Morgunblaðið - 18.03.1979, Qupperneq 21
anna í þjóðfélaginu um þessar
mundir, og hefur raunar verið það
um áratuga skeið. Menn skyldu
ekki gleyma því að hér á landi var
tiltölulega gott ástand í efnahags-
málum árið 1971, þegar Ólafur
Jóhannesson varð fyrst forsætis-
ráðherra, enda hafði Framsóknar-
flokknum þá verið haldið utan
stjórnar nokkuð á annan áratug.
Efnahagsiíf landsmanna fór fyrst
úr skorðum eftir að vinstri stjórn
Ólafs tók við, þá fyrst fór óðaverð-
bóigan að geysa hér á landi. Menn
skyldu einnig hafa það hugfast, að
það var einnig Ólafur Jóhannesson
og Framsóknarflokkurinn sem
komu í veg fyrir að nauðsynlegar
ráðstafanir voru gerðar á síðasta
kjörtímabili, þegar samstjórn
Sjálfstæðisflokks og Framsóknar-
flokks var við völd. Allar nauðsyn-
legar úrbætur voru eitur í beinum
framsóknarmanna vegna þess að
þær staðfestu óstjórn Vinstri
stjórnarinnar og vegna þess að
draga átti Sjálfstæðisflokkinn
niður á sama lága planið og þeir
voru og eru sjálfir á.
Er Framsóknarflokkurinn virki-
lega sá flokkur sem dagblaðið
Vísir telur líklegastan til að sigla
þjóðarskútunni rétta leið?
Hvað Alþýðuflokkinn varðar, þá
verður ekki í fljótu bragði séð hvað
sú stofnun getur gott gert í þágu
efnahagslegra framfara þjóðar-
búsins. Flokkurinn er svo ósam-
stæður og sjálfum sér ósamkvæm-
ur að hann er gersamlega ófær um
Dagur
Ítalíu
Morgunblaðinu hefur
borist eftirfarandi
fréttatilkynning frá
Ferðaskrifstofunni
Útsýn:
„Ferðaskrifstofan ÚTSÝN efnir
í samvinnu við ferðamálayfir-
völd á Ítalíu til Italíukynningar
í Súlnasal Hótel Sögu ídag, 18.
marz.
Klukkan 14.00 hefst ókeypis
skemmtun fyrir alla fjölskyld-
una í Súlnasalnum. Börn innan
15 ára fá þó aðeins aðgang í
fylgd með fullorðnum. Sýnd
verður kvikmynd frá Feneyj-
um, allir gestir fá ókeypis
happdrættismiða, og eru
vinningar ítölsk leikföng og
meira að segja Italíuferð að
vermæti 150 þúsund krónur.
Nýkjörnir Islandsmeistarar
unglinga í diskódönsum sýna
listir sýnar.
Einnig verður bingó með
leikföngum og ferðavinningum.
Auk þess fá börnin smágjafir.
Léttar veitingar verða á boð-
stólum og verður húsið opnað
kl. 13.30. Sökum mikillar að-
sóknar er fólki ráðlagt að panta
borð fyrirfram hjá yfirþjóni í
Súlnasal.
Klukkan 19.00 verður húsið
opnað að nýju og kl. 19.30
stundvíslega hefst ítölsk hátíð
með ítölskum drykkjum og
kvöldverði. Aðgangseyrir er
enginn, aðeins rúllugjald, og
matarverð aðeins 3.500 krónur.
Auk myndasýningar og kynn-
ingar á nýútkominni ferða-
áætlun Útsýnar verða fjöl-
breytt skemmtiatriði, tízku-
sýning á ítölskum klæðnaði,
tveir einsöngvarar Hjálmtýr
Hjálmtýrsson, tenór og Soffía
Guðmundsdóttir, sópran,
syngja íslensk og ítölsk lög,
sigurvegarar í c-riðli
diskó-danskeppni Útsýnar og
Klúbbsins sýna nýjustu dans-
tízkuna, spilað verður bingó
með 4 utanlandsferðum í
vinninga. Að auki verður
fegurðarsamkeppni og allir
gestir kvöldsins eru þátt-
takendur í ókeypis happdrætti,
þar sem dregið verður um tvær
Italíuferðir.
A milli skemmtiatriða og í
lokin verður dansað til kl.
01.30.“
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 18. MARZ 1979
21
Anders Hansen
að takast á við nokkur meiriháttar
verkefni á sviði landsmála. Flokk-
urinn skiptist í hóp auglýsinga-
skrumara annars vegar og nokkra
hægfara þingmenn hins vegar, en
yfir þeim er síðan grútmáttlaus og
áhrifalaus forysta sem engu ræður
og ekkert getur.
Félagsskapur við Alþýðuflokk-
inn í hans núverandi mynd er ekki
það sem Sjálfstæðisflokkinn
skortir mest þessa stundina.
Aðhald í peningamálum, sam-
dráttur í ríkisumsvifum, verð-
trygging skulda, frjáls verðmynd-
un og frjálsir kjarasamningar er
vissulega það sem koma skal, en
því aðeins verður eitthvað af því
að veruleika, að Sjálfstæðisflokk-
urinn sé ótvírætt forystuafl í
íslenskum stjórnmálum. Valið
stendur því milli Sjálfstæðis-
flokksins og annarra flokka.
Sjélfstæðisflokkurinn
erreiðubúinn
Alþýðubandalagið og Alþýðu-
flokkurinn unnu kosningasigra á
fölskum forsendum síðast liðið
vor. Þeir hafa svikið öll helstu
kosningaloforð sín, og með tilstyrk
Framsóknarflokksins hefur verið
við völd í landinu einhver versta
stjórn sem sögur fara af síðan í
haust. Er þá langt gengið ef þessi
ríkisstjórn er verri en allar aðrar,
ef hafðar eru í huga fyrri vinstri
stjórnir.
Það er því ekki nema eðlilegt og
sjálfsagt að kjósendum verði gef-
inn kostur á að segja sitt álit á
þessari stjórn áður en önnur tekur
við, hvort sem það nú verður fyrr
eða seinna. Eðli lýðræðisins blátt
áfram gerir ráð fyrir því að
ríkisstjórnir séu metnar að verð-
leikum hverju sinni, að menn verði
dæmdir af verkum sínum.
Sjálfstæðisflokkurinn er reiðu-
búinn að ganga til kosninga og
leggja stefnu sína undir dóm
kjósenda. Stefna flokksins er skýr
og sjálfstæðismenn standa sam-
einaðir um öll þau meginmál er
einhverju skipta. Allt tal um að
flokkurinn sé í sárum eftir ósigur-
inn síðastliðið vor er út í hött, og
allt tal um að flokkiurinn ætti ekki
að leggja út í kosningar nú er
fáránlegt. Frjálslyndir menn
þurfa á öðru að halda en slíkum
úrtöluröddum nú á dögum sívax-
andi skattheimtu og miðstýringar.