Morgunblaðið - 07.02.1979, Síða 1

Morgunblaðið - 07.02.1979, Síða 1
32 SÍÐUR 31. tbl. 66. árg. MIÐVIKUDAGUR 7. FEBRÚAR 1979 Prentsmiöja Morgunblaösins. jr Bhutto víðast beðið vægðar Kawalpindi, Wa.shington, London, 6. febrúar — AP-Reuter VIÐBRÖGÐ vegna staðfestingar hæstaréttar Pakistans á dauða dómi yfir Zulfikar Ali Bhutto fyrrverandi forsætisráðherra Pakistans í morgun hafa erlendis verið öll á einn veg, — farið hefur verið fram á að lífi leiðtogans fyrrverandi verði þyrmt. Mikil óeining rikti með hinum sjö dómurum sem skipa hæstarétt Pakistans um hvort staðfesta ætti dóminn eður ei. Þegar atkvæði voru greidd staðfestu fjórir þeirra dóminn en þrír voru á móti. Meðal þeirra fjölmörgu þjóðarleiðtoga og fyrirmanna í heiminum sem sent hafa Zia-UL-Haq forseta Pakistans beiðn um að þyrma lífi Bhuttos eru Kurt Waldheim aðalritari Sameinuðu þjóðanna, James Callaghan forsætisráðherra Bretlands, Ola Ullsten forsætis- ráðherra Svíþjóðar, Carter Bandaríkjaforseti og Bulent Ecevit forsætisráðherra Tyrk- lands sem jafnframt hefur boðið stjórn Pakistans að taka við Bhutto og tryggja að hann komi aldrei framar nálægt stjórnmál- um. Zia-Ul-Haq forseti Pakistans sagði áður en hæstiréttur birti niðurstöður sínar að hann myndi ekki breyta þeirri ákvörðun hver svo sem hún yrði en hann er nú eini maðurinn sem náðað getur Bhutto. — Lögfræðingur Bhuttos sagði eftir dómsuppkvaðninguna að Bhutto myndi ekki fara fram á náðun forsetans. „Heppnaðist fullkomlega” Tokyo, 6. febrúar. AP. Reuter. TENG Hsiao-Ping varaforsætioráð- herra Kína stakk sér beint í bólið er hann kom í opinbera heimsókn sína til Japans í morgun, illa haldinn af kvefi. Kvöldverði og viðra'ðum hans með utanríkisráð- herra Japans, Suano Sonoda, var því írestað um óákveðinn tíma að því er fréttir frá Tokyo herma í dag. Eina sem Teng lét hafa eftir sér varðandi heimsókn hans til Banda- ríkjanna var að hún hefði heppnast fullkomlega í alla staði. Búist er við því að Teng muni á næstu dögum hitta Sonoda og forsætisráðherra Japans, Masayoshi Ohira, og muni hann á þeim fundi gera þeim ná- kvæma grein fyrir viðræðum þeim er hann átti við bandaríska ráða- menn á för sinni um Bandaríkin. Þá er reiknað með því að viðræð- ur leiðtoganna muni að mestu leyti snúast um þróun mála í Indókína að undanförnu. Herinn í Iran sýnir klærnar halda honum til heiðurs. Þá til- kynnti forsætisráðherrann að þegar íslamskt lýðveldi væri kom- ið formlega á laggirnar kæmi ekki til greina að íranir tækju þátt í neinum hernaðarbandalögum og engin erlend yfirráð yrðu liðin í landinu. Aðspurður sagði Bhaktiar núverandi forsætisráðherra að hann myndi ekkert aðhafast gegn Bazargan nema hann gripi til einhverra aðgerða gegn löglegri stjórn landsins. Teheran, 6. febrúar. AP. Reuter. FJÖLDAGÖNGUR til stuðnings Ayatollah Khomeini trúar- leiðtoga Múhameðstrúarmanna í Iran voru íarnar í dag en voru ekki eins fjölmennar eins og búist hafði verið við að því er fréttir frá Teheran í dag herma. Daudarefsing afnumin? Meðan á fjöldagöngunum stóð flugu herþotur og þyrlur íranska hersins lágt yfir borginni, auð- sjáanlega til að sýna hvar valdið í landinu væri. — Talsmaður Khomeinis, Ibrahim Yazdi, sagði að Khomeini hefði alls engar áliyggjur vegna þessara ögrana hersins því að íbúar landsins fylgdu honum að málum og það væri það mikilvægasta eins og málum væri háttað. Þátttakendur í göngunum voru hins vegar hinir óhressustu vegna aðgerða hersins og steyttu hnefa í átt til vélanna. Til nokkurra átaka kom í nokkr- um borgum landsins milli stuðningsmanna Khomeinis ann- ars vegar og stuðningsmanna Bhaktiars hins vegar, en ekki bárust neinar fréttir um mannfall í þeim átökum. Á skiltum fjöldagöngumanna var mest um áletranir til heiðurs hinum nýja forsætisráðherra sem trúarleiðtoginn skipaði í gær þar sem hann var kailaður þjóðhetja. Á fundi sem Bazargan hélt með fréttamönnum í dag sagðist hann mundu leggja fram ráðherralista sinn á morgun, degi áður en boðað hefur verið til mikillar hátíðar- Iranskir trúarleiðtogar veifa krepptum hnefa í átt til herflugvela, sem flugu margsmms yfir miðborg Teheran í dag, þegar fjöldagöngur fóru þar um til stuðnings Ayatollah Khomeini. Símamynd AP. Luxemborg. 6. febrúar. Reuter. ÞINGIÐ í Luxemborg mun innan tíðar greiða atkvæði um hvort afnema beri dauðarefsingu í land- inu að því er talsmaður stjórnar- innar sagði í dag. Fyrir 18 mánuð- um var tillga um slíkt felld í þinginu af naumum meirihluta, en nú er búist við að hún nái fram að ganga. London. 6. febrúar. AP. Skoðanakönnun í Bretlandi: íhaldsflokkurinn með allt að 19% meira fylgi í dag JAMES Callaghan forsætisráðherra Bretlands og Verkamannaflokksstjórn hans urðu fyrir enn einu áfallinu í morgun þégar bresku morgunblöðin birtu skoðanakönnun á fylgi flokkanna þar sem í ljós kom að fylgi hefur hrunið af flokknum á síðustu vikum. Samkvæmt könnuninni er fyígi Verkamannaflokksins komið niður í 36% á móti 55% fylgi (haldsflokksins. Þessi 19% fylgismunur á flokkunum er sá langmesti sem verið hefur frá því að Callaghan tók við forystunni í Verka- mannaflokknum á árinu 1976. Aðalorsökin fyrir þessu mikla fylgishruni Verkamannaflokks- ins er eflaust hið langa og stranga verkfall sem staðið hef- ur yfir í Bretlandi sl. fimm vikur og ekki virðist sjást fyrir endann á segja öll morgunblöðin í fréttum sínum. Til samanburðar má geta þess að þegar slík skoðanakönnun var síðast gerð í nóvember sl. hafði Ihaldsflokkurinn aðeins 1% fylgi umfram Verkamanna- flokkinn eða 47% á móti 46%. Þá var einnig birt skoðana- könnun á persónulegu fylgi leið- toganna tveggja, þeirra Callag- hans og Margaret Thatcher leið- toga Ihaldsflokksins. Þar var útkoman sú að fylgi Callaghans hafði hrapað úr 38% í 31% en fylgi Thatchers hafði aukist úr 38% í 45%. Að mati fréttaskýrenda er útlitið fyrir Callaghan þó ekki eins slæmt eins og það virðist við fyrstu sýn. Þeir segja að ef Callaghan takist að leysa verk- föllin á viðunandi hátt fljótlega megi allt eins búast við því að fylgi Verkamannaflokksins stóraukist á kostnað Ihalds- manna. Þá segir í fréttum frá Bret- landi í dag að mjög lítil hreyfing sé á verkfallsmálum. Ekkert hafi gengið né rekið í samning- um. Hersveitir frá Belgíu til Zaire Brti88el, 6. febrúar. AP. Reuter. BELGÍUMENN hafa ákveðið að senda fallhlífahersveitir til Zaire í Afríku að því er haft var eftir Henri Sixnonet utanríkisráðherra Belgíu í dag. Utanríkisráðherrann sagði að för sveitanna væri í fullu sam- ræmi við samning ríkjanna um gagnkvæma aðstoð í sambandi við heræfingar og sagði jafnframt að um 250 manns myndu fara til staðar í námunda við Kinshasa höfuðborg landsins og borgarinnar Bukavu í austanverðu Zaire. Ekki eru allir sáttir við skýring- ar ráðherrans og telja fréttaskýr- endur að stjórn Zaire hafi beðið formlega um aðstoð Belga til að brjóta á bak aftur uppreisnar- menn sem hafa haft sig nokkuð í frammi í landinu að undanförnu. Þá var haft eftir áreiðanlegum heimildum að með bví að senda hersveitirnar vildu Belgar tryggja öryggi þeirra fjölmörgu hvítu manna sem í landinu búa en flestir þeirra eru Belgar. Togara saknað - og með honum 39 manna Vardoe, 6. febrúar. Reuter og fréttaritari Mbl. í Ósló. MIKIL leit að sovézkum togara á Barentshafi frá því á sunnudag hefur til þessa engan árangur borið en með honum var 39 manna áhöfn. Síðast var vitað um ferðir togar- ans seinnihluta sunnudags þegar hann hafði samband við fjarskipta- stöðina í Murmansk í Sovétríkjun- um. Þá var togarinn um 55 sjómílur út af Murmansk. — I morgun fundu flugvéiar björgunarbát um 7 sjómíl- ur útaf Murmansk og í honum tvo skipverja sem frosið höfðu í hel.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.