Morgunblaðið - 02.02.1979, Qupperneq 2
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 2. FEBRÚAR 1979
Nýr skuttogari af stokkunum í Slippstöðinni:
Sjór af Grímseyjar-
sundi laugaði stefni
Sigurbjargar OF1
Akureyri — 1. febrúar.
FIMM hundruð lesta skut-
togari hljóp af stokkunum
í Slippstöðinni í dag kl.
13.30. Guðfinna Pálsdóttir,
eÍRÍnkona Magnúsar
Gamalíelssonar, útgerðar-
manns, gaf skipinu nafnið
Sigurbjörg ÓF 1. Sjór af
Grímseyjarsundi var í
flöskunni sem brotnaði á
stefni skipsins. Sami hátt-
ur var á hafður þegar hin
eldri Sigurbjörg ÓF 1 hljóp
af stokkunum árið 1966.
Eigandi skipsins er Magnús
Gamalíelsson hf. í Ólafsfirði, en
það eru sömu aðilar og sömdu um
smíði fyrsta stálskipsins, sem
smíðað var í Slippstöðinni, hét
sama nafni og þetta skip og hefur
reynzt mikil happafleyta. Nýja
skipið er að öllu leyti hannað af
starfsmönnum tæknideildar SIipp-
stöðvarinnar. Mesta lengd er 54,98
metrar og breidd 10,26. Ibúðir eru
fyrir 17 menn, þ.e. 6 2ja manna
klefar og 5 eins manns klefar, þar
á meðal íbúð skipstjóra.
Aðalvél skipsins er 2000 hestöfl
en auk hennar eru tvær hjálpar-
vélar.
Unnið verður að ýmsum lokafrá-
gangi næstu vikur og áætlað er að
skipið verði afhent eigendum í
næsta mánuði.
—Sv.P.
Fjölmiðlakönnun Hagvangs:
Mest horft á fréttir og
Gæfu eða gjörvileika
— Minnst á íþróttir og erlend málefni
Ögri náði hæstu
sölu í Þýzkalandi
SKUTTOGARINN Ogri
seldi í gær og í fyrradag
299.4 tonn í Bremerhaven í
V-Þýzkalandi og fékk sam-
tals 84 milljónir króna
fyrir aflann. Meðalverð
280 krónur. Er þetta hæsta
upphæð, sem íslenzkt skip
hefur fengið fyrir afla í
Þýzkalandi, hvort heldur
talið er í íslenzkum krón-
um eða vestur-þýzkum
mörkum.
Þá seldi Engey í Hull og var þar
einnig um sölu á miðvikudag og
fimmtudag að ræða. Engey land-
aði 184.5 tonnum og fékk 53.4
milljónir fyrir aflann, meðalverð
290 krónur. Afli Engeyjar var
mjög blandaður. Rán seldi í
Grimsby í gærmorgun 88.2 tonn
fyrir 33.4 milljónir, meðalverð 378
krónur.
Afli togáranna hefur verið all-
góður undanfarið miðað við það
sem gerist á þessum árstíma.
Fyrir viku — tíu dögum fengu
nokkrir togaranna mjög góðan
afla suðaustur af landinu, allt að
40—50 tonnum á dag og var ufsi
stór hluti í þeirri hrotu. Auk Ögra
og Vigra, sem lentu í þessari
hrotu, má nefna Karlsefni og
Guðstein.
FRÉTTIR og Gæfa eða
gjörvileiki var það efni
sjónvarpsins, sem mest var
horft á vikuna 2.-8.
október, þegar fjölmiðla-
könnun Hagvangs fór
fram. Af þeim, sem spurðir
voru, höfðu 68—72% horft
á fréttir sjónvarpsins þessa
viku og 78% horfðu á Gæfu
eða gjörvileika. Rúmlega
helmingur þeirra, sem
spurðir voru, hafði horft á
Kastljós þessa viku eða
52,4%. Af öðru efni sjón-
varps má nefna:
Dýrin mín stór og smá 66%
Kojak 63%
Prúðu leikararnir 58%
Út úr myrkrinu (kvikm.) 58%
Bak við dyr vítis (kvikm.) 58%
Gengið á vit Woodhouse 48%
Nýjasta tækni og vísindi 44%
Humarveiðar 43%
Tjarnarbúar (fræðslum) 36%
Manfrcd Mann 35%
Alit innifalið (leikrit) 34%
íþróttir 33%
Þáttur um erlend málefni 28,5%
I fjölmiðlakönnun þessari var
einnig spurt um hlustun útvarps.
Niðurstaðan varð þessi:
Kl. 9-11 38%
Kl. 12-13 59%
Kl. 14-17 34%
Kl. 17-19 32%
Kl. 19-20 62%
Um 665 þúsund króti-
ur kostar að reka bíl
FÉLAG ísl. bifreiðaeig-
enda lét í byrjun ársins
reikna út hvað nú kostar
Matthías Bjarnason, fv. sjávarútvegsráóherra:
Hlutur útlendinga í heildar-
þorskafla úr 50 í tæp 3%
Efla þarf samstarf við Færeyinga og Græn-
lendinga um sameiginleg hagsmunamál
Harðar umræður urðu á Al-
þingi f gær um gagnkvæma
fiskveiðisamninga Færeyinga
og ísiendinga, sem nýlega vóru
gerðir milli þjóðanna. Benedikt
Gröndal, utanríkisráðherra,
mæiti fyrir tillögu til sam-
þykktar á samningunum. Lúð-
vfk Jósepsson, formaður Al-
þýðubandalagsins, gagnrýndi
máismeðferð utanríkisráð-
herra á samningagerðinni, en
samningarnir hefðu ekki hlotið
eðlilega meðferð í ríkisstjórn-
inni, og mælti gegn samþykkt
þeirra. Svavar Gestsson, við-
skiptaráðherra, tók undir
jfágnrýni á málsmeðferð en
taidi niðurstöður samninganna
viðunandi og kvaðst greiða
þeim atkvæði.
Matthías Bjarnason, fv.
sjávarútvegsráðherra, mælti
eindregið mcð samningunum,
og hvatti til nánara samstarfs
fslendinga, Færeyinga og
Grænlendinga um sameigin-
lega fiskveiðihagsmuni. Hann
vakti athygli á því að árið 1972
hefðu útlendingar hirt yfir 50%
af heildarþorskafla á ísiands-
miðum, en eftir útfærslu í 200
sjómflur og Óslóarsamkomu-
lag, sem ieiddi til þess að
brezkir og v-þýskir veiðiflotar
héldu endanlega af ísiandsmið-
um, væri hlutur okkar í
heildaraflanum kominn í rúm-
Matthías Bjarnason, fv. sjávarútvegsráðherra.
lega 97%, 1978. Rétt hefði verið
að skerða enn aflahlut Fær-
eyinga í þorski, eins og gert
hefði verið, en hlutur þeirra í
loðnuafla væri ekki um of.
Hann iiti ekki á Færeyinga sem
útlendinga, heldur vinveitta
smáþjóð, sem háði sams konar
iífsbaráttu og við, og við ættum
og gætum rétt hjálparhönd. Og
þessir samningar fela í sér
gagnkvæma hagsmuni.
Einar Ágústsson, utanrikis-
ráðherra, gagnrýndi verk-
stjórn á Alþingi, þá að umræða
um Færeyjasamninga var slitin
í sundur með umræðum utan
dagskrár um járnblendiverk-
smiðju. Hann krafðist þess að
fundi yrði frestað, svo að hann
gæti komið skoðunum sinum á
framfæri á venjulegum fundar-
tíma og borið af sér sakir, eins
og hann orðaði það, en nú væri
fjöldi þingmanna farinn af
fundi, enda áliðið dags. Við
þeim tilmælum var orðið.
Umræðurnar verða raktar
efnislega á þingsiðu Mbl. á
morgun, laugardag.
að eiga bifreið hér á landi
og reka hana. Reyndist
kostnaðurinn vera um 665
þúsund krónur yfir árið án
afskrifta.
Að sögn Sveins Oddgeirssonar,
framkvæmdastjóra FÍB, var í út-
reikningum þeirra miðað við
meðalstóran bíl, sem eyddi 10
lítrum á hverja 100 km og er ekið
16 þúsund km á ári. Miðað við
þessar forsendur hefur
bensíneyðsla þessa bíls numið
289.600 kr., smurningur og olíu-
skipti hafa kostað 35.000 kr., hjól-
barðar (2‘á dekk á ári) hafa kostað
um 38 þúsund krónur, varahlutir
miðað við að bíllinn sé 7 ára, hafa
kostað 115 þúsund kr., ábyrgðar-
trygging miðað við 30% afslátt
hefur kostað 67.620 kr. og
kaskótrygging með 20% bónus
yrði 85.056 kr. Þá er ótalinn
bifreiðaskatturinn að fjárhæð
4328 kr. en síðan er gert ráð fyrir
ýmsum öðrum kostnaði að upphæð
um 30 þúsund krónur og samtals
er þetta því kr. 664.604. Inn í þessa
fjárhæð vantar afskriftir sem eru
10% og þannig breytilegar eftir
bílverði.
Sveinn sagði, að FIB hefði einn-
ig kannað raunverulegan rekstrar-
kostnað bíla samkvæmt skatt-
skýrslum manna fyrir árið 1977.
Alls hefðu borizt 82 svör við
fyrirspurnum um þetta og útkom-
an orðið sú, að meðalakstur á
þessu ári er 15.782 km og meðalár-
gerðin var árgerð 1972. Meðalbif-
reiðin samkvæmt þessu eyddi ben-
síni fyrir kr. 206.995 það árið,
hjólbörðum fyrir 49.500 kr.
smurning og olíu fyrir kr. 16.000,
varahlutum fyrir kr. 49.000 og
vinna nam kr. 32.000, tryggingar
kr. 60.000 og bifreiðaskatturinn
þetta ár 2767. Ymiss annar auka-
kostnaður nam kr. 12.000.
Beðið eftir
viðgerðina
Viðgerðarskipið
Northern gerði í gær eina
tilraun til að ná upp
sæsímastrengnum Scotice
en vegna þess hversu
ókyrrt var í sjóinn urðu
viðgerðarmennirnir að
sleppa strengnum áður en
af viðgerð gat orðið og bíða
þess nú að veður skáni, að
sögn Jóns Kr. Valdimars-
sonar hjá Pósti og síma.
Þrátt fyrir bilunina á Scotice
er talsamband við útlönd mjög
þokkalegt um þessar mundir,
þar sem síminn hér hefur línur
um Icecan, línur fyrir Flugleiðir
og flugumferðarstjórn fyrir
telexþjónustuna og auk þess 2
tallínur við London og 2 við
Kaupmannahöfn. Þá eru einnig 2
radíólínur við London og ein við
Kaupmannahöfn og einnig er
veðri, með
á Scotice
talsamband hluta úr deginum
um jarðstöð á Grænlandi við
Kaupmannahöfn.
Ályktun
frá stjórn
FÍM en ekki
frétt Mbl.
ÞAU MISTÖK urðu í vinnslu
fimmtudagsblaðs Morgun-
blaðsins, að á blaðsíðu 5 féll
niður formáli blaðsins að
ályktun frá stjórn -Félags ís-
lenzkra myndlistarmanna.
Formálinn, sem niður féll,
var svohljóðandi: „Morgun-
blaðinu barst í gær cftirfar-
andi ályktun frá stjórn
F.Í.M.:"