Morgunblaðið - 27.01.1979, Side 47
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 27. JANUAR 1979
47
Yfirburðasigur
ÍR yfir Þór
ÍR SIGRAÐI Þór frá Akureyri með miklum yfirburðum í
úrvalsdeiidinni í körfuknattleik, er liðin mættust í Hagaskóla í
gærkvöldi. Lokatölur voru 123 stig gegn 90, eftir að staðan í leikhléi
hafði verið 53i48, ÍR í vil.
Þórsarar mættu í leikinn með aðeins 8 leikmenn og í liðið vantaði
tvo leikmenn, sem venjulega eru í byrjunarliði, þá Karl ólafsson og
Birgi Rafnsson, og munar um minna hjá liði, sem ekki hefur yfir meiri
breidd að ráða. Þrátt fyrir þetta stóðu Þórsarar í ÍR-ingum í fyrri
hálfleik, en í leikhléi var aðeins 5 stiga munur.
Fyrstu 5 mín. síðari hálfleiks
voru einnig jafnar, en upp frá því
sögðu IR-ingar skilið við Þórsara
og síðustu mínútur leiksins var
nánast um skotheppni að ræða.
Það er nokkuð erfitt að dæma
ÍR-liðið eftir þessum leik, til þess
var mótstaðan of lítil. Ungu
leikmennirnir, sem lítið hafa
fengið að spreyta sig í vetur fengu
nú allir tækifæri og stóðu fyrir
sínu. Bestir IR-inga voru hins
vegar bræðurnir Kristinn og Jón
Jörundssynir, en einnig voru
Stefán Kristjánsson og Kristján
Sigurðsson ágætir. Þá átti Paul
Stewart þokkalegan leik.
Hjá Þór var Jón Indriðason
atkvæðamestur í sókninni, en
mætti gjarnan leggja meiri
áherslu á vörnina, sem ekki er í
sem bestu lagi hjá honum og
reyndar fleiri Þórsurum. Það er
hún hins vegar hjá Mark Christen-
sen, sem alltaf sýnir snilldartakta
í vörninni, en var að þessu sinni
óvenju mistækur í sókninni, enda
fékk hann lítið til að vinna úr. Þá
var Eiríkur Sigurðsson ágætur á
meðan hans naut við, en hann fékk
5 villur um miðjan síðari hálfleik.
Stigin fyrir ÍR: Paul Stewart 25,
Kristinn 24, Jón 23, Stefán 14,
Kristján 10, Kolbeinn 8, Erlendur
og Steinn Logi 6 hvor, Guðmundur
5 og Sigurður Valur 2.
Stigin fyrir Þór: Jón 34, Mark
29, Eiríkur 12, Ellert 6, Alfreð 4,
Þröstur 3 og Ágúst 2.
Dómarar voru Jón Otti Olafsson
og Þráinn Skúlason og dæmdu þeir
þokkalega.
ÁG
Emkunnagjofm
ÍR: Erlendur Markússon 2, Guðmundur Guömundsson 2, Jón Jörundsson 3,
Kristinn Jörundsson 3, Kristján Sigurðsson 2, Kolbeinn Kristinsson 2,
Sigurður V. Halldórsson 1, Stefán Kristjánsson 3, Steinn L. Björnsson 2.
ÞOR: Alfreð Tulíníus 1, Ágúst Pálsson 1, Ellert Finnbogason 2, Eiríkur
Sigurðsson 2, Jón Indriðason 3, Sigurgeir Sveinsson 1, Þröstur Guðjónsson 1.
ÍR-stúlkur í sókn
EINN leikur fór fram í mfl. kvenna í íslandsmótinu í körfuknattleik á
fimmtudagskvöldið. ÍS og ÍR mættust í íþróttahúsi Kennaraháskólans.
Eftir spennandi viðureign sigraði ÍR með 46 stigum jjegn 45, en í leikhléi
var staðan 21:17, ÍS í vil. Var þetta þriðji tapleikur Islandsmeistara ÍS á
mótinu, en ÍR og KR hafa tapað tveimur leikjum hvort félag. Hefur
frammistaða ÍR komið mjög á óvart og tekur liðið framförum með
hverjum leik.
KR
ÍR
(S
1 u t stig
5 3 2 247,243 6
5 3 2 262,264 6
4 1 3 201.203 2
• Jón Indriðason var stigahæstur Þórsara í leiknum í gærkvöldi og
skemmti áhorfendum að vanda með tiltektum sínum. Hér er hann á
fullri ferð í leik gegn UMFN í fyrra.
Öruggur sigur
KA yfir Þór
KA SIGRAÐI Þór frá Vestmannaeyjum 21 — 19 í 2. deild
íslandsmótsins í handknattleik á Akureyri í gærkveldi.
KA-menn höfðu yfirhöndina allan tímann og komust mest í 7 marka
mun, en Þórsarar minnkuðu muninn þegar líða tók á ieikinn.
Leikurinn var nokkuð harður og var KA-mönnum vísað út af í alls 14
mínútur en Þórsurum í aðeins 2 mínútur.
Markhæstur hjá KA var Alfreð Gíslason með 7 mörk, og Jóhann
Einarsson með 4, en hjá Þór var Hannes Leifsson með 6, og Ásmundur
Friðriksson með 4.
þr./Sigb.
Chelsea í
stórviðskipt-
um
TVÆR markverðar sölur hafa
farið fram á Bretlandseyjum
síðustu daga og á Lundúnaliðið
Chelsea hlut að báðum.
Fyrst seldi félagið hinn
sterka miðvörð sinn, Steve
Wicks, til Derby fyrir 275.000
sterlingspund. Það var í fyrra-
dag. Og félagið var ekki lengi
að eyða peningunum, heldur
keypti í gær fyrir 200.000
sterlingspund Eamon nokkurn
Bannon frá skoska liðinu
Hearts. Bannon er leikmaður
með skoska landsliðinu skip-
uðu lcikmönnum 21 árs og
yngri.
Danny Blackflower, fram-
kvæmdastjóri Chelsea, hefur
ekki lokið innkaupum sínum. í
næstu viku gerir hann sér
vonir um að ganga frá samn-
ingi við Keith Weller, leik-
mann með Leicester, en hann
hóf einmitt feril sinn hjá
Chelsea. Kaupverð hins 32 ára
gamla Wellers er talið vera
40.000 sterlingspund.
Sigurbergur
þjálfar Þrótt,
Neskaupstað
ÞRÓTTUR, Neskaupstað, hefur nú ráðið þjálfara fyrir næsta
keppnistímabil. Það er hinn þekkti knattspyrnumaður og handknatt-
leikskappi úr Fram, Sigurbergur Sigsteinsson. sem þjálfa mun liðið og
væntanlega leika með því einnig. Þá þjálfar hann sennilega líka
handknattleikslið staðarins því á sumri komanda mun Færeyjarferð
standa fyrir dyrum. Farið verður til vinabæjar Neskaupstaðar,
Sandavogs. í Sandavogi þjálfar Hjörtur Gíslason frá Akureyri, fyrrum
leikmaður Þróttar.
í tilefni 50 ára afmælis Neskaupstaðar í ár verður reynt að fá
eitthvert 1. deildar lið til að koma og kepþa við heimamenn. Ekki var
alveg ljóst hvort miklar breytingar verða á liði Þróttar frá í fyrra t.d.
verður einn leikmaður, Helgi Benediktsson, ekki með þar sem hann
leikur með Lillehamer í 3. deildinni í Noregi.
Afmælismót
JSÍ
AFMÆLISMÓT Júdósambands
ísiands verður háð næstu tvo
sunnudaga. Fyrri hluti mótsins
verður n.k. sunnudag 28. janú-
ar, og verður þá keppt i öllum
jyngdarfiokkum karla, sjö að
tölu.
Keppt verður í íþróttahúsi
Kennaraháskólans, og hefst
keppnin kl. 14.00.
Seinni hluti mótsins verður
svo sunnudaginn 4. febrúar. Þá
verður keppt í opnum flokki (án
>yngdartakmarkana), í flokk-
um unglinga 15—17 ára og
einnig í kvennaflokki ef næg
látttaka verður.
Blak um
helgina:
Töluvcrt verður blakað um
helgina. Á dagskrá eru 4 leikir
í 1. dcild karla, svo og leikir í
1. deild kvenna og annarri
deild kvenna. í aðalieikjupum,
1. deildar leikjunum í karla-
flokki, eru ekki um toppliða-
uppgjör að ræða. Á pappírn-
um telja margir úrslitin í þeim
vera formsatriði. Ekki skyldi
ió vera með slíka sleggju-
dóma, Laugdælir hafa komið
öllum á óvart í blakinu í vetur
og því skyldu önnur af hinum
svokölluðu slakari liðum ekki
geta hrist upp í toppliðunum?
Leikir helgarinnar eru eftir
farandi,
I.augardagur,
Hagaskólinn: 1. deild kvenna
ÍS-UBK ki. 14.00
Hagaskólinn: 1. deild karla
íS-MÍMIR kl. 15.00
Hagaskólinn: 2. deild karla
UBK- ÍBV kl. 16.00
Hagaskólinn 1. deild karla
UMFL-UMSE kl. 17.00
Sunnudagur,
Hagaskólinn: 2. deild karla
Fram-ÍBV kl. 14.00
Hagaskólinn: 1. deild karla
S-UMSE ki. 15.00
Hagaskólinn: 1. deild karla
Þróttur-Mímir kl. 16.00
Leicester-
Coventry
á skjánum
ídag
„ÞAÐ STÓÐ til að sýna leik
Coventry og Liverpool sem
fram átti að fara í Coventry á
laugardaginn. en honum varð
að fresta vegna veðurs. Það
varð því að taka upp næsta
leik í nágrenninu og reyndist
það vera viðureign Leicester
og Blackburn.** sagði Bjarni
Felixson í stuttu spjalli um
innihald íþróttaþáttanna í
dag.
„En leikurinn er allsæmileg-
ur miðað við aðstæður, en
völlurinn er mjög forugur.
Snjólaus er hann þó, en það er
vegna þess að þeir þarna f
Leicester breiða stóra bliiðru
yfir hann,- sagði Bjarni enn
fremur.
Enska knattspyrnan hefst
að vanda klukkan 19.00. en í
íþróttaþættinum verður
meginefnið meistaramót ís
lands f stökkum án atrennu
Bjarni sagði að ef tími gæfist
til sýndi hann einhverjar
skfðamyndir, en þa*r væri
hann farinn að fá „í löngum
bunum“.
I