Morgunblaðið - 02.02.1979, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 2. FEBRÚAR 1979
19
Guðný Jónsdótt-
ir—Kveðjuorð
Fædd 22.júní, 1927.
Dáin 25. janúar, 1979.
Vinir berast burt með tímans
straumi, segir skáldið, og eru það
orð að sönnu. Við hljótum öll að
beygja okkur fyrir lögmálum lífs
og dauða, taka því sem að höndum
ber og æðrast eigi. Eingu að síður
er það með sárri sorg, sem við
kveðjum vini okkar og samferða-
menn, er hverfa brott yfir móðuna
miklu, einkum þegar það gerist
meðan þeir eru enn í blóma lífsins
og í ævistarfinu miðju. En við
stóran er að deila og vegir Guðs
órannsakanlegir.
Vináttubönd, sem knýtast á
æskuárum, eru sterk og endast
lengi, stundum ævilangt, jafnvel
þótt leiðir skilji og fjörður sé milli
frænda og vík milli vina. Þannig
var því farið um staðfasta tryggð
æskuvinkonu minnar, Guðnýjar
Jónsdóttur, sem andaðist 25. janú-
ar og verður kvödd hinstu kveðju
frá Bústaðakirkju hinn 1. febrúar.
Við lékum okkur saman á æsku-
morgni ljósum, gengum saman í
skóla, unnum saman að ýmsum
félagsmálum, áttum sameiginlega
vini og deildum gleði og sorg á
þeim árum, sem alltaf verður
bjartast yfir í endurminningunni.
Síðar skildu leiðir og við vorum
búsettar hvor í sínu héraði og
raunar hvor í sínu landi um árabil.
En þrátt fyrir það rofnuðu þó
aldrei þau tryggða- og vináttu-
bönd, sem tengdu okkur saman í
æsku, og ef við hittumst, sem bar
þó of sjaldan við, var því líkast
sem gömlu, góðu dagarnir kæmu
til okkar aftur með sólskini og
bláum himni og að leiðirnar hefðu
raunar aldrei skilist.
Guðný Jónsdóttir fæddist hinn
22. júní 1927 og ólst upp ásamt
Guðbjörgu, eldri systur sinni, á
ágætu heimili ástríkra foreldra,
þeirra Þóreyjar Jónsdóttur og
Jóns Ólafssonar, sem lengi áttu
heima í Skerjafirði, en fluttust svo
sem margir í þeirri byggð inn í
Laugarneshverfi á stríðsárunum.
Guðný var þegar á æskuárum
einstaklega tápmikil og góð stúlka,
sem vildi verða að liði og greiða úr
hverjum vanda. Hún var félags-
lýnd og glaðvær, dugleg, kjark-
mikil og úrræðagóð, áhugasöm um
félagsmál og hrókur alls fagnaðar
á góðri stund. Þessum hliðum
hennar kynntist ég best þann
vetur er við dvöldúmst saman við
nám úti í Noregi og deildum
saman húsi og kjörum.
Hinn 6. október 1956 giftist
Guðný eftirlifandi manni sínum,
Gunnari Einarssyni, arkitekt.
Eignuðust þau fjögur mannvænleg
börn, tvær dætur og tvo syni, sem
nú eru öll komin nokkuð á legg og
Afmœlis- og
minningargreinar
ATHYGLI skal vakin á því, að afmælis- og
minningargreinar verða að berast blaðinu með
góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast
á í miðvikudagsblaði, að berast í síðasta lagi fyrir
hádegi á mánudag og hliðstætt með greinar aðra
daga. Greinar mega ekki vera í sendibréfsformi eða
bundnu máli. Þær þurfa að vera vélritaðar og með
góðu línubili.
sum uþpkomin. Fjölskyldan var
búsett um allmörg ár í Danmörku,
en settist síðan að hér heima. Voru
þau hjónin einstaklega samhent og
áhugasöm við að koma sér upp
fögru og listrænu heimili í Reykja-
vík og lögðu sig fram um að hlúa
sem best að börnum sínum. Raun-
ar kappkostuðu þessi góðu hjón að
láta öllum líða sem best í návist
sinni og það fengum við, sem
vorum gestir þeirra, oft að reyna.
Ég vil að síðustu þakka
Guðnýju, æskuvinkonu minni,
órofa tryggð og vináttu, sem aldrei
brást. Um minningu hennar verð-
ur alltaf bjart í huga mér og svo
mun um alla, sem kynntust þessari
góðu og höfðinglunduðu konu.
Okkur vinum hennar finnst að
vonum að of skjótt hafi sól brugðið
sumri og að of snemma hafi hún
verið kvödd til meira að starfa
Guðs um geim. En Drottinn gaf,
Drottinn tók, lofað veri nafn
Drottins.
Með auðmjúku hjarta þökkum
við góða samfylgd og trausta
vináttu. Við höfum öll mikils
misst, en þeir þó mest sem næstir
henni stóðu. Eiginmanni hennar,
börnum, aldinni móður, systur og
öðrum ástvinum sendi ég einlægar
samúðarkveðjur og bið góðan Guð
að styrkja þau á þessum tíma
sorgar og saknaðar og leggja líkn
með þraut.
Blessuð sé minning hennar.
Guðrún Hjörleifsdóttir.
GuÖni
Guðmundsson
Ólafur
Ásgeirsson
Sigurjón
Fjeldsted
Skólamál rædd á ráð-
stefnu á laugardaginn
Á LAUGARDAG efnir málefnanefnd Sjálfstæðisflokksins um
skóla- og fræðslumál og Samband ungra sjálfstæðismanna til
ráðstefnu um skólamál. Er ætlunin að ræða þar raunveruleg
vandamál við atvinnulífið. Hefst ráðstefnan kl. 9.30 um
morguninn og stendur með hádegisverðarhléi allan daginn til
kl. 5 síðdegis.
Um morguninn verða flutt framsöguerindi . Frummælendur
eru Guðni Guðmundsson rektor MR, Ólafur Ásgeirsson,
skólameistari á Akranesi, Sigurjón Fjeldsted skólastjóri í
Reykjavík, Sigurður Guðmundsson, skólastjóri á Leirá, Sverrir
Pálsson, skólastjóri á Akureyri, og Þórir Einarsson prófessor.
Að loknu hádegisverðarhléi munu umræðuhópar starfa og
síðan verða panelumræður. Um kl. 5 slítur Bessí Jóhannsdóttir
ráðstefnunni. Er ráðstefnan öllum opin, en ætlast til þess að
menn tilkynni þátttöku.
oood
Nýtt útlit
en sversig í ættina!
Stflhrein fegurð
Viðnýhörmun á Audi 80 vareerður skýr
greinarmunur á skammtíma tískusjónar■
miðum og stílhreinni fegurð sem varir.
Hér réði þýsk smehkvísi og fágun
ferðinrá, ekki síst í breytingu á innra
búnaði. Bíllinn hefur verið stækkaður
jafnt að breidd sem lengd með stœrri
rúður fyrir aukið útsýni.
SÝNÍNGARBÍLL Á STAÐNUM.
Framhjóladrif
Audi er framhjóladrifinn sem fyrr ervda
tryggir það frábœra aksturseiginleika.
Fjöðrun og hemlaherfið eru og
þaulreynd eins og annað sem bílinn
prýðir. Komdu og skoðaðu hann,
hann á það skilið.
HEKL/V HF
Laugavegi 170-172 Sfmi 21240*