Morgunblaðið - 02.02.1979, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 2. FEBRÚAR 1979
13
Páll Bergþórsson:
V eðurfregnatí m-
arnir — Lokaorð
um kjarna málsins
Aðalfundur F.U.F.:
Jósteinn sigraði
með yfirburðum
Mikil ritdeila hefur nú staðið
milli okkar Markúsar Á. Einars-
sonar um fyrirkomulag á lestri
veðurfregna. Því miður hefur hún
einkennst of mikið af persónulegu
karpi um annað en aðalatriði
málsins. Ég get vel tekið á mig
nokkra sök á því. Til þess að
hrinda umræðunum af stað sá ég
mig tilneyddan að gerast harð-
skeyttari en að jafnaði er æskilegt,
og svo hlóð snjóboltinn utan á sig.
En nú hafa málin skýrst, og því
mun ég takmarka mig við kjarna
málsins.
Það er sýnilegt, að hugmyndir
um að koma því til leiðar, að
veðurfregnir verði oftar endur-
Fulltrúar náms-
manna í LÍN:
Nýjum út-
hlutunarregl-
um fagnað
Nýjar úthlutunarrcglur fyrir
Lánasjóð íslcnzkra námsmanna
voru samþykktar nýlega.
í því tilefni gerðu fulltrúar
ráðsmannasamtakanna í stjórn
sjóðsins bókun sem Morgunblað-
inu hefur borist og fer hér á eftir:
Við fögnum heilshugar þeirri
meginhugsun sem liggur að baki
hinum nýju úthlutunarreglum, þ.e.
að námslán verði veitt á grundvelli
fjölskyldustærðar og framfærslu-
byrðar námsmanna. Hins vegar
mótmælum við þvi harðlega, að
kjör fjölskyldufólksins séu bætt
með því að skerða lán verulegs
hluta annarra námsmanna eins og
þessar reglur gera ráð fyrir. I
þessu sambandi er rétt að minna á
að raungildi námslána hefur
rýrnað um 20—25% á undanförn-
um tveimur árum, sé miðað við
dagvinnulaun verkamanna sem
eru smánarlega lág. Af þessum
sökum sjáum við okkur ekki fært
að greiða hinum nýju reglum
atkvæði okkar. Ljóst er þó að
þegar á heildina er litið samræm-
ast þær hagsmunum námsmanna
mun betur en þær reglur er gilt
hafa undanfarin ár. Á þessum
forsendum munum við ekki greiða
atkvæði gegn þeim, heldur sitja
hjá.
100 millj. kr.
aukabaggi á
Eyjamenn?
Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisfl. báru
fram þá fyrirspurn á síðasta fundi
bæjarstjórnar Vestmannaeyja hvort
meirihluti vinstri manna hygðist
leggja á 12% útsvar hér. Eins og
kunnugt er hefur Magnús H.
Magnússon, bæjarfulltrúi krata og
núverandi félagsmálaráðherra, beitt
sér fyrir því, að sveitarfélögin fengju
heimild til að leggja tólfta prósentið
á.
„Bæjarfulltrúar meirihlutans
fengust ekki til að gefa neinar
ákveðnar yfirlýsingar í þessum efn-
um“, sagði Sigurður Jónsson bæjar-
fulltrúi í samtali við Mbl. „Þannig
mega Vestmanneyingar allt eins eiga
von á því, að viðbótargjöld verði lögð
á, sem nema mundu allt að 100
milljónum."
AtOl.VSINCASIMINN ER:
^22480
1 Jflorflunblnbiti
skoðaðar fyrir útvarpslestur, eiga
fylgi að fagna hjá aðilum eins og
Farmanna- og fiskimannasam-
bandinu, Sjómannasambandinu og
Stéttarsambandi bænda, en fáir
eiga méira undir virkri og lifandi
veðurþjónustu en þeir, sem á bak
við þessi samtök standa. I öðru
lagi hefur útvarpsráð áréttað það
skýrt og skorinort, að það velji
eins og mögulegt er koma til móts
við Veðurstofuna í þessu efni. I
þriðja lagi hefur samgönguráð-
herra Ragnar Arnalds óskað þess,
að veðurstofustjóri semji greinar-
gerð um þetta efni. I fjórða lagi
hef ég sannfært mig um, að allir
veðurfræðingar ættu að geta talist
viðunandi til þess að þeir geti
endurskoðað veðurfregnirnar
rækilega fyrir hverja útsendingu.
Hvort þetta verður alveg á næst-
unni eða í sambandi við skipulags-
breytingar á Veðurstofunni síðar á
árinu, finnst mér ekki meginatriði.
Og þá er ekki annað eftir en
þakka Markúsi Á. Einarssyni,
fyrir orðaskiptin sem hafa varpað
svona miklu ljósi á þetta mál,
þrátt fyrir andstæðar skoðanir
okkar. Og svona eins og til að
undirstrika ólíkt álit okkar vil ég
mótmæla því sem hann heldur
fram í seinustu grein sinni, að það
leysi engan vanda, að málefni
Veðurstofunnar verði blaðamatur
með þessum hætti!
Páll Bergþórsson.
Jósteinn Kristjánsson var kjör-
inn formaður Félags ungra fram-
sóknarmanna með miklum yfir-
burðum á aðalfundi félagsins í
fyrrakvöld. Hlaut Jósteinn 114
atkvæði, en mótframbjóðandi
hans, Kjartan Jónasson blaða-
maður. hlaut 54 atkvæði. Fráfar-
andi formaður, Björn Líndal, gaí
ekki kost á sér til endurkjörs.
Að framboði Jósteins stóðu ýms-
ir aðilar sem verið hafa óánægðir
með starfsemi F.U.F. síðari ár, og
einnig naut hann stuðnings svo-
nefndrar Breiðholtsdeildar, Al:
freðs Þorsteinssonar og fleiri. I
kosningabaráttunni lagði Jósteinn
einkum áherslu á ný og breytt
vinnubrögð innan raða ungra
framsóknarmanna.
Stuðningsmenn Kjartans voru
einkum í fráfarandi stjórn F.U.F.,
Gylfi Kristinsson og fleiri, og
einnig naut framboð hans velvild-
ar stjórnar Sambands ungra fram-
sóknarmanna, en formaður þess er
Eiríkur Tómasson.
Kuldaflikur
Mjög gott úrval af kuldaflíkum hverskonar,
t.d. sjóliðajökkum.
Buxur
Buxur í öllum stærðum og gerðum, s.s.
gallabuxur, flauelsbuxur og kanvasbuxur.
Peysur
Ýmiss fatnaður
Einnig standa til boða unglingapeysu.r og
bolir í mörgum gerðum. Bómullarpeysur
(sweat shirts) í barna- og fullorðins-
stærðum. Flauelsföt og flauelsjakkar sem
eru tilvalin fermingarföt.
Láttu sjá þig á Adamsútsölunni og gerðu
góð kaup.
Stórglæsilegt úrval af peysum á jafnt háa
sem lága.
Opið til kl.7 í dag og hádegis á morgun
LAUGAVEGI47