Morgunblaðið - 18.03.1979, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 18. MARZ 1979
23
Austurríkis-
vika á Hótel
Loftleiðum
í kvöld, föstudag, hefst á Hótel
Loftleiðum Austurríkisvika sem
stendur fram á sunnudaginn 25.
þessa mánaðar. Það eru Plugleiðir
sem standa að þessari kynningu og
munu koma þar fram listamenn
frá Austurríki, framreiddur verð-
ur matur þaðan og hefur sérstakur
matseðill verið pantaður í tilefni
þessa. Matseðill þessi gildir sem
happdrættismiði og verður dregið
á hverju kvöldi um þjóðarköku
Austurríkismanna, svokallaða
Sachertorte.
Síðasta kvöldið verður svo dreg-
ið úr öllum númerum matseðla
sem látnir hafa verið gestum i té
og eru verðlaunin far fyrir tvo til
Austurríkis.
I ráðstefnusal hótelsins munu
fara fram kvikmyndasýningar
meðan á kynningunni stendur.
Blómasalurinn opnar klukkan 19
alla dagana.
yngstur er Víkingur bóndi að
Arnórsstöðum á Jökuldal.
Mér fannst alltaf mikil reisn
yfir ömmu. Hún var ekki stór
kona, en hún var hnellin og björt
yfirlitum. Það var kraftur í kellu
og það gustaði af henni þegar hún
stormáði um húsakynni í Stóra-
gerði. Aldrei fannst mér henni
fallast verk úr hendi þau sumur
sem ég var hjá henni í sveit. Alltaf
var hún að allan daginn og ég man
hvað það létti alltaf yfir mér þegar
hún birtist á bæjarhólnum og
kallaði á okkur í mat eða mið-
aftanskaffi.
Amma var greind og hrein-
skiptin. Hún sagði sínar skoðanir
tæpitungulaust, hver sem í hlut
átti, og hafði sérstaklega skemmti-
legan frásagnarmáta. Ég kunni
ekki að meta þetta þegar ég var
hjá henni strákurinn, en síðar
þegar fundum okkar bar saman
kunni ég að meta samræður við
gömlu konuna. Minni hennar var
svo einstakt. Hún mundi löngu
liðið, rétt eins og það hefði gerst í
gær, og það í smáatriðum og upp á
hár. Það bar líka oft við, þegar
börnin hennar voru að minnast
liðinnar tíðar, að þeim bar ekki
saman. Þá var leitað til gömlu
konunnar og þar var ekki komið að
tómum kofanum.
Jæja amma mín, þá er komið að
kveðjustund. Einhvernveginn
finnst mér öðruvísi að fara austur
núna eftir að þú ert farin. Mér
finnst eins og það hafi verið slitnir
þeir leyniþræðir, sem hafa tengt
mig við Hérað. 0, mikil endemis
vitleysa er þetta í þér drengur,
hefðir þú efalaust sagt og ef til vill
með réttu, því víst á ég marga
góða vini að á Héraði. Amma mín,
hafðu þökk fyrir allt.
Hvíi í friði.
Gísli Sigurgeirsson
Nokkur kveðjuorð:
Dagný Pálsdóttir,
Skógargerði
Amma í Skógargerði er horfin
yfir móðuna miklu, þar sem hún
hittir afa fagnandi í varpa. Nú
geta þau aftur tekið til við að ræða
áhugamál sín, rétt eins og þau
gerðu í eldhúsinu í Skógargerði
þegar ég var hjá þeim í sveit
strákurinn. „Dagný var gæfa lífs
rníns," sagði afi einhverju sinni.
Amma lést á Sjúkrahúsinu á
Egilsstöðum að morgni fimmtu-
dagsins 1. mars, þar sem sem hún
hafði dvalið undanfarið. 4. mars
hefði hún orðið 94 ára. Hún hafði
skilað sínu hlutverki með miklum
sóma. Hún var svo lánsöm að
halda andlegu og að mestu líkam-
legu atgerfi fram á síðasta dag,
þótt hún ætti erfitt með að skilja
þessa „vellu“, sem hún hafði haft
síðustu vikurnar og aldrei ætlaði
að lagast. Hún kvaddi sátt við Guð
og menn.
Amma var fædd að Hólum í
Hornafirði 4. dag marsmánaðar
1895. Foreldrar hennar voru Páll
Þorsteinsson frá Núpum í Fljóts-
hverfi og kona hans Margrét
Ólafsdóttir bónda frá
Syðri-Steinsmýri. Páll var bóndi
að Fossi á Síðu og víðar, en eftir
harðindin 1881-82 flutti fjölskyld-
an að Hólum í Hornafirði. Þar
fæddist amma og var hún 13. barn
þeirra hjóna.
A Hólum var dvölin ekki nema 3
ár. Þaðan var flutt upp á Fljóts-
dalshérað og dvalið þar á ýmsum
stöðum, þar til staðnæmst var að
Krossi vorið 1893. Þar lést Páll
faðir ömmu minnar úr skæðri
inflúensu, sem geisaði um héraðið.
Eftir það dvöldu amma og móðir
hennar hjá Páli bróður ömmu ,
fyrst að Birnufelli, en síðar að
Krossi.
Haustið 1903 hélt amma til
náms í Kvennaskólanum á Blöndu-
ósi og nam þar í tvo vetur. Að
sumrinu var hún kaupakona að
Ási í Vatnsdal. Fyrir skólakostn-
aðinum hafði hún unnið í kaup-
mennsku, m.a. á Rangá, áður en
hún hélt til skólans. Frá Blönduósi
fór amma til Reykjavíkur, þar sem
hún lærði fatasaum. Þegar kom
heim á Hérað gerðist hún kaupa-
kona, m.a. á kirkjusetrinu Kirkju-
bæ í Hróarstungu.
Haustið 1908, nánar tiltekið 3.
nóvember, giftist amma afa mín-
um, Gísla Helgasyni i Skógargerði.
Fór vígslan fram að Rangá og var
mikil veisla, að því er amma sagði
mér.
Byrjuðu þau hjónin búskap í
Skógargerði eftir brúðkaupið. Afi
hafði keypt jörðina af Sölva
Einarssyni á Hofi í Fellum fyrir
1800 krónur, sennilega 1906. Áður
höfðu foreldrar hans verið leigu-
liðar á jörðinni. í Skógargerði
bjugggu afi og amma allan sinn
búskap, þar farnaðist þeim vel, þó
ekki söfnuðu þau auði, sem mölur
og ryð fá grandað. Þeim fæddust
þar 13 börn, sem öll komust á legg.
Þau eru: Margrét búsett á Egils-
stöðum, Helgi á Helgafelli við
Lagarfljótsbrú, Páll á Aðalbóli í
Hrafnkelsdal, Hulda búsett á
Akureyri, Björgheiður, sem lést
1955 aðeins fertug að aldri,
Sigríður búsett í Reykjavík,
Guðlaug búsett að Moshvoli í
Rangárvallasýslu, Þórhalla búsett
í Reykjavík, Bergþóra búsett í
Ameríku, Sólveig búsett í Reykja-
vík, Ólöf búsett í Reykjavík,
Indriði búsettur í Reykjavík og
tilböó
Fermingargjöfin í ár
325.000 kr.
sambyggt
stereosett á
220.530
60%
Hvernig
MEÐ ÞVÍ AÐ:
1 Gera sérsamning við verksmiöjuna.
2 Forðast alla milliliöi.
3 Panta verulegt magn meö árs fyrirvara.
4 Flytja vöruna beint frá Japan meö
Síberíu-lestinni frægu til Þýzkalands
sjóleiöina til íslands.
Lang hagkvæmasta flutningaleiöin.
ALLT í EINU TÆKI
FRÁ CROWN Cf
Pantið
strax
ídag
afgang á 2 mánuðum
vaxtalaust
50°/(
50% út á 4 mánuðum
Staðgreiðsluafsláttur
BUÐIN
Skipholt 19
Sími29800
Einkaflugmannsnámskeið
Bóklegt námskeiö til undirbúnings fyrir einkaflug-
mannspróf hefst þriðjudaginn 20. marz n.k.
Þeir sem ekki eru nú þegar skráöir láti skrá sig.