Morgunblaðið - 07.02.1979, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 7. FEBRÚAR 1979
13
viðbótarsamningi milli Lands-
virkjunar og kaupanda, og með
samþvkki ríkisstjórnarinnar og
Eikem Spigerverket sem hluthafa
í félagi kaupanda."
Með þessu ákvæði er tilkynn-
ingarskýldu Járnblendifélagsins
breytt í áskilnað um sérstakt
samþykki Elkem Spigerverket á
öllum breytingum, sem gera þarf á
rafmagnssamningnum, þ.e. Elkem
Spigerverket gefið neitunarvarld.
í ræðu sinni á Alþingi hefur
Gunnar Thoroddsen það eftir
Hirti Torfasyni hrl., að Hjörtur og
hinn norski lögmaður Elkem
Spigerverket, sem vann með Hirti
að samningu textans, hafi báðir
verið sammála um að gera þessa
breytingu, og kann það að vera
rétt, en þegar það er gefið í skyn,
að þessi breyting feli ekki í sér
„efnislega breytingu", þá leyfi ég
mér að mótmæla því.
Þegar Hjörleifur Guttormsson
iðnaðarráðherra bað mig að kanna
samningsaðstæður fyrir íslenska
ríkið að fá fram nokkra breytingu
á uppsetningu ofns 2, hlaut ég að
gera honum grein fyrir þeim
breytingum, sem gerðar hafa verið
á rafmagnssamningnum, og taldi
ég, að íslenzka ríkið ætti þess ekki
kost þrátt fyrir meirihlutavald sitt
í Járnblendifélaginu að breyta
afhendingartíma rafmagns fyrir
ofn 2 án samþykkis Elkem Spiger-
verket.
Kom á daginn, að þetta var rétt
niðurstaða miðað við skoðanir
stjórnar verksmiðjunnar og Elkem
Spigerverket á samningsaðstöð-
unni, þótt neitun hins norska
félags hafi komið nokkuð á óvart,
en í ályktun stjórnar Járnblendi-
félagsins hinn 18. jan. 1979 segir
svo um afstöðu Elkem Spigerverk-
et til málsins:
„Þess ber og að gæta, að með 1.
september 1980 hefur félagið þeg-
ar valið síðasta daginn, sem gang-
setningardag skv. gerðum samn-
ingum um verksmiðjuna, og er
stjórnin ekki fær um að breyta
honum nema samþykki beggja
hluthafa félagsins komi til. Telur
ES ekki fært að veita slíkt sam-
þykki fyrir sitt leyti með tilliti til
þeirra aðstæðna, sem að ofan
greinir."
í heimildarlögunum um járn-
blendiverksmiðjuna segir í 6. gr.,
að „ríkisstjórninni sé heimilt að
gera samninga innan ramma
þessara laga... “. Jafn augljóst er,
að sama gildir um stjórn Járn-
blendifélagsins. Hún verður eins
og ríkisstjórnin að halda sig innan
ramma laganna. Nú segja lögin (2.
gr.) að ekki minna en 51% af
hlutafé félagsins skuli jafnan vera
í eigu ríkisins og á þessu
lagaákvæði byggist meirihluta-
valdið.
Þegar nú hefur verið samið við
erlendan aðila um að fella niður
lögboðið meirihlutavald í félaginu
á tilteknu þýðingarmiklu sviði, þá
er mér spurn: Gera menn það
innan ramma laganna? Útilokað
er, að þessi samningur hafi verið
gerður án samþykkis ríkis-
stjórnarinnar.
í ræðu sinni á Alþingi segir
Gunnar Thoroddsen, að framan-
greind breyting á
rafmagnssamningnum, „sem var
rökrétt og eðlileg, var ekki gerð
að mínu undirlagi" og fer þá
heldur að kárna gamanið. Að
undirlagi hvers er þessi grund-
vallarbreyting gerð fyrst æðsta
stjórnvald í iðnaðar- og orkumál-
um var ekki með í spilinu?
Þegar þetta háa stjórnarvald
leggur frumvarpið að heimildar-
lögunum fyrir Alþingi á sínum
tíma eru fluttar framsöguræður í
báðum deildum en þar er hvergi
minnst á þessa breytingu á raf-
magnssamningnum. Alþingismenn
fengu þó í hendur allt pappírsflóð-
ið, alla hliðarsamningana, þar á
meðal rafmagnssamninginn og
viðaukann, en orðalagsbreytingin
úr tilkynningu í samþykki hefur
farið fram hjá þeim. Af þeim
ástæðum kemur málið upp núna
eins og skrattinn úr sauðarleggn-
um.
Reykjavík, 5. febrúar 1979,
Ingi R. Helgason.
Rjóma- og smjör-
notkun vaxandi
INNVEGIÐ magn mjólkur hjá
mjólkursamlögunum var á síð-
asta ári 4,7 milljónum lítra meira
en árið 1977 eða 4.1% aukning,
samtals 120.172.100 lítrar. Sala á
neyzlumjólk varð heldur minni
og nokkur samdráttur varð einn-
ig á undanrennusölu eða um 14%.
í fréttabréfi upplýsingaþjónustu
landbúnaðarins kemur fram að
nokkur aukning neyzlumjólkur
hafi orðið mánuðina september til
desember miðað við sömu mánuði
árið áður. Nam sú aukning 1,6%
hjá Mjólkursamsölunni í Reykja-
vík, en sala á undanrennu minnkar
sífellt. Aukning á rjómasölu varð
9%, seldir tæplega 1,9 milljón 1.
Sala á 20% og 30% ostum minnk-
aði nokkuð en söluaukning var
hins vegar í 45% ostum. Samtals
jókst ostaframleiðslan um 29,2%
og var útflutningur 68% meiri en
árið áður. Birgðir um síðustu
áramót voru 1227 lestir. Smjörsal-
an nam 1.510 lestum sem er 19,4%
meira en árið 1977 og voru fram-
leiddar 1.742 lestir sem er 4,4%
minnkun og voru birgðir í árslok
1.331 lest.
Ný norræn könnun í undirbúningi:
Alagning og kostnaðar-
liðir verzlunarinnar það
sem næst á að kanna
„ÞAÐ er byrjað að leggja drög að
næstu norrænu verðkönnun og
hún verður hugsanlega gerð í vor
eða sumar," sagði Georg Ólafsson
verðlagsstjóri í samtali við Mbl. í
gær.
Georg er nýkominn af fundi
verðlagsyfirvalda Norðurlanda, en
þar var m.a. rætt um áframhald á
samvinnu verðlagsyfirvalda á öll-
um Norðurlöndunum um verð-
kannanir í hverju Norðurlandanna
fyrir sig og samanburð milli þeirra
á einstökum þáttum verðlagsmál-
anna. Aðspurður sagði verðlags-
stjóri að líklega myndi næsta
könnun beinast að kostnaðarliðum
verzlunarinnar í hverju landi fyrir
sig, og álagningu og samanburður
gerður þar á.
Flugmannaverkfallið:
Tillögur félagsmálaráð-
herra hjá
MAGNÚS Magnússon félags-
málaráðherra lagði fyrir rfkis-
stjórnina í gærmorgun tillögur
til lausnar í verkfalli flugmanna
innan F.Í.A. er fljúga hjá Flug-
félagi íslands, en að sögn ráð-
herra voru tillögurnar ekki aí-
greiddar.
ríkisstjórn
Magnús Magnússon kvaðst ekki
vilja tjá sig um efni tillagnanna en
gerði ráð fyrir að þær yrðu af-
greiddar frá ríkisstjórninni á
fundi hennar á morgun, fimmtu-
dag. Sáttafundur hefur ekki verið
boðaður milli deiluaðila.
Komust klakklaust
inn til Húsavíkur
HÚKavfk. 6. fobrúar.
RÆKJUBÁTARNIR sex sem lentu
í óveðrinu á leið heim úr Öxarfirð-
inum lágu í vari fram yfir mið-
nætti, en þá hafði lægt það mikið
að bátarnir héldu heim á leið.
Voru beir komnir til Húsavíkur
um miðja nótt og fannst sjómönn-
unum ekki tiltakanlega mikill sjór
á heimleiðinni. Þeim, sem fylgdust
með ferðum bátanna úr landi,
fannst hins vegar nóg um. Ekki
urðu skemmdir á neinum bátanna,
sem lentu í þessu óvænta veðri.
Fréttarjtari
Stjómarfrumvarp um
húsaleigusamninga
LAGT hefur verið fram á Alþingi stjórnarfrumvarp til laga um
húsalcigusamninga. Var frumvarp þetta samið af nefnd er skipuð var
til að semja frumvarp um réttindi og skyldur leigutaka og leigusala
húsnæðis. Skipuðu nefndina Páll S. Pálsson hrl. eftir tilnefningu Hús-
og landeigendasambands íslands, Ragnar Aðalsteinsson hrl. eftir
tilnefningu Leigjendasamtakanna og Sigurður E. Guðmundsson
framkvæmdastjóri er jafnframt var skipaður formaður nefndarinnar.
Frumvarpinu er skipt í kafla og
er fjallað um gerð leigumála,
uppsögn leigumála og leigufar-
daga, riftun leigumála, afhendingu
og skil leiguhúsnæðis, viðhald
leiguhúsnæðis, um rekstrarkostn-
að, umgengnisskyldur og réttindi,
greiðslu og tryggingarfé, leigu-
miðlun o.fl.
I greinargerð með frumvarpinu
eru rakin þau lög er gilt hafa um
húsaleigusamninga oggerir nefnd-
in jafnframt grein fyrir störfum
sínum. Viðaði hún að sér ýmsum
upplýsingum og sendi fyrirspurnir
til kaupstaða landsins til að afla
svara við spurningum um hvort
skortur væri á leiguhúsnæði,
hvaða ráðstafanir hefðu verið
gerðar í því sambandi og annarra
gagna. Höfðu borist svör frá 11
aðilum og segir í greinargerðinni
að þau gefi glöggt til kynna að
hvarvetna sé talin mikil þörf á
leiguhúsnæði og alls staðar meiri
eftirspurn en framboð, þótt bygg-
ing leiguíbúða sveitarfélaga utan
Reykjavíkur hafi bætt nokkuð úr.
Helzta nýmæli frumvarpsins er
ákvæði um leigumiðlun og er talið
í greinargerðinni að leigumiðlarn-
ir er starfi eftir ákveðnum reglum
og undir stjórn traustra aðila geti
orðið til mikils gagns.
Lumenition
EKKI BARA
TRANSISTOR-
KVEIKJA
LUMENITION, platínulausa transis-
tor-kveikjan, er með photocellustýr-
ingu, sem gerir hana óháða sliti og
slípunargöllum í upphaflegu kveikj-
unm.
Það er LUMENITION-kveikjan, sem slegið hefur í
gegn á íslandi.
aaB^ina^ habercm
iSkeifunni Je Slmi 3-33'45
Söngmenn
Karlakór Reykjavíkur
óskar eftir söng-
mönnum.
Upplýsingar í sírna
35612, 81018 og
18499.
'Lumenition
START-
ERFIÐLEIKAR?
LUMENITION kveikjan sparar ekki bara bensín.
Margir kaupa búnaöinn beinlínis til pess að
komast hjá vandræðum við gangsetningu og
kaldakstur.
Vertu öruggur, kauptu LUMENITION.
HABERGHi
iSkeifunni 3e-Sbni 3 33-45i
Útsala
Allskonar fatnaöur. Gömlu fötin eru nú nýjasta
tískan. Notið tækifæriö. Ungir sem eldri, dömur
og herrar.
Andrés Skólavörustíg 22.
Vörubíll til sölu
Volvo FB 86 árg. 1973. í góöu standi. Keyröur
200 þús. Upplýsingar í síma 5841, Hellu.
Lumenition'
VILTU
BENZÍN-
AFSLÁTT?
LUMENITION kveikjubúnaðurinn nýtir
benzínið betur.
Mælingar staðfesta, að benzínsparnaðurinn vs.
er á bilinu 9—16%, að meðaltali.
Miðað við benzínlítrinn kosti kr. 200, sparast
pannig, að meðaltali, yfir kr. 20 á hvern líter.
flaift«rf r, Ut*rar-M
iSkeifunni 3e-Simi 3-3345