Morgunblaðið - 02.02.1979, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 2. FEBRÚAR 1979
29
Grímur Thomsen, sem svo kveður í
einu af sínum stórbrotnu kvæðum:
Hví lét skaparinn skína oss
skrautið allt (estingar,
Sjöstirnið bæði og Suðurkross,
svnji hann um vist oss þar?
A Aldebaran og óríon
yndi er að geta mætzt;
Guð hefði aldrei glætt þá von,
geti hún eigi rætzt.
Þarna lýsir skáldið því fagur-
lega, að hann gerir ráð fyrir
framhaldslífi á þeim stjörnum,
sem hann telur hér upp og að þar
megi örugglega vænta endurfunda
við framliðna vini, þegar héðan er
flust eftir dauða líkamans.
Með því að skoða stjörnur
himins á heiðskírum kvöldum,
greiðum við, vitandi eða óafvit-
andi, fyrir nánara sambandi við
framliðna vini og við háþroskaver-
ur alheimsins, þær er á stjörnun-
um búa, því vita skyldum við að
stjörnur (reikistjörnur hinna
ýmsu sólhverfa), eru heimkynni
hins æðra lífs, og að frá þeim
kærleiksfullu, máttugu verum
berst okkur sá kraftur, sem ekki
verður án verið.
Ingvar Agnarsson
• Tómt plat?
Þegar manns nánustu eru á
sjónum fylgist maður með veður-
spánni. Eins lengi og ég man hefur
hún fylgt fréttatímunum og færst
með þeim sbr. hringlið á kvöld-
fréttunum. Og nú er skrifað í
blöðin að þetta sé tómt plat.
Hvað hefur þjóðin verið plötuð
lengi á þessu? Hver fann upp á
þessu fyrir langa löngu? Og ef nú á
að breyta þessu eins og búast má
við hvernig væri þá að spyrja
„kúnnana", þá sem nota veður-
spána, sjómenn, trillukarla jafnt
sem togarajaxla, bændur, bifreiða-
stjóra o.s.frv., að þetta verði ekki
bara mál hvítflybbamanna.
En maður er nú samt dálítið
undrandi á þessum skrifum og
leyfist manni að efast um heilindi
hjá þeim manni sem notar hryggi-
legt sjóslys til að ráðast harkalega
á félaga sinn. Og hvers vegna
hefur hann ekki talað fyrr? Hefur
hann ekki starfað í marga áratugi
á veðurstofunni, miklu lengur en
sá sem hann ræðst á?
Undrandi.
Hallgrímskirkja
óskar eftir söngfólki
Organleikari kirkjunnar, Antonio D. Corveiras, og
Halldór Vilhelmsson, einsöngvari, veita tilsögn í
nótnalestri og raddbeitingu. — Þeir sem heföu
áhuga hringi í Halldór Vilhelmsson í síma 43722
milli kl. 12—1.
Þessir hringdu . .
Ósanngjörn
gagnrýni
Sjónvarpsahorfandi
hringdi:
„Ég var mjög ánægður með
þáttinn „Nám, minni og gleymska"
sem var á dagskrá sjónvarpsins
fyrir stuttu. Eg vildi því biðja
sjónvarpið endilega að endursýna
þáttinn og helst sýna fleiri álíka
fræðsluþætti.
Mér fannst gagnrýnin á þáttinn
sem kom fram í Velvakanda nú í
vikunni vera mjög ósanngjörn.
Hann braut alls ekki þær reglur
sem hann boðaði. í þættinum var
bæði höfðað til sjónminnis og
heyrnarminnis auk þess sem
endurtekningar voru notaðar. Mér
fannst því þátturinn koma fylli-
lega til skila og þjóna vel því
hlutverki sem honum var ætlað og
vil ég ítreka það að biðja sjónvarp-
ið að endursýna „Nám, minni og
gleymska“.“
SKAK
Umsjón:
Margeir Pétursson
Á alþjóðlegu skákmóti í Vilnus í
Sovétríkjunum í sumar kom þessi
staða upp í skák stórmeistaranna
Beljavskys, Sovétríkjunum, sem
hafði hvítt og átti leik, og
Damjanovics, Júgóslavíu.
25. IIh4! (En alls ekki 25. Hxb2 -
Dxb2 26. Hh4 - Dg7) Hxbl+, 26.
Kh2 - Ilhl+, 27. Kxhl - Dbl+,
28. Kh2 - g5, 29. Dxg5+ - Dg6,
30. Dxe7. Röð efstu manna á
mótinu varð þessi: 1. Tukmakov
10'/2 v. af 15 mögulegum. 2.
Petrosjan 10 v. 3. Guljko 9‘/2 v.
4—5. Beljavsky (Allir frá Sovét-
ríkjunum) og Lechtynski, (Tékkó-
slóvakíu) 9 v.
Tilboð
Loöfóöruö
kuldastígvél
Seljum næstu
daga kuldastígvél
á sérlega
hagstæðu verði:
No. 27-34 kr. 6500.
No.35-41 kr. 7900.
GEí§iB
H
HÖGNI HREKKVISI
LJOSMYNDAVÖRUVERSLUN
LAUGAVEGI 178 105 REYKJAVIK SIMI85811
83? SlGeA V/öGA S. 'ÍíLVeRAW
‘dTö^) • \ $0N\(A
‘bTöVÍ WV/ u'r wer
Gemt
vlV v/uK \ cvö/O
%I6GA, fif) LiMWA ^ y
Á
b\ konva-
/cdÍÓ9? YOfaMoWfó N VONVA
K <bTctoí V0tf9/ <dÍ$ Vfl/£R