Morgunblaðið - 07.02.1979, Side 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGÚR 7. FEBRÚAR 1979
I
Týrarar stóðu
í Valsmönnum
VALSMENN voru nokkuð lengi
að ná almennilegu taki á Týrur-
um í bikarleiknum í Eyjum um
helgina. í lokin skildu 5 mork, en
Týr, sem leikur í 3. deild, leiddi
næstum allan fyrri hálfleik. 550
manns tróðu sér í Höllina f Eyjum
og er það mun meira heldur en
gengur og gerist í fyrstu deildar
leikjum þessa dagana. Þeir sneru
flestir ánægðir heim, því að þrátt
fyrir tap, stóðu Týrarar sig með
mikilli prýði í leiknum og komu
Valsmönnum í opna skjöldu, eink-
um framan af leiknum. Lokatöl-
urnar urðu 20—15, en staðan í
hálfleik var 9—8 fyrir Val.
Ef gangur leiksins er rakinn í
stuttu máli, þá komust Valsmenn í
3—1, en með seiglu tókst Týrurum
að jafna 3—3. Síðan höfðu heima-
menn eitt mark yfir þar til rétt
fyrir leikhlé, síðast stóð 8—7 fyrir
Tý, en Valsmenn skoruðu tvö
síðustu mörkin í fyrri hálfleik og
höfðu því forystu í hálfleik. Fyrstu
10 mínútur síðari hálfleiks voru
Valsarar enn í basli að hrista 3.
deildarmennina af sér og stóð þá
13—11. En þá tók Jón Pétur
Jónsson sig til og með einstakl-
ingsframtaki skoraði hann hvert
snilldarmarkið af öðru. Komust
Valsmenn við þetta í 16—11 og
voru úrslit þá ráðin. En Týrarar
gáfust ekki upp og slepptu Vals-
mönnum ekki lengra frá sér, loka-
tölurnar 20—15 fyrir Val.
Týrarar komu Valsmönnum á
óvart með sterkum leik, einkum
var varnarleikurinn góður í fyrri
hálfleik. Gengu þá leikkerfi Vals-
manna ógjarnan upp og eins og
fram hefur komið var það fyrir
einstaklingsframtak Jóns Péturs,
að Valsmenn gerðu út um leikinn.
Að öðrum leikmönnum Týs ólöst-
uðum, var markvörðurinn Egill
Steinþórsson langbestur, varði
frábærlega. Jón Pétur var bestur í
Valsliðinu, sem lék með allar sínar
stórstjörnur, að Ólafi Benedikts-
syni undanskildum. Brynjar stóð í
markinu og stóð sig vel, en Jón
Breiðfjörð hljóp tvisvar inn á til
þess að verja vítaköst.
Mörk Týs: Sigurlás Þorleifsson
5, Helgi Ragnarsson og Logi
Sæmundssen 3 hvor, Magnús Þor-
steinsson 2, Ingibergur Einarsson
og Þorvarður Þorvarðarson eitt
hvor.
Mörk Vals: Jón Pétur 8, Steindór
Gunnarsson 4, Jón Karlsson 3,
Bjarni Guðmundsson 2, Þorbjörn
Guðmundsson 2 og Gísli Arnar 1
mark. HKJ/— gg.
Hart barist á meistara-
móti Reykjavíkur í
borðtennis
MEISTARAMÓT Reykjavíkur í
borðtennis íór fram í Laugardals-
höllinni um síðustu helgi. Alls
voru 78 þátttakendur skráðir til
leiks og var mikil barátta í öllum
flokkum. Sýndi borðtennisfólkið
oft mjög skemmtileg tilþrif, og
var oft unun að sjá keppnisskapið
í þeim yngstu og einbeitnina.
Reykjavíkurmeistari í einliða-
leik karla varð Hilmar Konráðs-
son Víkingi en hann sigraði
Hjálmar Aðalsteinsson í úrslita-
Stuttar neglur eru ekki
lengur vandamál.
Snyrtum neglur, gerum
viö brotnar neglur og
lengjum neglur.
Tímapantanir í síma
17445.
Snyrtistofan
i744ö//') '
/ u i /# f' y/\td *
IWlUUZjls/i
Laugavegi 19 Reykjavík
msuw
AFL
FRAM-
FARA
MANNHEIM
4-gengis Diesel-vélar fyrir
hjálparsett.
33 hesta við 1500 sn.
39 hesta við 1800 sn.
43 hesta við 2000 sn.
44 hesta við 1500 sn.
52 hesta við 1800 sn.
57 hesta við 2000 sn.
66 hesta við 1500 sn.
78 hesta við 1800 sn.
86 hesta viö 2000 sn.
100 hesta við 1500 sn.
112 hesta viö 1800 sn.
119 hesta við 2000 sn.
meö rafræsíngu og sjálf-
virkri stöðvun.
*fcSTU«GOTU 16 - SÍMAR 14680 - 214« — ROf ðfe-.
leik 17-21, 21-19, 21-17 og
21—9.
Úrslit í Reykjavíkurmótinu í
borðtennis:
Einliðaleikur karla:
Hilmar Konráðsson Víkingi
Hjálmar Aðalsteinsson KR
Gunnar Finnbjörnsson Erninum
Guðmundur Marinósson KR
Tvíliðaleikur karla:
Ragnar Ragnarsson og Gunnar
Finnbjörnsson Erninum
Hilmar Konráðsson og Hjálmar
Aðalsteinsson KR
3—4 sæti urðu Birkir Þ. Gunnars-
son og Gunnar Birkisson Erninum
og Jóhann Örn Sigurjónsson og
Þórður Þorvarðarson Erninum.
Old Boys:
Jósep Gunnarsson KR
Þórður Þorvarðarson Erninum
Einliðaleikur kvenna:
Nanna Harðardóttir Víkingi
Guðbjörg Stefánsdóttir Fram
Tvíliðaleikur kvenna:
Guðbjörg Stefánsdóttir og Hrafn-
hildur Jónsdóttir Fram
Tvenndarkeppni:
Hilmar Konráðsson og Nanna
Harðardóttir Víkingi
Hrafnhildur Jónsdóttir og Gunnar
Andrésson Fram
Einliðaleikur unglinga 15 — 17
ára:
Örn Fransson KR
Þorfinnur Guðmundsson Víkingi
Tvíliðaleikur unglinga 15 — 17
ára:
Vignir Kristmundsson Erninum
og Þorfinnur Guðmundsson Vík-
ingi
Örn Fransson og Tómas Sölvason
KR - þr.
Halldór Matthíasson
Spennandi
punktamót
PUNKTAMÓT á skíðum fór
fram í Bláfjöllum laugar-
daginn 3. febrúar siðastliðinn.
Skíðafélag Reykjavíkur, Fram
og Hrönn sáu um framkvæmd
mótsins. Úrslit urðu:
Flokkur 20 ára og eldri: mín
1. Halldór Matthíass.Rvík 42,24
2. Ingólfur Jónsson — 44,10
3. Haukur Sigurðss. Ólafsf. 44,39
4. Þröstur Jóhannss.ísaf. 45,02
5. Bragi Jónsson Rvík 49,29
6. Valur Valdemarss. Rvík 50,52
7. Páll Guöbjörnss. Rvík 51,00
8. Guöjón
Höskuldss. ísaf. 51,19
9. Óskar Kárason ísaf. 52,28
10. Hreggviður
Jónss. Rvík 58,15
12 keppendur voru íkráöir,
en einn mætti ekki og annar
lauk ekki keppni.
Flokkur 17—19 ira:
1. Guðmundur mín
Garðarss. Ólafsf. 29,01
2. Gottlieb Konráðss.Ólafsf. 29,26
3. Jón Konráösson Ólafsf. 29,53
4- Hjörtur Hjartars. ísaf. 31,24
5. Jón Björnsson ísaf. 32,02
6. Aðalsteinn
Guðm.son Reykv. 37,25
Körfu
punktar
... Framarinn Simon Ólafs-
sson mun hafa slitið liðbönd í
ökla á æfingu f vikunni og var
skorinn upp við meininu. Er
þetta afar slæmt fyrir Símon,
og Fram, en þessi sterki leik-
maður átti öruggt sæti í lands-
liðshópi, sem fregnir herma að
hafi verið valinn en ekki hefur
fengist staðfest hverjir séu í.
...Fregnir herma að 1.
flokkur KR hafi sigrað ÍBK,
sem leikur í 1. deild f 1. umferð
bikarkeppninnar með 78 stig-
um gegn 69. í þeim leik varð
KR-ingurinn góðkunni Bjarni
Jóhannesson fyrir því óláni að
snúa sig illilega og jafnvel
talið að liðbönd hafi slitnað.
Ekki hefur KKÍ látið neitt
heyra í sér varðandi þessa
bikarkeppni, en flogið hefur
fyrir að búið sé að draga út
aila keppnina, sem f sjálfu sér
er mjög óheppilegt þar sem
keppnin missir við þetta nokk-
uð af „sjarma“ sínum. Auk
þess gætu laumast að grun-
semdir að raðað hafi verið
niður leikjum til að fá örugg-
lega spennandi úrslitaleik!
... Svonefnd landsliðsnefnd
KKÍ mun nú vera að rumska
og í bígerð er að velja lands-
liðshóp og ráða landsliðsþjálf-
ara. Heyrst hefur að þjálfari
ÍR-inga, Paul Stewart, komi
sterklega til greina í það starf.
Þó mun það ekki þykja nægi-
lega gott, að Skotar, sem taka
ásamt íslendingum þátt í móti
í Englandi, vilja nota Stewart í
lið sitt, en sem kunnugt er
mun Stewart vera af Skotum
kominn.
gíg.
Völsungar á
grænni grein
LEIKUR helgarinnar í blakinu var viðurcign Völsunga og Þróttar í
fyrstu deild kvenna. Með sigri í leiknum gátu Völsungar svo gott sem
tryggt sér sigur í deildinni, en margir áttu von á að Þróttar-konurnar
væru líklegar til að gera Völsungunum lífið leitt. Svo fór þó eigi og
Völsungar unnu Þrótt frekar örugglega 3—0. Hrinurnar voru allar
lengst af mjög jafnar, en Þrótt vantaði herslumuninn og sigruðu
Völsungarnir því 15—11,15—11 og 15—10. Völsungar standa því með
pálmann í höndunum, eiga að vísu eftir að leika tvo leiki, en ekki er
gert ráð fyrir að þeir verði erfiðir.
I fyrstu deild karla tóku stúdentar sig verulega saman í andlitinu og
unnu Mími örugglega 3—0 austur á Laugarvatni. Hrinurnar enduðu
15—4,15—12 og 15—0. Á miðvikudagskvöldið leika ÍS og Valur síðan
í Hagaskólanum. Sigri Þróttarar standa þeir sérlega vel að vígi og
íslandsbikarinn verður kominn meira en hálfa leið. Sigri ÍS hins vegar
opnast keppnin upp á gátt.
Þrír aðrir leikir fóru fram um helgina. í fyrstu deild kvenna vann
Þróttur ÍMA 3—1. í annarri deild karla fóru Víkingar norður, léku
bæði við ÍMA og KA og unnu báða leikina 3—0. Vel gert. Stefnir nú
allt í úrslitaleik Víkings og Fram í 2. deild karla. GA/ —gg.
Tilboð óskast
í hita- og loftræstitæki fyrir nýbyggingu
Fjóröungssjúkrahússins á Akureyri. Útboösgögn
eru afhent á skrifstofu vorri Borgartúni 7,
Reykjavík.
Tilboö veröa opnuö þriöjudaginn 6. marz 1979,
kl. 11:00 f.h.
INNKAUPASTOFNUN RIKISINS
BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844 PÓSTHÓLF 1441 TELE-X 2006
KR skoraði odda-
markið af 15
SUMA handboltaleiki ætti ekki
að selja inn á. Miklu fremur ætti
að verðlauna þá sem nenna að
sitja yfir þeim til enda. Sumir
handboltaleikir eru það lélegir.
Kannski er hér tekið fulldjúpt í
árinni, en undirritaður hyggur
þó, að KR- og Haukastúlkurnar
hljóti að verða fyrstár til að
viðurkenna, að leikur þeirra var
afar slakur og bæði liðin eru fær
um að leika mun betur en þau
gerðu þegar þau leiddu saman
hesta sína í Höllinni á laugardag-
inn. KR lagði Hauka 8—7. Staðan
í hálfleik var 5—3 fyrir KR.
KR verðskuldaði sigurinn fylli-
lega, liðið virðist vera meira en
einu marki sterkara en Haukalið-
ið, sem virðist standa og falla með
einni konunni, Margréti nokkurri
Theodórsdóttur. Hún átti afleitan
leik að þessu sinni og því Hauka-
liðið allt. Forysta KR varð mest 3
mörk, 6 —3 en minnst eitt mark í
lokin 7—6 og loks 8—7. Það er vart
hægt annað en að bera markatöl-
una saman við bikarúrslitin hjá
Víkingi og ÍBK fyrir nokkrum
dögum, en þeim leik lauk með sigri
Víkinga 33—14!
Karólína átti þokkalegan leik
hjá KR, en Hansína var í daufara
lagi, og aldrei þessu vant ekki
markhæst hjá KR. Eins og fyrr
segir var Margrét Theodórsdóttir
eitthvað illa fyrir kölluð að þessu
sinni og því hvíldi mikið og mæddi
á Halldóru Matthiesen. Komst hún
vel frá leiknum. Þá er vert að geta
markvarðar Hauka, annars
tveggja- Sú sem um er að ræða
heitir Sóley og er aðeins 14 ára
gömul og þegar það er haft í huga,
eru fáir markverðir henni fremri í
1. deild., Hún varði ágætlega í
leiknum, m.a. eitt vítakast. Mark-
vörður KR hirti og tvö víti.
Mörk KR: Karólína 3 (1 víti),
Hansína og Arna 2 hvor og Hjör-
dís 1 mark.
Mörk Hauka: Halldóra 4 (2 víti),
Margrét 2, Guðrún eitt mark.
—gg.