - Hhl.
Mát.
HÖGNI HREKKVÍSI
* &?<*!.’...X6-^l£\ fÖTfírfítCÍ"
mHADSTEN
H0JSKOLE
8370 Hadtten milli Árósp og
Randers 20 vikna vetrarnim-
skeið okt.—lebr. 18 vikna
sumarnámskeið marz—júlí.
Mörg valfög t.d. undirbúningur
til umsóknar í lögreglu, hjúkrun,
barnagæzlu og umönnun. At-
vinnuskipti og atvinnuþekking
o.fl. Einnig lestrar- og reiknings-
námskeiö 45. valgreinar.
Biöjiö um skólaskýrslu.
Forstander Erik Klausen, sími
(06) 98 01 99.
Á leið í
skóla
gœtið að
LADA
Beztu
bílakaupin
2.160.-
Hiireirtar & Iðndbúnartarvélar hi.
!jM£' —V*— " -«"* ■ “ —
Félag
járniðnaðarmanna
Félagsfundur
veröur haldinn mánudaginn 29. janúar 1979
kl. 8.30 e.h. í Félagsheimili Kópavogs, niöri.
Dagskrá:
1. Félagsmál.
2. Um breytingu á námsskrá í ketil og
plötusmíöi v/stálskipasmíöa.
3. Önnur mál.
Mætiö stundvíslega.
Stjórn
Félags járniönaöarmanna
óskar eftir
blaðburðarfólki
AUSTURBÆR:
Á Seið í skóla
gœtið að