Morgunblaðið - 07.02.1979, Side 3

Morgunblaðið - 07.02.1979, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 7. FEBRÚAR 1979 3 „Kortsnoj verð- ur að gæta sín eins og aðrir ” Spjallað við Friðrik Ólafsson forseta FIDE um fund framkvæmdastjómarinnar í Austurríki FUNDI 10 manna Framkvæmdastjórnar Alþjóðaskáksambandsins, FIDE, lauk í Graz í Austurríki í gærkvöldi. Friðrik Ólafsson forseti FIDE stjórnaði fundinum og sagði hann í samtali við Morgunblaðið í gær að mörg mál hefðu verið rædd á fundinum, sem á margan hátt hefði verið erfiður. Tvö helztu mál þingsins voru tengd Kortsnoj stórmeistara og einvígi hans gegn Karpov um heimsmeistara- titilinn. í báðum þessum málum var á fundinum tekin afstaða Kortsnoj í óhag. Að sögn Friðriks var á fund- inum tekin fyrir skýrsla frá dómara heimsmeistaraeinvígis- ins í Baguio, en hún lá ekki fyrir er Karpov var úrskurðaður heimsmeistari á FIDE-þinginu í Buenos Aires. Var fjallað um þessa skýrslu á fundinum í Graz og athugað hvort stjórnendur einvígisins hefðu brotið reglur á Kortsnoj. — Niðurstaða þessara athugana varð sú að reglum og lögum FIDE hefði verið fylgt, sagði Friðrik. — Hins vegar höfðu aðstoðar- menn keppenda gert með sér samkomulag um að dularsál- fræðingurinn Sukhar sæti aftarlega í keppnissalnum, en í síðustu skákinni var hann kominn í fremstu sætaröð og Kortsnoj heldur því fram að hann hafi haft truflandi áhrif á sig. Það er ekki FIDE að dæma um það hvort samkomulag á milli keppenda hafi verið brotið, en hins vegar var sú niðurstaða FIDE-þingsins frá í haust um að reglur sambandsins hefðu ekki verið brotnar staðfestar á þessum fundi. — Þá óskaði Campomanes forseti skáksambands Filipps- eyja og einn af varaforsetum FIDE eftir því að framkoma og hegðun Kortsnojs meðan á ein- víginu stóð yrði fordæmd. Persónulega var ég á báðum áttum í þessu máli og komst að því að ég þekkti greinilega ekki alla söguna. Ég sé núna að þetta einvígishald hefur haft í för með sér gífurlegt álag á Campoman- es, sem stóð í miðjum eldinum. Á honum dundu sífelldar hótan- ir frá Kortsnoj, sem hótaði oftar en einu sinni að fara í burtu og notaði gífuryrði hvað eftir annað í garð þeirra, sem skipu- lögðu einvígið. Hann notaði þennan viðburð til að koma lagi og þá gjarnan pólitísku á and- stæðing sinn. — Framkoma Kortsnojs á mótinu var fordæmd, en sjálfur var ég ekki viðstaddur þann fund, þar sem ég var þá í móttöku hjá ríkisstjóranum í Grax sem forseti FIDE. Ég hefði persónulega viljað milda það orðalag, sem notað var í yfirlýs- ingunni, en leggja ríkari áherzlu á að Kortsnoj hegðaði sér öðru vísi í framtíðinni. Hins vegar hlaut að koma að því að FIDE tæki afstöðu til framkomu Kortsnojs. Hann gengur alltof langt í stóryrðum sínum um andstæðinga sína og sagði t.d. nýlega á sýningarmóti í Vínar- borg, þar sem hann tefldi við Miles, að Karpov væri djöfull. Kortsnoj er snillingur í skák- inni, en hann verður að gæta sín eins og aðrir og framkcgna hans hefur iðulega verið skákíþrótt- inni til lítils sóma og alls annars en til að auka veg hennar, sagði Friðrik Ólafsson. Aðspurður um hvað nú væri framundan sagði Friðik að hann yrði í nokkra daga í Hollandi til að ganga frá ýmsum endum í sambandi við þennan fund framkvæmdanefndarinnar. Þá væri hann t.d. formaður nefndar, sem falið hefði verið að kanna hvort breyta þyrfti lögum og reglum fyrir næsta heims- meistaraeinvígi. Hann sagðist ekki hafa tekið neina ákvörðun um taflmennsku á næstunni en sagði að ef af því yrði þá yrði um einkamót að ræða, en ekki mót á vegum FIDE eins og t.d. svæða- mótin, sem framundan væru. Tillaga sjálfstæöismanna: Könnun á atvinnu- og efnahagsáhrifum fiskveiðitakmarkana FIMM þingmenn Sjálfstæðis- flokksins hafa lagt fram tillögu til þingsályktunar um könnun á atvinnu- og efnahagslegum áhrif- um takmarkana á fiskveiðum íslendinga. Gcrir tillagan ráð fyrir því, að könnunin nái til framangreindra áhrifa í þjóðar- búskapnum miðað við þá tillögu fiskifræðinga, að þorskveiðar ís- lendinga í ár verði takmarkaðar við 250.000 smálestir. Ennfremur verði könnuð áhrif þess, ef farið verður að tillögum þeirra um viðgang helztu fiskstofna á næstu árum. í greinargerð með tillögunni segir m.a.: „Undanfarin ár hafa farið fram miklar umræður um veiðiþol fisk- stofna innan hinnar nýju 200 mílna fiskveiðilögsögu íslands. Árvisst hafa fiskifræðingar látið frá sér fara aðvaranir um, að ýmsir mikilvægir fiskstofnar væru ofveiddir og að grípa yrði til veiðitakmarkana. Flestir, sem til þekkja, eru sammála um nauðsyn þess, að einskis megi látið ófreist- að í þeim efnum að afstýra því, að fiskstofnarnir séu ofnýttir. Hins vegar greinir menn á um, hvar draga skuli mörkin. Fara þar ekki alltaf saman skoðanir þeirra, er starfa í sjávarútvegi, og sérfræð- inga. Nú liggur fyrir tillaga frá fiski- fræðingum um róttækan niður- skurð á þorskveiðum á yfirstand- andi ári. Um er að ræða, að leyfilegur hámarksafli þorsks verði 250.000 smálestir, en á s.l. ári var þorskaflinn 330.000 smálestir. Þá lögðu fiskifræðingar til að þorskafli yrði 270.000 smálestir. Verði farið að þessari og öðrum tillögum, sem fiskifræðingar gera og hníga í sömu átt, mun það hafa gífurleg áhrif á efnahagslega af- komu þjóðarinnar. Án ítarlegrar athugunar er erfitt að gera sér grein fyrir áhrifum þessara aðgerða á útgerð, fiskiðnað og afkomu þess fólks, er í þessum atvinnugreinum starfar, auk almennra áhrifa á atvinnu- og efnahagslíf landsmanna í heild. Ljóst er þó, að fjórðungs niður- skurður á veiðum mikilvægasta fiskstofnsins, þorsksins, hlýtur að hafa í för með sér stórfelld sam- dráttaráhrif í atvinnu- og efna- hagslífinu. Engir útreikningar né áætlanir liggja fyrir um stærð þess vanda, sem þjóðin stendur frammi fyrir, ef farið verður að tillögum fiskifræðinga. Er því lagt til, að slíkir útreikningar eða áætlanir verði gerðar hið fyrsta. Án framangreinds mats er þess vart að vænta, að gerð verði viðhlítandi grein fyrir því, hvernig vinna beri að lausn þess gífurlega vanda, sem verður í atvinnu- og efnahagsmálum í nánustu framtíð verði farið að tillögum fiskifræð- inga. Með tillöguflutningi þessum eru flutningsmenn ekki að leggja dóm á tillögur fiskifræðinga í fiskveiði- málum Islendinga.“ Flutningsmenn tillögunnar eru: Guðmundur H. Garðarsson, Guðmundur Karlsson, Sverrir Hermannsson, Lárus Jónsson og Friðjón Þórðarson. Milli lands og Eyja: Fleiri farþegar með Herjólfi en flugleiðis 27 millj. kr. sparnadur med svart- olíunotkun í Herjólfi s.l. ár HERJÓLFUR flutti um 40 þús. farþega milli lands og Eyja á s.l. ári eða um 4 þús. fleiri farþega en Flugfélag íslands. Þá flutti skip- ið 9400 bíla og um 8000 tonn af vörum. Fargjald aðra leið með Herjólfi milli Eyja og Þorláks- hafnar er 3000 kr. og koja kostar 1000 kr. Fyrir minni bíla kostar 2000 kr. og stærri bíla 2500 kr. Fyrir 11 mánuðum var tekið í notkun svartolíukerfi í vél skipsins og hefur það gefið mjög góða raun. Vélaskoðanir á tímabilinu hafa ekki leitt í ljós neitt óeðlilegt, en hins vegar hefur orðið um 27 millj. kr. sparnaður á olíunotkun í skip- inu síðan svartolíukerfið var tekið í notkun. Nú kostar að meðaltali 151.600 kr. að keyra vélarnar með gasolíu í ferð, en aðeins 77.343 kr. með svartolíu samkvæmt upplýs- ingum Ólafs Runólfssonar fram- kvæmdastjóra Herjólfs. Herjólfur var fyrir skömmu í vélarskoðun í Reykjavík og eftir stillingu aðal- vélar jókst ganghraði skipsins úr liðlega 12 mílum í 13,5 sjómílur, en skipið er nú 3 klukkustundir milli lands og Eyja. Samkvæmt upplýsingum Ólafs er ætlunin að tengja aðalrafal við rafkerfi skipsins svo að ekki þurfi að keyra ljósavélar skipsins í ferðum, en slík tenging á að spara um 2'A—3 millj. kr. á ári fyrir utan sparnað á sliti véla. dBevie'N dBeviev/ .dReviev' dReviev/ t_ SendisUceland Rev^ew^JPósthólfJtB.^Rejdkjavík^ (sími 27622) s Sendu vinum og viðskiptamönnum erlendis gjafaáskrift lceland Review og fáðu síðasta árgang ókeypis Fjölbreytt, vandaö og litskrúöugt ársfjórðungsrit á ensku, flytur les- endum sínum brot af islandi hverju sinni. Hvert eintak lceland Review segir meira frá landiokkar en margra ára bréfaskriftir, það treystjr vináttu- böndin um leið. Árgangur1979 kostar aðeins kr. 3.800. Burðar- gjöld til útlanda aukalega kr. 1.100. Útgáfan tilkynnir móttak- anda nafn gef- anda. SERTILBOD: Með nýjum gjafaáskriftum býðst árgangur1978 ókeypis gegn greiðslu burðar- gjalds. Odýr vinar- kveðja, sem berst frá pér aftur og aftur með hverju nýju hefti. Ég óska aö kaupa... gjafaáskrift(ir) aö lceland Review 1979. ' □ Hjálagöar eru kr. 4.900 fyrir hverja áskrift. □ Árgangur 1978 | veröi líka sendur, hjál. kr. 900 per áskrift fyrir buröargjald. (Samt. j kr. 5.800). Nafn sendanda: ................................................... Heimilisfang: ..............................................;..... Nafn móttakanda: .................................................. • I Heimilisfang: ..................................................... i .................................................................. I Nöfn fleiri viötakenda gjafaáskrifta fylgja á öðru blaði. I

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.