Morgunblaðið - 02.02.1979, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 2. FEBRÚAR 1979
9
Rafmagnssamningurinn milli
Landsvirkjunar og Union Carbide
frá 1975 var notaður sem uppi-
staða, en hann þurfti að endur-
skoða og gera á honum margvís-
legar breytingar og lagfæringar
vegna breyttrar tímasetningar,
fyllri ákvæði um orkuverð o.fl.
Þessar breytingar bera heitið:
Fyrsti viðauki við rafmagnssamn-
inginn. Sá lögfræðingur undirbjó
þessar breytingar, sem verið hafði
ráðunautur viðræðunefndar um
orkufrekan iðnað frá byrjun,
Hjörtur Torfason hæstaréttarlög-
maður. Hann hafði undirbúið bæði
samningana við Union Carbide og
við Elkem-Spiegerverket, og því
öllum hlutum gjörkunnugur. Hann
gerði tillögu um umrædda breyt-
ingu á orðalagi 23. gr. og skýrir
það á þessa lund í bréfi til Lands-
virkjunar 10. desember 1976.
„Um breytinguna leyfi ég mér að
taka fram, að ég tel ekki felast í
henni neina efnislega breytingu á
aðstöðu frá því, sem var í samn-
ingum með Union Carbide. Raf-
magnssamningurinn hefur ávallt
verið aðalundirstaða allra samn-
inga um járnblendiverksmiðjuna,
og væri að sjálfsögðu tilgangslaust
að gera hana sameiginlega í byrj-
un, ef hluti aðilanna gæti síðan
breytt honum einhliða. Hins vegar
tel ég fyrirkomulag þessa atriðis í
fyrri samningum ekki hafa verið
svo skýrt, að hártogun væri útilok-
uð, og væri því æskilegt nú að
setja skýr ákvæði um uppburð
breytinga á þeim stað, sem þeinast
liggur við til þess. Er þetta ekkert
síður mín eigin skoðun en hins
norska. lögfræðings, sem staðið
hefur að tillögugerð um samnings-
textann."
Stjórn Landsvirkjunar og stjórn
Járnblendifélagsins sem þá var
skipuð íslendingum einum, en svo
var eftir að Union Carbide hætti
þátttöku og áður en Elkem kom
inn í félagið — samþykktu þessa
breytingu og var samningurinn
undirritaður 31. des. 1976. Hann
var síðan lagður fyrir iðnaðar-
nefndir Alþingis, sem fengu járn-
blendifrumvarpið til meðferðar.
Hugarórar Alþýðu-
bandalagsins
Þessi umrædda breyting á 23.
gr. rafmagnssamnings, sem var
rökrétt og eðlileg var ekki gerð að
mínu undirlagi, hún bar aldrei á
góma í viðræðum milli mín og
fulltrúa Elkem — Spiegerverket,
hún fór ekki leynt, hún lá fyrir
þingnefndum í meðferð málsins.
Alþýðubandalagið átti fulltrúa í
stjórn Landsvirkjunar, sem sam-
þykkti breytinguna. Allt tal liðs-
manna hæstv. iðnaðarráðherra í
Þjóðviljanum um að ég hafi notað
þessa breytingu sem agn til að
lokka Elkem til samstarfs eru
hugarórar einir. Þetta var málatil-
búnaður, sem settur er á svið í
þeim tilgangi einum að friða óró-
lega Alþýðubandalagsmenn og
reyna að afsaka í þeirra augum, að
iðnaðarráðherra hafi ekki megnað
að stöðva verksmiðjuna fyrir
hrekkjabrögð og laumuspil fyrir-
rennara síns. Ef til vill er þetta
mannlegt, en stórmannlegt er það
ekki.
Greinargerð
Hjartar
Torfasonar
Hjörtur Torfason hefur nú sent
bæði hæstvirtum iðnaðarráðherra
og mér greinargerð, sem ber fyrir-
sögnina: „Minnisatriði í tilefni af
fréttatilkynningu iðnaðarráðu-
neytis 25. jan. 1979 varðandi raf-
magnssamning milli Isl. járn-
blendifélagsins h.f. og Lands-
virkjunar."
Þessa skýru og rökföstu greinar-
gerð þarf að birta opinberlega, en
ég skal hér tilfæra nokkur atriði
úr henni.
Hjörtur segir m. a.:
„Það verður því að teljast
eðlilegt samningsatriði gagnvart
minnihlutaaðila í félagi eins og
Járnblendifélaginu, að grundvelli
þeim, sem lagður er í byrjun með
samningi eins og rafmagnssamn-
ingnum, og þá með gagnkvæmu
samkomulagi, sé ekki raskað nema
með samþykki aðilans. Er þetta
m.a. í eðlilegu samræmi við það,
sem almennt gerist í félögum, þ.e.
að undirstöðuatriðum í skipulagi
og starfi verði ekki breytt með
meirihlutavaldi einu saman.
4. Mikilvægi rafmagnssamnings
kom mjög skýrt í Ijós í viðræðum
við Norðmenn, þar sem leysa
þurfti úr mikilvægum atriðum
varðandi orkuverð og afhending-
artíma. Að samningsgerðinni var
gengið með því hugarfari, að
samningnum yrði ekki breytt á
hinum umsamda gildistíma nema
með samþykki þeirra aðila, er
stóðu að gerð hans í byrjun, þar á
meðal ES. Var breytingu þeirri á
orðalagi 23. gr. samningsins, sem
um getur í fréttatilk., æltað að
taka af tvímæli um það, að þessi
regla skyldi gilda um almennar
breytingar á samningnum.
6. Um breytingu þessa á 23. (og
26. ) gr. var litið svo að, að hún fæli
ekki í sér efnislega breytingu á
samningsaðstöðu frá því sem hafði
verið í reynd skv. samningunum
við Union Carbide. Aðstaða mundi
óhjákvæmilega mótast af því í
báðum tilvikum, að rafmagns-
samningurinn hefði verið gerður
sameiginlega í byrjun, og væri
tilgangnum með því kollvarpað, ef
sumir aðilanna gætu einhliða gert
á honum meiri háttar breytingar
síðar meir.
7. Orðalag fréttatilk. er óheppi-
legt að því leyti, að ókunnugir
gætu hugsanlega ályktað af því, að
umrædd breyting á 23. gr. hefði
verið gerð með sérstökum viðauka,
er fjalli um hana eina, með ein-
hverjum afbrigðilegum hætti. Hið
rétta er að sjálfsögðu, að þessi
breyting er aðeins ein af fleiri
breytingum, sem gerðar voru á
texta rafmagnssamningsins við
tilkomu ES, þar á meðal texta
varðandi afhendingardaga raf-
magns og orkuverð. Voru allar
þessar breytingar teknar upp í
fyrsta viðauka við rafmangssamn-
inginn, sem undirritaður var 31.
des. 1976, og engar breytingar
gerðar nema með honum.
8. Þá er það mjög ósanngjarnt,
sem gefið er í skyn í Þjóðviljanum
27. jan. , að reynt hafi verið að
dylja breytinguna á 23. gr. Þvert á
móti var breytingin sjálf áberandi
hluti af samningnum og auðsæ
hverjum er lesa vildi. Jafnframt er
ljóst, að umræddur fyrist viðauki
við rafmagnssamninginn var
sendur iðnaðarnefndum Alþingis
til upplýsingar og skoðunar þegar
um mánaðamótin jan./febr. 1977,
er nefndirnar hófu störf að mál-
inu, og hið sama var gert við aðra
fylgissamninga aðalsamningsins,
eftir því sem þeir féllu til. Frv. að
hinum nýju lögum um járnblendi-
verksmiðjuna var lagt fyrir Al-
þingi fyrir jólin 1976, en meðferð
þess lauk ekki fyrr en undir
þinglok í maí 1977. Var þannig
nægur tími og tækifæri fyrir
nefndarmenn og aðra þingmenn til
athugunar á málinu.
10. Varðandi breytinguna á 23.
gr. er þess loks að geta, að hún
skiptir ekki beinu máli um það
málefni, sem tii athugunar var hjá
Járnblendifélaginu, þ.e. hugsan-
lega frestun á ofni 2. Við tilkomu
ES var samin alveg ný tímaáætlun
fyrir verksmiðjuna, svo sem óhjá-
kvæmilegt var vegna þeirrar
seinkunar, sem aðilaskiptin í fé-
láginu olli. Þessi tímaáætlun var
meðal þeirra atriða, sem um var
fjallað í aðalsamningi ríkisstjórn-
arinnar og ES, og fól hún í sér
bindandi tímamörk varðandi
gangsetningu bræðsluofna. Breyt-
ing á tímaákvörðun varðandi ofn
nr. 2 mundi því fela í sér breytingu
á aðalsamningnum sjálfum eða
frávik frá honum, og vera háð
samþykki ES þegar af þeirri
ástæðu, ef á slíkt mundi reyna á
annað borð.“
Herra forseti.
Ég þakka leyfið til þess að gera
hér utandagskrárgrein fyrir þessu
mikilvæga máli. En réttum upp-
lýsingum var nauðsynlegt að koma
á framfæri við Alþingi.
26600
EYJABAKKI
2ja herb. falleg 65 fm. íbúð á 1.
hæð. Verö 13.0. Útb. 10.0.
HRAUNBÆR
2ja herb. á 3ju hæð. Suður
svalir. Góð íbúð. Verð 12.5.
Útb. 9.0.
HRAUNKAMBUR HF.
7 herb. íbúð á tveim hæðum í
tvíbýlishúsi. Samt. 145 fm. 40
fm. bílsk. Verð 30.0 millj. Útb.
20.0.
KLEPPSVEGUR
4 herb. kjallaraíb. 105 fm. í
blokk. 1 herb. í risi fylgir. Verð
16.5. Útb. 11.0.
MARÍUBAKKI
3ja herb. íb. á 1. hæð. Þvotta-
herb. í íb. Verð 15.0. Útb. 10.0.
SKÚLAGATA
3 herb. íb. á 4. hæð. Snyrtileg
íb. Verð 13.0.
VESTURBERG
3ja herb. íb. í háhýsi. Verð 14.5.
Útb. 11.0.
Ragnar Tómasson hdl.
Fasteignaþjónustan
Austurstræti 17, s. 26600.
Kópavogur
3ja til 4ra herb. risíbúð í tví-
býlishúsi í vesturbæ Kópavogs.
Útb. um 7 millj.
Haraldur Magnússon,
viðskiptafræðingur,
Sigurður Benediktsson,
sölumaður.
Kvöldsími 42618.
28611
Ný söluskrá er komin út,
Kaupendur hrirtgiö og
biðjiö um heimsent ein-
tak.
Fasteignasalan
Hús og eignir
Bankastræti 6
Lúðvik Gizurarson hrl
Kvoldsími 1 767 7
43466 — 43805
OPIÐ VIRKA DAGA
TIL KL. 19 OG
LAUGARDAGA KL.
10—16.
Úrval eigna á
söluskrá.
EFasteignasalan
EIGNABORG sf.
Endur
skins
merki
Hafnarfjörður
Til sölu í Norðurbæ góð 96 fm. 3ja herb. íbúö á 1.
hæö í fjölbýlishúsi. Ibúöin er hol, rúmgóö stofa,
eldhús, innaf því þvottahús og búr. 2 svefnher-
bergi, WC og baö. Gott skápapláss. Allt vel
útlítandi. Útborgun 13 millj.
Árni Grétar Finnsson, hrl.,
Strandgötu 25, sími 51500.
Seljendur
Óskum eftir öllum
stæröum og geröum
íbúöa á söluskrá:
Einnig einbýlishúsum
og raðhúsum.
Haraldur Magnússon
viðskiptafræðingur,
Sigurður Benediktsson,
sölumaður,
Kvöldsími 42618.
SIMAR 21150-21370
SÖLUSTJ LARUS Þ VALDIMARS
L0GM. JÓH. ÞOROARSON HDL
Til sölu og sýnis m.a.:
4ra herb. íbúð með bílskúr
á 3. hæö viö Hrafnhóla, 105 fm, nýleg og góö. Sérsmíðuð
eldhúsinnrétting. Fullgerö sameign. Góöur bílskúr um 24
fm.
2ja herb. íbúð í Fossvogi
á 1. hæö um 50 fm viö Efstaland. Úrvals einstaklingsíbúö.
Sér lóö. Sólverönd.
í Kópavogi m. bílskúr
4ra herb. íbúó á 3. hæö í fjölbýlishúsi um 107 fm. 3 rúmgóö
svefnherb., miklir skápar. Bílskúr. Útsýni.
Þurfum að útvega
2ja herb. íbúð á 1. hæö eöa jaröhæð. Má barfnast
standsetningar.
íbúðir af öllum stæröum
í nágrenni miðborgarinnar
óskast. Fjársterkir kaupendur.
AtMENNA
fasteignasmTh
LAÖGAvÉGMnSulR2ÍÍ5^137Ö
EIGNASALAIM
REYKJAVÍK
Ingólfsstræti 8
Efra Breiöholt
meö bílskúr
vorum að fá í sölu nýja 4ra—5
herb. ca. 100 fm. íbúð á 2. hæð
(efstu) í Hólahverfi. Ibúðin
skiptist í saml. stofur, 3 svefn-
herb., flísalagt bað og eldhús
með góðri innréttingu. Góöir
skápar í holi og tveimur herb.
Lagt fyrir þvottavél í íbúðinni.
Suður svalir. Gott útsýni. Þetta
er ný og vönduö íbúð sem
aldrei hefur verið búið í. Bílskúr
fylgir. Til afhendingar nú þegar.
EIGNASALAIN
REYKJAVÍK
Ingólfsstræti 8
Haukur Bjarnason hdl.
Sími 19540 og 19191
Magnús Emarsson
Eggerl Elíasson
usava
FLÓKAGÖTU 1
SÍMI24647
Við miöbæinn
3ja herb. vönduð íbúð á 3. hæð
í steinhúsi.
Lindargata
3ja—4ra herb. íbúð á 1. hæð
sér inngangur. Sér hiti.
Vesturbær
2ja herb. jarðhæð. Sér
inngangur.
Kópavogur
4ra herb. efri hæð í tvíbýlishúsi.
Hafnarfjörður
4ra herb. efri hæð og ris í
tvíbýlishúsi. Sér hiti. Sér
inngangur.
Stokkseyri
Einbýlishús 4ra herb. Hagstætt
verö og hagkvæmir greiðslu-
skilmálar.
Helgi Ólafsson
löggiltur fast.
kvöldsími 21155.
ÞURFIÐ ÞER H/BYLI
☆ Fururgrund
Ný 3ja herb. íbúð á 2. hæð.
íbúöin er 1 stofa, 2 svefnherb.,
eldhús og bað. Falleg íbúö.
* Lindargata
2ja herb. íbúö á jaröhæð.
'V Gamli bærinn
Nýleg 3ja herb. íbúð á 3. hæð.
* Mosfellssveit
— raðhús
Raðhús ca. 100 fm. (timbur-
hús). Húsið er 1 stofa, 3 svefn-
herb., eldhús, bað sauna,
geymsla.
☆ Mosfellssveit
Nýtt einbýlishús ca. 130 fm.
Bílskúr 60 fm. Húsið er 2
stofur, sjónvarpsherb., 3 svefn-
herb., eldhús, bað, þvottahús,
geymsla. Fallegar innréttingar.
* RaöhÚS
í smíðum með innbyggðum
bílskúr í Breiðholti og
Garðabæ.
* Seláshverfi
Fokhelt raöhús með bílskúr.
Húsið verður fulifrágengiö aö
utan með gleri og útihurðum.
* Breiðholt
5 herb. íbúð á 7. hæð. íbúöin er
2 stofur, 3 svefnherb., bað,
eldhús, búr. Glæsilegt útsýni.
* Verzlunarpláss
Tvær ca. 50 fm. verzlanir
nálægt Hlemmtorgi.
Höfum fjársterka kaup-
endur aö öllum stærö-
um íbúða.
HÍBÝLI & SKIP
Garðastræti 38. Sími 26277
Gisli Ólafsson 201 78
Málflutningsskrifstofa
Jón Ólafsson hrl Skúli Pálsson hrl