Morgunblaðið - 02.02.1979, Blaðsíða 14
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 2. FEBRÚAR 1979
14
Júmbóþota Cargolux í Keflavík:
Boeing 747 200F er
rúmir 70 m að
lengd. vænghafið er
tæpir 60 m og er
yfir 19 m á hæð á
stéli.
hætti við pöntun sína, en nú er
biðtími eftir slíkri vél til ársins
1981. Vélin kostaði um 48
milljónir bandaríkjadala og að
viðbættum tveimur mótorum og
öðrum varahlutum er um að
ræða fjárfestingu að upphæð 53
milljónir dala.
Einar sagði að nýja jumbóþot-
an leysti af hólmi tvær DC-8-63
þotur sem Cargolux hefði haft á
leigu frá því síðsumars og með
þeim byggt upp fasta flutninga
til Austurlanda, sem nýja vélin
tæki nú við og væru ráðgerðar
u.þ.b. 3 ferðir í viku þangað.
— Við höfum tryggt okkur
rétt á annarri vél af sömu gerð
hjá Boeing-verksmiðjunum sem
yrði afhent haustið 1980 og
þurfum við að svara í vor hvort
því tilboði verður tekið. Aður en
það verður þurfum við að kanna
fjárfestingarmöguleika okkar,
Fiillkomnasta vélsem völerá
—Kaup á annarri í athugun
— Þetta er afskaplega fín
flugvél og með þeim alfull-
komnustu sem völ er á í dag,
sagði Ragnar Kvaran flug-
stjóri í Boeing 747 risþotu
Cargolux, sem lenti í fyrsta
sinn á Keflavíkurflugvelli í
gærmorgun. og það er verulega
gaman að fljúga þessari vél,
enda þótt hún sé f sjálfu sér
ekki svo ýkja frábrugðin ýms-
um öðrum tegundum véla.
Cargolux tók við þotu sinni í
Seattle í Bandaríkjunum fyrir
nokkrum dögum og sagði Ragn-
ar að henni hefði verið reynslu-
Einar ólafsson fram-
kvæmdastjóri Cargolux.
Ljósm. Kristján.
flogið þrisvar sinnum eftir af-
hendinguna til frekari þjálfunar
flugliða en flugið frá Seattle tók
6 stundir og 25 mínútur. Nokkr-
ir forráðamenn Flugleiða, sem
eiga þriðjung í Cargolux, tóku á
móti vélinni, en með henni voru
Einar Ólafsson framkvæmda-
stjóri félagsins, og nokkrir aðrir
starfsmenn Cargolux og boðs-
gestir frá Boeing verksmiðjun-
um, m.a. Linn Ólafsson, en hann
er af íslenzku bergi brotinn og
er yfirmaður framleiðslu 747
vélanna.
Þjálfaðar hafa verið 6 áhafnir
á vélina og sú 7. er í þjálfun í
Denver. Þessi vél er ein sú
fullkomnasta á markaðnum í
dag og þótt nú séu liðin ein 10 ár
frá því framleiðsla hennar hófst
er hún enn í fullu gildi og alltaf
er verið að endurbæta hana,
auka flughæfnina og gera hana
hagkvæmari í öllum rekstri.
Ragnar Kvaran var flugmað-
ur hjá Loftleiðum í 15 ár en
hefur um árabil starfað fyrir
Cargolux og því flogið mörgum
tegundum véla.
— DC-8 vélarnar eru harla
góðar, sagði Ragnar að lokum,
eii þessi tekur þeim þó fram
hvað varðar ýmsar nýjungar og
hagkvæmni á mörgum sviðum.
Sigurður Jónsson var flugvél-
stjóri í þessari fyrstu ferð og
aðstoðarflugmaður var Harley
Beard. Sigurður sagði að vél
þessi væri aðallega öðruvísi en
aðrar vélar að því leyti að hún
væri stærri að rúmmáli, hefði
fullkomnari og nýrri tæki og
hún gæti tekið stærri hluti til
flutnings en áður hefði þekkst
með flugvélum. Mesta hæð bols
hennar er um 10 m, þ.e. fremst
og hún getur borið 104 tonn af
varningi. I farþegarýminu eru
sæti fyrir 16 og verður það
notað aðallega til að flytja
viðskiptavini Cargolux og aðra
er nauðsyn krefur. Sigurður
Jónsson upplýsti að vélin þyrfti
ekki lengri brautir en margar
Ragnar Kvaran flugstjóri og Harley Beard aðstoðarflugmaður. Allir flugstjórar
Cargolux eru íslenzkir nema einn og allir flugvélstjórar, en flugmenn frá fleiri þjóðum.
Stjórnklefinn er ekki stærri en í venjulegri þotu.
»»»*****
argolux
Boeing 747 og 727, en 727 vélin er 76 tonn að þyngd fullhlaðin á móti um 360 tonnum
747.
aðrar þotur, t.d. 10 þúsund feta
braut í lendingu og hleðsla á
hvert hjól væri ekki eins mikil
og á sumum vélum, en þunga
hennar bera 16 aðalhjól auk
tvöfalds nefhjóls.
Einar Ólafsson framkvæmda-
stjóri Cargolux sagði að mikil
vinna stæði að baki því að
félagið tæki nú við þessari vél og
þar hefðu margir menn lagt
fram liðsinni sitt. — Þetta er
ein sú stærsta vél sem notuð er í
almennu flugi í dag og útbúin
öllum þeim nýjungum sem völ
er á. Við skrifuðum undir pönt-
un við Boeing-verksmiðjurnar í
september 1977 og 11. nóvember
það ár var gengið endanlega frá
kaupunum. Við fengum vél svo
snemma þar eð annar kaupandi
því við erum vissir um að vélin
reynist fullkomlega vel, en aðal-
vandamálið er að fjármagna slík
kaup.
Með vélinni í þessari fyrstu
ferð var einnig Gunnar Björg-
vinsson forstöðumaður tækni-
og verkfræðideildar Cargolux.
Sagði hann að áður en tekin var
ákvörðun um að festa kaup á vél
af þessari gerð hefði verið farið
yfir þær vélar sem í boði voru og
álitið að Boeing 747 væru beztu
kaupin. — Þetta er eina vélin
sem smíðuð er til vöruflutninga
frá upphafi þótt hún sé einnig
notuð sem farþegavél og eina
vélin sem getur t.d. tekið inn
skipagáma. Munurinn á vöru-
flutningavélinni og farþegagerð-
inni er fyrst og fremst stórar
dyr, opnanlegt nefið, búkurinn
er gluggalaus og burðarmagnið
er örlítið meira.
I dag á Cargolux auk hinnar
nýju vélar 3 DC-8-63 þotur og
eina af gerðinni Boeing 707. Við
komu vélarinnar til Luxemburg-
ar í gær tóku starfsmenn Cargo-
lux og fjölskyldur þeirra á móti
vélinni og í dag verður athöfn
þar sem henni verður gefið nafn
og eru þá boðnir ýmsir framá-
menn í Luxemburg. Starfsmenn
Cargolux eru um 420 þar af um
100 íslenzkir.